Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 15 gang. Tveir nýir baðklefar hafa verið teknir í notkun og skápum fækkað í eldri klefum til þess að gera búningsaðstöðuna þægilegri. Þá hafa verið gerðir nýir göngu- urnar ná yfir fjögur svið, vatns- gæði, umhverfismenntun og um- hverfisfræðslu, umhverfisstjórnun og öryggismál og þjónustu. Anna Gunnhildur Sverrisdóttir, rekstrarstjóri baðstaðarins, sagði að Bláflaggið væri hvetjandi fyrir starfsmenn Bláa lónsins. „Eins og umhverfi baðstaðarins gefur til kynna skiptir það okkur miklu máli að starfa í sátt við umhverfið. Blá- flaggið er okkur öllum mikil hvatn- ing að halda áfram á þeirri braut,“ segir í yfirlýsingu Önnu. Umhverfisráðherra óskaði starfsfólki Bláa lónsins til ham- ingju með viðurkenninguna. Hún sagði að aðstaðan væri glæsileg og þar ríkti mikill metnaður í um- hverfismálum. Bláflaggið væri staðfesting á því. Vinsælir göngustígar Að undanförnu hefur verið unnið að ýmsum breytingum og lagfær- ingum á umhverfi baðstaðarins og búningsklefum. Talsverðar breyt- ingar hafa verið gerðar við bíla- stæði og skýli byggt við aðalinn- BAÐSTAÐURINN við Bláa lónið fékk í gær afhent svokallað Blá- flaggs-skírteini sem veitt er bað- stöðum og smábátahöfnum sem uppfylla ákveðnar kröfur í um- hverfis- og öryggismálum. Bláflaggs-skírteinið er gefið út af Umhverfisfræðslusjóði Evrópu (FEEE) sem Landvernd á aðild að. Landvernd veitir Bláa lóninu við- urkenninguna að höfðu samráði við íslenska og erlenda dómnefnd. Áð- ur hefur Ylströndin í Nauthólsvík fengið Bláflaggið. Uppfylla 26 skilyrði Afhending skírteinisins fór fram við athöfn við Bláa lónið og var Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra viðstödd. Sjálft flaggið verður væntanlega afhent að ári, þegar baðstaðurinn hefur staðist öll skil- yrði í heilt ár. Fram kom hjá Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur, for- manni Landverndar, að baðstaðirn- ir þurfa að uppfylla 26 skilyrði til að fá Bláflaggið. Viðmiðunarregl- stígar sem mikið eru notaðir, að sögn Hartmanns Kárasonar deild- arstjóra baðstaðarins. Þar gefst gestum kostur á að njóta umhverfis lónsins og útsýnis yfir það. Áform eru uppi um að halda stígagerð áfram, meðal annars að tengja Bláa lónið við sýningaraðstöðuna í Gjánni í orkuveri Hitaveitu Suð- urnesja. Veita Blá- flaggs-skír- teini viðtöku Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Anna Gunnhildur Sverrisdóttir tók við Bláflaggs-skírteininu og Ólöf Guðný Valdimarsdóttir heldur á bol með merki Bláflaggsins sem fylgdi. Siv Friðleifsdóttir var viðstödd athöfnina. Bláa lónið FLEIRI hús verða byggð og vegakerfi breytt samkvæmt nýju deiliskipulagi á þjónustu- svæði A á Keflavíkurflugvelli en það er norðvestan Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Flugvallarstjórinn á Keflavík- urflugvelli og Varnarmálaskrif- stofa utanríkisráðuneytisins hafa auglýst tillögu að breyttu deiliskipulagi hluta flugstöðvar- svæðisins. Á svæðinu eru nú þjónustubyggingar Flugleiða, svo sem viðhaldsstöð, ný frakt- stöð og flugeldhús, einnig elds- neytisafgreiðsla, önnur frakt- miðstöð, aðstaða flugfélags, flugskóli, bílaleigur og fleira. Í nýja deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að hafa þar stjórnsýslu og ýmis þjónustu- og atvinnu- hús, auk skrifstofuhúsa, hótels og bílaleiga sem gert var ráð fyrir í fyrra skipulagi. Björn Ingi Knútsson flugvall- arstjóri segir að ásókn í lóðir á svæðinu hafi aukist mjög vegna aukinnar umferðar um flugvöll- inn. Þeir aðilar sem hafi með höndum flugsækna starfsemi hafi áhuga á aðstöðu þar vegna aukinna umsvifa í flugstöðinni og á flugvellinum. Nefnir hann bílaleigur sem dæmi um það. Þær hafi raunar aðstöðu á flug- hlöðum en sé ætlaður staður á þjónustusvæðinu. Einnig sé gert ráð fyrir að þarna rísi stjórnsýsluhús. Svæðið er rúmlega 11 hekt- arar að stærð. Að sögn Björns Inga liggja fyrir nokkrar umsóknir um lóðir á svæðinu. Hann segir að þegar gengið hafi verið frá skipulaginu verði afstaða tekin til þess hvort þær verði afgreiddar sérstak- lega eða hvort allar lóðirnar verði boðnar út. Aukin ásókn í lóðir Keflavíkurflugvöllur Breyting á deiliskipulagi þjónustusvæðis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.