Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 46
UMRÆÐAN 46 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ TRÚLEGA er hraðinn og óþreyj- an sem fylgir honum, mesta ógnunin við heilbrigða hugsun á Vesturlönd- um. Hraðinn er alls ráðandi á öllum sviðum og hrjáir menninguna. Fólk hefur varla tíma til að njóta þess sem er, af óþreyju eftir ein- hverju nýju. Þessi vandi bitnar á öllum samskiptum okkar og í rauninni allri hugsun. Ekki veit ég hvernig skólarnir bregðast við þessum vanda, hvort þeir líta á hann sem eðlilega þróun, eða hvað? Hefur nútíma- maðurinn tíma til að vera annað en neyt- andi? Eigum við kannske ekki að vera annað? Sá sem þetta skrifar, ólst upp í anda ung- mennafélaganna á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar, á heimili þar sem pabbinn spilaði á fiðlu og málaði í frístundum og mamman átti það til að setja saman hnyttnar vísur, hann veltir stundum fyrir sér lífinu og til- verunni. Enda þótt auraráðin hafi aldrei verið í samræmi við barna- fjöldann, var líf okkar menningarlíf á margan hátt. Sama má segja um aðr- ar alþýðufjölskyldur á tímum kreppunnar. Þó að skólamenntun væri af skornum skammti og stundum takmörkuð af heimilisástæðum, þá var ýmislegt í boði; til dæmis tóku margir listamenn nemendur; ég man sérstaklega eft- ir Kristni Péturssyni, sem bauð mér að koma heim til sín og sýna sér það sem ég var að myndast við að teikna, þó ég væri of ungur til að vera beinlínis í námi. Kristinn var góður og hvetjandi kennari og mjög trygg- lyndur. Pabbi var ekki hrifinn af þessum heimsóknum og fór að fara með mig til annarra listamanna, vina sinna. En fróðlegt væri ef góður fræðimaður tæki saman yfirlit um listfræðslu á landinu, áður en lista- skólarnir voru stofnaðir. Það var ekki síst fyrir hvatningu Kristins, að ég hóf nám í nýjum skóla sem Félag íslenskra frístundamálara stofnaði 1948. Félagið rak skólann af miklum metnaði en hann er nú Myndlistarskóli Reykjavíkur og starfar af miklum þrótti, síðustu árin í eigin húsnæði í JL-húsinu við Hringbraut. Bragi Ásgeirsson skrifar góða grein í Morgunblaðið 20. maí, Lista- skólar, þar sem hann segir frá sýn- ingum opinberu listaskólanna á höf- uðborgarsvæðinu. Grein Braga vekur þarfar spurningar um listnám. Hann hefur efasemdir um hið nýja húsnæði Myndlistarskóla Reykjavík- ur og er það umhugsunarefni fyrir nemanda skólans. Andinn í skólanum hefur frá upphafi verið mjög góður. Að vísu hefur hraðinn áhrif þar eins og annars staðar, hafði það kannske líka við byggingu hússins. sem var byggt á tíma mikilla umsvifa í hús- byggingum. Ef til vill ekki verið mikil smámunasemi í frágangi, t.d. á gólf- inu, sem er dálítið mishæðótt. Í hús- inu voru framleiddar vikurplötur sem voru aðaleinangrunarefni í hús- um, áður en plastið var tekið í notk- un. Segja má að núverandi húsnæði sé langt og mjótt, en húsnæðið í Tryggvagötu 15, gamla Sam- bandspakkhúsinu, var nálægt því að vera ferningslaga. Vera má að lögun hússins geti haft einhver áhrif á sam- skiptin innan skólans, en vonandi tekst að varðveita þann góða anda sem þar hefur ríkt. Að vísu settu stofnendur skólans, sem var góður hópur metnaðarfullra manna úr ýms- um starfsgreinum, svip á lífið fyrstu árin. Þá voru stundum haldin böll. Strax í upphafi voru þar mjög góðir kennarar. Í seinni hluta greinar Braga ræðir hann um listina frá upphafi og eðli hennar. Nemandi í myndlist frá æsku, fyrst í heimahúsum og síðan hjá mörgum góðum kennurum, en sem málar enn eins og pabbi kenndi honum, hefur óhjákvæmilega velt því fyrir sér hvað valdi áráttu sinni. Hug- leiðingar Braga eru áhugaverðar og hér með þakkað fyrir góða grein. Listin og skólarnir Helgi Jónsson List Hugleiðingar Braga, segir Helgi Jónsson, eru áhugaverðar. Höfundur er eldri borgari og nemi í myndlist. Aðalfundur Máka hf. verður haldinn föstudaginn 21. júní 2001 kl. 14.30 í eldisstöð MÁKA hf. í Fljótum. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins og hlutafélagalögum. 