Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKIÐ Lyf og heilsa tekur
fyrst íslenskra lyfsölufyrirtækja
upp tölvustýrða lyfjaskömmtun til
almennings í framhaldi af sam-
starfssamningi sem undirritaður
var í gær við Lyfjaver ehf. Lyfja-
skömmtun með þessum hætti er
ætluð fólki sem notar lyf að stað-
aldri en boðið verður upp á hana í 25
apótekum Lyfja og heilsu um allt
land.
Áður notað á
hjúkrunarheimilum
„Þetta er nýjung, a.m.k. á Íslandi
og jafnvel í Evrópu,“ sagði Bessi
Gíslason lyfjafræðingur sem fyrir
hönd Lyfjavers ehf. undirritaði
samninginn. Fram kom í máli hans
að fyrirtækið hefur verið starfandi í
ein þrjú ár og á þeim tíma hefur
þessi aðferð við skömmtun lyfja ver-
ið notuð víða á öldrunarheimilum og
sjúkrastofnunum. „Öryggi, hag-
kvæmni og hagræðing eru einkunn-
arorðin sem við förum eftir,“ sagði
hann.
Karl Wernersson, framkvæmda-
stjóri Hagræðis hf. sem rekur Lyf
og heilsu, sagði við undirritun sam-
starfssamningsins að tölvustýrð
lyfjaskömmtun væri öruggasta leið-
in til að fá fólk til að taka lyfin sín á
réttan hátt. „Þetta er gert fyrir fólk
sem þarf jafnvel að taka inn fimm til
sjö tegundir lyfja á dag og jafnvel
oft á dag,“ sagði hann en fólk mun fá
lyfin forpökkuð í litla plastpoka
vandlega merkta, bæði dagsetningu
og á hvaða tíma dagsins á að taka
lyfin inn.
Ódýrasta samheitalyfið valið
Skammtað er til 14 eða 28 daga í
senn. „Fólk er öruggt með hvenær á
að taka lyfin og eins ætti ekki að
koma upp ruglingur með hvort ein-
hver er búinn að taka lyfin sín eða
ekki,“ bætti Karl við. Hann segir
lækni ákveða hvaða lyf sjúklingur á
að taka. „Okkar hlutverk er svo að
skammta það og ganga frá þannig
að sjúklingurinn geti tekið þau inn á
sem léttastan og auðveldastan hátt.
Í þeim tilvikum þar sem hægt er að
velja um fleiri en eina tegund af
sama lyfi, svokölluð samheitalyf,
veljum við það lyf sem er ódýrast
samkvæmt lyfjaverðskrá hverju
sinni,“ sagði Karl.
Bessi Gíslason sagði að enn sem
komið er sæi ein vél um að skammta
í poka fyrir allt landið en upplýsti
jafnframt að von væri á annarri enn
stærri og afkastameiri 15. septem-
ber næstkomandi. „Við gerum ráð
fyrir verulegri aukningu í þessu,“
staðfesti hann.
Samstarf um tölvustýrða lyfjaskömmtun fyrir almenning
Öryggi og hagræði fyrir
fólk sem tekur mörg lyf
Karl Wernersson og Bessi Gíslason við undirritun samningsins í hús-
næði Lyfjavers ehf. í Reykjavík í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
Sigþór Jóhannesson, starfsmaður Lyfjavers ehf., matar vélina á lyfjum,
en hún flokkar þau og skilar tilbúnum til neyslu.
gerður töldu bændurnir og eins
ríkisvaldið að þetta væri rekstur
sem yrði að vera í samkeppni á
markaði og yrði að reka sig sem
slíkur. Hitt er annað mál að þetta
er byggðamál og spurning um
hvernig þetta þróast og hvar hægt
er að grípa inn í ef það væri út frá
byggðamálum. Ég sé það þó ekki í
svipinn.“
Sláturleyfishafar og bændur
komi að málinu
Um áform forsvarsmanna Goða
þess efnis að vilja ekki selja slát-
urhúsið í Búðardal öðrum aðilum
sem hefðu hug á að slátra þar segir
Guðni:
„Mér finnst ekki ganga upp að
heilu landsfjórðungarnir séu slát-
urhúsalausir og við verðum að sjá
hvort Goði finni sinn rekstrar-
grundvöll sem ég auðvitað vona.
