Morgunblaðið - 22.07.2001, Page 48
Þjóðhátíð í Eyjum
Það eru eflaust ófáir sem tengja
verslunarmannahelgina við brekku-
söng og hátíðahöld í Vestmannaeyj-
um. Í ár verður engin undantekning
gerð á og fjölbreytt dagskrá í boði í
Eyjum.
Hljómsveitirnar Land og synir, Á
móti sól, Sóldögg og Gildran sjá um
tónleikahald á Brekku- og Tjarnar-
sviði og skemmtiatriði verða í hönd-
um Ladda og Brúðubílsins. Brennan,
flugeldasýningin og brekkusöngur-
inn, undir stjórn Árna Johnsen, verða
svo á sínum stað.
Að sögn Birgis Guðjónssonar, sem
situr í Þjóðhátíðarnefnd, er búist við
svipuðum fjölda og í fyrra en þá sóttu
um tíu þúsund manns Vestmannaeyj-
ar heim. Miðaverð í Herjólfsdalinn er
7500 krónur.
Neistaflug í Neskaupstað
Neistaflug í Neskaupstað er orðið
einn af föstu liðum verslunarmanna-
helgarinnar.
„Það hefur verið haldið frá árinu
1993 og er þetta því níunda hátíðin,“
sagði Jóhann Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri.
„Við reynum að bjóða upp á dag-
skrá sem hentar allri fjölskyldunni og
ég held að það takist bara vel.“
Á hátíðinni kemur fram fjölbreytt-
ur hópur skemmtikrafta og tónlistar-
manna, t.d. Gunni og Felix, Jóhanna
Guðrún, persónur úr Latabæ, töfra-
maðurinn Mighty Gareth, Todmobile
og Buttercup.
Tjaldstæði sem og skemmtanir á
Neistaflugi eru ókeypis en greiða
verður fyrir aðgang á dansleiki.
„Ein með öllu“ á Akureyri
Mikið verður um að vera á Akureyri á
fjölskylduhátíðinni „Ein með öllu.“ Á
Ráðhústorginu verður boðið upp á
skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.
Circus Atlantic, Helga Braga, Írafár,
Skítamórall, ávextirnir úr Ávaxta-
körfunni, Bjarni töframaður og Greif-
arnir eru meðal þeirra listamanna
sem setja svip sinn á hátíðina, en auk
þeirra verða hljómsveitirnar Skíta-
mórall, Sálin hans Jóns míns og Greif-
arnir með dansleiki í KA-heimilinu.
Að sögn Braga Bergmann, fram-
kvæmdastjóra „Einnar með öllu“, er
markmiðið að halda fjölskylduhátíð af
bestu gerð þar sem allir aldurshópar
geti fundið fjölbreytta skemmtun og
afþreyingu við sitt hæfi.
„Markmiðið er að festa hátíðina í
sessi sem fjölskylduhátíð og halda
hana árlega héðan í frá,“ sagði Bragi.
Tónlistarveisla við Eldborg
Í Eldborg í Hnappadal er gróðursælt
svæði sem gengur undir nafninu
Kaldármelar. Þar stendur til að halda
heljarinnar tónlistarveislu dagana 3.
til 6. ágúst þar sem fram kemur rjóm-
inn af vinsælustu popphljómsveitum
landsins. Ekki ómerkari bönd en
Stuðmenn, Skítamórall, Ný dönsk,
Greifarnir og Jet black Joe hafa boð-
að komu sína, en auk þeirra koma
fram Buttercup, Írafár, Sóldögg, Í
svörtum fötum, Geirfuglarnir og
Lúdó og Stefán.
Miðaverð á hátíðina er 6.500 krón-
ur og fer miðasala fram í verslunum
10-11, Japis og á visir.is.
Kántríhátíðin á Skagaströnd
Kántríhátíðin á Skagaströnd var önn-
ur fjölmennasta útihátíðin um versl-
unarmannahelgina í fyrra, með alls 8
þúsund gesti. Ekki er ljóst hvort jafn
margir leggi leið sína á Skagaströnd í
ár, en víst er að allir ættu að geta
fundið þar eitthvað við sitt hæfi.
Kúreki norðursins, Hallbjörn
Hjartarson, lætur sig að sjálfsögðu
ekki vanta á staðinn en auk hans
koma fram hljómsveitirnar Lukku-
lákarnir, Trigger, Hot́n Sweet og Gos.
Helga Möller og Helgi Björnsson
stíga á svið og boðið verður upp á
danskeppnir, barnaskemmtun, úti-
markað, gospelmessu og varðeld svo
fátt eitt sé nefnt.
