Morgunblaðið - 01.07.2001, Blaðsíða 41
ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2001 41
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólöf Erla Hauksdóttir 435 0095
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 451 2618 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Bára Sólmundsdóttir 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Arnheiður Guðlaugsdóttir 421 5135 862 0375
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Jónína M. Sveinbjarnardóttir 566 6082 868 7654
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Sveinbjörg Guðjónsdóttir 477 1841 896 0326
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjarney Ríkharðsdóttir 477 1687
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Jóhanna Konráðsdóttir 423 7708
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Jón Einarsson 456 2567
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um veru
franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sumar kl.
10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: alber-
te@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og
eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykjavík.
Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá 11. júní til 13.
ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Frá 21.5. til 19.8. er opið sem hér segir: mán.–fös. kl. 9–
17, lau. 10–14. Sun. lokað. Þjóðdeild og handritadeild lok-
aðar á laugard. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og
Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er
alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla
virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16.
Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á int-
ernetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtu-
daga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Netfang/
E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn@reykja-
vik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstudaga–mið-
vikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–
september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16
alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið
er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími
575-7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til
1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við
gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara.
Safnbúð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi,
kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eld-
horn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bré-
fas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða:
hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin:1. júní - 25. ágúst mánudaga -
laugardaga kl. 11.00 - 16.00
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pant-
að leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum
861-0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–
18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
Í SÍÐUSTU hugvekju er lítillega
minnst á konungsúrskurð frá
árinu 1785, þess efnis að leggja af
biskupsstól í Skálholti og flytja
stól og skóla til Reykjavíkur. Dr.
Magnús Jónsson, prófessor,
fjallaði um þessa konungs-
ákvörðun í ræðu, er hann flutti á
Skálholtshátíð árið 1956. Hátíðin
sú var haldin til að minnast níu
alda biskupsdóms á Íslandi. Dr.
Magnús sagði m.a.:
„Og svo hvarf Skálholtsstóll.
Og svo hurfu báðir hinir fornu
biskupsstólar – öll gjöf Gizurar.
Gizur hafði kveðið ríkt á, að í
Skálholti skyldi vera biskupsstóll
meðan landið væri í byggð. Enda
var hann ekki fyrr niður lagður
en þjóðinni var ekki hugað líf og
það var efst í hugum miskunn-
samra manna, að flytja leifar
þjóðarinnar í brott af landinu.
Þjóðin lá banaleguna. Konungs-
bréfið um afnám Skálholtsstóls
var í raun og veru dánartilkynn-
ing.“
Þetta vóru stórð orð. En af
ríku tilefni. Með konungsúrskurði
var endi bundinn, að því er virt-
ist, á 740 ára sögu Skálholtsstóls,
hvar setið höfðu 45 biskupar, 32 í
katólskum sið og 13 í lúterskum.
Skálholt og Hólar vóru í raun höf-
uðstaðir kirkju og mennta í land-
inu í meir en sjö aldir. En sagan
var ekki öll sögð. Dr. Magnús
Jónsson mælti síðan:
„En sú dánartilkynning var,
Guði sé lof, ekki annað en kvik-
saga. Þjóðin veitti viðnám. „Sjá
hér er ég, og neita því að deyja“,
lætur Tómas skáld Guðmundsson
þetta litla þjóðarbrot segja, sem
lifað hafði af hörmungarnar.
Kraftaverkið skeði, þetta eilífa
kraftaverk, sem Davíð skáld Stef-
ánsson nefnir svo í þjóðhátíðar-
ljóðum sínum. Og Matthías lýsir
þessu með trúarinnar einfaldleik:
En þá kom Drottins hönd, og lét
oss lífi halda“.
Svo lítill var vegur hins helga
Skálholts, þegar verst lét, að
tignarmenn vóru leiddir hjá
garði. Þórhallur biskup Bjarna-
son skrifar snemma á 20. öldinni:
„Svívirðing foreyðslunnar er svo
mikil á hinum forna stóli, að því
varð að afstýra, að konungur
kæmi þangað í austurför…“. Veg-
ur Skálholts er, Guði sé lof, ann-
ar, betri og meiri í dag, enda hef-
ur þjóðin rétt myndarlega úr
kútnum frá árinu 1785, þegar
íbúatala landsins var komin lang-
leiðina niður í 40 þúsund manns –
og rætt var um flutning Íslend-
inga á Jótlandsheiðar.
