Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 42
HESTAR 42 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÆSKULÝÐSMÓTIÐ sem haldið var á Skógarhólum um síðustu helgi fór vel fram. Að sögn Garð- ars Hreinssonar, formanns fram- kvæmdanefndar mótsins, hefur líklega verið yfir 150 manns þegar flest var, en um 50 krakkar tóku þátt í þrautum og leikjum sem fram fóru á laugardeginum. Góð þátttaka var einnig í sam- eiginlegum reiðtúr síðdegis á laug- ardeginum, en hann varð styttri en til stóð þar sem úrhellisrigning setti strik í reikninginn. Best þátt- taka var úr félögunum á Suður- landi og var krökkum og hestum úr þeim félögum ekið að Gjábakka þaðan sem þeir komu ríðandi til Skógarhóla. Góð stemmning var á kvöldvökunni á laugardagskvöldið og meðal þeirra sem þar komu fram var Magnús Scheving. Garðar telur að yngsti þátttak- andinn á mótinu hafi verið 8 mán- aða og sá elsti á áttræðisaldri. Hann sagðist vonast til að fram- hald yrði á þessum æskulýðs- mótum, en spurningin væri hvort ætti að halda þau á hverju ári eða annaðhvort ár. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Lagt af stað í reiðtúr sem varð styttri en til stóð vegna rigningar. Æskulýðsmótið fór vel fram ÁKVEÐIÐ hefur verið að steypa saman Islandica 2001, hesta- og hestavörusýningunni, og Heimilis- sýningunni, en halda átti þessar sýningar í Laugardalnum með fárra daga millibili í september næstkom- andi. Fannar Jónasson framkvæmda- stjóri Islandica 2001 sagði að að- standendur þeirrar sýningar hafi ekki verið allt of ánægðir með að Heimilissýningin ætti að vera nokkrum dögum á undan Islandica 2001. Nú hafi hins vegar báðir sýn- ingaraðilar komist að því að best væri að sameina þessar sýningar. Það þætti hagræði bæði fyrir sýn- endur og gesti sem geta slegið tvær flugur í einu höggi. Gert er ráð fyrir að um 40.000 manns komi til að skoða þessa sameiginlegu sýningu. Fannar sagði að nú gæfist tækifæri til að kynna íslenska hestinn og vörur tengdar honum fyrir mun fleira fólki en upphaflega var gert ráð fyrir. Sýningarnar verða í Laug- ardalshöllinni, Skautahöllinni og eitthvað mun Húsdýragarðurinn einnig tengjast þeim. Að einhverju leyti munu þær skarast, t.d. hvað varðar útivist og byggingarefni svo dæmi séu tekin. Dagskrá Islandica 2001 helst óbreytt, en sýningin lengist frá því sem áður var auglýst. Hún mun standa yfir dagana 6.-10. septem- ber. Fannar sagði að heilmikill áhugi væri á því að sýna á Islandica 2001, en sýnendur hafi tekið frekar seint við sér. Útlendingar hefðu ekki sýnt mikinn áhuga á að vera með, enda ekki búist við því á þessari fyrstu sýningu. Fyrirhugað er að halda Is- landica-sýningar annað hvert ár. Islandica 2001 sameinuð Heimilis- sýningunni HESTAMIÐSTÖÐ Íslands hefur hafið undirbúning á skráningu reiðleiða á Norðurlandi vestra í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og E-ferðir. Merktar verða viðurkenndar reiðleiðir ásamt upplýsingum um hólf, réttir, vöð, hlið og annað gagnlegt. Allar reiðleiðirnar verða einnig skráðar með GPS punktum sem hægt verður að sækja á netið. Fyrirhugað er að skrá allar reiðleiðir á landinu á rafrænan hátt. Gerður hefur verið samn- ingur LH og E-ferða um að LH eigi höfundarrétt að verkinu og E-ferðir birtingarrétt, en gert er ráð fyrir að leiðarlýsingarnar muni verða birtar á www.ferð- ir.is. Samið hefur verið við Hestamiðstöð Íslands um að rit- stýra verkinu og verður byrjað á að skrá reiðleiðir á Norðurlandi vestra. Notaðar verða leiðarlýsingar úr bókunum Áfangar sem LH hefur gefið út og að sögn Jóns Alberts Sigurbjörnssonar, for- manns LH, hefur gengið vel að semja við höfunda sem þar lögðu fram leiðarlýsingar. Auk þess er leitað til hestamanna, sem ferðast hafa um landið, og þeir beðnir að leggja málinu lið. Hestamiðstöð Íslands í Skaga- firði á nú nokkur GPS tæki og að sögn Ingimars Ingimarssonar eru þau lánuð í hestaferðir með það fyrir augum að skrásetja punkta. Þeim, sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu, er bent á að hafa samband við Hestamið- stöðina. Hestamiðstöðin sér um rafræna skrán- ingu reiðleiða Hestamiðstöð Íslands skráir