Morgunblaðið - 28.07.2001, Page 6

Morgunblaðið - 28.07.2001, Page 6
„Á AÐ taka mynd núna?“ spurði heimasætan á Grund í Svínadal og stillti sér lukkuleg upp fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins. Stúlkan heitir Helga Haralds- dóttir og er fjögurra ára. Hún var að passa litla hvolpinn Loppu og heimalninginn fyrir pabba, á meðan hann undirbjó færibandið og tók inn bagga, enda heyskap- urinn í fullum gangi í blíðunni í Húnavatnssýslu. Hún Helga á Grund er ekki tengd hinni frægu sögupersónu Jóns Trausta, Helgu á Grund í Eyjafirði. En þeirri Helgu brá fyrir í sögunni Veislan á Grund, þar sem hún tókst á við einhver mestu illmenni Íslandssögunnar. Ungviðið á Ytri- Grund FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALLS hefur ríflega 900 milljónum verið varið til framkvæmda við Þjóðleikhúsið frá því endurbætur á því hófust árið 1988, en á núgild- andi verðlagi eru það um 1.302 milljónir kr. Frá því 1. áfanga end- urbótanna lauk árið 1994, hefur 166 milljónum kr. verið varið af fjárlögum í endurbætur og viðhald á leikhúsinu. Áfallinn kostnaður á verðlagi hvers árs nemur hins veg- ar um 159 milljónum, að því er fram kemur í upplýsingum frá Framkvæmdasýslu ríkisins. Þörf fyrir 1.240 milljónir í viðbót í endurbætur Fram kom í Morgunblaðinu í fyrri viku, að byggingarnefnd Þjóðleikhússins skilaði fyrir tveim- ur árum greinargerð til mennta- málaráðuneytisins um kostnað við uppbyggingu og nauðsynlegar endurbætur á Þjóðleikhúsinu. Í greinargerðinni er kostnaðurinn áætlaður um 1.240 milljónir króna og gerð er tillaga um sex ára framkvæmdatíma og að veitt verði af fjárlögum í fjögur ár til að standa straum af kostnaðinum. Þessari áætlun hefur ekki verið fylgt. Samkvæmt upplýsingum frá Framkvæmdasýslu ríkisins hafa verið veittar á fjárlögum 166 millj- ónir kr. til minniháttar viðhalds og nauðsynlegra lagfæringa til að unnt verði að halda starfseminni gangandi. Frá árinu 1988 hefur hins vegar 1.302 milljónum kr. verið varið til framkvæmda við Þjóðleikhúsið, mismikið eftir árum. Mestur á einu ári varð kostnaðurinn árið 1990, eða 376 milljónir og 326 milljónum kr. var varið til fram- kvæmda ári eftir. Mun lægri fjárhæðir hafa farið í viðhald hússins eftir að fyrsta áfanga var lokið, eða nokkrir tugir milljóna ár hvert. Athygli vekur þó að það sem af er árinu hefur ríf- lega 25 millj. kr. verið varið til endurbóta, en það jafngildir nokk- urn veginn heimild á fjárlögum í þennan málaflokk fyrir allt árið. Framkvæmdasýsla ríkisins set- ur þann fyrirvara, að ekki sé hægt að staðfesta að upplýsingur úr bókhaldi Framkvæmdasýslunnar séu heildartölur fyrir framkvæmd- irnar. Sá möguleiki sé fyrir hendi að hluti kostnaðar hafi verið bók- aður annars staðar. Hins vegar sé unnið að skilamati vegna fram- kvæmdanna. Viðhald og endurbætur Þjóðleikhússins Heildarkostnað- ur áætlaður um 1.300 milljónir                                                                        LEIÐANGUR á vegum bresku sjónvarpsstöðvarinnar Channel 4, fann á mánudaginn flak HMS Hoods á um 3000 metra dýpi í Grænlandssundi. Myndir af flak- inu voru teknar með fjarstýrðum neðansjávarkafbát, en leiðang- ursmenn hyggjast m.a. varpa ljósi á hvað varð til þess að Hood sökk svo skyndilega. Það var Bretum mikið áfall þegar herskipinu Hood var sökkt í Grænlandssundi fyrir sextíu ár- um. Hood var stolt breska flotans og þeirra frægasta orrustuskip. Eftir stutta viðureign við þýska bryndrekann Bismarck að morgni 24. maí 1941, varð gríðarlega öfl- ug sprenging um borð í Hood. Skipið rifnaði í tvennt og sökk á fáeinum mínútum. Aðeins þrír af rúmlega 1400 manna áhöfn kom- ust lífs af. Breski flotinn komst að þeirri niðurstöðu að sprengikúla frá Bismarck hafi hleypt af stað sprengingu í skotfærageymslu Hood. Ýmsir hafa þó orðið til að draga þessa niðurstöðu í efa, en með því að rýna í myndir af flak- inu vonast leiðangursmenn til þess að leysa gátuna. Gnýrinn heyrðist til Vestfjarða Hver sem ástæðan var er ljóst að sprengingin um borð í