Morgunblaðið - 27.07.2001, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
Þú getur tilkynnt aðsetursskipti á
www.postur.is
Veit Pósturinn hvar þú býrð
.....á bólur...........
ÁBURÐUR MEÐ DJÚPVIRKUM ENSÍMUM
Fæst í apótekum og
heilsubúðum.
X
Y
Z
E
T
A
/
S
Í
A
ÁKVEÐIÐ var á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í Lundúnum í gær
að framlengja banni við hvalveið-
um í ágóðaskyni um eitt ár. Þar
með fór út um þúfur tilraun, sem
Japanir og Norðmenn fóru einkum
fyrir, til að fá aflétt banninu, sem
staðið hefur í 15 ár. Árni M. Mat-
hiesen sjávarútvegsráðherra segir
bannið í engu breyta áformum Ís-
lendinga um undirbúning veiða.
Ekki kom til þess að greidd
væru atkvæði um hvort aflétta
bæri banninu, einkum sökum þess
að fulltrúar á fundinum komu sér
ekki saman um hvaða stjórnkerfi
ætti að styðjast við, yrðu takmark-
aðar veiðar heimilaðar.
Árni M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að íslensk
stjórnvöld hefðu aldrei búist við
því að þessi tilraun Norðmanna og
Japana tækist. Niðurstaðan
breytti því í raun engu varðandi
áætlanir Íslendinga um að hefja
hvalveiðar. „Það hefði breytt okk-
ar áformum hefði banninu verið af-
létt, en það að bannið haldi áfram,
breytir engu um það sem við höf-
um verið að undirbúa,“ sagði Árni.
Aðspurður hvort hann sæi fram á
að hvalveiðiráðið myndi aflétta
banninu í næstu framtíð sagði Árni
að hann leyfði sér ávallt að vona.
Afstaða þeirra þjóða í hvalveiði-
ráðinu sem eru andvígar hvalveið-
um hafi þó ekki orðið til þess að
auka honum bjartsýni. Fulltrúar
Japana sögðu í samtölum við
fréttamenn að veiðibannið væri út-
rætt að sinni en boðuðu að málið
yrði tekið upp á næsta ári þegar
ráðið fundar í Tókýó. „Hvað veiði-
bannið varðar hefur verið staðfest
að það mun gilda í eitt ár til við-
bótar,“ sagði fulltrúi japanskra
stjórnvalda.
Fulltrúar umhverfissamtaka
fögnuðu þessum málalokum. Felld
var tillaga um „hvalaverndunar-
svæði“ í Suður-Kyrrahafi.
Ársfundi hvalveiðiráðsins lýkur í
dag.
Breytir ekki
áformunum
Lundúnum. AFP.
Sjávarútvegsráðherra um
framlengingu hvalveiðibanns
FJALLSJÖKULL í Austur-Skafta-
fellssýslu hefur hopað um rúma
hundrað metra frá árinu 1996 en á
meðfylgjandi mynd má sjá stórbrot-
ið landslag jökulsins. Og þótt fis-
flugvélin sé ekki stór í verunni
verður hún agnarsmá yfir jökul-
breiðunni.
Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur
hjá vatnamælingum Orkustofnunar,
segir að ástæðan fyrir því sé annars
vegar hlýnun á loftslagi sem hefur
mest að segja og hins vegar til-
tölulega lítil úrkoma síðustu ár.
Segir hann að íslenskir jöklar hafi
nánast allir hopað síðastliðin fjögur
ár.
Að sögn Odds rann Fjallsjökull
áður saman við Breiðamerkurjökul
en þeir slitnuðu í sundur árið 1946.
„Breiðamerkurjökull hefur hopað
einna mest íslenskra jökla. Byrjað
var að mæla hann árið 1932 og síð-
an þá hefur hann hopað um rúma
þrjá kílómetra.“ Ljósmynd/GÓ
Fjallsjökull
hefur
hopað um
100 metra
gervitunglatækni. Þá sé verið að
færa fundarstaði plantna í Surtsey
á tölvutækt form.
Leiðangursmenn fengu heimsókn
tveggja japanskra jarðfræðinga til
Surtseyjar, ásamt forstjóra og
starfsmanni Náttúrufræðistofu
Suðurlands. Japanarnir voru komn-
ir í þeim tilgangi að sannprófa nýja
tækni til að aldursgreina berg-
kviku.
