Morgunblaðið - 27.07.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lið á Spáni, í Frakklandi og Portú-
gal hafa áhuga á Róberti / C1
Fylkismenn misstu tvö dýrmæt
stig í toppbaráttunni / C3
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda
telur að nú sé kominn tími til að olíu-
félögin lækki verð bensínlítrans um
að minnsta kosti 5 krónur. „Í ljósi
þróunar á markaði og þessara já-
kvæðu teikna sem eru núna, það er
að segja að heimsmarkaðurinn hefur
gengið niður annars vegar og hins
vegar hefur krónan heldur styrkst,
þá er lag til lækkunar um þessar
mundir. Miðað við þessar forsendur
sem við horfum í og í samræmi við
álagningu félaganna undanfarið má
segja að það liggi þarna um fimm
krónur sem er hægt að lækka 95
oktana bensínlítrann um. Díselol-
íuna má einnig lækka,“ segir Run-
ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
FÍB.
Í tilkynningu frá FÍB segir að
talsmenn olíufélaganna hafi undan-
farið talað um að félögin hafi orðið
að taka á sig mikið gengistap á fyrri
helmingi ársins. Þar sem gengi
krónunnar hafi styrkst á ný gagn-
vart bandaríkjadollara hljóti nú að
vera um umtalsverðan gengishagn-
að þeirra að ræða samkvæmt sömu
bókhaldsaðferðum. Það sé því ljóst
að nú sé svigrúm til umtalsverðrar
lækkunar á bensínverði til íslenskra
bifreiðaeigenda.
Mánaðamót tími verðbreyt-
inga á þessum markaði
Að sögn Runólfs hafa mánaðamót
gjarnan verið tími verðbreytinga á
þessum markaði undanfarin ár en þó
séu á því undantekningar. Hann
nefnir sem dæmi að verðbreytingar
hafi átt sér stað 25. júní síðastliðinn
og svo aftur 1. júlí og sama hafi verið
upp á teningnum í maímánuði, en þá
hafi orðið verðbreytingar oftar en
einu sinni. „Það er komið það nálægt
mánaðamótum að það er ljóst að yf-
irlýsing OPEC-ríkjanna um að
draga úr framleiðslu er ekki farin að
FÍB hvetur til lækk-
unar á bensínverði
hafa áhrif á bensínverðið. Við erum
samt sem áður að sjá mjög hátt
bensínverð á heimsmarkaði, saman-
borið við meðalheimsmarkaðsverð á
síðasta áratug,“ segir Runólfur.
Hann segir að hækkunin eigi ræt-
ur að rekja til þess að OPEC-ríkin
hafi náð samstöðu um að skera niður
framleiðslu, en síðan hafi í sjálfu sér
fylgt í kjölfarið ákveðin efnahags-
lægð í hinum iðnvædda heimi og það
hafi dregið aðeins úr eftirspurn.
Þetta fylgist í sjálfu sér svolítið að
og sú staða sé í rauninni uppi núna.
„Maður les bæði þessa skoðun sér-
fræðinga um að verðið muni frekar
lækka áfram og hins vegar heyrast
líka þær raddir að það sé kannski
komið að því að það fari ekki mikið
niður fyrir það sem það er um þess-
ar mundir og ef til vill muni viðleitni
OPEC meðal annars til að draga enn
úr framleiðslunni með haustinu
styrkja það,“ segir Runólfur. LÓÐSINN í Vest-
mannaeyjum kom í
gær til Grindavíkur
með Ted Briggs, eina
eftirlifandi skipverj-
ann af breska herskip-
inu Hood. Briggs hafði
daginn áður tekið þátt
í minningarathöfn um
áhöfn Hood en 1.415
manns fórust þegar
skipið sökk eftir
skammvinna viðureign
við þýska herskipið
Bismarck 24. maí 1941.
Ágúst Bergsson,
skipstjóri á Lóðsinum,
sagði í samtali við
Morgunblaðið að ferðin hefði geng-
ið eins og í sögu. Sjórinn hefði verið
því sem næst rennisléttur og allar
aðstæður eins og best yrði á kosið.
Lóðsinn lagði upp frá Vestmanna-
eyjum aðfaranótt þriðjudags en
Briggs ásamt myndatöku- og blaða-
mönnum kom um borð í Grindavík
um morguninn. Þá tók við um sólar-
hringssigling talsvert inn í græn-
lensku lögsöguna. Þar var fyrir
Northern Horizon, skip leitarleið-
angursins sem fann flak Hood.
