Morgunblaðið - 22.07.2001, Side 37
ALDARMINNING
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 37
Í dag, 22. júlí 2001,
eru 100 ár frá því að
dr. Guðni Jónsson pró-
fessor fæddist á
Gamla-Hrauni á Eyr-
arbakka. Nú er margt
það fólk fallið frá, sem
man dr. Guðna á bestu
árum hans. Síður en
svo eru verk hans
fyrnd, en þar sem
maðurinn að baki þeim
er fyrir allnokkru
horfinn sjónum okkar
langar mig að bregða
upp mynd af honum
og þakka í það
minnsta það sem hann hefur fyrir
mig gjört.
Guðni Jónsson var sonur fátækra
en duglegra hjóna, Jóns Guðmunds-
sonar, bónda og formanns á Gamla-
Hrauni, og konu hans, Ingibjargar
Gíslínu Jónsdóttir. Voru börn
þeirra hjóna 17. Þau hjón bjuggu á
Gamla-Hrauni 1892–1901 en sum-
arið 1899 veiktist Jón, fékk ígerð út
frá skemmdri tönn og gróf um
kjálkann og út fyrir neðan augað
vinstra megin. Fékk hann heiftar
höfuðkvalir og það sumar gátu þau
hjón ekki sinnt heyskap. Þessi við-
brigði í lífi þeirra urðu til þess að
þau misstu jarðnæðið. Komst Ingi-
björg í kynni við mæt hjón á Leiru-
bakka á Landi, Sigurð Magnússon
og Önnu Magnúsdóttur. Leystu þau
Ingibjörg og Jón upp heimili sitt
um skeið og fór Guðni með móður
sinni að Leirubakka 12 vikna gam-
all. Hófu foreldrar hans að vísu aft-
ur búskap í Framnesi í Hrauns-
hverfi en Guðni kom ekki aftur til
þeirra. Ólst hann upp á Leirubakka
til 12 ára aldurs. Fór hann þá að
vinna útífrá og reri tvær vertíðir er
hann hafði aldur til.
Mesta afreksverk Guðna var að
brjótast til náms. Öll hans síðari af-
rek byggjast á því að hann aflaði
sér menntunar, framan af á mjög
stopulum stundum er gáfust frá
brauðstriti. Dagmar, systir hans,
var gift kona í Reykjavík og það
bjargálna að hún skaut skjólshúsi
yfir piltinn Guðna, sem gekk fyrst í
kvöldskólann á Bergstaðastræti 3.
Þaðan lá leiðin í Flensborg 1919–
1921 og lauk hann þar gagnfræða-
prófi, en stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1924.
Leiðin varð nú greiðari. Guðni
stundaði fyrst háskólanám í guð-
fræði en sneri fljótt að námi við
norrænudeild Háskóla Íslands.
Sóttist honum það nám vel þegar
tillit er tekið til þess að hann
kenndi með námi mestallan þann
tíma. Hann kenndi við unglinga-
skólann í Vestmannaeyjum vetur-
inn 1926–1927, hélt sjálfur kvöld-
skóla í Reykjavík 1927–1928,
kenndi við Verslunarskólann 1928–
1929, og kennari var hann við
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928–
1945. Þá varð hann skólastjóri þess
sama skóla. Mitt í allri þessari
kennslu stundaði Guðni háskólanám
sitt og varð magister í íslenskum
fræðum við Háskóla Íslands 1930.
