Morgunblaðið - 22.07.2001, Side 21
Vatnsleysuströnd. Þar fer fram um-
fangsmikið eldi, bæði á sandhverf-
um og sæeyrum, sem einnig eru við-
fangsefni starfsmannanna á Stað.
Sæeyru eru sæsniglar sem lifa á
þara og eiga miklum vinsældum að
fagna í Japan og öðrum löndum
Suðaustur-Asíu. Í kjölfar hinna
miklu vinsælda fer stofn sæeyrna
ört minnkandi vegna rányrkju.
Fullyrðir Matthías að sæeyrun séu
með dýrasta sjávarfangi sem til er
og virðist þó nokkur gróðavon
liggja í eldi þeirra. Á Sæbýli hefur
verið unnið að þróun eldisíláta fyrir
sæeyrun og miklar framfarir náðst í
eldistækni. Auk þess nýtist íslensk-
ur jarðhiti mjög vel við ræktun
sæeyrna og nægt framboð er af
þara sem er aðalfæða sæeyrans. Þó
stefna rannsóknarmenn, bæði á
Stað og Sæbýli, að því að finna leið
til að framleiða þurrfóður fyrir
sæeyru, því þarasláttur og fóðrun
eru með dýrustu kostnaðarliðum
sæeyrnaeldis. Segir Agnar Stein-
arsson, sjávarlíffræðingur við rann-
sóknarstöðina, að ræktun sæeyrna
sé hinn heilagi kaleikur fiskeldis.
Menn reyni alltaf að græða á
sæeyrum, en mörg ljón séu í veg-
inum, bæði kostnaðarleg og tækni-
leg.
Sæbýli flytur nú út tvö tonn af
sæeyrum á mánuði og fer það magn
vaxandi með bættri nýtingu eldis-
tækja og aðstöðu.
Vítamínbættur barnamatur
Nauðsynleg forsenda eldis
margra sjávarfisktegunda er lifandi
fæða fyrir seiðin á fyrstu stigum
þroskans, þegar seiðin eru enn í
lirfuformi. Kenna þarf seiðunum að
eta þurrfóður, því lirfurnar geta
ekki skynjað hreyfingarlausa hluti
sem mat. Til að fóðra lirfurnar á
meðan þær geta ekki enn lifað á
þurrfóðri eru framleidd hjóldýr, lítil
svifdýr sem fjölga sér mjög ört með
meyfæðingu. Þorskseiðin lifa á
þessum hjóldýrum og örsmárri
saltrækju fyrstu tvo mánuðina og
sandhverfan fyrstu vikurnar. Mik-
ilvægt er að í hjóldýrunum sé öll sú
næring sem seiðin þarfnast á lirfu-
stiginu, og því eru þau styrkt og
bætt í þau næringu til að efla heil-
brigði seiðanna og hindra afföll.
Hjóldýrin sjálf eru ræktuð í tönkum
í litlu herbergi og fást margir tugir
milljóna hjóldýra á dag í fæði fyrir
lirfurnar. Hjóldýrin eru fóðruð á
bökunargeri sem þykir virka mjög
vel sem æti fyrir svifdýr, eins og
hjóldýr, og þarf aðeins að bæta
næringu út í til að úr verði úrvals
þorskseiðafæða. Áður voru notaðir
þörungar, sem voru mjög dýrir í
framleiðslu og vinnufrekir, en með
tilkomu bættra næringarefna hefur
kostnaður við framleiðslu hjóldýr-
anna minnkað.
Starfið framundan
Mikið starf liggur framundan hjá
tilraunaeldisstöðinni á Stað. Þróun
á nýjum aðferðum í eldi og mögu-
leikum á eldi nýrra nytjategunda og
kynbótum gamalla eru ofarlega á
baugi í starfsemi stöðvarinnar. Á
næstu mánuðum mun rísa stór við-
bygging við stöðina og rannsóknar-
og vinnslugeta hennar aukast til
muna. Matthías fagnar komandi
tímum og segir stöðu íslenskra fisk-
eldisrannsókna mjög góða og sam-
keppnishæfa við nágrannalöndin,
Íslendingar séu eina Norðurlanda-
þjóðin sem ræktar sæeyru auk þess
sem lúðueldi stendur mjög vel á Ís-
landi. Einnig eru möguleikarnir í
sandhverfueldi opnir og aðstæður
hér á landi góðar til slíkra tilrauna.
Matthías minnist einnig á til-
raunaeldi með hlýsjávarfiskinn
barra á Sauðárkróki, þar sem fram
fara viðamiklar rannsóknir með
endurnýtingu. Einnig eru hafnar
rannsóknir á hlýra í nýstofnuðu fyr-
irtæki á Neskaupstað.
Fyrir liggur mikið þróunarstarf í
samstarfi við starfandi fyrirtæki í
eldisiðnaði, til að bæta og efla sjáv-
arfiskeldi og þekkingu á líffræði
nytjategunda við Íslandsstrendur.
Morgunblaðið/Ásdís
Sandhverfan ber nafn með rentu og hverfur auðveldlega inn í umhverfi sitt.
Morgunblaðið/Ásdís
Kjaftstór frændi steinbítsins, hlýrinn, er ekkert að æsa sig, tekur lífinu með ró og þykir langbest að
kúra upp að næsta félaga í karinu.
svavar@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Það sem í fyrstu virðist vera gruggugt vatn í glasinu í hendi Agnars Stein-
arssonar eru í raun 200.000 hjóldýr á leiðinni inn í meltingarkerfi þorsklirf-
anna.
Morgunblaðið/Ásdís
Í þessum litlu búrum eru sæeyrun alin upp og síðar færð í stærri ílát.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 21
Útsalan
hefst í fyrramálið kl. 9.00
við Laugalæk