Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
CONDOLEEZZA Rice, öryggisráð-
gjafi George W. Bush Bandaríkjafor-
seta, sagði í gær að Bandaríkin
myndu ekki bíða eftir því að sam-
komulag næðist við Rússa um eld-
flaugavarnir áður en tilraunum yrði
haldið áfram vegna þeirra. Hún sagði
hins vegar að nú væri gott tækifæri til
að ná árangri í afvopnunarviðræðum
við Rússa og að það bæri að nýta til að
ná slíku samkomulagi.
Rice er nú í Moskvu og hefur átt
fundi með Vladimír Pútín Rússlands-
forseta og varnarmálaráðherra lands-
ins, Sergei Ivanov, auk annarra hátt-
settra embættismanna. Heimsókn
Rice kemur í kjölfar þeirrar ákvörð-
unar Bush og Pútíns í Genúa um síð-
ustu helgi að hefja viðræður um
fækkun kjarnavopna og endurskoðun
gagneldflaugasamningsins frá 1972
(ABM).
Ivanov sagði eftir fund hans og
Rice að hann hefði verið gagnlegur en
ekki væri hægt að búast við raun-
verulegum ávinningi eftir einn stutt-
an fund.
Langt samninga-
ferli framundan
Rice hefur lagt á áherslu á að við-
ræðurnar verði að ganga hratt fyrir
sig enda séu Bandaríkjamenn langt á
veg komnir í þróun gagneldflauga-
kerfisins og vilji ekki brjóta ákvæði
ABM-sáttmálans. Náist ekki sam-
komulag við Rússa um breytingar á
sáttmálanum munu Bandaríkjamenn
rifta honum einhliða og halda áfram
þróun kerfisins. Vladimír Rúshajlo,
öryggisráðgjafi Pútíns, sagði hins
vegar eftir fund Pútíns og Rice að við-
ræðurnar myndu líklega dragast á
langinn og að breytingar á ABM-sátt-
málanum krefðust lagabreytinga í
Rússlandi, sem tefja myndu ferlið enn
frekar.
Bandarísk stjórnvöld vonast til
þess að Rússar fáist til að samþykkja
breytingar á ABM-sáttmálanum
gegn því að Bandaríkin samþykki
frekari fækkun kjarnavopna. Pútín
hefur lagt til að bæði ríkin fækki
kjarnaoddum sínum niður í 1.500 en
Rice sagði að á fundinum hefðu ná-
kvæmar tölur ekki verið ræddar. Ge-
orge W. Bush fékk í gær stuðning
leiðtoga demókrata í neðri deild
Bandaríkjaþings við þessa áætlun en
Tom Daschle, leiðtogi demókrata í
öldungadeildinni, er ennþá andvígur
gagneldflaugakerfinu og segir Bush
hegða sér eins og einræðisherra í
málinu.
Eldflaugavarnir sagðar
auka hættu á stríði
Rússar hafa alla tíð verið sann-
færðir um að ABM-sáttmálinn sé
einn af hornsteinum öryggismála í
heiminum. Rökin fyrir banni við
gagneldflaugakerfum eru þau að ekk-
ert ríki muni beita kjarnavopnum að
fyrra bragði nema það sé öruggt um
að geta varið sig fyrir gagnárás óvina-
ríkis. Eldflaugavarnir geri því kjarn-
orkustríð líklegra en ella.
Bandaríkjamenn telja hins vegar
að þessi hugsunarháttur sé úreltur og
leita þurfi nýrra leiða til að tryggja
öryggi í heiminum. Hættan sem steðji
að Bandaríkjunum og öðrum vest-
rænum ríkjum komi ekki frá Rúss-
landi heldur hryðjuverkahópum og
svokölluðum útlagaríkjum eins og
Norður-Kóreu og Íran.
Reuters
Condoleezza Rice öryggisráðgjafi (t.h.) ásamt Vladimír Rúshajlo.
Öryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta
ræðir eldflaugavarnir í Rússlandi
Ekki verður
beðið eftir
samkomulagi
Moskva, Washinton. AP, AFP.
KÍNVERSK stjórnvöld létu í gær
lausa tvo kínversk-bandaríska fræði-
menn, sem höfðu á þriðjudag verið
dæmdir til tíu ára fangelsisvistar
fyrir njósnir í þágu Taívana. Stjórn-
málaskýrendur segja lausn fólksins
ætlað að draga úr spennu milli
stjórnvalda í Peking og Washington
áður en Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kemur til Kína
á laugardag.
