Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 25
SÝNING Heide Schubert, „Veru-
leikar – Ansichten“, verður opnuð
í Ráðhúsinu í dag. Heide Schubert
er þýsk listakona, fædd í Karls-
bad en er nú búsett í Augsburg.
Hún stundaði nám í Háskólanum í
München og útskrifaðist þaðan.
Útskrifaðist einnig frá Sorbonne í
París.
Schubert hefur komið til Ís-
lands á hverju ári síðan árið 1979
og var eitt ár kennari á Íslandi.
Hún ferðaðist um landið og tók
ótal myndir. Myndirnar í sýning-
unni eru samsettar myndir með
sérstakri tækni og túlka gleði,
ótta, þrá, von og hughrif manns-
ins sem ferðast um landið, segir í
sýningarskrá.
Sýning í Ráðhúsinu
Morgunblaðið/Jim Smart
Heide Schubert
GUÐBERGUR Auðunssson opnar
málverkasýningu í Norska húsinu í
Stykkishólmi í dag kl. 17. Á sýning-
unni eru ný málverk auk verka frá
ýmsum tímabilum á ferli Guðbergs
en hann hefur áður haldið 14 einka-
sýningar, bæði hér heima og erlend-
is, m.a. í Þýskalandi, Noregi og
Bandaríkjunum. Aðgangur að sýn-
ingunni er ókeypis og verður hún op-
in til 1. september.
Málverk
í Norska
húsinu
Guðbergur Auðunsson
MARKMIÐ kalla þeir Helgi
Hjaltalín og Pétur Örn sýningu sína,
en þrisvar sinnum áður hafa þeir
félagar sett saman sýningu undir
þeim formerkjum sem þeir flagga
nú í Galleríi Sævars Karls; fyrst í
galleri@hlemmur.is, svo í Deiglunni
á Akureyri og loks í Galeria Wyspa í
Gdansk.
Tilfinningin sem sækir að áhorf-
andanum þegar hann kemur inn í
salinn er áþekk því þegar við honum
blasir rannsóknastofa eða vélaverk-
stæði. List þeirra félaganna er
dæmigerð strákalist – Guy Art, eins
Jerry Saltz á Village Voice kallar
fyrirbærið svo réttilega – með öllum
þeim draumatækjum sem litla og
stóra stráka dreymir, en sumir vilja
meina að karlmenn vaxi aldrei upp
úr járnvöruversluninni, rafmagns-
verkstæðinu eða módelsmíðinni.
Þeir Helgi Hjaltalín og Pétur Örn
hafa þó stálpast nokkuð því minna
fer fyrir bófahasarnum á þessari
sýningu en þeirri sem þeir settu upp
í fyrra, í hlemmur@ismennt.is. Þar
var ofuráhersla á veiðimannseðlið
svo við lá að grimmd mannsins væri
aðalinntak sýningarinnar.
Að þessu sinni ber mun meir á já-
kvæðari gildum, svo sem björgunar-
búnaði og hvers kyns tækjum sem
hugsanlega gætu stuðlað að slysa-
vörnum á sjó og landi. Mest fer fyrir
báti sem þeir félagarnir hafa smíðað
og virðist vera eins manns fley með
yfirbyggðu húsi. Andspænis báts-
skrokknum hafa listamennirnir
komið upp tveim borðum, annars
vegar með samstæðum af sjón-
varpssendum, móttökutækjum og
skjám, þar sem hinum ýmsu upp-
finningum þeirra bregður fyrir; raf-
magnsbílum, eldflaugum og skopp-
andi gjörðum.
Fyrirbærin hafa fengið nafn –
rollcam, jetcam og kitecam – en
finna má margar fagrar myndir af
tækjum félaganna á vefsíðu Mark-
miðs: http://members.netjunk.com/
markmid. Yfir sýningunni er léttur,
tilraunakenndur ferskleiki sem
vissulega minnir á leikrænar til-
raunir annarra skyldra listamanna,
Roman Signer, Fischli/Weiss og
Jason Rhodes, svo einhverjir séu
nefndir af strákagerinu sem neitar
að vaxa upp úr smíðakassanum.
Mestu máli skiptir þó að Helgi
Hjaltalín og Pétur Örn hafa í Gall-
eríi Sævars Karls fundið heillandi
jafnvægi milli faglegrar smíðavinnu
og bílskúrskenndrar óreiðu sem
hittir áhorfandann með næsta ljúf-
sárum hætti. Mest mundi okkur
langa til að gleyma stunda og stað,
og verða aftur börn sem leyfa sér að
garfa í öllum þessum lokkandi tækj-
um og tólum; finna aftur upp hjólið
og búa til vængi eins og Dædalos
forðum daga. Þessar þrár tekst
þeim félögum að endurvekja, og er
það til marks um ágæti sýningar
þeirra.
Vélaverkfræði
og vélaverkstæði
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfs
„Dæmigerð strákalist,“ segir í gagnrýni.
MYNDLIST
G a l l e r í S æ v a r s K a r l s
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson & Pétur
Örn Friðriksson.
Til 1. ágúst. Opið á verslunartíma.
BLÖNDUÐ TÆKNI
Halldór Björn Runólfsson