Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 50
FÓLK Í FRÉTTUM 50 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á PLÖTUNNI er að finna hljóm- sveitir eins og Pearl Jam (sem taka „The Kids Are Alright“), Stereo- phonics („Who Are You“) og Ocean Colour Scene („Anyway, Anyhow, Anywhere“). Listamenn eins og Paul Weller, David Bowie og Sheryl Crow eru einnig með innlegg, svo og minni spámenn eins og Phish, Unamerican og Fastball. Bob Pridden var og er rótari The Who og er einnig starfandi upptöku- stjóri. Hann hafði veg og vanda af út- gáfunni en hugmyndin að henni kom fram er hann var að taka upp með Bretapoppsveitinni Cast þar sem ákveðið var að notast við Who-lagið „The Seeker“ sem b-hliðarlag á smá- skífu. Greinarhöfundur hringdi í Pridden og gerði sitt besta til að pumpa upp úr honum svæsnar rokk- sögur af Keith Moon og félögum. Að sjálfsögðu! Sjónvörp út um glugga Bob er í góðu skapi hinum megin á línunni og segist vera í hálfgerðu fríi. „Ég byrjaði að vinna með Who árið 1966,“ upplýsir Bob. „Og geri enn. Bráðlega fer ég til Bandaríkjanna með Pete (Townshend).“ Hann segir að boltinn hafi farið að rúlla vegna áðurnefndrar útgáfu Cast á „The Seeker“. „Ég tók lagið heim og hugsaði með mér að þetta væri allt of gott til að verða bara að b-hliðarlagi. Dóttir mín sagði svo: „Pabbi, þetta hljómar frábærlega. Þú ættir að fá aðrar ung- ar sveitir til að taka lög með The Who og útbúa úr því breiðskífu!“ Ég bjó svo til óskalista yfir þá sem ég vildi að tækju þátt og það tók heila 18 mánuði að koma því öllu í höfn.“ Markmiðið var ekki endilega að öll frægustu lög Who myndu fylla disk- inn, að sögn Pridden. „Aðaláherslan var á að platan yrði góð,“ segir Pridden. „Þarna eru mörg af elstu lögum sveitarinnar og ég held að ef sneitt er framhjá hinu augljósa verði hlutirnir áhugaverð- ari. Lagið hans Paul Weller „Circles“ er til dæmis afar fáheyrt. Ég hafði ekki einu sinni heyrt það!“ Á sjöunda og áttunda áratugnum settu The Who ákveðna staðla um hvernig ætti að lifa rokkaralífi. Að henda sjónvörpum út um hótel- glugga er t.a.m. frá þeim komið. Sér- staklega var trommuleikarinn, Keith Moon, afar duglegur við hin ýmsu uppátæki, að maður tali nú ekki um sukkið og svallið sem þessu fylgdi. „Þetta gat verið skolli erilsamt,“ viðurkennir Pridden, þegar hann er spurður um hvernig þetta hafi verið á sínum tíma. „Mjög erilsamt. Á fyrsta Bandaríkjatúr sveitarinnar var ég t.d. eini rótarinn. Svo þegar þeir mölvuðu öll tæki og tól fór ég á eftir, safnaði öllu saman og setti það sam- an á nýjan leik fyrir næstu tónleika! Í dag geta verið hátt í 100 manns að vinna við að róta. Á þessum tíma var maður meira svona allt í öllu.“ Samband rótara við sjálfa tónlist- armennina getur verið sérstætt og í raun heilmikil speki á bak við það hvernig þeim ber að haga sér, a.m.k ef marka má Bob Pridden. „Ég tel að rótarinn þurfi að vera ansi náinn tónlistarmanninum en þó ekki um of. Hann þarf að skilja hann og það er kannski það mikilvægasta. Ef allt fer í klúður á einhverjum risa- tónleikum þarftu að geta sett þig í spor tónlistarmannsins, þ.e. skilja af hverju það fer í skapið á honum.“ Pridden er alveg með fæturna á jörðinni er talið berst að sukkinu og svínaríinu sem einatt fylgir frægð- inni. „Það er nú bara þannig að þegar menn eru 22 ára eða hvað það er og eru í tónleikaferð um allan heim fylgir þetta næstum því óhjákvæmi- lega. Við erum að sjálfsögðu hættir þessu í dag. En þetta var öðruvísi þegar heimurinn var nánast í hönd- um okkar.