Morgunblaðið - 27.07.2001, Síða 18
VIÐSKIPTI
18 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MÁLARAMEISTARINN
Skútuvogi 6 • sími 568 9045
Erum fluttir
í Skútuvog 6
ÞORBJÖRN Fiskanes hf. hefur skil-
að milliuppgjöri og þar kemur fram
að 220 milljóna króna tap var af
rekstri félagsins á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Á sama tímabili í fyrra
skilaði félagið 84 milljóna króna
hagnaði og er meginskýringin á
þessari breytingu sú að fjármagns-
liðirnir eru nú neikvæðir um 798
milljónir króna en voru jákvæðir um
62 milljónir króna í fyrra. Á móti
vegur að 82 milljóna króna hagnaður
varð af sölu hlutabréfa og tveggja
skipa á fyrri hluta þessa árs.
Í fréttatilkynningu frá félaginu er
þess einnig getið að sjómannaverk-
fall í hálfan annan mánuð á besta
rekstrartíma þess eigi þátt í tap-
rekstrinum. Þar kemur jafnframt
fram að tekjur Þorbjarnar Fiska-
ness hafi ávallt verið hærri á fyrri
hluta árs en þeim síðari.Það sem
veldur hinum háu fjármagnsgjöldum
eru erlendar skuldir félagsins, en
vegna lækkunar gengis íslensku
krónunnar hafa erlend lán hækkað
mikið í krónum talið. Heildarskuldir
eru 7,7 milljarðar króna og hafa
hækkað um 780 milljónir króna frá
áramótum. Um mitt ár í fyrra voru
skuldir félagsins hins vegar 3,6 millj-
arðar króna og hafa frá þeim tíma
hækkað um 116%.
Framlegð rekstrarins
batnar frá síðasta ári
Eigið fé félagsins var 11⁄2 milljarð-
ur króna um áramótin en um mitt ár-
ið var það komið niður í 1,2 milljarða
króna. Þessi þróun skulda og eigin
fjár veldur því að eiginfjárhlutfallið
hefur lækkað verulega. Það var
24,4% um mitt ár í fyrra, 17,8% um
áramótin en var 13,5% í lok júní.í ár .
Framlegð rekstrar félagsins, það
er hagnaður fyrir afskriftir sem
hlutfall af tekjum, batnaði frá síð-
asta ári og var 29,4% í ár miðað við
28% fyrir sama tímabil í fyrra.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði batn-
aði einnig og var nú 391 milljón
króna miðað við 184 milljónir króna í
fyrra.
Sama má segja um veltufé frá
rekstri, það var 487 milljónir króna á
fyrri hluta þessa árs en 280 milljónir
króna á sama tímabili í fyrra. Sem
hlutfall af tekjum lækkaði veltufé frá
rekstri þó lítið eitt, því tekjurnar
hækkuðu úr 1,2 í 2,2 milljarða milli
ára.
Í fréttatilkynningu frá Þorbirni
Fiskanesi hf. kemur fram að í öllum
þáttum starfseminnar séu horfur í
rekstri nokkuð góðar um þessar
mundir.
Eiginfjárhlutfall Þorbjörns
Fiskaness lækkar í 13,5%
TRYGGVI Pálsson varaformaður
stjórnar Verðbréfaþings Íslands
segir aðspurður um vanhæfi
stjórnarmanna og undirmanna
framkvæmdastjóra þingsins til að
fjalla um málefni Íslandssíma að
farið hafi fram umræða um van-
hæfisreglur þingsins og það hafi
sett sér starfsreglur í því sam-
bandi.
Aðspurður hvort Verðbréfaþing-
ið teljist stjórnvald og falli þar
með undir stjórnsýslulög segir
Tryggvi að þegar breytingar voru
gerðar á kauphallarlögunum hafi
Verðbréfaþingið hætt að vera
stjórnvald í sama mæli og áður og
þingið hafi fyrst og fremst eftirlit
með því að reglum þess sjálfs sé
fullnægt enda hafi þingaðilar og
skráð félög gengist undir reglur
og skyldur þingsins. Verðbréfa-
þingið hafi sent Íslandssíma fyr-
irspurn vegna afkomuviðvörunar-
innar og fengið svör sem það telur
ekki fullnægjandi og ekki þótt gefa
nægjanlegar skýringar. Ákvörðun
verði ekki tekin fyrr en svör Ís-
landssíma hafa borist og fram að
þeim tíma verði vandlega farið yfir
mögulegt vanhæfi.
