Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ 16 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is MÆRUDAGAR voru haldnir á Húsavík um síðustu helgi, sjöunda árið í röð. Í upphafi voru þeir hugs- aðir sem nokkurs konar uppskeru- hátíð á félagsstarfi vetrarins á Húsavík og nágrenni. Þá stóð dag- skráin frá kvöldi síðasta vetrardags og fram á sunnudaginn þar á eftir. Þá samanstóð dagskráin af mynd- listar-, leik-, ljósmynda- og safn- arasýningum, tónleikum og fleiru sem tengdist menningarlífinu. Árið 1996 var ákveðið að breyta Mæru- dögunum í sumarhátíð og gefa fleirum kost á því að vera með. Nú eru Mærudagarnir orðnir að fjöl- skylduhátíð með karnivalsvip og eru haldnir á bryggjusvæðinu á Húsavík sem segja má að sé hjarta bæjarins, þó með öðru sniði en áður var. Dagskráin var fjölbreytt að þessu sinni, Leikfélag Húsavíkur sá um að halda og skipuleggja hátíðina þetta árið. Þar sem allt of langt er að telja upp öll dagskráratriði sem í boði voru verður það látið liggja milli hluta að þessu sinni en mynd- irnar látnar tala sínu máli. Það stendur þó eftir að Leikfélagið stóð sig vel í að skipuleggja hátíðina, all- ir þeir listamenn og skemmtikraft- ar sem komu fram stóðu sig vel, bæjarbúar og aðrir gestir Mæru- daganna stóðu sig svo með prýði því vel var mætt á flestöll atriðin. Verslanir, veitingastaðir og ýms- ir aðrir þjónustuaðilar voru með allskonar tilboð í gangi auk þess sem Sálin hans Jóns míns var með dansleik á Fosshótel Húsavík á laugardagskvöldinu. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Það mættu margir í skrúðgönguna. Það var góð stemmning á bryggjuballinu með Kalk. Bryggjuhátíð með karnival- stemmningu Húsavík Mærudagarnir í sjöunda sinn ÁRLEGT opið mót Sjóstanga- veiðifélags Snæfellsness (SJÓSNÆ) fór fram um síðustu helgi. Sjötíu og einn keppandi var á mótinu og komu þeir víðsvegar af landinu. Róið var á 18 bátum. Afli var mjög góður því að land komu rúm 29 tonn. Ellefu fiski- tegundir veiddust. Aflahæst kvenna varð Sigurbjörg Kristjánsdóttir frá SJÓSNÆ og fékk hún 669 kg en aflahæsti karlinn var Þorsteinn Jóhannesson frá SJÓ- SIGL sem fékk 792 kg. Í sveitakeppni kvenna sigraði sveit SJÓSNÆ (Sibba, Björg, Hrefna og Sonja) og fékk sveitin 2.019 kg. en sveit SJÓAK (Valur, Pétur, Kristján Freyr og Valdimar) vann í sveita- keppni karla og fiskaði 2.115 kg. Stærsta fisk mótsins veiddi Björn Ólsen frá SJÓSIGL. Var það þorsk- ur sem vó rúm 15 kg. Aflahæsti bátur varð Kópur, skip- stjóri Úlfljótur Jónsson. Meðalafli á þeim bát var 616 kg á stöng. Formaður Sjóstangaveiðifélags Snæfellsness er Lárus Einarsson. Líflegt sjóstanga- veiðimót í Ólafsvík Morgunblaðið/Helgi Vígreif sigursveit SJÓSNÆ heldur til skips. Ólafsvík SLÖKKVILIÐ Grundarfjarðar fékk afhentan nýjan slökkvbíl af gerð- inni Volvo nýlega. Nýi slökkvibíllinn er vel búinn tækjum til slökkvistarfa, m.a. er í honum 300 lítra froðutankur. Slökkvibíllinn tekur 3.000 lítra af vatni. Slökkviliðið í Grundarfirði er vel mannað, kjarninn telur um 15 manns auk varamanna. Morgunblaðið/Hallgrímur Nýr slökkvi- bíll til Grund- arfjarðar Grundarfjörður NÝLOKIÐ er smíði á sáluhliði við kirkjugarðinn í Lundarbrekku í Bárðardal og er einungis eftir að setja á það ljósakross þann sem áður var á kirkjunni sjálfri. Lundarbrekkukirkja er eitt af merkustu húsum Þingeyjarsýslu en hún var