Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HRÖÐ þróun hefur orðið á GSM-símakerfum upp
á síðkastið og er nú hægt að framkvæma mun
fleira með farsímunum en að hringja. Má meðal
annars greiða fyrir ýmis smáviðvik, eins og að-
gang að kvikmyndahúsum, bílaþvottastöðvum o.fl.
Nú síðast hefur verið rætt um þann möguleika hér
á landi að greiða stöðumælagjöld með farsímun-
um.
Fyrirtækið Góðar lausnir í Reykjavík skýrði frá
því á síðasta ári að það hygðist reyna greiðslukerfi
sitt sem gerir fólki kleift að greiða bílastæðagjöld,
fá aðgang að bílastæðahúsum eða leita að þeim
með GSM-síma á Akureyri.
„Markaðurinn ekki tilbúinn“
Að sögn Guðjóns J. Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra þróunarsviðs Góðra lausna, hefur
tilraunin ekki gengið sem skyldi þar sem verkefn-
inu hefur aldrei verið komið almennilega í gang.
Hann sagði einnig að markaðurinn virtist ekki
vera tilbúinn fyrir þetta skref og þar spiluðu inn í
rekstraraðilar bílastæðakerfa, fjarskiptafyrirtæki
og greiðslumiðlunarfyrirtæki.
Í Morgunblaðinu nýlega sagði Stefán Haralds-
son, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs, að ekki
stæði til að taka í gagnið greiðsluþjónustu fyrir
stöðumæla sem gerði neytendum kleift að greiða
fyrir bílastæði með GSM-síma.
Góðar lausnir hafa hins vegar verið með lausn
sína á borðinu í tvö og hálft ár. Fyrirtækið kynnti
hana ásamt samstarfsaðilum sínum í Atos Origin á
CeBIT- tæknisýningunni í Þýskalandi snemma
árs. Að sögn Guðjóns hafa Góðar lausnir farið eins
langt með lausnina og þeir eru tilbúnir til án þess
að fá einhverja aðila að verkefninu sem eru til-
búnir að taka þátt í fjármögnuninni að einhverju
leyti. „Við förum ekki í neina útrás með lausnir
okkar á meðan heimamarkaðurinn segir nei.“
Tal og Landssíminn til
Fyrirtækin Tal og Landssíminn höfðu bæði
hugleitt hugmyndina en voru þó mislangt komin
með þróunina.
Óskar Hauksson, framkvæmdastjóri upplýs-
ingatæknisviðs Tals, segir að Tal sé opið fyrir öll-
um nýjum hugmyndum ef viðskiptahugmyndin sé
fyrir hendi en þessi framkvæmd sé hins vegar
ekki á dagskrá hjá Tali í dag. „Við erum alltaf að
skoða nýjustu tækni og teljum okkur vera mjög
framarlega í þeirri þjónustu sem við bjóðum upp á
og höfum nú þegar tekið þátt í mörgum tilrauna-
verkefnum. Við búum yfir allri nauðsynlegri tækni
til að ráðast í þetta verkefni og erum alveg opin
fyrir því að skoða það þegar sá tími rennur upp.“
Magnús Salberg Óskarsson, verkefnastjóri hjá
Landssímanum, sagði hins vegar að þau myndu
glöð grípa tækifærið að fara af stað með lausn til
að gera fólki kleift að borga stöðumælagjald og
sektir með GSM-símum sínum.
„Það er eitt og hálft ár síðan við höfðum fyrst
samband við bílastæðasjóð og leituðumst eftir að
stofna til samstarfs við hann um að reyna þessa
lausn. Á þessum tíma vorum við að vinna að sam-
bærilegri lausn í samstarfi við Sambíóin til að fólk
gæti keypt bíómiðana með símunum. Bílastæða-
sjóður var hins vegar ekki tilbúinn að taka þátt í
þessu.“
Aðspurður sagði Magnús að ástæðan sem Bíla-
stæðasjóður gæfi upp væri að lausnin væri ekki
örugg og að fólk myndi ruglast á því hvað það væri
búið að borga fyrir.
„Við erum þegar búin að hanna þessa lausn og
gætum farið af stað með hana með mjög skömm-
um fyrirvara. Við teljum þessa þjónustu geta veitt
viðskiptavinum okkar mikil þægindi. Meirihluti
Íslendinga á GSM-síma og staðreyndin er sú að
vart er að finna smámynt lengur í veskjum
manna.“
Mögulegt að greiða bílastæðagjöld með GSM-símum
Allar aðstæður þegar
fyrir hendi hérlendis
FLUGFÉLAG Íslands endurnýjaði
samning við Skeljung í byrjun sum-
ars um kaup á flugvélaeldsneyti án
útboðs, en útboð fór fram síðast árið
1998.
