Morgunblaðið - 01.07.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.07.2001, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Blómaskreytingar við öll tilefni Opið til kl. 19 öll kvöld við Nýbýlaveg, Kópavogi Skreytingar við öll tækifæri Langirimi 21, Grafarvogi 587 9300 Samúðarskreytingar Samúðarvendir Kransar Kistuskreytingar Brúðarvendir hún Hafdís Hlíf er dáin aðeins tíu ára gömul. Hver er tilgangurinn með þessu lífi, endalaus áföll fyrir samheldnu fjölskylduna? Þetta var það versta. Hafdís Hlíf var yndisleg stúlka og við dáðumst að dugnaði hennar og atorku. Hafdís mín, ég er þakklát fyrir að hafa fengið að hitta þig daginn fyrir afmæli mömmu þinnar nú fyrir stuttu, það var svo létt yfir ykkur öllum, undirbúningur af- mælisins á lokastigi og vegleg veisla framundan. Þegar við eignumst börnin okkar ætlumst við til að fá að njóta þeirra svo lengi sem við lifum, en oftar en ekki erum við minnt á að svo er ekki og við ákveðum ekki hversu lengi. Elsku Sigrún, Björn, Sigurður Björn og Margrét Kristín. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk í þess- ari miklu sorg. Blessuð sé minning Hafdísar Hlífar. Margrét, Grétar og börn. Elsku Hafdís mín. Ég skil ekki af hverju þú ert dáin, af hverju valdi Guð þig? Við ætluðum að gera svo margt saman í sumar. Ég var aldrei búin að svara bréfinu frá þér. Þetta var svo sniðug hugmynd hjá þér að fara að skrifast á. Nú á ég bréfin þín alltaf, en mig langar svo að senda þér fleiri bréf. Við sem ætluðum í sama menntaskól- ann svo að við gætum hist oftar. Þá hefðum við getað verið saman í bekk og hist þegar við vildum. Við ætluðum alltaf að vera vin- konur, líka þegar við yrðum eins gamlar og mömmur okkar. Elsku Hafdís, ég mun aldrei gleyma þér og ég skal knúsa mömmu þína þegar hana vantar að knúsa 11 ára stelpu. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. J.) Þín vinkona alltaf, Guðrún Nielsen. Yndisleg stúlka, Hafdís Hlíf, er fallin frá allt of fljótt. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Blessuð sé minning Hafdísar Hlífar. Almáttugur Guð styrki fjöl- skyldu hennar í þessari miklu sorg. Halla, Stella og Arnar. Hafdís Hlíf, litla vinkona mín, er látin. Elsku litla vinan sem hafði svo margt að kenna og svo mörgu að miðla. Ótrúlega þroskuð tíu ára stúlka sem gekk í verk fullorðinna eins og ekkert væri. Hún talaði ekki mikið um hlutina, hún bara gerði þá og umönnun hennar fyrir mörgum hvort sem um var að ræða börn eða fullorðna, var óvenju mik- il og sterk af svo ungri telpu að vera. Maður spyr sig hvað guð sé að gera með því að kippa henni svona umsvifalaust í burtu. Ég er sann- færð um að Hann hefur þurft hana til að kenna annars staðar. Það finnast nefnilega ekki margir með þann hæfileika og þroska sem Haf- dís Hlíf hafði. Megi algóður guð halda verndarhendi sinni yfir engl- inum Hafdísi Hlíf á nýjum slóðum. Elsku Sigrún mín, Bjössi, Sigurður Björn, Margrét Kristín og öll fjöl- skyldan. Það er mikið á ykkur lagt en á eftir myrkrinu kemur ljósið og varla verður neitt bjartara en minningin um Hafdísi Hlíf. Guð verndi ykkur og styrki. Matthildur Guðmundsdóttir (Lóló). Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því aõ þú ert hjá mér. (Úr 23. Davíðssálmi.) Um þetta leyti árs er dagur lengstur á landi okkar. Gróðurinn skartar sínu fegursta og ungviði fer á kreik. Vorið gefur fyrirheit og vonir. Fyrirheit um eitthvað spennandi og áhugavert þeim sem eiga lífið framundan. Þannig hefur hún efalaust hugs- að líka unga stúlkan sem hér er kvödd hinstu kveðju. Hafdís Hlíf varð bráðkvödd þann 21. júní sl., tæplega 11 ára að aldri. Hún sem í gær var frísk og brosmild er liðin í dag. Skyndilega án fyrirvara er hún hrifin á brott úr lífinu og ekkert er eins og áður. Ástvinir allir eru eftir í sárri sorg og spurn. Hvers vegna hún, upprennandi og ung sem trúði á lífið? Þeirri spurningu verður ekki svarað, en þeir mega treysta því að sakleysi æsku hennar, innri birta og góðir eiginleikar verða Hafdísi Hlíf leiðarljós um alla ei- lífð. Guð líkni og styrki foreldra hennar, systkini, afa og ömmur og alla þá sem þótti vænt um hana. Sérstakar samúðarkveðjur fá Hafdís, föðuramma Hafdísar Hlíf- ar, og Jón föðurafi. Hjá þeim var hún mikið frá unga aldri, prúð og vönduð. Þær nöfnur voru hvor ann- arri góðar og nánar. Fjölskylda okkar vottar syrgj- endum samúð. Ingunn og Guðjón. Við systurnar viljum með nokkr- um orðum minnast bestu vinkonu okkar. Við kynntumst Hafdísi í leikskólanum fyrir átta árum. Við fórum í sama skóla og bjuggum ná- lægt hver annarri. Það er erfitt að lýsa vinkonu, vinkonur eru bara alltaf til staðar og við eigum erfitt með að gera okkur grein fyrir því að nú sé hún dáin, farin frá okkur. Af hverju hún? Hafdís sem var svo frísk, fjörug og glettin. Hún gat líka verið róleg, hljóð og gat hlust- að. Við höfum margs að minnast því við gerðum margt skemmtilegt saman. Allir leikirnir okkar, öll sumarnámskeiðin, skólagarðarnir, sundferðirnar og ballettinn. Marg- ar nætur gistum við saman og þá spjölluðum við um framtíðina langt fram eftir kvöldi. Okkur fannst líka öllum mjög gaman að koma mömmum okkar á óvart með því að taka vel til. Hafdís mun alltaf búa í hjarta- okkar, hlátur hennar, brosið, rödd- in og allar okkar góðu stundir. Elsku Sigrún, Björn, Sigurður og Margrét Kristín, guð veri með ykkur á þessum erfiða tíma. Berglind og Steiney. Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Öllu eru ákveðin tímamörk sett. Elsku Hafdís, þú hefur greinilega verið búin að læra og miðla því sem þér var ætlað í þessari jarðvist og ert því kölluð til nýrra starfa. Hví fölnar jurtin fríða og fellir blóm svo skjótt? Hví sveipar barnið blíða svo brátt hin dimma nótt? Hví verður von og yndi svo varpað niðr’ í göf? Hví berst svo burt í skyndi Hin bezta lífsins gjöf? Já, sefist sorg og tregi, þér saknendur við gröf, því týnd er yður eigi hin yndislega gjöf: Hún hvarf frá synd og heimi til himins – fagnið því, – svo hana Guð þar geymi og gefi fegr’ á ný. (Björn Halld. frá Laufási.) Elsku Sigrún, Siggi, Margrét, Bjössi og fjölskyldur. Megi minn- ingar um yndislega stúlku verma ykkur á þessum erfiðu tímum. Birna.                                         !    "!!#          ! "# $      "#   % &'(  '         ) *  +      ,)  -              . /       0 !+ &'(             1 ( (  &  &(  &  &  &(#                      !"#$%"                     !! &# ' #$% ()'" &#%# & #$% )* + *, %* #$% ,-  *. " #$% ,-  **# /* #$% ,- ) &#, ,,# 01 ,- 2             !                     !     "# $%  &'   "  #  $%                                   !"  #$%%  &"  #  #'" '$(' )*#)"$'$%%  *'% ""  #'"  '%(" + '% "'$%%      #$%%  , " - .'" / 0"1$) &"'$%%  $  $  "'%''"  "2 "   " " "                                              !      "#  $  %& !  #" %  "# '    (!     #      EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Skilafrestur minningar- greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.