Að sögn kínverska utanríkisráðu-
neytisins var þeim Gao Zhan og Qin
Guangguang veitt lausn af heilsu-
farsástæðum, en þau eru bæði búsett
í Bandaríkjunum. Gao þjáist af
hjartasjúkdómi, en ekki er vitað til
þess að Qin eigi við heilsubrest að
stríða. Kínversk stjórnvöld hafa hins
vegar áður veitt föngum lausn af
heilsufarsástæðum í málum sem
vakið hafa alþjóðlega athygli. Colin
Powell fagnaði því í gær að fólkið
hefði fengið frelsi.
Gao flaug strax í gærmorgun
áleiðis til Detroit í Bandaríkjunum
og búist var við að Qin héldi frá Pek-
ing síðar um daginn ásamt eiginkonu
sinni.
Li vísað úr landi
Gao, sem er fræðimaður við Am-
erican University í Washington, var
handtekinn á flugvellinum í Peking í
febrúar, en hún hafði ætlað að heim-
sækja fjölskyldu sína í Kína. Eigin-
maður hennar og sonur voru einnig
teknir höndum og sátu í varðhaldi í
26 daga áður en þeim var leyft að
snúa heim til Bandaríkjanna.
Gao var á þriðjudag fundin sek um
að hafa aðstoðað Li Shaomin, banda-
rískan ríkisborgara sem var fyrr í
þessum mánuði dæmdur fyrir njósn-
ir í þágu Taívana. Li var vísað úr
landi á miðvikudag og er nú kominn
til Bandaríkjanna.
Kínversk stjórnvöld hafa ekki
veitt neinar upplýsingar um mál
Qins, en mannréttindasamtök í
Hong Kong fullyrtu á miðvikudag að
vegabréf eiginkonu hans og dvalar-
leyfi í Bandaríkjunum hefðu verið
gerð upptæk.
Dregur úr spennu fyr-
ir heimsókn Powells
Peking. AFP, AP.
Kínversk stjórnvöld láta dæmda njósnara lausa
OLÍUVERÐ hækkaði nokkuð á
mörkuðum í gær, fór í 25,33 dollara
fatið á markaði síðdegis í London
og hækkaði einnig í New York. Á
miðvikudag skýrðu fulltrúar Sam-
taka olíuútflutningsríkja, OPEC,
frá því að heildarframleiðsla aðild-
arríkjanna ellefu yrði minnkuð um
milljón föt á dag. Ástæðan fyrir að-
gerðunum er að verðið hefur farið
lækkandi undanfarna mánuði og
var meðalverðið komið í 23,78 doll-
ara fatið á miðvikudag.
Framleiðslusamdrátturinn kem-
ur til framkvæmda 1. september.
OPEC hefur sett sér það markmið
að heimsmarkaðsverðið sé um 25
dollarar en ljóst þykir að verði það
mikið yfir þeim mörkum gæti það
aukið mjög á efnahagssamdráttinn
í heiminum.
Ríkin í OPEC framleiða um 40%
af allri olíu sem notuð er í heim-
inum, langmestur er útflutning-
urinn frá Sádi-Arabíu og þar eru
einnig mestu olíulindir í heimi.
Löndin ellefu skipta milli sín heild-
arkvóta og munu Sádi-Arabar fá að
selja um 7,5 milljónir olíufata á
dag, Íranar um 3,4 milljónir fata,
Venesúela nær 2,7 milljónir og
Sameinuðu arabísku furstadæmin
rúmlega tvær milljónir. Önnur að-
ildarríki eru Nígería, Kúveit,
Líbýa, Indónesía, Alsír og Katar.
Írakar, sem var vísað úr samstarf-
inu fyrir áratug, mótmæltu í byrjun
júní viðskiptabanni Sameinuðu
þjóðanna með því að hætta allri
olíusölu til útlanda en þeir fram-
leiddu um 2,2 milljónir fata á dag.
OPEC ákvað að bregðast við þeirri
ákvörðun með því að auka söluna
til að vega upp á móti írösku olí-
unni.
(")*+,-".#/", (0.1 (2 (")3.+/
!"#$ "%&%'()!*+ +,-,.",&.-&"/'.0)1'.(
-&. 2"."31&().(-1).&, !"1.4-!.&%%31& /)5
$) 1&.( ""1&%& *6% !"$,/'711)!4)&.*(&%%,
41((",)&(1(&%,-1..&%%$) 1&.( "%7
8
9
9
:8
:9
;8
;9
1)., !"$&!<%/)!*/ ")"+/ ))
& *6%&)$,/'
:8
::
:=
:>
:
:888 :88
:888 :88
1?101)
:;+:& *7
Olíuverð
upp á við
London, Vín. AP, AFP.