Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 24
LISTIR/KVIKMYNDIR 24 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Frumsýningar BROTHER Bíóborgin, Kringlubíó VIRGIN Suicides Háskólabíó SCARY MOVIE 2 Laugarásbíó, Regnboginn, Stjörnubíó BLINKENDE LYGTER Háskólabíó/ Filmundur Driven Bandarísk. 2001. Leikstjóri Renny Harlin. Handrit: Jan Skretny. Aðalleikendur: Syl- vester Stallone, Burt Reynolds, Kip Pardue. Bíóhöllin, Bíóborg, Kringlubíó Animal Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit: Luke Greenfield. Aðalhlutverk: Rob Schnei- der, Colleen Haskell, John C. McGinley. Laugarásbíó, Regnboginn Memento Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Christopher Nolan. Aðalleikendur: Guy Pierce, Carrie-Anne Moss, Joe Pantoliano. Sérlega áhugaverð, um mann með ekkert skammtímaminni. Frábærlega útsmogin og úthugsuð, spennandi og fyndin. ½ Bíóborgin Shrek Bandarísk. 2001. Leikstjórar Andrew And- erson, Vicky Jenson: Handrit: Ted Elliott, o.fl. Teiknimynd. Fjörug og væmnislaus ævintýramynd um hressari teknimyndafíg- úrur en menn eiga almennt að venjast. Pottþétt skemmtun fyrir alla fjölskylduna. ½ Bíóhöllin, Háskólabíó, Laugarásbíó Spy Kids Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit: Roberto Rodriguez. Aðalleikendur; Antonio Banderas, Carla Gugino, Alan Cumming. Ævintýraleg, spennandi og skemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna.  Regnboginn Tilsammans Sænsk. 2001. Leikstjóri og handrit: Lukas Moodyson. Aðalleikendur: Lisa Lindgren, Michael Nyqvist, Gustaf Hammarslen. Tra- gikómedía frá lauslátum tímum kommúna, blómabarna og frjálsra ásta í pipraðri Gautaborg. Leikur, handrit, leikstjórn í óvenju góðum höndum.  Háskólabíó Bridget Jones’s Diary Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharom Maguire. Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Re- née Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth, Jim Broadbent. Sagan um ástamál Bridget verður að hæfilega fyndinni, rómantískri gamanmynd. Zellweger gerir margt gott í titilhlutverkinu. ½ Bíóhöllin, Háskólabíó The Mummy Returns Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Stephen Sommers. Aðalleikendur: Brend- an Fraser, Rachel Weisz, John Hannah. Múmían snýr aftur með miklum látum. Ósvikin fjölskylduskemmtun með mögn- uðum brellum. ½ Bíóhöllin Nýi stíllinn keisarans – The Emperor’s New Groove Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal. Handrit: Thomas Schumacher. Það kveður við nýjan tón í nýjustu Disney- myndinni sem fjallar um spilltan keisara sem breytist í lamadýr og lærir sína lexíu. Bráðfyndin mynd fyrir börn og fullorðna. ½ Bíóhöllin Baise moi Frönsk. 2000 Leikstjórn og handrit: Virg- inie Despentes og Coralie Trinh Thi. Aðal- leikendur: Raffaela Anderson, Karen Bach. Sérlega átakanleg og raunsæ lýsing á kyn- lífs- og morðferðalagi tveggja, franskra undirmálsdama. Tilgangur myndarinnar eitthvað á huldu, en enginn fer ósnortinn út af henni. Regnboginn Crocodile Dundee in Los Angeles Áströlsk/bandarísk. 2001. Leikstjóri Sim- on Wincer. Handrit: Matthew Berry. Aðal- leikendur: Paul Hogan, Linda Kozlowski, Jonathan Banks. Krókódílamaðurinn í bragðdaufum ævintýrum í kvikmyndaborg- inni. Barnamynd. Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó See Spot Run Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John White- sell. Handrit: William Kid. Aðalleikendur: David Arquette, Michael Clarke Duncan. Meinlaus barnamynd um hressan bolabít og heimska tvífætlinga, ástir og uppeldis- mál. Dágóð til síns brúks. Kringlubíó Evolution Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Ivan Reit- man. Handrit: Abraham Vincente Nicholas. Aðalleikendur: David Duchovny, Julianne Moore, Orlando Jones. Loftsteinn hrapar á jörðina og getur af sér furðuskepnur í mis- lukkaðri gamanmynd. ½ Stjörnubíó Pearl Harbor Bandarísk. 