Þá átti Skeljungur hagstæðasta
tilboðið og gerði samning við flug-
félagið til þriggja ára. Félagið hefur
verið gagnrýnt af Olís fyrir að láta
ekki fara fram útboð að nýju en bæði
eru þessi félög með aðstöðu á
Reykjavíkurflugvelli. Olíufélagið hf.
skilaði ekki inn tilboði á sínum tíma
en það er ekki með aðstöðu á flug-
vellinum.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands, segir
félagið ekki hafa talið það hagkvæmt
að fara út í annað útboð. Hagstæðir
samningar hafi náðst við Skeljung og
miklu skipt þar um að félagið gat
gengið inn í tilboð sem Skeljungur
gerði Flugleiðum fyrir millilanda-
flugið.
Að sögn Jóns Karls voru áhrif út-
boðs til lækkunar á eldsneytiskostn-
aði skammvinn og ýmis annar kostn-
aður hafi hækkað á móti. Eldsneytis-
samningar séu hins vegar háðir
heimsmarkaðsverði og það hafi
hækkað svo mikið að undanförnu,
auk óhagstæðrar gengisþróunar, að
útboð hefði vart skilað meira hag-
ræði fyrir flugfélagið. Félagið hafi
einnig viljað spara sér þann kostnað
sem fylgdi framkvæmd útboða.
„Við vissum af óánægju Olís-
manna og ræddum við þá. Við spurð-
um hvort þeir vildu gera okkur tilboð
en það vildu þeir ekki. Þeir vildu
frekar að útboð færi fram og sögðust
þá geta boðið mjög vel. Við töldum
það einfaldlega ekki hagkvæmt að
fara í annað útboð. Við erum heldur
ekki ríkisfyrirtæki og okkur ber ekki
samkvæmt neinum lögum eða
reglum að láta fara fram útboð,“ seg-
ir Jón Karl.
Olís er eins og áður segir með
eldsneytisafgreiðslustöð á Reykja-
víkurflugvelli líkt og Skeljungur en
eftir að Íslandsflug dró úr umsvifum
sínum í innanlandsflugi hafa við-
skiptin farið minnkandi.
Ósáttir við ákvörðunina
en virðum hana
Jón Ólafur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs stórnot-
enda hjá Olís, segir félagið hafa haft
mikinn áhuga á að takast á við
starfsbræður sína með útboði á
Reykjavíkurflugvelli.
„Við áttum viðræður við Flugfélag
Íslands og vorum einbeittir í því að
ná samningi fyrir hönd Olís. Af þeim
sökum voru það mikil vonbrigði þeg-
ar okkur var tilkynnt að Flugfélag
Íslands hefði gert nýjan samning við
Skeljung án þess að láta reyna á að
betri lausn fengist með útboði. Þegar
Jón Karl lætur hafa eftir sér í fjöl-
miðlum að eldsneytiskostnaður hafi
hækkað um 200 milljónir á tveimur
árum þá vekur það okkur til um-
hugsunar hvort flugfélagið hafi gert
nóg til að lækka þann kostnað. Einn-
ig vekur það athygli okkar að á með-
an félagið er óbeint að leita eftir nið-
urfellingu opinberra gjalda með því
að benda á ríkisstyrktar ferjusigl-
ingar þá er það ekki að bjóða út
verkefni hjá sér á sama tíma. Við
veltum því fyrir okkur hvort mark-
aðurinn hefði ekki verið heppilegri
leið til að ná fram meiri sparnaði,“
segir Jón Ólafur en leggur áherslu á
að Olís sé ekki með þessari gagnrýni
að koma höggi á Flugfélag Íslands
og fullur skilningur sé á þeirri erfiðu
rekstrarstöðu sem félagið er í.
„Að sjálfsögðu er það mat stjórn-
enda fyrirtækja til hvaða aðgerða
þeir grípa. Við virðum ákvörðun
félagsins þó að við séum ósáttir við
hana.“
Flugfélag Íslands endurnýjaði eldsneytissamning við Skeljung
Olís vildi að eldsneytis-
útboð færi fram að nýju
REGLUR um farandsölu taka gildi í
Fjarðabyggð 1. ágúst næstkomandi
en hafa verið í gildi í Austur-Héraði
frá því í vor. Í reglunum felst að þeir
aðilar sem stunda farandsölu skuli
tilkynna komu sína til viðkomandi
sveitafélags með a.m.k. þriggja vikna
fyrirvara. Í tilkynningunni skal koma
fram nafn, kennitala og virðisauka-
skattsnúmer rekstraraðila. Einnig
skal nefna hvaða vörur viðkomandi
hyggst selja, hvar í sveitarfélaginu
salan muni eiga sér stað og hvenær
aðili hyggst halda úti versluninni.
