Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 49 DAGBÓK Í BÓK sinni Why You Loose at Bridge (1945) leiddi S.J. Simon fram á sjónarsviðið persónu sem allir bridsspilarar þekkja – sérfræðinginn seinheppna (The Unlucky Expert). Sérfræðingurinn sein- heppni er tæknilega mjög vel að sér og sú er einmitt ástæðan fyrir „óheppni“ hans. Bandaríski spilarinn David Berkowitz þykir sverja sig svolítið í ætt við títtnefndan sérfræðing. Alltént stríðir Eddie Kant- ar honum með þessu spili (og öðrum í svipuðum dúr): Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ D7642 ♥ 1098 ♦ Á82 ♣ 76 Vestur Austur ♠ KG5 ♠ 103 ♥ DG4 ♥ K752 ♦ K3 ♦ D9764 ♣D10952 ♣G4 Suður ♠ Á98 ♥ Á63 ♦ G105 ♣ÁK83 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 grand Pass 2 hjörtu* Pass 2 spaðar Pass Pass Pass * yfirfærsla David var með spil suð- urs í tvímenningi. Hann fékk út hjartadrottningu, sem hann gaf, tók síðan hjartagosann með ás og … hugsaði sem svo: „Það væri gott ef vörnin myndi hreyfa fyrir mig tígul eða tromp. Bíðum við. Ef austur á aðeins þrí- lit í laufi gæti hann lent í vandræðum. Já, ég tek ÁK í laufi og trompa lauf og sendi austur svo inn á hjartakóng. Hann gæti þá verið illa endaspilaður.“ Þetta er falleg áætlun, en auðvitað ekki hættu- laus, eins og kom á daginn. Austur yfirtrompaði þriðja laufið og spilaði tígli – gosi, kóngur og ás. David spilaði nú spaðaás og spaða, en vestur rauk upp með kónginn og spilaði tígli yfir á drottningu félaga síns, sem enn kom með tígul. Vestur stakk með gosa og David gaf þannig þrjá slagi á tromp, en ekki einn eins og allir aðrir í salnum. „Ef þetta er ekki óheppni …“ BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT UM SIGVALDA JARL Munkat nefna, nær mun ek stefna: niðrbjúgt er nef á níðingi, þeim er Svein konung sveik ór landi ok Tryggva son á tálar dró. Stefnir Þorgilsson. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake LJÓN Afmælisbarn dagsins: Þú ert með flest mál á hreinu, en skortir stundum kraft til þess að nýta þér þá vitneskju. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Snúðu ekki baki við þeim sem þarfnast athygli þinnar jafnvel þótt þér sé ekkert um þá gefið. Þú munt síðar fá umbun fyrir þín góðu verk. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ættingi þinn réttir þér hjálp- arhönd í minniháttar vanda- máli. Þiggðu aðstoðina þótt þér sé ljóst að þú gætir leyst málið upp á eigin spýtur. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Nú er ekki langt í það að þú fáir að njota árangurs erfiðis þíns. Vertu samt ekki of bráðlátur því allt hefur sinn tíma. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Lánið virðist leika við þig þessa dagana og þú skalt bara njóta þess en ekki láta það vera, þótt þú vitir að um stundarfyrirbrigði sé að ræða. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það kemst enginn hjá því að mæta örlögum sínum þegar þau berja að dyrum. Vertu því jafnan viðbúinn og mundu að hver er sinnar gæfu smiður. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það gengur ekki að vera stöðugt kvartandi út af öllum sköpuðum hlutum. Snúðu við blaðinu áður en þú eyðilegg- ur líf þitt með neikvæðninni. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ekkert er dýrmætara en heilsan svo þú skalt varast að ofbjóða sjálfum þér . En sér- hlífni er líka mjög slæm svo þú þarft að þræða hinn gullna meðalveg. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það getur verið þreytandi að hlusta stöðugt á ráðlegging- ar annarra. En reyndu að sýna þolinmæði, því margt er vel meint og gagnlegt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt ekki séu allir á þínu máli er ástæðulaust að grípa til stóryrða. Leitaðu frekar eft- ir samkomulagi við þá sem eru á annarri skoðun. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert mörgum hjartfólginn vegna góðsemi þinnar og ör- lætis. En þú þarft að gá að þér því alltaf eru þeir til sem notfæra sér hrekkleysi ann- arra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er ástæðulaust að láta minniháttar erfiðleika stöðva framgang þess verkefnis sem þú ert nú að glíma við. Ein- beittu þér því að lausn þess. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nú gefst tækifæri til þess að koma á hreint máli sem hefur lengi verið að angra þig. Láttu lausn þess þó ekki hræða þig þótt erfið sé. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. STAÐAN kom upp á EM í Ohrid í Makedóníu. Konst- antin Aseev er einn af mörg- um stórmeisturum Rúss- lands. Hann leiddi mótið framan af en missti flugið undir lokin. Loek Van Wely (2670) hafði svart gegn honum og nýtti sér vel ólánlega stöðu hvíta kóngsins. 