Íslensku vísindamennirnir fylgd-
ust með ástandi fuglalífs á svæðinu
og að sögn Sturlu setja mávarnir
eðlilega mestan svip á eyna. Þar eru
einnig um sextíu rituhreiður í sjáv-
arbjargi og fýll verpur þar í hömr-
um og einnig uppi í gígunum. Hann
segir, að það markverðasta af fugl-
um að segja hafi samt verið, að
þarna búi snjótittlingar og hafi þeir
verið þarna með unga. Leiðang-
ursmenn, sem voru í Surtsey 15.
júní í sumar, hafi fundið eitt hreiður
með þremur eggjum uppi í hraun-
gígnum. „Einnig er hugsanlegt að
máríatla hafi orpið í hraunskúta í
Surtsey í vor, því hún er orðin
þarna hagvön og sást núna á flögri
með stálpaða unga,“ segir hann.
Lundinn nemur líka land
Að sögn Sturlu var fróðlegt að sjá
upprótaðar holur í gróðurþekju
sunnan við mávabólið. Þeir félagar
álitu að þessi ummerki væru eftir
lunda, sem væru að gera þarna
fyrstu tilraun til landnáms. „Þarna
var ungt lundapar að fá úthlutað
fyrstu lóðinni fyrir nýbýlið,“ segir
hann.
Sturla segir að mávarnir beri
stöðugt æti og plöntuleifar til eyj-
arinnar og við það aukist gróskan á
aðallandnámssvæðinu sunnanvert í
Surtsey. Gróðursvæðið sé að breið-
ast út til austurs, en þangað sé
mávavarpið að flytjast. Annars
staðar í sandorpnu hrauninu, þar
sem fjöruarfinn ráði ríkjum, sé
gróður einnig að þéttast smám sam-
an, en þar komi mávurinn ekki við
sögu.
Að hans sögn brýtur sjór nú ört
af norðurskaga eyjarinnar og hefur
myndað vík í nesið, þar sem í fyrra
hafi orðið jarðsig í eynni.
AUGNFRÓ, ný tegund háplantna,
hefur bæst í lífríki Surtseyjar, en
vísindamenn voru í eyjunni í
þriggja daga leiðangri sem lauk í
gær. Líffræðingarnir dr. Sturla
Friðriksson og dr. Borgþór Magn-
ússon, ásamt Sigmari Metúsal-
emssyni landfræðingi, voru þar á
ferð í þetta skipti.
Að sögn Sturlu þótti þeim mark-
verðast að finna enn eina nýja teg-
und háplantna, sem bæst hefur í líf-
ríki Surtseyjar eða augnfró eins og
fyrr segir. Augnfró vex hér á landi
venjulega á harðbölum, en þarna
var hún hvanngræn og grósku-
mikil, þar sem hún dafnaði í máva-
dritinu.
Sturla segir að þeir hafi fundið
aftur 45 tegundir af þeim 56 há-
plöntutegundum, sem hafi numið
land í Surtsey í 38 ára sögu eyj-
arinnar. Sumar þeirra 11 tegunda,
sem þeir hafi ekki séð í þessari ferð,
séu vandfundnar plöntur, en aðrar
hafi ekki náð að sigrast á erfiðum
aðstæðum í nýja landinu og hafi lot-
ið í lægra haldi vegna ytri skilyrða.
Nú er unnt að staðsetja með GPS-
miðunartækjum fundarstaði ein-
stakra sjaldséðra plantna og segir
Sturla að það auðveldi alla könnun
og úrvinnslu gagna. „Áður þurfti að
merkja hverja plöntu með núm-
eruðum hælum, til þess að staðsetja
tilveru hennar,“ segir hann og
bendir á að í þessari ferð hafi ein-
mitt verið unnið að því að hnitmiða
út þessa gömlu hæla með aðstoð
Ný plöntutegund í Surtsey
Augnfró er nýjasti landnemi háplantna í Surtsey.
Ljósmynd/Sturla Friðriksson
ÍSLENSKA ákvæðið á 6. aðildar-
ríkjaþingi Kyoto-samkomulagsins,
sem haldið er í Bonn í Þýskalandi,
verður að öllum líkindum ekki tekið
til afgreiðslu fyrr en á 7. aðildarríkja-
þinginu, sem fram fer í Marakesh í
Marokkó í nóvember nk. Halldór Þor-
geirsson, skrifstofustjóri sjálfbærrar
þróunar og alþjóðamála hjá umhverf-
isráðuneytinu, sem á sæti í íslensku
samninganefndinni, segir að íslenska
ákvæðið sé hluti af öðrum málaflokk-
um, sem vonir stóðu til að samþykktir
yrðu í dag, á grundvelli pólitískrar
niðurstöðu sem náðist sl. mánudag.
„Vinnan hefur gengið samkvæmt
áætlun en það er mikið mál að útfæra
öll tækniatriðin. Það er margt sem
bendir til þess að í stað þess að ljúka
þessum málum hér verði þráðurinn
tekinn upp í Marakesh. Verði það nið-
urstaðan, verður málið sem snýr að
Íslandi ekki tekið til afgreiðslu á
morgun frekar en önnur mál.“
Íslenska ákvæðið
bíður til hausts
Markmið/30