Hood var gríðarlega öflug. Orr- ustugnýrinn og sprengingin heyrðust til Vestfjarða og munu jafnvel hafa náð til Reykjavíkur. Hood logaði stafna á milli og stærðarstykki úr skipinu flugu hátt í loft upp. Skipið rifnaði í sundur og var sokkið andartaki síðar. Atburðum er lýst svo í bók Ludovic Kennedys „Bismarck skal sökkt“: „Síðan valt skipið á hliðina eins og hrynjandi hús. Til- burn sjóliði, sem staddur var á bátadekki, fann fyrir mjög óvenjulegum titringi. Hann sá mann bíða bana við hlið sér, svo og hvernig sprengjuflís reif upp síðuna á öðrum svo að iðrin lágu úti. Hann hljóp út að borð- stokknum til að æla en sá þá að þilfarið nam við sjó. Og á öðrum stöðum á skipinu voru aðrir menn, sem fylgdust æðrulausir með vísum eða leiðréttu mæla, og urðu þess þá allt í einu varir að eitthvað mjög óvenjulegt var að koma fyrir þá, fundu á ægilegu örstuttu andartaki, vart lengra en eldingarblossi varir, að dauð- inn var kominn til að sækja þá, þegar þeir tókust á loft og skil- rúm og plötur hrundu umhverfis þá.“ Komust upp á fleka Ted Briggs, sá eini sem enn er lifandi af áhöfn Hood lýsti at- burðum svo í viðtali við Channel 4: „Ég fann að ég dróst sífellt lengra niður. Brátt fannst mér sem ég gæti ekki meira. Og þá skyndilega var sem mér væri skotið upp á yfirborðið.“ Briggs komst ásamt þeim Will- iam Dundas og Bob Tilburn upp á fleka. „Þegar þeir voru komnir upp á flekana sáu þeir flugvélina Sunderland fljúga fyrir ofan þá. „Þeir veifuðu og lömdu sjóinn til að vekja athygli á sér, en flug- mennirnir tóku ekki eftir þeim og flugu leiðar sinnar. Þeir reyndu að halda hópinn á flekunum, en kuldinn var of mikill, svo að þeir urðu loppnir og flekana rak sundur. Tilburn trúði því, að hann mundi deyja og hann minnt- ist þess að hafa lesið, að menn lokuðu augunum, þegar þeir væru að krókna og vöknuðu síð- an aldrei framar. Hann taldi það þægilegan dauðadaga, lokaði augunum, en hélt sér þó vakandi af þrákelkni,“ segir Kennedy í bók sinni. Tveimur klukkustund- um síðar var þeim bjargað um borð í breska tundurspillinn Electra. Aðstæðurnar voru hrikalegar þegar Ted Briggs bjargaðist af Hood Fannst að ég gæti ekki meira HMS Hood var smíðað í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þetta 42 þúsund tonna skip var stolt breska flotans. Bílvelta í grennd við Hljóða- kletta JEPPI valt í gær á Vesturdals- vegi sem liggur að Hljóðaklett- um rétt sunnan við Ásbyrgi. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Húsavík voru þarna á ferð tveir Ítalir á bíla- leigubíl og sluppu þeir ómeidd- ir en þeir voru báðir í bílbelt- um. Talið er að ökumaður hafi misst stjórn á jeppanum í lausamöl. Að sögn lögreglunnar tókst að velta jeppanum á réttan kjöl. Þrátt fyrir talsverðar skemmdir var hægt að aka honum til Húsavíkur. Innbrots- þjófur komst undan KONA kom að innbrotsþjófi í íbúð sinni í smáíbúðahverfinu í Reykjavík á sjöunda tímanum í gærmorgun. Þjófurinn komst undan en lögreglan leitaði hans um hríð í nágrenninu án árang- urs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík hélt þjófurinn á DVD-spilara kon- unnar þegar hún kom að hon- um. Honum tókst að komast undan með fenginn en auk þess hafði hann á brott með sér lófa- tölvu og veski. Fiskiker ollu aftan- ákeyrslu BÍLL ók aftan á annan bíl við Hafnarfjall um tíuleytið í gær- kvöldi. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi var hvasst á veginum og neyddist vörubíll sem flutti fiski- ker til að stöðva á veginum þegar fiskikerin fuku af pallinum. Um leið og umferðin stöðvaðist lenti jeppi sem var í bílalestinni aftan á öðrum jeppa, með þeim afleiðingum að fernt hlaut minniháttar meiðsl. Tveir voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akranesi og tveir á Heilsugæslu- stöðina í Borgarnesi til nánari skoð- unar. Að sögn lögreglu er bíllinn, sem lenti aftan á hinum bílnum, mikið skemmdur. Báðir jepparnir voru á norðurleið, en bifreiðin sem flutti fiskikerin var á leiðinni suður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.