Sigurbjörn biskup Einarsson
komst svo að orði þegar musterið
í Skálholti hafði verið endurreist:
„Þegar Bjarni Benediktsson fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar afhenti
Þjóðkirkjunni musterið nýja
ásamt Skálholtsstað sagði hann,
að þetta væri gert fyrir „ómet-
anlegan þátt kirkjunnar í mótun
íslenzkrar menningar og þróun
hennar á hverju sem hefði geng-
ið“. Og ennfremur sagði bisk-
upinn: „Vegur hins nýja Skálholts
er skammt genginn enn. En hann
er ekki tvísýnn, ef þjóð og kirkja
halda augum opnum. Þá mun
Skálholt enn sanna þá útvalningu
sína, sem sagan vottar, og Guð
þau fyrirheit, sem vér höfum
flestum kynslóðum framar fengið
að sjá yfir Skálholti helga“.
Á Skálholtshátíð 1956 komst
Ilmari Salomies erkibiskup Finna
svo að orði þegar hann afhenti
kirkjuklukku, er Finnar gáfu
Skálholtsstað: „Hinn tónninn er
ritaður á klukkuna sjálfa. Það eru
orð Frelsarans: Komið til mín all-
ir þér, sem erfiði og þunga eru
hlaðnir“. Það er hljómur þeirrar
trúar sem frelsar frá öllu illu og
gefur siguraflið til þess að gefast
aldrei upp, þolgæði í hverri raun.
Og í þessum hljómi er fólgin sú
von, sem yfir tímanna stríð verp-
ur bjarma frá föðurlandi voru á
himnum…“
Hólar, Skálholt, Þingvellir.
Þessi nöfn rísa hátt í Íslands
sögu. Kirkjan, sagan og þjóðin,
þetta þrennt, það verður ekki
sundur skilið. Kirkjuklukkur
Hóla, kirkjuklukkur Skálholts, já
allar kirkjuklukkur plánetunnar
Jarðar, hafa hringt inn nýtt ár-
þúsund. Í þeirra hljómi heyrum
við orð Krists: „Komið til mín all-
ir þér…“! Þessu kalli eigum við
að gegna. „Þessi klukknaköll –
boða ljós og líf“ sagði skáldið frá
Hvítadal.
Kirkjan, sagan
og þjóðin
SKÁLHOLT! Fá nöfn ber hærra í Ís-
lands sögu. Þar sátu 45 biskupar 1056–
1796. Stefán Friðbjarnarson staldrar við
konungsúrskurð þess efnis að leggja af
biskupsstól í Skálholti.
FRÉTTIRHUGVEKJA
ÞRIÐJUDAGINN 3. júlí kl. 16.00
heldur Guðrún Magnúsdóttir for-
stjóri ESTeam AB erindi á vegum
íslenskuskorar Háskóla Íslands og
verkefnisstjórnar um tungutækni.
Erindið nefnist: Tungutækni, nám
og þróun búnaðar.
Guðrún mun annars vegar fjalla
um reynslu sína af kennslu í tungu-
tækni við háskólann í Gautaborg og
hins vegar segja frá þróun hugbún-
aðar til sjálfvirkra þýðinga og
reynslu sína af því að þróa hug-
búnað á þessu sviði. Allir eru vel-
komnir á fyrirlesturinn sem verður
fluttur á ensku í stofu 101 í Odda.
Fundarstjóri verður Höskuldur
Þráinsson prófessor og fulltrúi í
stjórn verkefnis menntamálaráðu-
neytisins um tungutækni.
Guðrún Magnúsdóttir er forstjóri
fyrirtækisins ESTeam AB sem er
staðsett í Aþenu og framleiðir hug-
búnað til vélrænna þýðinga á texta.
Guðrún vann lengi við Gautaborg-
arháskóla að rannsóknum og
kennslu í tungutækni en er nú bú-
sett í Aþenu, þar sem fyrirtæki
hennar er staðsett. Fyrirtækið sér-
hæfir sig í að þróa hugbúnað til
þýðinga. Það hefur í allmörg ár selt
hugbúnað sem notaður er til sjálf-
virkra þýðinga á vörumerkjalistum
milli fjölmargra tungumála. Nýlega
vann það svo útboð á vegum þýð-
ingardeildar Evrópusambandsins
með nýjum þýðingahugbúnaði,
ESTeam Translator, sem þýðir
skjöl milli 12 tungumála Evrópu-
sambandsins.
Opinn fyrirlestur
um tungutækni
MENNTAMÁL