2001. Leikstjóri Michael Bay. Handrit William Wallace. Aðalleikarar Josh Hartnett, Ben Affleck, Kate Beckinsale. Af- skaplega langdregin og leiðinleg mynd sem, þegar öllu er á botninn hvolft, fjallar ekki um neitt. ½ Bíóborgin, Bíóhöllin, Kringlubíó Tomb Raider Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Simon West. Handrit: Martin Hudsucker. Aðalleikendur: Angelina Jolie, Jon Voight, Iain Glen, Noah Taylor. Bústinn barmur og bardagaatriði eru í aðalhlutverki í þessari mynd, sem byggð er á samnefndum tölvuleik. Ófrum- legur vitleysisgangur en Jolie er alvöru töffari. ½ Háskólabíó, Laugarásbíó Dr Dolittle 2 Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit Steve Carr. Aðalleikendur Eddie Murphy, Jeffrey Jones, Kevin Pollak, Kristen Wilson. Agalega slök mynd um dýralækninn vin- sæla. Sagan er of einföld og óáhugaverð og húmorinn lélegur og ósmekklegur. Eddie Murphy má fara að hugsa sinn gang.  Kringlubíó, Regnboginn Pokémon 3 Bandarísk. 2001. Leikstjóri Michael Haig- ney. Handrit Haigney og Norman Gross- feld. Þriðja Pokémon-myndin er einsog þær fyrri; realísk stuttmynd kemur á undan háskaævintýrinu þar sem Pokémonar berj- ast og Ash bjargar málunum. Óaðlaðandi og óspennandi að öllu leyti.  Bíóhöllin Bíóin í borginni Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir YAMAMOTO (Kitano) er hrakinn frá heimaborg sinni, Tókýó, þegar átök brjótast út á milli fylkinga inn- an japönsku mafíunnar. Hann fer til Los Angeles í leit að hálfbróður sín- um, Ken (Claude Maki), og í ljós kemur að hann er eiturlyfjasali. Brátt tekur Yamamoto fullan þátt í starfi hálfbróður síns og veldi þeirra stækkar ört. Þannig er söguþráðurinn í spennumyndinni Bróðir eða Broth- er sem Sambíóin frumsýna í dag. Hún er með Takeshi Kitano, Claude Maki, Omar Epps og Susumu Tera- jima í aðalhlutverkum og það er Kitano sjálfur sem leikstýrir auk þess sem hann fer með aðalhlut- verkið. En hann gerir meira. Hann er annar handritshöfundur mynd- arinnar og svo klippir hann hana sjálfur. Takeshi Kitano er stórt nafn í japanskri hasarmyndagerð en ein mynd hans hefur verið sýnd hér á landi, Hana-bi, þar sem hann lék þöglan einfara er lenti í vondum málum. Hann hefur fjallað áður í myndum sínum um japönsku maf- íuna, yakuza, og gerir það enn á ný hér. „Þar sem lagt var af stað með þá ráðagerð að gera myndina í Banda- ríkjunum, í Los Angeles, og ég er Japani með heldur slæma ensku- kunnáttu, varð myndin einfaldlega að fjalla um það þegar Japani kem- ur til Ameríku,“ er haft eftir Kitano. Omar Epps var fenginn til þess að leika á móti honum annað aðalhlut- verkið í Brother. „Omar var einfald- lega bestur í hlutverkið,“ segir Kit- ano. „Það er engum blöðum um það að fletta. Ég leyfi leikurunum að fara sínu fram þegar við erum komnir í tökur. Ef mér sýnist að þeir ætli út af sporinu laga ég það. Samstarfið við Omar gekk frábær- lega.“ Leikarar: Takeshi Kitano, Claude Maki, Omar Epps og Susumu Terajima. Leik- stjóri: Takeshi Kitano (Kikujiro, Hana- bi, Sonatine). Bræðrabönd í englaborg BÍÓBORGIN og Kringlubíó frumsýna spennumyndina Brother með Takeshi Kitano og Omar Epps. Takeshi Kitano mundar byssuna Brother. henni má nefna Anna Faris, Marlon Wayans, Shawn Wayans, James Woods, Chris Elliott, Tori Spelling og Richard Moll. „Hugmyndin að þessari fram- haldsmynd,“ segir Keenen Wayans, „varð til þegar mér varð ljóst að margar spennumyndir sem fjalla um yfirnáttúrulega hluti lýsa oft svipuð- um aðstæðum, sem við erum farin að þekkja mjög vel, og biðu þess bara að gert væri grín að þeim.