Að þeir geti staðið við að borga
bændum og komið vörunni á mark-
að. Það er mjög mikilvægt að fleiri
aðilar komi að þessu máli. Að slát-
urleyfishafar með bændur á bak
við sig í heild skoði málið út frá
þessum sjónarmiðum og reyni að
semja um hvernig verður slátrað í
haust um leið og horft verði til
framtíðar hvernig þessi rekstur á
að ganga. Menn hafa ekki langan
tíma til að vera yfir þessu verki.“
GUÐNI Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segir að í síðasta sauð-
fjársamningi hafi ekki verið gert
ráð fyrir neinum peningum til hag-
ræðingar eða neins hvað sláturhús
varðar er hann var inntur eftir við-
brögðum vegna málefna Goða hf.
„Það eru engir peningar í síðasta
sauðfjársamningi ætlaðir í þennan
lið. Samningurinn snerist um að
styrkja sauðfjárræktina sem grein
og stöðu bændanna og um það snú-
ast beingreiðslurnar. Hitt er bara
markaðsmál og ég sé ekki að rík-
isvaldið eigi eftir að koma að þessu
máli nema það væri út frá sjón-
armiðum byggðanna. Ég greini
ekki að landbúnaðarráðuneytið
geti þar haft slíka forystu.“
Byggðamál
Guðni segir að hann hafi miklar
áhyggjur af þróun sauðfjárslátrun-
ar því hún hafi áhrif á byggðir og
afkomu bænda.
„Þessu fylgir því mikill vandi.
Það er náttúrlega mjög mikilvægt
við þessar aðstæður að bændur
komi af fullum krafti að málunum
því þeir bera ábyrgð á sláturhús-
unum og verða að gera það. Það
liggur fyrir að í síðasta sauðfjár-
samningi var ekki gert ráð fyrir
neinum peningum til hagræðingar
eða neins hvað sláturhús varðar. Á
þeim tíma sem sá samningur var
Ráðuneytið
mun ekki koma
til aðstoðar
Landbúnaðarráðherra
um málefni Goða hf.
KRISTINN Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Goða hf., segir að
ekki komi til greina að leigja eða
selja sláturhús fyrirtækisins í Búð-
ardal sé ætlunin að nota það til
slátrunar.
„Markmiðið er að það verði ekki
starfrækt áfram vegna hagræðing-
araðgerða hjá okkur. Við erum að
draga saman afkastagetuna í
greininni þar sem hún hefur verið
of mikil. Það hefur orsakað sam-
keppni um hráefni sem hefur vald-
ið því að við höfum ekki náð end-
um saman. Það er engin ástæða
fyrir okkur að fækka húsum sem
við rekum ef öll húsin fara undir
rekstur hjá öðrum. Þá sitjum við
bara uppi hráefnislausir eftir sem
áður.“
Spurður hvort Goði fengi samt
ekki tekjur af eign sem annars
myndi engu skila sagði hann:
„Hún skilar þeirri hagræðingu
að það verður ekki lengur slátrað
þarna og því getum við slátrað
meira í hinum húsunum miðað við
það sem við bjóðum í verð fyrir
hráefnið. Þetta er bara einföld
hagfræði.“
Úreldingarstyrkir
ekki á boðstólum
Þið ætlið sem sagt að láta slát-
urhúsið í Búðardal standa autt?
„Við ætluðum að úrelda það. Það
var okkar markmið. Við erum með
átta sláturhús fyrir sauðfé en telj-
um okkur þurfa þrjú til fjögur.
Húsið í Búðardal er bara eitt af
þeim sem átti að úrelda.“
Segir Kristinn að úreldingar-
styrkir standi hins vegar ekki til
boða.
„Við hefðum náttúrlega viljað fá
úreldingarstyrki til að minnka af-
kastagetuna í þessari grein en þeir
eru ekki á boðstólum. Það eru
dræmar viðtökur við því að við
fáum úreldingarbætur. Ég reikna
því með að við reynum að selja
húsið undir aðra starfsemi.“
Fram hefur komið í fjölmiðlum
að sveitarstjórn Dalabyggðar hef-
ur jafnvel áhuga á að kaupa slát-
urhúsið í Búðardal. Hefur komið
upp sú hugmynd að stofna eign-
arhaldsfélag utan um húsið og
gera síðan samning við einhvern
sláturleyfishafa um rekstur þess.