Tryggvi segir að þingið geri sér
grein fyrir þeirri ábyrgð sem á því
hvíli og mikilvægt sé að þingið hafi
traust markaðarins.
Fjármálaeftirlitið ekki
myndað sér skoðun
Páll Gunnar Pálsson forstjóri
Fjármálaeftirlitsins segir að sumir
starfshættir Verðbréfaþings beri
keim af stjórnsýsluvaldi. Páll segir
að það sé fyrst og fremst Verð-
bréfaþingsins að skýra afstöðu
þingsins í því sambandi. Fjármála-
eftirlitið áskilji sér síðan rétt til
þess að hafa skoðun á því máli.
Fjármálaeftirlitið hafi ekki skoðað
þetta mál sérstaklega hvað svo
sem síðar kunni að verða, segir
Páll Gunnar. Aðspurður hvort
hann telji að þau lög sem gildi séu
ekki nægjanlega skýr segir Páll
Gunnar að hann telji að ekki þurfi
að breyta lögum. Verðbréfaþingið
þurfi sjálft að taka afstöðu til
málsins.
Þær upplýsingar fengust frá við-
skiptaráðuneytinu í gær að ráðu-
neytið muni ekki tjá sig um mál
Verðbréfaþings og Íslandssíma á
meðan það sé í skoðun hjá Verð-
bréfaþinginu.
Álitamál hvort Verðbréfaþing teljist stjórnvald
„Ekki stjórnvald í
sama mæli og áður“
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur
sendi í gær frá sér níu mánaða
uppgjör fyrir tímabilið 1. septem-
ber 2000 til 31. maí 2001. Á þessu
tímabili voru rekstrartekjur
félagsins 1,3 milljarðar króna og
rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
145 milljónir króna, sem þýðir að
framlag rekstrar var 11% á tíma-
bilinu. Fjármagnsliðir voru nei-
kvæðir um 173 milljónir króna og
tap tímabilsins nam 129 milljónum
króna.
Eignir félagsins námu samtals
1,3 milljörðum króna í lok maí og
þar af voru fastafjármunir tæpur
einn milljarður króna. Rúmar eitt
hundrað milljónir voru afskrifaðar
á tímabilinu. Eigið fé nam 277
milljónum króna og skuldir voru
rúmur einn milljarður króna. Eig-
infjárhlutfall var 21% í lok maí í ár
og hafði þá lækkað úr 25% frá því í
lok ágúst í fyrra.
Veltufé frá rekstri var 55 millj-
ónir króna á tímabilinu.
Í tilkynningu frá félaginu kemur
fram að reikningar þess endur-
spegli afkomu í sjávarútvegi á
uppgjörstímabilinu og að gert sé
ráð fyrir að jafnvægi muni ríkja í
rekstri þess síðustu þrjá mánuði
rekstrarársins.
Níu mánaða uppgjör Fiskiðjusamlags Húsavíkur
129 milljóna króna tap
! "# "#$#%
& '(&'
& )
"
*+ , )
*-
)*-
". *-
" ** */
0
1+
2)
3
4 * 5.4 6 0
89:;<
;:=;<
8>9=<
2?@3<
;3:;<
?=33<
>9=><
2:39<
2:;><
2;?<
2@><
2>?<
2>;<
8?@<
?=;<
?;9<
>9=<
::8<
(
/ 4 6
! 8@@8<
;:93<
8>@8<
2?@2<
;3?><
?=@:<
>=2><
2:93<
2:;><
2>><
233<
2?><
2>><
8>2<
?=9<
?@=<
2:2<
::8<
(
/ 4 6
8@3;<
;:@=<
8>@8<
2?9?<
;3>9<
?=@><
>9@8<
2:;9<
2:;><
2?;<
23?<
2?><
2>=<
82;<
>::<
?2;<
>@2<
::8<
(
/ 4 6
" ! 8@;?<
;:2:<
8>:9<
2?>=<
;89:<
?=>3<
>92?<
>===<
2:;><
2::<
2>8<
>3@<
>99<
8::<
?3:<
?::<
>28<
::8<
(
/ 4 6
* * *
5/5.
8>:<
4/4*5
>::?*
* ?:33< A
44 #
!$ %&
)
+
#(
5& 23(3:
7
/* (?