“ Moon Nú fara sögurnar að rúlla og Pridden fellst ljúfmannlega á það að koma með eina góða af Moon. „Við vorum nýbúnir að klára plöt- una The Who By Numbers. Keith bjó þá í Los Angeles og hann fór með ein- tak af fullkláraðri plötunni þangað. Hann labbaði svo inn á hótel með risaferðatæki á öxlinni, spilandi plöt- una. Hótelstjórinn var ekki lengi að vinda sér upp að honum og biðja hann um að slökkva á þessum „háv- aða“. Keith brást hinn besti við, slökkti á tækinu og hélt til herbergis síns. Þar hringdi hann þegar í stjór- ann sem kom rakleiðis upp og bank- aði á dyrnar. Skyndilega heyrðust mikil læti innan úr herberginu þar sem Keith hafði ákveðið að brjóta og bramla nokkur húsgögn. Hann opn- aði svo dyrnar og var þá með plötuna nýju í gangi. Hann sagði við hótel- stjórann: „Þetta sem þú heyrðir áðan var „hávaði“.“ Benti svo á ferðatæk- ið. „Þetta aftur á móti er tónlist!““ Pridden er greinilega hlýtt til þessa gamla félaga síns en Moon lést árið 1978 af ofneyslu eiturlyfja. Moon er iðulega lýst sem geðsjúkum trúði en það eru ýktar lýsingar að mati Pridden sem hafði tækifæri til að fylgjast grannt með Moon á meðan ferill Who var í fullum gangi. „Hann var kátur og litskrúðugur fýr, því er ekki að neita. Honum var einfaldlega mikið í mun að koma fólki í gott skap. En hann átti líka sínar al- varlegu hliðar. Keith leysti öll vanda- mál innan sveitarinnar á nokkuð merkilegan hátt. Hann labbaði bara inn í herbergið, gerði eitthvað fárán- legt og við það gleymdu allir því sem þeir voru að rífast um. Hann var ekki geðveikur. Hann var bara ofurhress æringi sem hætti aldrei að leika. Þegar hann dó var hann eins og 75 ára gamall maður. Hann var búinn að lifa fleiri lífum en góðu hófi gegnir.“ Að lokum er hæfandi að Pridden svipti hulunni af leyndardómnum á bak við farsælan rótaraferil. „Svo lengi sem þú manst að þú ert ekki einn af hljómsveitinni á þér eftir að farnast vel,“ segir Pridden og glottir í gegnum símann. „Þú ert hluti af hópnum en ekki hljómsveit- inni. Þeir sem eru í hljómsveitinni eru þeir sem standa uppi á sviðinu. Sumum hættir stundum til að gleyma því.“ „Skolli erilsamt“ Út er komin platan Substitute þar sem þekktir dægurtónlistarmenn samtímans setja svip sinn á nokkur laga hinnar forn- frægu rokksveitar The Who. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Bob Pridden, rótara Who – af öllum mönnum – en skýringin er sú að hann hafði yfirumsjón með útgáfunni. The Who með heiminn í höndunum: (Standandi f.v.) Pete Townshend og John Entwistle, (sitjandi f.v.) Keith Moon og Roger Daltrey. Pridden hefur rótað fyrir Who síðan á sjöunda áratugnum. arnart@mbl.is Who-slagarar í nýjum búningi Miðasalan í Iðnó opin frá kl. 14-18. Sími 530 3030 HEDWIG KL. 20.30 fös 17/8 nokkur sæti laus, lau 25/8, fös 31/8 spila frá miðnætti Vesturgötu 2, sími 551 8900 Dans á rósum frá Vestmannaeyjum MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fö 27. júlí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS SÍÐASTA SÝNING Í SUMAR WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU Lau 28. júlí kl. 20 - AUKASÝNING, ÖRFÁ SÆTI LAUS Ath. SÍÐASTA SÝNING Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.