byggð árið 1879 úr tilhöggn- um sandsteini sem fluttur var á hes- tasleðum í sjálfboðavinnu yfir ísilagt Skjálfandafljót þá um veturinn. Smíð- in tók tvö ár og var hún vígð í desem- ber 1881. Eldri kirkjan á Lundar- brekku brann árið 1878 en samkvæmt úttekt 1854 var sú kirkja talin feg- ursta kirkja prófastsdæmisins. Járnþak var ekki sett á nýju Lund- arbrekkukirkju fyrr en 1902 og var þá aðeins pappi á súðinni fram að því. Árið 1917 var gefin merkileg altaris- tafla í kirkjuna sem enn prýðir hana og er það Fjallræðan eftir Ásgrím Jónsson. Kirkjan var raflýst 1928 með heim- ilisrafstöð á Lundarbrekku og var þá núverandi ljósakróna sett í hana. 1963 var mikið framkvæmt í kirkjunni og var hún máluð að innan auk þess sem settar voru stjörnur í hvelfinguna sem bárðdælskir bændur tálguðu úr birki. Þá var sett litað gler í gluggana. Í tilefni af aldaraafmæli kirkjunnar 1981 fór fram á henni gagnger við- gerð að miklu leyti eftir tillögum Bjarna Ólafssonar lektors. Sett var spjaldþil á alla veggi, bekkir voru bólstraðir og predikunarstóllinn flutt- ur til. Nýtt altarisklæði var tekið í notkun sem var gjöf kvenfélagsins og nýr altarisdúkur sem unninn var af Guðrúnu Sveinbjörnsdóttur og Hjör- dísi Kristjánsdóttur. Mjög sérstætt veggteppi er uppi í kirkjunni gert af Sigrúnu Höskuldsdóttur úr heima- unnum efnum frá bæjum í sókninni. Skírnarfonturinn er eftir bræðurna Hannes og Kristján Vigfússyni frá Litla-Árskógi og orgelið er frá árinu 1905 og er enn notað. Nýtt sáluhlið við Lundar- brekkukirkju Laxamýri Morgunblaðið/Atli Vigfússon Nýja sáluhliðið. Eftir er að setja ljósakrossinn. SIGRÍÐUR Pétursdóttir og Guðjón Gunnlaugsson hafa í sumar starfrækt sumarbúðir fyrir fatlaða á heimili sínu á Djúpavogi. Þau voru flutt suður en tókst ekki að selja húsið svo það hefur staðið autt í eitt og hálft ár. Guðjón var skipstjóri og Sigríður seldi trygg- ingar. Nú eru þau komin til baka á Djúpavog og hafa haft nóg að gera við að taka á móti fólki á öllum aldri sem nýtir sér þessa þjónustu. Fimm til átta manns dvelja hjá þeim í einu og er misjafnt hversu lengi hver og einn stoppar, allt frá einni viku upp í mánuð í senn. Dagskráin er fjölbreytt enda margt hægt að gera á Djúpavogi. Þegar fréttaritari heimsótti hópinn fyrir nokkru var búið að vera nóg að gera. Kvöldið áður var diskótek á Hótel Framtíð og þar var mikið dans- að og sungið. Plötusnúður var Sigurð- ur Haukur Vilhjálmsson, tuttugu ára, en hann hefur mikinn áhuga á tónlist og heldur mest upp á Bubba, Vilhjálm og Sólstrandargæjana. Hann hefur líka áhuga á körfubolta og sýndi góða takta með boltann. Bryndís Ósk Gísladóttir, sautján ára, er einnig í sumarbúðum á Djúpa- vogi og hún er ánægð með dvölina. Skemmtilegast finnst henni að fara á rúntinn og hlusta á Bubba og Abba. Elsti sumarbúðagesturinn er Ás- laug Ívarsdóttir, 47 ára, og hún hefur sérstaklega gaman af að róla. Í garð- inum er búið að setja upp rólu fyrir hana og er hún mikið notuð. Sigríður og Guðjón stefna að því að halda starfseminni áfram enda hafa þau fengið jákvæð viðbrögð og eru greinilega að vinna gott starf. Morgunblaðið/Sólný Páldsóttir Áslaug Ívarsdóttir, Snorri Jónsson, Sigurður Haukur Vilhjálmsson, Ari Guðjónsson, Líney Björgvinsdóttir og Bryndís Ósk Gísladóttir. Sumarbúðir í sveitinni Djúpivogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.