Hér hefði nú mátt láta staðar
numið, en eljan fylgdi Guðna Jóns-
syni meðan hann naut heilsu. Eft-
irminnileg eru mér þau skrif hans í
formála að Eddulyklum þar sem
hann lýsti menntaþrá sinni á ung-
lingsárum. Þá var hann vinnupiltur
í Rangárþingi, „nær tekt en tví-
tugu.“ Hann eignaðist Sæmundar-
Eddu (Eddukvæði) og fannst erfitt
að venjast tungumáli þeirrar bókar
og skýra út fyrir sjálfum sér tor-
ráðnar merkingar. Gerði Guðni sér
þá skýringabók um kvæðin og
komst að því síðar að sumt hafði
hann misskilið en fleira reyndist
hárrétt. Þetta merkilega handrit
glataðist síðar, en annað var aldrei
frá Guðna tekið: „Hreinn andvari
norrænnar heiðni hafði leikið um
huga minn og feykt burtu öðrum
hættulegri misskilningi. Þennan
vetur fann ég mig sjálfan.“ Það má
teljast óvenjulegt að fyrsta stór-
virki Guðna var unnið í ættfræði
með útgáfu Bergsættar 1932. Tók
GUÐNI
JÓNSSON
hann þar til óspilltra
mála strax eftir mag-
istersprófið. Hann
kvaðst hafa verið fá-
fróður um ættir sínar í
Stokkseyrarhreppi,
enda alinn upp á
Landi. En nú var
Guðni giftur fyrri konu
sinni, Jónínu Margréti
Pálsdóttur frá Nesi í
Selvogi. Hann fann
það brátt út að þau
væru fjórmenningar af
Gamla-Hraunsætt sem
var undirleggur
Bergsættar, en þar að
auki væru bæði komin frá þremur
börnum Bergs Sturlaugssonar í
Brattsholti. Þetta verkefni varð
hann að fást við.
Bergsætt hefur nú komið út í
tveimur útgáfum, sú síðari er
þriggja binda verk og kom út 1966,
bæði eru uppseld og fágæti á forn-
sölum. En launin við fæðingarstöðv-
arnar voru ekki fullgoldin. Síðar
kom hið mikla yfirlitsrit Bólstaðir
og búendur í Stokkseyrarhreppi,
1952, doktorsritgerð, sem Guðni
varði 1953. Þá tók hann saman
Sögu Hraunshverfis á Eyrarbakka
1958 og er þar mjög tæmandi lýs-
ing á því hverfi og ættir Guðna þar
um slóðir raktar með öllum þeim
ættarsögum er menn mundu. Þá
kom stórverkið Stokkseyringa saga
I og II 1960 og 1962. Þetta rit var
þá ein vandaðasta héraðssaga Ís-
lendinga og varð annarri héraðs-
sagnfræði verðug fyrirmynd.
Af öðrum þeim ritum sem Guðni
frumsamdi um efni í Árnessýslu má
nefna Apavatn í Grímsnesi, saga
jarðar og ábúenda, sem út kom
1953, og Grímur Gíslason, ævi hans
og niðjar, 1961. Þar er rakin ætt
fyrri konu Guðna, en Grímur ríki í
Nesi var afi hennar. Var upplagið
lítið, en þó nægilegt fyrir niðjana.
Svipulla var um eintakafjölda Apa-
vatns í Grímsnesi, sem Guðni tók
saman fyrir Grím bónda þar Ás-
mundsson. Er Guðni hafði að fullu
lokið handriti og spurði Grím
hversu mörg eintök ætti að prenta
var svarið: „Tvö. Já, annað fyrir
mig og hitt fyrir þig.“ En Guðni gat
ekki á það fallist og urðu eintökin
20, að sögn. Er sú bók nú ófáanleg
með öllu.
Guðna lét öll kennsla vel, en
sagnfræði og ættfræði áttu þó huga
hans meira. Af sagnaritum hans má
nefna Minningarrit Flensborgar-
skóla 1932, Eimskipafélag Íslands
25 ára, 1939, og Saga Háskóla Ís-
lands, 1961. Óvenjulegt framlag
hans til bókmenntasögu var Frá-
sagnir um Einar Benediktsson í
endurminningu konu hans, Valgerð-
ar. Kom það rit út 1942, fyrsta bók-
in sem beint fjallaði um Einar, og
síðan hefur mikill bálkur komið á
prent.
Fyrir útgáfur fornsagna hefði
Guðni haldið nafni sínu á loft, þótt
annað hefði ekki komið til. Í þeim
efnum var hann hamrammur. Fyrst
gaf hann út, fyrir síðara stríð,
nokkrar bækur í Íslendingasagna-
útgáfu Sigurðar Kristjánssonar og
gaf svo út Fornaldarsögur Norð-
urlanda með Bjarna Vilhjálmssyni.