reiðleiðir AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R Félagsþjónustan í Hafnarfirði Félagsleg heimaþjónusta Heimaþjónustudeild Vantar starfsmenn í félagslega heimaþjónustu. Um er að ræða félagslega samveru, stuðning og ræstingar í heimahúsum. Einnig vantar sumarafleysingu við ræstingar, starfshlutfall 50%. Laun skv. kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og verkamannafélagsins Hlífar. Nánari upplýsingar veitir Húnbjörg Einarsdóttir og Jónína Óskarsdóttir í síma 585 5732 og 585 5700 f.h. Félagsleg heimaþjónusta Heimaþjónustudeild. Laus störf í grunn- skólum Reykjavíkur skólaárið 2001-2002 Kennara vantar í Grandaskóla: ● Í almenna kennslu. ● Í heimilisfræði (1/2 staða). Einnig vantar eftirtalið starfsfólk: ● Stuðningsfulltrúa til að aðstoða nemendur í bekk, 1/2 starf. ● Starfsfólk til almennra starfa og í skóladag- vist. Starfið felst m.a. í gangavörslu, umsjón með nemendum í leik og starfi, gæslu úti o.fl. ● Matráð í mötuneyti nemenda og kennara. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 898 4936. Umsóknir ber að senda í skólann. Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttar- félög. Nánari upplýsingar um laus störf og grunnskóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir job.is . Mosfellsbær fræðslu- og menningarsvið Leikskólinn Hlíð — börn og listmenning Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskólann næsta skólaár. Um er að ræða stöðu deildarstjóra og leik- skólakennara á deild. Til greina kemur að ráða aðra uppeldismenntaða starfsmenn og/eða starfsfólk með reynslu. Áherslur í leikskólastarfi eru: Skapandi starf, umhverfismennt og hreyfi- færni. Leikskólinn verður með þróunarverkefnið „Börn og listmenning“ í gangi næsta skólaár og fleiri þróunarverkefni eru í bí- gerð. Kjör leikskólakennara eru samkvæmt kjara- samningi F.Í.L. og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Áhugasamir hafi samband við Jóhannu Hermannsdóttur leikskólastjóra í símum 566 7375 og 861 2957 eða undirritaða í síma 861 3525. Mosfellsbær rekur í dag fjóra leikskóla sem hver og einn státar af metnaðarfullri stefnu og starfsháttum. Íbúafjöldinn er rúmlega 6000 manns og er bærinn ört vaxandi útivistarbær enda stutt milli fjalls og fjöru og umhverfi bæjarins allt afar fagurt og mannlíf gott. Leikskólafulltrúi. TAP á Landsmóti hestamanna árið 2000 var um 800.000 krónur sam- kvæmt uppgjöri fyrir árið 2000. Har- aldur Haraldsson, formaður stjórnar Landsmóts 2000 ehf., telur þó að ef útistandandi skuldir innheimtist muni það breyta rekstrartapi í hagn- að. Helsta ástæðan fyrir þessu tapi er talin vera að tilraun til að lækka miðaverð og selja inn á mótið fyrir hvern dag brást. Fannar Jónasson, framkvæmdastjóri mótsins, sagði að þetta hefði verið gert í trausti þess að mótið var haldið í Reykjavík og talið að áhorfendur yrðu fleiri ef þessi háttur væri hafður á. Markmiðið var að höfða einnig til fjölskyldufólks á höfuðborgarsvæðinu og þeirra sem stunda ekki hestamennsku. „Þetta skilaði sér alls ekki,“ sagði Fannar, „og þegar upp var staðið voru áhorf- endur um 7.000 þegar flest var. Til samanburðar má nefna að gestir á landsmótinu á Hellu árið 1994 voru 8–9.000. Það voru hreinlega mistök að hafa ókeypis inn á mótið fyrstu þrjá dagana. Auk þess var of ódýrt inn hina dagana og áætlanir um aug- lýsingatekjur stóðust ekki. Kostnað- aráætlun stóðst hins vegar og nam veltan um 40 milljónum króna.“ Þegar hann var spurður um hvers vegna reikningarnir hefðu ekki verið tilbúnir fyrr en tæpum 13 mánuðum eftir mótið sagði Fannar að reynt hefði verið til hins ýtrasta að ná inn auglýsingatekjum til að klára dæmið. „Þrátt fyrir það tókst það ekki hundrað prósent,“ sagði hann. Haraldur Haraldsson stjórnarfor- maður vonar hins vegar að skil fyrir árið 2001 liggi fyrir á aðalfundi félagsins sem halda á 25. ágúst nk. Hann telur að þá komi í ljós að úti- standandi tekjur muni breyta rekstr- artapi í hagnað ef takist að innheimta þær. Ekki endanleg niður- staða að mati formanns 800.000 króna tap á Landsmóti hestamanna árið 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.