Morgunblaðið - 28.07.2001, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Allt á útsölu
v i ð b ó t a r -
a f s l á t t u r
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Stakar buxur og bolir - 2 flíkur fyrir eina
15% aukaafsláttur af öðru
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18
laug. frá kl. 10-14
20% aukaafsláttur af útsöluvörum
Opnum í dag, laugardag, kl. 11.00
með það nýjasta í húsgögnum frá Indónesíu.
Falleg handunnin húsgögn á frábæru verði.
Verið velkomin.
SPENNANDI OPNUNARTILBOÐ
Súðarvogi 6
UNIKAhúsgögn
Erum að taka upp
vegna hagstæðra
innkaupa
stóra Ragazzi
sendingu
beint á útsöluna
Ath. Ungbarnafötin
komin aftur
Kringlunni
sími 581 1717
ELDUR varð laus í sjónvarpi í kjall-
araíbúð í Eskihlíð í Reykjavík í fyrri-
nótt. Tilkynnt var um eldinn um eitt-
leytið, en þegar slökkvilið og lögregla
komu á vettvang voru íbúar kjallar-
ans búnir að slökkva eldinn að mestu
leyti og bera sjónvarpstækið út.
Minniháttar skemmdir urðu af
völdum reyks og elds í íbúðinni. Þá
voru íbúar kjallarans fluttir á slysa-
deild til þess að athuga hvort þeir
hefðu hugsanlega fengið reykeitrun.
Kviknaði í
sjónvarpi í íbúð
í Eskihlíð
NÝR sveitarstjóri tek-
ur við störfum í Skaga-
firði 1. ágúst næstkom-
andi, Jón Gauti
Jónsson, og er við-
skiptafræðingur að
mennt. Gerður verður
samningur við hann
um að sinna starfinu í
tíu mánuði en hann
tekur við því af Snorra
Birni Sigurðssyni.
Að sögn Jón Gauta
var hann gerður að
sveitarstjóra Fá-
skrúðsfjarðar að loknu
háskólanámi. Þaðan lá
leiðin í starf sveitar-
stjóra Rangárvalla-
hrepps á Hellu og var hann síðan
bæjarstjóri í Garðabænum.
„Þetta flakk spannaði 15 ára
skeið. Síðan hef ég að mestu verið
við ráðgjafastörf, aðal-
lega í stjórnsýsluráð-
gjöf og sinnti, sem ráð-
gjafi, starfi
sveitarstjóra í Súðavík
í níu mánuði eftir flóðið
til þess að koma upp-
byggingunni af stað.
Nokkru síðar lá leiðin í
Vesturbyggð um sex
mánaða skeið og hjálp-
aði ég þar til við fjár-
hagslega endurskipu-
lagningu.“
Jón Gauti verður
ráðinn til tíu mánaða
eða fram að kosningum
næsta vor og stendur í
samningsdrögum að
auk venjulegra starfa sveitarstjóra
muni hann m.a. annast skoðun á
stjórnsýslunni, þ.e. boðleiðum og
verkaskiptingu.
Nýr sveitarstjóri í Skagafirði
Annast skoðun á
stjórnsýslunni
Jón Gauti
Jónsson
Í HÓLASKÓLA er unnið að úrlausn
mála sem snúa að nokkrum nemend-
um skólans sem neitað hafði verið
um skólavist í vetur eftir að hafa lok-
ið fyrsta ári á hrossabraut. Skúli
Skúlason, skólastjóri Hólaskóla,
sagði tilkynningar að vænta frá skól-
anum strax eftir helgi og vildi í gær
ekki tjá sig frekar um málið. „Allt
hefur þetta á sér viðkvæman flöt og
við höfum ákveðna upplýsingaskyldu
við okkar umbjóðendur varðandi
okkar niðurstöður,“ sagði Skúli og
áréttaði að koma ætti málinu í eðli-
legan farveg áður en skólinn kæmi
fram með sínar niðurstöður.
Væntir farsællar úrlausnar
Hólaskóli er einn nokkurra skóla
sem ekki heyra undir menntamála-
ráðuneyti heldur landbúnaðarráðu-
neyti. Aðrir skólar sem einnig heyra
undir landbúnaðarráðuneytið eru
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
og Garðyrkjuskólinn á Reykjum en
um þá gilda lög um búnaðarfræðslu
frá árinu 1999.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra upplýsti að í fyrradag hefði
verið fundað með forsvarsmönnum
Hólaskóla með það fyrir augum að
finna farsæla lausn á málinu og
vænti hann þess að skólinn greiddi
úr málum eftir helgina. „Mér sýnist
að þarna hafi gerst hlutur sem ekki
átti að gerast. Ég vænti þess að finn-
ist farsæl lausn á málinu, það er enda
þekkt lagið um þann sem féll með
4,9, en þeir sem ná glæsilegum ár-
angri með 7,9 hljóta að eiga braut-
argengi í gegnum skólann áfram,“
sagði Guðni.
Óljóst um skólavist nema í Hólaskóla
Málið er til skoð-
unar í ráðuneytinuBRÆÐURNIR Sigurður og Guð-mundur Sigurðssynir, bændur áFossum í Svartárdal, hafa staðið í
ströngu í vikunni við að bjarga
heyjum. Nú er gras óðum að
spretta úr sér en við það minnkar
efnainnihald þess mikið. Bændur
leggja því áherslu á að slá sem
mest, en hins vegar þarf þá að vera
þurrt í veðri. Margir bændur hafa
þegar lokið fyrri slætti og eru jafn-
vel farnir að huga að seinni slætti
Síðastliðinn fimmtudagur var
einn sá besti það sem af er sumri í
Austur-Húnavatnssýslu og var Ís-
landssólinni þakkað svikalaust, þar
sem hún sýndi sitt fegursta.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Húnvetn-
ingar heyja
SKILTI hefur verið sett upp á
myndbandaleigunum Bónusvídeói í
Ánanaustum og Vídeóhöllinni í
Lágmúla, þar sem viðskiptavinum
er tilkynnt að tekin verði af þeim
ljósmynd um leið og þeir leigja
myndbandsspólu. Sagt var frá því í
Morgunblaðinu á fimmtudag að
þessi nýja aðferð við eftirlit hefði
verið tekin í notkun á umræddum
myndbandsleigum en án þess að
viðskiptavinum væri gert viðvart.
Gunnar Már, verslunarstjóri
myndbandaleiganna, segir það
hafa verið mistök sem búið væri að
leiðrétta að viðskiptavinum skyldi
ekki tilkynnt að myndataka færi
fram þegar spóla væri leigð. Hvað
varðar öryggi viðskiptavina þegar
þeir svo skila spólum, segir hann
að boðið sé upp á kvittun þegar
spólu er skilað, en það sé í und-
antekningartilfellum að viðskipta-
vinir þiggi hana.
Myndatökur á myndbandaleigum
Viðskiptavinum
gert viðvart
♦ ♦ ♦
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is