(
",(
AB8::C7
29=(?:=2<
?:=@<
?33;(?@2:<
?@@><
?@@><
??:;<
????<
?:=@<
%# DA
*
* 73:
4 "+
-A7
-A7
?7(27C ??@?<
?9:9<
9;:<
9;:(?:@3<
" ! ,&6A-
/*A-- *A-23
7
*A-3:
7
AE/(
/*A- 9:;(93@<
??82<
?39:<
?@23<
?3=?(?@3=<
?:9@(???@<
?@@;<
A-
A-
,)*A-
*(
"&6 A-23
'*- +;9
/*A-
3=9<
9:9<
988(??:8<
?:3>(??2@<
?33;<
?@2:<
?@38<
! F++ "+ "+ 23
"+ ;9
"+ 3:
A /*A-
8@8(?:8<
88><
?33=<
?@?=<
?@2:<
?:9?<
?@3=<
'
A)
A ?7C >7C 27C =:9<
?:>9<
?:39<
??39<
GUÐJÓN Már Guðjónsson,
stjórnarformaður OZ og eig-
andi eignarhaldsfélagsins
Lux Communications sem á
5,18% í Íslandssíma, segir í
yfirlýsingu sem hann sendi
Morgunblaðinu í gær vegna
sölu á tæpum 3% af hlutafjár-
eign félagsins í Íslandssíma:
„Sala á þeim hluta sem til
umræðu hefur verið átti sér
stað innan hluthafahóps Ís-
landssíma skömmu áður en
útboð fór fram, vegna upp-
gjörs á milli aðila. Ég lít á
fjárfestingu í fyrirtækinu sem
langtímafjárfestingu og mun
að öðru leyti ekki tjá mig um
þetta mál.“
Uppgjör
innan
hluthafa-
hóps Ís-
landssíma
HELSINGIN Sanomat er stærsta
dagblað á Norðurlöndum, lesið af um
fjórðungi finnsku þjóðarinnar á
hverjum degi. Blaðið er í eigu fjöl-
miðlarisans Sanoma WSOY, en fyr-
irtækið er það stærsta sinnar teg-
undar á Norðurlöndunum. Auk
Helsingin Sanomat gefur það út Ilta-
Sanomat, stærsta æsifréttablað
Finnlands, auk daglegra fjármála-
tíðinda, Taloussanomat.
Fyrirtækið er ört stækkandi á
fjölmiðlamarkaði og hefur aukið um-
svif sín verulega að undanförnu.
Stjórnendur Sanoma WSOY töldu
ekki möguleika á frekari stækkun á
finnskum markaði og því var ákveðið
að færa út kvíarnar bæði til austurs
og vesturs.
Kaupir fjölmiðla í Rússlandi
og Hollandi
Nýlega keypti Sanoma WSOY
19% hlut í Smena, sem er annað
stærsta dagblað í St. Pétursborg í
Rússlandi. Þá hóf fyrirtækið innreið
sína á evrópskan tímaritamarkað
með kaupum á VNU, fimmta stærsta
tímaritaútgefanda í álfunni. Kaup-
verðið var rúmur milljarður dala.
Auk útgáfu dagblaða og tímarita
hefur Sanoma WSOY rekið fréttavef
síðan 1999 og hyggst fyrirtækið
leggja enn meiri áherslu á netútgáfu
þegar fram í sækir. Mest áhersla
verður þó lögð á útgáfu tímarita en á
þeim markaði sér fyrirtækið mesta
möguleika.
Finnskur
fjölmiðla-
risi eykur
umsvif
NORSKA símafélagið Telenor hefur
keypt ungverska símafélagið Pann-
on af KPN, Sonera og Tele Danmark
fyrir sem samsvarar um 100 millj-
örðum íslenskra króna, að því er m.a.
kemur fram á fréttavef Dagens
Næringsliv.
Pannon er þriðja fyrirtækið sem
Telenor fjárfestir svo mikið í á
skömmum tíma. Fyrir tveim vikum
keypti Telenor sjónvarpsfyrirtækið
Canal Digital fyrir tæpa 30 milljarða
íslenskra króna og fyrr í sumar
keypti Telenor hlut British Telecom
í Telenordia. Fyrirhugað er að auka
hlut Telenor í malasíska fjarskipta-
fyrirtækinu digi.com.
Tormod Hermansen, forstjóri
Telenor, hefur lýst því yfir að hluta-
fjáraukning upp á 15 milljarða
norskra króna, um 165 milljarða ís-
lenskra króna, sé nauðsynleg til að
viðhalda vexti fyrirtækisins. Norsk
stjórnvöld hafa ekki tekið undir
þetta sjónarmið.
Telenor fjár-
festir í Ung-
verjalandi