Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Alf MagnúsÖverby fæddist í bænum Molöy í Firðafylki í Noregi hinn 3. apríl 1921. Hann lést 17. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Samuel og Bertine Överby. Hann átti bróður, Óskar, sem látinn er fyrir nokkrum ár- um. Alf ólst upp í Mo- löy og átti þar far- sæla barnæsku. Eft- ir að skóla lauk, fór hann til sjós, stundaði fiskveiðar, síðar millilandasiglingar. Á stríðsár- unum sigldi hann fiskiflutninga- skipinu Jan Mayen sem var í förum milli Íslands og Englands. Árið 1943 kvæntist hann Guð- björgu Líkafrónsdóttur, hún lést 1978. Börn þeirra eru fimm: Ás- geir Guðbjörn, Bernharð, Óttar Alf, Guðbjörg Ás- gerður og Gunnar Atli. Alf og Guðbjörg bjuggu saman fyrstu árin í Reykjavík, þar starfaði hann sem fisksali, síðan bjuggu þau nokkur ár í Noregi og frá árinu 1954 á Ísa- firði. Hér starfaði hann aðallega hjá Íslenskum aðal- verktökum sem kranamaður í ýmsum verkefnum víðsvegar um landið, þó aðallega á Keflavík- urflugvelli. Alf ferðaðist mikið síðari ár en fyrir 2-3 árum byrj- aði heilsunni að hraka. Útför Alfs fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Er ég rita þessi fáu orð hugsa ég til þín með söknuði og hlýju. Það var árið 1979, að ég kem til Ísafjarðar með börn mín fimm, sem Gunnar sonur þinn tók að sér. Mun ég aldrei gleyma hve vel þú og fjöl- skylda þín tókuð á móti okkur öllum. Hún sýndi sig snemma góð- mennskan, þegar þú passaðir börnin fyrir mig á þeim erfiðu stundum, þegar systir mín lést í desember 1979. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég kveð þig með virðingu og söknuði. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til fjölskyldu og ættingja. Þín tengdadóttir Unnur. Elsku Alf, það er sárt að hugsa til þess, að þú sért látinn og ég sjái þig ei meir. Þótt samskiptin hafi ekki verið svo náin í seinni tíð á ég þó svo margar minningar um þig. Ég man svo vel þegar ég sá þig í fyrsta skipti, þá var ég aðeins átta ára. Þarna hitti ég mann, sem var Norð- maður, frá útlöndum, og var alltaf með sólgleraugu og hatt. Sannar- lega einstakur karakter og það varstu óumdeilanlega. Ég byrjaði snemma, að kalla þig afa, því Alf var svo líkt því, og svo áttum við engan afa á Ísafirði. Svo sannarlega mátt- um við það. Eftir það varstu aldrei kallaður annað en afi. Skemmtilegast þótti mér, þegar ég bjó á Ísafirði, að koma með vini mína í heimsókn til að sýna þeim út- lenskan afa minn, sem bjó til besta harðfisk í heimi. Í hvert skipti sem ég kom gafstu mér og vinum mínum fullan poka af harðfiski. Ég hitti þig síðast er þú varst áttræður og ég rifjaði upp með þér söguna af því, hvenær ég byrjaði að kalla þig afa. Ég sá á svipnum á þér að þér hlýn- aði um hjartarætur að heyra að ég átti svo fallegar minningar um þig. Þú verður alltaf afi minn og minn- ingin um þig lifir að eilífu. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til allra ættingja. Jóhannes Bergþór. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) ALF MAGNÚS ÖVERBY ✝ Sigurður Þor-steinsson fædd- ist 10. desember 1921 í Götu í Ása- hreppi. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands á Selfossi 20. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorsteinn Tyrfingsson, f. 28. apríl 1891, d. 22. september 1973, og Guðrún Pálsdóttir, f. 28. júní 1891, d. 7. maí 1988. Systkini Sigurðar eru: 1) Steinn, f. 26. mars 1916, d. 29. janúar 1961. 2) Bjarnhéðinn, f. 30. mars 1917, d. 31. desember 1985. 3) Tyrfingur Ármann, f. 30. nóvember 1918. 4) Guðrún Sig- ríður, f. 28. desember 1920. 5) Guðbjörn Ingi, f. 11. júlí 1923, d. 18. júlí 1924. 6) Þórdís Inga, f. 18. september 1924. 7) Óskírður, f. 18. september 1924, d. 18. september 1924. 8) Aðalheiður, f. 31. mars 1926. 9) Pálína Salvör, f. 31. mars 1926, d. 18. júní 1926. 10) Þóra, f. 26. mars 1927. 11) Anna, f. 26. október 1928. 12) Ingibjörg, f. 2. október 1925. 