Er Kristinn var spurður hvort
Goða hefðu borist einhver kaup-
tilboð í sláturhúsið í Búðardal
sagði hann svo ekki vera. Hins
vegar hefði sveitarstjórnin lýst yf-
ir áhuga á því en ekki sent inn til-
boð.
Hafnið þið alfarið að selja sveit-
arstjórn Búðardals sláturhúsið svo
að heimamenn geti leigt það öðr-
um sláturleyfishöfum?
„Já, það er ekki valkostur.“
Í Morgunblaðinu í gær kom
fram að nánast öllum starfsmönn-
um Goða, alls 74, hafa verið til-
kynntar uppsagnir á undanförnum
dögum enda hyggst fyrirtækið ein-
göngu hafa sláturhúsin opin í slát-
urtíð.
Að sögn Kristins munu fastráðn-
ir starfsmenn Goða því aðeins
verða á bilinu fimm til tíu.
„Þegar sláturtíð lýkur verða um-
sjónarmenn húsanna og svo ein-
hver stöðugildi á skrifstofu og
vegna sölu og frágangs. Þá verður
einhver tímavinna vegna sögunar
og vinnslu á kjöti.“
Niðurstaða um greiðslu-
stöðvun á mánudag
Í blaðinu í gær kom fram að
Sláturfélag Suðurlands (SS) mun
hækka vegið meðalverð sem greitt
var fyrir dilkakjöt á innanlands-
markaði síðasta haust um 7%. Goði
hefur á hinn bóginn boðið upp á
8% lækkun og jafnframt verður
ekki greitt fyrir kjötið fyrr en á
næsta ári.
Er Kristinn var spurður að því
hvort hann gæti skýrt af hverju
SS gæti hækkað verð til bænda á
meðan Goði þyrfti að lækka sagði
hann:
„Þeir eru með aðrar einingar
hjá sér sem eru mjög vel reknar.
Þeir hafa hins vegar viðurkennt á
fundum að þeir reka sauðfjárslátr-
unina ekki með hagnaði. Þeir líta á
þetta sem einhverja þjónustu við
eigendur sína. Ég get ekki skýrt
það öðruvísi.“
Goði lagði fram beiðni um
greiðslustöðvun til Héraðsdóms
Reykjavíkur 23. júlí sl. og segist
Kristinn eiga von á niðurstöðu
héraðsdóms nk. mánudag.
Framkvæmdastjóri Goða um sláturhúsið í Búðardal
Slátrun í húsinu
kemur ekki til greina
Afkastagetan
dregin saman
Sjópróf vegna
Unu í Garði á
mánudag
SJÓPRÓF vegna Unu í Garði
GK-100 sem fórst ásamt tveimur
mönnum aðfaranótt þriðjudagsins
17. júlí hefjast næstkomandi mánu-
dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Una í Garði fórst norður af
Skagafirði og var þremur skipverj-
um auk 11 ára sonar stýrimanns
bjargað um borð í rækjubátinn
Húna HU-62 um fimm klukkustund-
um eftir slysið.
Handteknir
með fíkniefni
á Akureyri
TVEIR menn voru handteknir
vegna gruns um aðild að fíkniefna-
máli á Akureyri aðfaranótt mið-
vikudags.
Við húsleit hjá þeim fannst
nokkuð af fíkniefnum að sögn lög-
reglu.
Þeir gistu fangageymslur og
voru yfirheyrðir í gærdag.
Fiskur á
Holtavörðu-
heiði
FLUTNINGABIFREIÐ með um
fimm og hálfu tonni af fiski í körum
valt um klukkan þrjú í fyrrinótt á
sunnarverðri Holtavörðuheiði.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi dreifðist fiskurinn um veginn og
var lokið við hreinsunarstörf um
klukkan þrjú í gærdag. Þó urðu
óverulegar tafir vegna óhappsins.
Bifreiðin var á leið frá Bolungar-
vík til Reykjavíkur.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