Bindindismótið í Galtalæk
Fjölskylduhátíðin í Galtalæk er sem
fyrr haldin á vegum SÁÁ.
Hljómsveitirnar Nátthrafnar, Í
svörtum fötum, Coral og Dice eru
meðal þeirra sem spila fyrir gesti.
Auk þess verður boðið upp á harð-
kjarnaveislu á föstudagskvöldinu þar
sem hljómsveitirnar Andlát, Snafu, I
Adapt, Spildog og Invortis leika af
fingrum fram.
Þess má geta að nú er leiðin að
Galtalæk öll malbikuð og ætti það að
auðvelda hjólreiðamönnum og þeim
sem ferðast með tjaldvagna eða felli-
hýsi ferðina.
Síldarævintýrið á Siglufirði
Bryggjuböll, söltunarsýningar og
brennusöngvar eru meðal þess sem
er í boði fyrir gesti Síldarævintýrsins
á Siglufirði. Siggi sæti og Solla stirða
út Latabæ kíkja í heimsókn og hljóm-
sveitirnar Mannakorn og Milljóna-
mæringarnir ásamt Páli Óskari og
Bjarna Ara sjá um að skemmta gest-
um.
Sæludagar í Vatnaskógi
Skógarmenn KFUM standa fyrir
Sæludögum í Vatnaskógi um Versl-
unarmannahelgina.
Þar er um að ræða vímuefnalausa
fjölskylduhátíð þar sem boðið er upp
á ævintýraferð, leiktæki, varðeld og
flugeldasýningu auk fjölbreyttra
skemmtiatriða.
Mannrækt undir Jökli
Mikil mannrækt fer fram undir Snæ-
fellsjökli umrædda helgi. Spilalestur,
heilunartímar, fótanudd, jóga og
svitahof er meðal þess sem á boðstól-
um verður auk kvöldvöku, hugleiðslu
og ýmissa annarra viðburða.
Enginn aðgangseyrir er inn á
svæðið en hver borgar fyrir þá þjón-
ustu sem hann notfærir sér.
Hljómsveitin Buttercup spilar á
Neistaflugi og í Eldborg um
verslunarmannahelgina.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Kántríkóngurinn Hallbjörn
Hjartarson.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Líður senn að verslunarmannahelgi og
má búast við að þorri landsmanna verði á
faraldsfæti þessa mestu ferðahelgi ársins.
Birta Björnsdóttir kynnti sér upp á
hvað verður boðið á helstu skipulögðu
skemmtunum landsins.
Fjölbreytt úrval skemmtana um verslunarmannahelgina
Fjölskylduskemmtanir
og tónlistarveislur
FÓLK Í FRÉTTUM
48 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
sími 552 3000
Miðasalan opin frá kl. 14—18.
HEDWIG KL. 20.30
Lau 21/7 örfá sæti laus
fim 26/7 örfá sæti laus, fös 17/8,
lau 25/8, fös 31/8
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Fö 27. júlí kl 20 – LAUS SÆTI
SÍÐUSA SÝNING Í SUMAR
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU
Í KVÖLD: Su 22. júlí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fi 26. júlí kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI
Lau 28. júlí kl. 20 - AUKASÝNING
Ath. SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
REYKHOLTSHÁTÍÐ
Tónlistarhátíð í Reykholtskirkju
27.-29. júlí 2001
Opnunartónleikar föstudaginn 27. júlí kl. 21.00.
Flutt verður tónlist eftir Beethoven, þ.á m. gleraugnadúettinn og
píanótríó í c-moll op. 1 nr. 3.
Miðdegistónleikar laugardaginn 28. júlí kl. 15.00.
Lisa Graf sópran og Peter Bortfeldt píanóleikari flytja verk eftir
Schumann, Brahms, Liszt, Duparc og Strauss.
Kvöldtónleikar laugardaginn 28. júlí kl. 21.00.
Flutt verða verk eftir Liszt, Chopin, Schumann og tríó í a-moll op.
114 eftir Brahms.
Lokatónleikar sunnudaginn 29. júlí kl. 16.00.
Flutt verður m.a. La Folia eftir Corelli, Petite Suite eftir Debussy og
píanókvartett nr. 1 op. 15 í c-moll eftir Fauré.
Á hátíðinni koma fram: Ásdís Valdimarsdóttir, Bryndís Halla
Gylfadóttir, Lisa Graf, Michael Stirling, Peter Bortfeldt,
Richard Simm, Sif Tulinius og Steinunn Birna Ragnarsdóttir.
Hátíðarmessa sunnudaginn 29. júlí kl. 14.00.
Miðapantanir og nánari upplýsingar hjá Heimskringlu s. 435 1490.
Sjá einnig www.vortex.is/festival og www.reykholt.is