“ Leikarar: Anna Faris, Marlon Wayans, Shawn Wayans, James Woods, Chris Elliott, Tori Spelling og Richard Moll. Leikstjóri: Keenen Ivory Wayans: (I’m Gonna Git You Sucka, A Low Down Dirty Shame). Í FRAMHALDSMYNDINNI Scary Movie 2, sem frumsýnd er í dag í fimm kvikmyndahúsum, er skopast að frægum hrollvekjum og drauga- myndum eins og Særingarmannin- um og Poltergeist í bland við nýlegri myndir eins og Hannibal, What Lies Beneath og The House on Haunted Hill. En það er ekki aðeins skopast að slíkum myndum heldur fá aðrar líka að kenna á því eins og Charlie’s Ang- els og Mission: Impossible 2. Leikstjóri myndarinnar er Keen- en Ivory Wayans en á meðal leikara í Grínast með hryll- ing og spennu Stjörnubíó, Laugarásbíó, Regnboginn, Nýja bíó Keflavík og Borgarbíó Akureyri frumsýna bandarísku gamanmyndina Scary Movie 2. Grín er gert að særingamanninum í Scary movie 2. KVIKMYNDIN 101 Reykjavík hefur verið tekin til sýninga hjá Film Forum í New York. Dómar um myndina birtust í vikunni í dagblaðinu The New York Times og vikuritinu Time Out. „Meistari þróttleysisins hrærist í tilfinningalegu híði á Íslandi,“ segir gagnrýnandinn Elvis Mitch- ell í fyrirsögn með ítarlegum dómi The New York Times og segir myndina skorta skriðþunga og kraft á við Engla alheimsins en segir leikinn svo góðan að þrótt- leysið verði hluti af stemmingu myndarinnar. Almodóvar norðursins Mitchell segir 101 Reykjavík vera nokkurs konar norðurskauts- útgáfu af gamanmyndum Almodóv- ars, og að ef til vill hafi það verið það sem laðaði Almodóvar-leikkon- una Victoriu Abril að gerð mynd- arinnar. „Kuldi Íslands kann að skýra skort á skriðþunga í tilfinninga- legum flækjum persónanna. Höf- undi myndarinnar virðist meira í mun að skapa ýmsar aðstæður fyr- ir persónurnar – þar með talin samskipti Hlyns við móður sína sem eru á mörkum þess að vera lostafull – fremur en að kafa ofan í þau öfl sem búa þeim að baki. Myndin gefur okkur samhengið en engar skýringar, þrátt fyrir frjáls- lynda umgjörð.“ Veikleikinn í aðalpersónunni Dýpstu tilfinningar aðalpersón- unnar telur Mitchell skína í gegn- um yfirlæti Hlyns sem bendi til þess að honum finnist heimurinn standa í þakkarskuld við sig. „Það lýsir skammsýni að svipta Hlyn fyrirlitningunni sem gerjast innra með honum og honum tekst að láta í ljós með svo sannfærandi hætti, til þess eins að benda á að honum geti líka sárnað. Þörf [Balt- asars] Kormáks fyrir að gefa myndinni meiri fyllingu drekkir henni í ósamræmi.“ Höfundur kemst þó að þeirri niðurstöðu að myndin sýni að leikstjórinn sé fær um að sinna leikurum sínum sem skyldi, hins vegar sé veikleiki hans fólginn í meðförinni á aðalpersón- unni. Með sakbitið bros á vör „Hlynur er ekki eins og fólk er flest“, hann er „óviðbjarganlegur slugsi“, sem býr ásamt móður sinni á heimili „þrungnu Ödipusar- spennu“ í „því sem sagt er vera heitasta hverfi landsins“ með póst- fanginu 101. Þetta kemur fram í dómi Mike D’Angelo í vikuritinu Time Out. „Ég get auðveldlega séð fyrir mér að 101 Reykjavík, þar sem að- alpersónan er fráhrindandi prakk- ari og melódramatískur söguþráð- urinn er hreint hlægilegur, kunni að fara skakkt ofan í einhverja áhorfendur. En [Baltasar] Kor- mákur – leikari sem er að leikstýra sinni fyrstu mynd – stendur sig vel svo úr verður undarleg blanda þess spillta og þess bælda, og það er nóg af grípandi atriðum til að njóta, … Ef þú nærð að leiða ruglings- legan söguþráðinn hjá þér og ein- beita þér að hrífandi umgjörðinni og einnota bröndurunum er líklegt að þú gangir út úr kvikmyndahús- inu með eilítið sakbitið bros á vör. Þetta er ekki 101 Reykjavík, og það er myndinni til hróss.“ 101 Reykjavík í New York Góður leikur, þróttlaus mynd New York. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.