13) og Haraldur Geir, sonur hans er Kristbjörn Ari. 5) Hafdís Dóra, f. 4. febrúar 1963, sambýlismaður hennar er Gísli Stefánsson, f. 3. apríl 1965, synir þeirra: Steinn Daði og Stefán Orri. 6) Sigurður Rúnar, f. 17. október 1968, sam- býliskona hans er Margrét Ýrr, f. 26. febrúar 1973, barn þeirra Karen Eva. 7) Eiður Ingi, f. 13. janúar 1970, sambýliskona hans er Linda Rut Larsen, f. 1. desem- ber 1971, börn þeirra eru Sævar Ingi og Eva Rún. 8) Sigríður Magnea, f. 20. janúar 1973. Sigurður var til 12 ára aldurs í Götu í Ásahreppi. Hann fluttist þaðan með foreldrum sínum að Rifshalakoti og bjó með þeim þar og var þeim stoð og stytta í bú- skapnum. Hann fékk sína barna- skólamenntun í farandskóla annaðhvort heima í Vetleifsholts- hverfi eða austur í Bjóluhverfi. Þegar foreldrar hans hættu bú- skap fluttist hann með þeim á Hellu. Var hann hjá þeim þar uns hann hóf sinn eigin búskap með eftirlifandi konu sinni, fyrst á Hellu á efri hæðinni hjá Þóru systur sinni eða til 1952 er þau hjónin hófu búskap í Vetleifs- holti. Hann var einn af stofn- endum Hestamannafélagsins Geysis og vann mikið við að koma því af stað. Útför Sigurðar fer fram í Odda á Rangárvöllum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þórhildur, f. 9. nóv- ember 1926, d. 13. maí 1927. 14) Þór- hildur Svava, f. 4. febrúar 1931. Hinn 23. desember 1950 kvæntist Sig- urður Guðrúnu Jóns- dóttur, f. 5. apríl 1930, frá Núpi undir Eyjafjöllum. Foreldr- ar hennar voru Jón Einarsson, f. 30. apríl 1902, d. 22. maí 1979, og Auðbjörg Jónína Sigurðardóttir, f. 25. apríl 1910, d. 15. mars 1985. Börn Sigurðar og Guðrúnar eru: 1) Jón Björgvin, f. 22. júlí 1950, börn hans eru: Snjólaug Kristín, Eðvarð, Krist- ján Guðni og Jóna Björk. 2) Sig- rún Steinunn, f. 4. ágúst 1955, gift Garðari Sigurðssyni, f. 24. september 1958, börn þeirra: Sólrún Helga, Karl Steinar, Sig- urður og Agnar Bjarki. 3) Haf- steinn Birgir, f. 12. október 1957, sonur hans er Erlingur Örn. 4) Auðbjörg Jónína, f. 28. mars 1960, gift Valsteini Stefánssyni, f. 15. ágúst 1957, börn þeirra: Guðrún Margrét, Brynjar Freyr Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. B) Þegar ég lít til baka man ég stund- irnar með þér út í fjósi þegar þú kenndir mér að ganga frekar útskeif heldur en innskeif. Eins þegar við vorum að smala, það gekk nú á ýmsu en alltaf varstu sáttur þegar í hús var komið. Eitt gamlárskvöld þegar strákarnir höfðu keypt stóra „tertu“ og kveikt í urðu lætin þvílík að þú komst út og sagðir okkur að hætta þessum látum því að kýrnar yrðu hræddar en við gátum lítið gert. Hvað þú varst endalaust þolinmóður og góður við okkur. Það er svo sárt að hugsa til þess að fá aldrei að hitta þig aftur, þó að þér líði örugglega betur þar sem þú ert nú. Í veikindunum sem voru þér svo erfið veit ég að þú þráðir að fá að sofna svefninum langa. Elsku pabbi, þakka þér fyrir allt saman þann, að mér finnst núna, stutta tíma sem ég fékk að eiga með þér. Hvíl í friði. Þín dóttir Sigríður. Umhyggja, það að enginn liði skort, jöfn virðing fyrir mönnum og málleysingjum er það fyrsta sem kemur upp í hugann, þegar ég læt hugann reika og minnist tengdaföður míns. SIGURÐUR ÞORSTEINSSON                                            !"#" $%& % % %'     ()"#"!("()" !"  # $%&  #"  !" '(%%# ! "% ! "%& )&# !" '(%%# (*  '%&  #%+ # !" & , # "  # "''(%%# ) # )-# & ) # ) # )-# *    ./ 0. 121 #) # #"3 4#5#*" !   +# #  ,  -  ."#"   ! ! "%& !#$ 0#" ! "%'(%%# 0("6 # , ! "%& "*5"+ #  ! "%& $%&   1/  1/ %% %/ %      !" #"!."))" 0   1 2   32 &            ( 4&#%  #!& # -% 78 4#      / 91 6#5 ( ##! : % "  7;  ## -   ."# & / < 02 1 # 6 "%#3% ;8  ##     4"#     %,2  %& (" #"!("()" 1    -    -     2 ,2  5   % ,2     "' )-# %(# & +5 -#! # #& # # < # #! # & -#! # ")#  "' = &  #! ##  >  ##'(%%# )-# %' )-# & ) # )-#    %  %  %  % 1  /? )  # +% # 6#5  :% !             5   %   6"#" ! "*! # 5# '(%%# )-# %' )-# ) # )-# & ) # ) # ) #
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.