35...Hbxd7! og hvítur gafst upp enda út- litið dökkt eftir 36.Hxd7 Hxd7 37.Hxd7 c2. Skákin tefldist í heild sinni: 1.d4 Rf6 2.c4 g6 3.Rc3 d5 4.cxd5 Rxd5 5.e4 Rxc3 6.bxc3 Bg7 7.Da4+ Bd7 8.Db3 c5 9.d5 O-O 10.Bd2 Dc8 11.Hb1 Ra6 12.Rf3 e6 13.Bc4 Hb8 14.dxe6 Bxe6 15.Bxe6 Dxe6 16.Dxe6 fxe6 17.Ke2 b5 18.Hhd1 c4 19.Rd4 Bxd4 20.cxd4 b4 21.Hbc1 Hfc8 22.Bf4 Hb5 23.d5 exd5 24.exd5 c3 25.d6 Rb8 26.d7 Hd8 27.Bxb8 Hbxb8 28.Hd5 Kf7 29.Kd3 Ke6 30.Kc4 Hb7 31.He1+ Kf7 32.Hed1 Ke6 33.He1+ Kf6 34.Hed1 a5 35.f4 o.s.frv. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Árnað heilla Misa, sem er 18 ára gömul stúlka frá Japan, óskar eftir að skrifast á við stúlkur 17– 18 ára. Áhugamál Misu eru m.a. lestur, sund, tónlist, kvikmyndir o.fl. Misa Hirayama, 5-10-21 Owada, Niiza-shi, Saitama-ken, 352-0004, Japan. Carita, sem er sænsk og 38 ára gömul, óskar eftir ís- lenskum pennavinum. Áhugamál hennar eru dans, prjónaskapur, ljósmyndun, ferðalög o.fl. Carita Lindquist, Hagalundsg. 13 bv. 16965 Solna, Sweden. John, sem er bandarískur hermaður sem býr og starfar í Þýskalandi, óskar eftir ís- lenskum pennavini. John Abuan, HHCC 201 St. FSB, 28026 Box # A69, APO AE 09112. Netfang: abuanjohn@hotmail.com. Pennavinir Hlutavelta Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 12.500 til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Hólmfríður Helgadóttir og Íris Barkardóttir. ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda ár- legan kirkjudag í Stafkirkjunni á Heimaey sunnudaginn næst á und- an þjóðhátíð. Stafkirkjan var vígð við hátíðlega athöfn á síðasta ári, en þá bar þennan sunnudag upp á 30. júlí. Talið er að um eða yfir 2.000 manns hafi sótt vígsluhátíðina í fyrra. Nýlokið er tjörgun á Staf- kirkjunni og er fólk beðið um að halla sér ekki upp að veggjum hennar að óþörfu, þótt hún sé nú þegar orðin nokkuð örugglega þurr, en tjaran var aðeins borin á utanhúss. Því miður er ekki hægt að tjarga nema á heitasta tíma sumarsins og eru ferðamenn beðnir velvirðingar á því að kirkjan var lokuð um tíma í þessum mánuði. Við messuna á sunnudag syngur Kór Landakirkju, en stjórnandi er Guðmundur H. Guðjónsson. Sr. Kristján Björnsson prédikar og þjónar einnig fyrir altari með að- stoð sr. Báru Friðriksdóttur. Við útdeilingu verður notaður forláta silfurkaleikur og patína sem Landakirkja og Kvenfélag Landa- kirkju gáfu að vígslunni í fyrra. Fólk er hvatt til að fjölmenna en þótt kirkjan sé ekki stór eru dyr hennar öllum opnar. Sóknarprestur. Safnaðarstarf Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðisstofn- un Vestmannaeyja, dagstofu, 3. hæð. Heimsóknargestir velkomnir. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11- 12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédik- un og biblíufræðsla þar sem ákveð- ið efni er tekið fyrir, spurt og svar- að. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir samkomuna. Allir velkomnir. Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu- dagskvöld kl. 21 Styrkur unga fólksins. Dans, drama, rapp, pré- dikun og mikið fjör. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl- íufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmunds- son. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað- ur Björgvin Snorrason. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/biblíu- fræðsla kl. 11. Ræðumaður/leið- beinandi Ólafur Kristinsson. Kirkjudagur Stafkirkjunnar á Heimaey KIRKJUSTARF GULLBRÚÐKAUP. Á morgun, laugardaginn 28. júlí, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Arndís Pálsdóttir og Ragnar Benediktsson, Barkarstöðum, Miðfirði, Vestur-Húnavatns- sýslu. Þau verða að heiman. Snertilinsur - fyrir íþróttafólk - 6 linsur í pakka, prófun, meðferðarkennsla, vökvi og box. frá 7.500.- kr. sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945  Mínar innilegustu þakkir til þeirra hjartkæru vina og ættingja sem heimsóttu mig og gerðu mér glaðan dag á níræðisafmæli mínu 22. júlí sl. Sá dagur verður mér ógleymanlegur. Guð blessi ykkur öll. Katrín J. Smári, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. Útsalan Kringlunni (við hliðina á Nýkaup) í fullum gangi Nýbýlavegi 12, Kópavogi, s. 554 4433. Bolir frá kr. 990. Stórar stærðir. Stuttbuxur frá kr. 990. St. 38—56 Hver er að keyra ... þú eða mamma þín? Það er bréfberinn sem er búinn að kenna mér þetta. Sími 555 0455 Sími 564 6440 20% afsláttur af barnamyndatökum í júlí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.