En 1946 og 1947 koma út í útgáfu
hans Íslendingasögur I-XII ásamt
nafnaskrá, þeirri fyrstu er náði yfir
allar sögurnar samfellt. Guðni átti
að sterka bakhjarla sem mynduðu
Íslendingasagnaútgáfuna hf. Fram
til 1957 voru að koma út nýir flokk-
ar af íslenskum fornritum. Hann
stóð sjálfur að sex flokkum og var
þar víða bætt úr brýnni þörf, t.d.
höfðu Byskupasögur verið gefnar
út öldinni fyrr og voru nú lítt til-
tækar fræðimönnum og öðrum les-
endum.
Þessi útgáfa hófst á merkilegum
tíma. Lýðveldið var nýstofnað en
Íslendingar áttu ekki þjóðarger-
semar sínar í heillegri útgáfu. En
nú tóku landsmenn þessari útgáfu
heils hugar. Guðni minntist þess
svo: „Alls staðar átti hún vinum að
fagna, jafnt í borg sem byggð. Úr
sumum sveitum landsins voru send-
ar pantanir frá hverjum einasta bæ,
og svipaðar voru viðtökurnar um
allt land. Útgáfan varð í reyndinni
það sem henni var ætlað að vera:
árgjöf til Íslendinga á morgni hins
endurreista lýðveldis.“ Um það
leyti sem Guðni geystist áfram með
fornsagnaútgáfuna vann hann
hljóðlátara verk fyrir ættmenn sína
í Árnessýslu: Fyrst útgáfu á helstu
verkum Brynjúlfs Jónssonar frá
Minna-Núpi og er þar fremst í
flokki Sagan af Þuríði formanni og
Kambsránsmönnum. Þar fór Guðni
mjög í saumana á mörgum vafaat-
riðum og leiðrétti sumt, en samdi
um leið gagnmerkar ritgerðir um
þau Þuríði formann og bókarhöf-
und, Brynjúlf frá Minna-Núpi.
Mjög skemmtilegu ritgerða- og
minningasafni Jóns Pálssonar frá
Syðra-Seli hélt hann einnig fram til
útgáfu og samdi einnig þar verð-
mætar skýringar.
Stærsta framlag Guðna til al-
þýðufræða Árnesinga, já, allra
Sunnlendinga, verður að telja Ís-
lenska sagnaþætti og þjóðsögur I–
XII bindi sem komu út 1940–1957
og síðar Skyggni I–II, safn ís-
lenskra alþýðufræða, 1960 og 1962.
Fróðleiksfúsir Árnesingar geta ekki
lokið könnun í fræðum sínum án
þess að finna eitthvað bitastætt í
þessum 2.500 blaðsíðna þáttasöfn-
um. En nú er mál að linni upptaln-
ingu á verkum Guðna Jónssonar.
Um hann mætti hafa sömu umsögn
og Jón Espólín gefur sér í hinu
mikla ættfræðisafni sínu: „Hafði
margt skrifað.“
Ég átti þess kost að kynnast
Guðna Jónssyni á síðari árum hans
og átti fljótt vináttu hans og upp-
örvun til verka. Guðni varð prófess-
or í Sögu Íslands 1957 við ótíma-
bært fráfall hins vinsæla prófessors
dr. Jóns Jóhannessonar. Ég var þá
við sagnfræðinám í Háskólanum,
sat í tímum hjá þeim báðum. Jón
var ekki með yfirheyrslur en eyddi
þeim mun meiri tíma í að kryfja
málin með nemendum sínum.
Kennsla Guðna var einnig gagn-
söm; hann tók menn upp með
gamla menntaskólalaginu en gaf
sér einnig góðan tíma til að melta
málin og þá var ættfræðin skammt
undan. Guðni var mjög afslappaður
kennari; í miðjum tíma tók hann
jafan upp fagrar silfurtóbaksdósir,
smellti fingri á lokið, opnaði það og
tók feginsamlega í nefið. Aðrir pró-
fessorar gátu ekki iðkað tóbaks-
neyslu í tímum, svo ég muni.