2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins að auka hlutafé félagsins um allt að 100 milljónir kr. Ennfremur að stjórn félagsins verði falið að ákvarða útboðsgengi hinna nýju hluta. 3. Önnur mál sem kunna að verða fram borin. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins ásamt ársreikningi munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins, Freyjugötu 9, Sauðárkróki. Stjórn Máka hf., Sauðárkróki.Hafnarfjörður Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag- anna og sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði Fundur — vorhátíð Í lok vetrarstarfsins boðar full- trúaráð sjálfstæðisfélaganna ásamt sjálfstæðisfélögunum FRAM, VORBOÐA, ÞÓR og STEFNI, til sameiginlegs fund- ar — vorhátíðar í TURNINUM, Fjarðargötu 13—15, 7. hæð, gengið inn frá Linnetsstíg, fimmtudaginn 7. júní nk. kl. 18.00. Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, ræðir landsmálin. Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri, ræðir bæjarmálefni. Haraldur Ólason kynnir undirbúning að komandi sveitarstjórnarkosningum vorið 2002. Fundarstjóri Valgerður Sigurðardóttir. Í lok fundarins verður mexíkóskt hlaðborð fyrir 1.900 kr. á mann. Þá verður slegið á létta vorhá- tíðarstrengi. Sjálfstæðisfólk, mætum öll og eigum saman ánægjulega kvöldstund fyrir sumarfrí. Undirbúningsnefndin. Aðalfundur Aðalfundur Þorgeirs & Ellerts hf. verður haldinn föstudaginn 15. júní 2001 klukkan 17.30 á skrif- stofu félagsins í Bakkatúni 26, Akranesi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein samþykkta félagsins. 2. Önnur mál. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félags- ins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn Þorgeirs & Ellerts hf. STYRKIR Til allra jazzleikara á Íslandi! Jazzhátíð Reykjavíkur 2001 auglýsir eftir um- sóknum um styrki frá íslenskum jazzleikurnum til tónlistarflutnings á hátíðinni sem verður haldin 5.—9. september nk. Alls er fyrirhugað að veita styrki að upphæð allt að 1 milljón ef umsóknir leyfa. Sérstök umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu FÍH að Rauðagerði 27. Einnig er hægt að sækja Word skjal til útfyllingar af vefsíðu hátíðarinnar, sem síðan er hægt að senda sem viðhengi með tölvupósti, með símbréfi eða almennum pósti. Eingöngu verður valið úr um- sóknum sem berast á til þess gerðum eyðu- blöðum. Skilafrestur umsókna er til kl. 17 þriðju- daginn 19. júní nk. Stjórn Jazzhátíðar Reykjavíkur Pósthólf 8955, 128 Reykjavík Sími 862 1402. Fax +1 603 843 6300. Netfang: Festival@ReykjavikJazz.com Veffang: http://www.ReykjavikJazz.com HÚSNÆÐI Í BOÐI Íbúð til leigu í Barcelona 3ja herb. falleg íbúð á einum besta stað í Barcelona til leigu í júlí. Stórar svalir — gasgrill — nettenging. Verð 100.000. Upplýsingar gefur Iðunn í netfangi: ijonsdott- ir@iese.edu . HÚSNÆÐI ÓSKAST Vandað leiguhúsnæði óskast Óskum eftir rúmgóðu húsnæði, helst í sér- býli, fyrir miðaldra hjón með tvö börn á skól- aaldri. Um er að ræða reyklausa og reglusama fjölskyldu sem leitar eftir vönduðu og rúmgóðu húsnæði til eins eða tveggja ára. Upplýsingar í síma 561 2428 eða netfang hollrad@hollrad.is . VEIÐI Laxveiðileyfi Til sölu laxveiðileyfi í Álftá á Mýrum og Brennu, ármót Þverrár og Hvítár, í Borgarfirði. Upplýsingar gefur Dagur Garðarsson í síma 568 1200 alla virka daga frá kl. 8—18. SMÁAUGLÝSINGAR KENNSLA ■ www.nudd.is FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12.Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60. Samkoma í kvöld kl. 20.30. Upphafsorð: Arna Ingólfsdóttir. Bandaríkjamaðurinn Dan Baumann, sem verið hefur kristniboði í Afganistan og Íran segir frá starfi sínu og flytur hug- leiðingu. Allir hjartanlega velkomnir. www.sik.is . 6. júní. Skógræktarferð í Heiðmörk. Fararstjóri er Eiríkur Þormóðsson. Brottför frá BSÍ kl. 20:00 og komið við í Mörkinni 6. Allir velkomnir. 9. júní laugardagur. Esjudag- ur. Minnum á hinn árlega Esju- dag Spron og F.Í. Gönguferðir yfir Esjuna, um Esjuhlíðar og um skógræktina að Mógilsá. Ath. breytt dagsetning. R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.