Briggs, sem er hálfáttræður, var
ferjaður um borð í Northern Hori-
zon með gúmmíbát. Þar tók hann
þátt í minningarathöfn um áhöfn
Hood og lagði m.a.
blómsveig á hafflötinn
fyrir ofan flakið. Þá
var minningar-
skjöldur um þá sem
fórust með Hood fest-
ur við flakið. Á skjöld-
inn er festur geisla-
diskur með nöfnum
hinna föllnu skipverja.
Breska sjónvarps-
stöðin Channel 4
stendur straum af
kostnaði við leitina að
Hood en sjónvarps-
stöðin vinnur nú að
heimildarmynd um
Hood og Bismarck.
Í viðtali við Channel 4 sagði
Briggs að margir ættingjar þeirra
sem fórust hafi haft samband við
sig áður en hann lagði af stað. Þeir
hafi lýst yfir ánægju sinni með ferð-
ina. „Þetta er tækifæri til að kveðja
þá sem létust í hinsta sinn. Ég held
að hinir látnu hefðu viljað vita að
þeir hafa ekki gleymst. Mér finnst
sem ég skuldi þeim lífgjöfina og
mér beri skylda til að heimsækja
skipið og votta þeim virðingu
mína,“ sagði Briggs. „Ég hef lengi
hugsað um að gera þetta. Ég hefði
löngu átt að vera búinn að láta
verða af þessu. Ég er mjög stoltur
af því og mér er létt,“ sagði Briggs.
Channel 4
Ted Briggs lagði blómsveig á hafflötinn fyrir ofan flakið af Hood.
Hinsta kveðja
til áhafnar
HMS Hood
Ted Briggs
UNNIÐ er ötullega að endurgerð
brúar yfir Skaftá við Eldvatn hjá Ás-
um í Vestur-Skaftafellssýslu því ætl-
unin er að ljúka verkinu fyrir versl-
unarmannahelgi. Þorbjörn Pálsson,
rekstrarstjóri hjá Sandafli ehf., sem
er aðalverktaki Vegagerðarinnar við
framkvæmdirnar, segir að takist
þeim ætlunarverk sitt ljúki viðgerð-
um tveimur vikum á undan áætlun.
Hann segir að undirverktaki við
framkvæmdina sé Drangur ehf.,
skipasmíðastöð í Vestmannaeyjum.
Upphaflega segir hann bara hafa átt
að sandblása stálið og mála, en svo
hafi komið í ljós að skipta þurfti um
tréverk í brúnni að mestu.
Þeir virtust óhræddir mennirnir
sem unnu við brúna í gær, en Þor-
björn segir fyllsta öryggis gætt.
„Þeir eru með öryggisnet fimm
metra undir brúnni,“ sagði Þorbjörn
og bætti við að mennirnir væru að
auki með sjö metra langa öryggislínu
í sér. „Slysin verða helst þannig að of
stutt er í öryggislínunni, en þá getur
komið slinkur á menn ef þeir detta,“
sagði hann.
Morgunblaðið/Rax
Sæmundur Oddsteinsson, Lúðvík Bjarnason og Arnar Páll Gíslason við störf í gær.
Nota öryggisnet
og línu að auki FÓLKSBÍLL með fimm manns
innanborðs valt út af veginum um
Kaldbaksvík í Strandasýslu um
klukkan níu í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Hólmavík sluppu far-
þegarnir ómeiddir. Ökumaður
meiddist lítillega og ætlaði sjálfur
að leita sér læknisaðstoðar á
Hólmavík. Allir sem voru í bílnum
voru með bílbeltin spennt en lög-
reglan segir fullvíst að mun verr
hefði farið hefði fólkið ekki verið í
beltum.
Ökumaður sem grunaður er um
ölvun við akstur ók bíl sínum upp á
umferðareyju við gatnamót Sæ-
brautar og Súðarvogs síðdegis í
gær. Bíllinn skall harkalega á
ljósastaur og voru bæði ökumaður
og farþegi fluttir á slysadeild.
Strætisvagn og fólksbíll lentu í
árekstri á gatnamótum Borgar-
túns og Kringlumýrarbrautar
laust eftir klukkan sjö í gær. Þá
varð þriggja bíla árekstur á Hring-
braut í hádeginu. Nokkru áður
höfðu tveir bílar skollið saman á
gatnamótum Sóleyjargötu og
Njarðargötu.
Eins og hálfs árs gamalt barn
varð undir bíl við Arnarsmára í
Kópavogi um áttaleytið í gær-
kvöldi. Barnið var með meðvitund
en var flutt með sjúkrabifreið á
slysadeild til rannsóknar.
Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogi vildi slysið þannig til að bif-
reið, er verið var að bakka úr
stæði, lenti á barninu sem fór undir
bílinn án þess þó að verða fyrir
dekkjum hans.
Sluppu vel úr bílveltu
Barn undir bíl
í Kópavogi