Þrátt fyrir afreksiðju sína varð
Guðni Jónsson aldrei neinn ein-
trjáningur í störfum né lokaði sig af
frá öðru fólki. Hann vann Árnes-
ingafélaginu í Reykjavík heils hug-
ar, var bæði á fundum þess og
skemmtisamkomum. Þar var hann
hrókur alls fagnaðar, og reyndar
heiðursfélagi. Systkinahópi sínum
hélt hann og vel saman og hélt með
þeim ættarmót og fremsta verk
hans í þeirri víglínu er auðvitað
Saga Hraunshverfis. Sitthvað frum-
legt kom frá hans hendi sem fram-
lag til Árnesingafélagsins. Fremst
er þar ræða hans Áshildarmýrar-
samþykkt, flutt við vígslu Áshild-
armýrarvarða sumarið 1948. Guðni
var þjóðernissinni í bestu merkinu
þessa orðs og tók þátt í starfi Sam-
taka herstöðvaandstæðinga er sú
hreyfing reis hæst um og eftir 1960.
Ef það kallast pólitík, held ég að
það hafi verið eina pólitíkin sem
hann var við riðinn.
Ættfræðingurinn Guðni Jónsson
varð einnig mikill ættfaðir. Getið er
hér áður um fyrri konu hans, Jón-
ínu Margréti Pálsdóttur, er hann
giftist 1926 og missti 1936. Börn
þeirra voru Gerður húsfreyja og
læknisfrú, Jón sagnfræðiprófessor,
dr. Bjarni íslenskuprófessor, Þóra
húsfreyja, og Margrét, dó um tví-
tugt. Árið 1938 giftist Guðni Sigríði
Hjördísi Einarsdóttur bónda í Mið-
dal Guðmundssonar. Börn þeirra
voru Einar viðskiptafræðingur,
Bergur lögfræðingur, Jónína
Margrét, MA í ensku og skjalaþýð-
andi og Elín, sjúklingur.
Guðni Jónsson átti góð ár og bjó
við ágæta heilsu til 1967 er hann
fékk heilablóðfall sem hann náði sér
aldrei af. Það urðu hörð örlög fyrir
slíkan iðjumann. En Guðni átti mik-
ilhæfa konu sem hjúkraði honum til
hinstu stundar hans, 4. mars 1974.
Meira en aldarfjórðungur er lið-
inn frá andláti Guðna, og þessi orð
eru rituð handa þeim sem kynnu að
hafa gleymt hinum sívirka fræði-
manni. Hinum sem ennþá njóta
starfa hans gleymist hann ekki.
Fræði okkar Árnesinga verða lítt
stunduð án þess að hann sé þar
hvarvetna til staðar að vísa okkur
réttan veg. Persónulega á ég vini
mínum Guðna Jónssyni sérstaka
skuld að gjalda. Þar kemur hann sí-
fellt á óvart, ekki síður í óprentuðu
máli sínu. Ættir Árnesinga eru þar
fremstar í flokki, handrit í fjórum
bindum, varðveitt á Héraðsskjala-
safni Árnesinga á Selfossi. Þar rek-
ur Guðni feril bænda í Árnessýslu
við manntalið 1762, þeirra sem urðu
ættfeður, greinir framættir þeirra
og rekur afkomendur til síðari tíma.
Þetta er eitt af meginverkum
Guðna og sómi er það fyrir sýslu-
nefnd Árnessýslu að hún veitti hon-
um styrk til þessa í nokkur ár.
Samfélag okkar Guðna Jónssonar
hefur staðið í meira en 45 ár. Það
reyndi á styrkleika þess er ég afréð
að gerast sveitabóndi að áliðnu há-
skólanámi og brjótast þannig undan
menntun. En þar varaði ég mig
ekki á tvennu: Arfurinn frá Guðna
og öðrum lærifeðrum mínum var
það mikill að brátt var dustað af
fræðunum og skræðunum og situr
þar við enn. Einnig hitt að íslenski
bóndinn hefur um aldir haft í sér
neistann bæði til sjálfsnáms og sí-
menntunar. En ég er ekki einn um
þakkirnar. Íslenska þjóðin stendur
öll í þakkarskuld við hinn mikil-
virka sagnfræðing og mun áfram
nema af honum fræðin á 21. öldinni.
