Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. LANDSBANKI Íslands hefur nú um nokkurt skeið boðið viðskiptavin- um sínum svokallaðan „frían að- gang“ að netþjóni bankans til að nýta sér þjónustu Einkabankans og tengingu við internetið. Flestir starfsmenn markaðsdeildar Lands- bankans, sem ég hef átt orðastað við, hafa gert mikið úr þeim „gæðum“, sem viðskiptavinum bankans eru boðin með þessari „fríu þjónustu“ og blásið á allar kvartanir vegna ótryggs og stundum ómögulegs sam- bands við þennan netþjón. Í ljós hefur komið, að netþjónninn er í vörzlu og umsjá Landssímans, þótt intnernetþjónusta þess fyrir- tækis kannist ekkert við þá stað- reynd og sverji af sér allan skyld- leika við hann. Markaðsdeild Landsbankans hefur einnig að mestu hummað þessa ábyrgð fram af sér og vísað til Landssímans. Það hefur líka komið í ljós, að þessi net- þjónn annar engan veginn umferð- inni og stundum nægja ekki tugir til- rauna til að komast í samband við hann. Mjög oft slitnar sambandið óvænt á ýmsum stigum sambandsins og þá byrjar langur ferill við að kom- ast í samband á ný. Markaðsdeild Landsbankans er þessi staða ljós en samt sem áður hefur hún látið boð út ganga til þjón- ustudeilda og starfsfólks bankans, sem er í beinum tengslum við við- skiptavinina, að vera nú duglegt við að laða fleiri viðskiptavini að teng- ingunni við netþjóninn. Þetta eru vinnubrögð, sem eru beinlínis við- skiptafjandsamleg og valda stöðug- um og fokdýrum vandræðum, s.s. fjölda startgjalda hjá símafyrirtækj- um vegna tuga tilrauna til að ná sam- bandi og hanga í því. Markaðsdeild Landsbankans hef- ur mánuðum saman margtuggið væntanlegar breytingar vegna flutn- ings netþjónsins frá Landsímanum til Íslandssíma og og stækkunar hans, en ekkert gerist. Það er því nauðsynlegt að aðvara þá, sem hyggjast flytja sig frá öðrum net- þjónum til að njóta „Auðveldu leið- arinnar á Netið“ og „frís aðgangs“, sem hefur reynst óskaplega kostn- aðarsamur, óáreiðanlegur, valdið notendum ótrúlegu erfiði, tímasóun, ergelsi, vonleysi og jafnvel þung- lyndi. Til að kóróna glæpinn, krefst Landsbankinn kr. 99,90 fyrir mínút- una, þegar hringt er í þjónustudeild netþjónsins. Margir hafa vafalaust hringt í síma þessarar þjónustu til að kvarta undar ofangreindu og fengið þau svör, að eitthvað hljóti að vera að tölvubúnaði viðkomandi, því allt sé í himnalagi og bezta standi með net- þjóninn. Þessi þjónusta, sem kostar tæplega 100.- kr. á mínútu, hleypur fljótt á þúsundum króna og þá kem- ur í ljós, að betra hefði verið að halda sig við viðskipti annars staðar, þar sem greiddar eru um og innan við kr. 1.000.- á mánuði. Miðað við reynslu undirritaðs af tveimur öðrum fyrirtækjum (Is- landia og Síminn Internet), var ástandið á þeim bæjum lítið betra, þannig að ákvörðun var tekin um að söðla um eftir að netþjónn Lands- bankans hafði verið u.þ.b. eitt ár í gangi í þeirri trú að þjónustan hefði þróast eðlilega á því tímabili. Í upp- hafi þessarar tilraunar var ákaflega erfitt að komast í samband við Einkabankann en auðveldara að halda sambandi við netþjóninn. Nú hefur þetta snúizt við illu heilli. Samkvæmt ummælum nokkurra vina og kunningja undirritaðs eru aðrir netþjónar ekki miklu betri og misbrokkgengir, en það er þó skömminni skárra að greiða fast gjald mánaðarlega fyrir þjónustuna en að safna glóðum elds að höfði sér með viðskiptum við netþjón Lands- bankans. Starfsmönnum markaðsdeildar Landsbankans skal vinsamlegast bent á, að þessi svokallaða „fría og auðvelda leið á Netið“ er á engan hátt frí, því að launaumslög starfs- mannanna detta ekki af himnum of- an um hver mánaðamót. Viðskipta- vinir bankans greiða þessu starfsfólki laun. Viðskiptavinir bank- ans og netþjónustunnar eru í gísl- ingu þjónustusímans dýra og eru stöðugt að greiða lausnargjald. Símafyrirtækin, sem eru ábyrg fyrir nettengingum, lofa gulli og grænum skógum í auglýsingum sín- um um öruggar sí- og mótaldsteng- ingar en mörg landsvæði og hlutar höfuðborgarsvæðisins eru ekki í stakk búin til að veita þessa þjón- ustu. Það ber allt að sama brunni: Tæknivæðing síma- og netþjóna er mun skemur á veg komin en há- stemmdar auglýsingar og loforð fyr- irtækja í greininni gefa til kynna. Þarna er beinlínis verið að ljúga að blásaklausum og bláeygum við- skiptavinum, sem hlýtur að varða við lög og vera verðugt verkefni fyrir Samkeppnisstofnun. Hér með er skorað á hana að taka þessi mál til rækilegrar athugunar. FRIÐRIK HARALDSSON, leiðsögumaður, Hverafold 48, Reykjavík. Auðvelda leiðin á Netið? Frá Friðriki Haraldssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.