Sveitarfélagið áskilur sér þann
rétt að synja aðila um leyfi til að
stunda verslun á almennum leyfis-
dögum og að öllu jöfnu verða engar
húseignir í eigu eða umsjón sveitar-
félagsins leigðar eða lánaðar undir
farandsölu.
Að sögn Björns Hafþórs Guð-
mundssonar, bæjarstjóra Austur-
Héraðs, er ekki verið að reyna að
stöðva farandsölu heldur einungis að
vernda þá söluaðila í heimabyggðinni
sem stunda verslun allt árið. Gunnar
Jónsson, forstöðumaður stjórnsýslu-
sviðs Fjarðabyggðar, tekur í sama
streng og segir að bæjarstjórn
Fjarðabyggðar hafi fundið fyrir ör-
litlum þrýstingi frá verslunarmönn-
um um að koma einhverjum reglum á
farandsöluna. Þeir segjast hvorugur
hafa orðið var við mikið af farand-
sölumönnum í ár.
Reglur settar um farandsölu
Þurfa að tilkynna
sig með fyrirvara
ALLRAHANDA, sem rekur ferða-
þjónustu, fékk fyrir nokkru afhenta
tvo nýja rútubíla af gerðinni Merce-
des Benz Turismo en Ræsir hefur
umboð fyrir bíla frá Daimler Benz.
Eru það 49 farþega bílar, auk sæta
fyrir bílstjóra og fararstjóra og
meðal þæginda um borð eru sal-
erni, loftkæling, eldhús, sjónvörp,
myndbandstæki og fleira.
Nærri 50 bílar eru í dag í flota
Allrahanda og hefur fyrirtækið
tekið 14 nýja bíla í notkun á síðustu
fjórum árum. Nýju bílarnir voru
málaðir í nýjum einkennislitum
Allrahanda og merktir ie. Iceland
Excursions, með tilliti til aukinnar
þjónustu við erlenda ferðamenn,
segir m.a. í frétt frá fyrirtækinu.
Eigendur og stjórnendur þess eru
Sigurdór Sigurðsson og Þórir
Garðarsson.Auk hópferða sem
Allrahanda annast fyrir ferðaskrif-
stofur sér fyrirtækið um þjónustu
fyrir Strætó bs., Ferðaþjónustu
fatlaðra og póstflutninga fyrir Ís-
landspóst. Fyrir nokkru keypti
Allrahanda húsnæði við Funahöfða
17 í Reykjavík til að fá rúmbetra
húsnæði fyrir starfsemina.
Allrahanda
fær tvær
nýjar rútur
Hallgrímur Gunnarsson, forstjóri Ræsis, (t.v.) og Hjörtur Jónsson sölustjóri afhentu Þóri Garðarssyni og Sig-
urdóri Sigurðssyni, eigendum og stjórnendum Allrahanda, lyklana að nýju rútunum.
EVRÓPUSAMTÖK neytenda,
BEUC, gagnrýna gjöld sem
bankar taka fyrir að skipta
peningum í evrur í löndum
sameiginlegrar myntar ESB.
Samtökin segja að ennþá,
þremur árum eftir að evran
varð gjaldgengur gjaldmiðill,
fari neytendur á mis við fyr-
irheit hins sameiginlega mark-
aðar og myntar og ástæðan sé
hin háu gjöld bankanna.
Samtökin benda á að Belgi
sem vilji kaupa leikfang sem
er verðlagt á 100 evrur í
Þýskalandi en 115 í Belgíu,
þurfi á endanum að greiða 117
evrur fyrir leikfangið í Þýska-
landi vegna þessa háa kostn-
aðar. Samtökin benda jafn-
framt á að frá og með 1.
janúar 2002 verði bankar til-
neyddir til að draga úr óhóf-
legum kostnaðargjöldum í við-
skiptum milli landa sem og
vegna úttektar í hraðbönkum.
Neytendur þurfi hins vegar að
bíða til 1. janúar 2003 vegna
viðskipta með kortum.
Evrópusamtök
neytenda
Gagnrýna
gjöld
bankanna