Páll Lýðsson.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
hildar er þökkuð, við munum varð-
veita okkar góðu minningar um
hana. Megi guð blessi hana á nýjum
vegum. Á tímum sorgar og saknaðar
sendir fjölskyldan á Sævangi Jóni
Gunnari bróður mínum, börnum og
þeirra fjölskyldum, innilegar samúð-
arkveðjur.
Helga Ragnheiður
Stefánsdóttir.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast vinkonu minnar Gunnhildar
Guðmundsdóttur eða Gunnu eins og
hún var alltaf kölluð. Ég kynntist
Gunnu fyrst þegar ég flutti til Flat-
eyrar árið 1979 ásamt dóttur minni
Herdísi sem þá var 10 ára. Ég þekkti
engan á Flateyri en Grétar maður-
inn minn hafði verið heimagangur á
heimili hennar og Jóns þegar hann
var í landi. Gunna tók okkur einstak-
lega vel og létti mér oft tilveruna. Ég
gat alltaf leitað til hennar með öll
mín vandamál, bæði stór og smá.
Gunna, sem alltaf var svo bjartsýn
og kát, náði alltaf að hressa mig við.
Hún var hrókur alls fagnaðar á
mannamótum og aldrei fann ég fyrir
aldursmuninum á okkur.
Gunna var glæsileg kona og heim-
ili hennar var einstaklega fallegt.
Hún var snilldarkokkur og Grétar
talar oft um góða matinn hjá henni
Gunnu.
Mig langar að kveðja Gunnu með
litlu ljóði um leið og við sendum Jóni
og fjölskyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Blessuð sé minning Gunnu.
Lára Þorsteinsdóttir
og fjölskylda.
arins sem fyrri maður hennar, Halli,
stofnaði. Á sínum tíma voru versl-
anir Halla Þórarins stórverslanir í
Reykjavík og það voru ógleymanleg-
ir tímar fyrir stelpuhnokka norðan
úr landi að fá að koma á Vesturgöt-
una, að vera fyrir innan búðarborð
og fylgjast með, finna þessa sérstöku
lykt sem var þar, sambland af ný-
möluðu kaffi, nýjum og þurrkuðum
ávöxtum, fá að fikta í stóru reiknivél-
inni þangað til maður varð fyrir
Birni, sem var á hvítum slopp og
hafði mikið að gera.
Við máttum fá amerískt tyggjó og
urðum svo að drífa okkur út í port
eða upp til Gauju sem átti alltaf kaffi
og snúð handa öllum sem komu. Öll-
um! Og þeir voru ófáir sem komu á
Vesturgötuna í gamla daga, ungir og
gamlir, þeir voru líka ófáir sem gistu
í lengri og skemmri tíma. Elsta syst-
ir mín, Viola, veiktist sem barn og fór
til lækninga til Reykjavíkur, því ólst
hún upp að mestu leyti hjá þeim
Gauju og Birni og átti ævinlega sitt
annað heimili hjá þeim. Því var
Gauja alltaf kölluð Gaujamamma hjá
okkur systkinunum sex og börnin
okkar kölluðu hana Gaujuömmu.
Það er ekki hægt að minnast
Gauju nema minnast á Björn líka,
svo samrýnd voru þau. Þau voru
samtaka um að gera öðrum gott,
ræktuðu fjölskyldu- og vinaböndin
svo að eftir var tekið. Til margra ára
sáust þau hjón keyra bílinn um götur
Reykjavíkur, annaðhvort var verið
að fara með eldri dömur til messu
eða ýmissa skemmtana eða þá að
verið var að keyra með ávexti og
annað góðgæti til að gleðja aðra. Og
ekki létu þau sig muna um að keyra
norður í land til að heimsækja ætt-
ingja og vini þótt aldurinn færðist yf-
ir.
Gauja var trúrækin kona og sótti
kirkjuna sína alla tíð og eins lengi og
heilsan leyfði og víst er að hún var
henni trú og dygg til hinsta dags.
Gauja var yndisleg kona og það er
með söknuði og mikilli hlýju sem við
kveðjum þessa öldnu konu og þökk-
um henni fyrir öll árin sem hún var
okkur öllum svo góð.
Maj Britt Pálsdóttir.
MINNINGAR