Morgunblaðið - 28.07.2001, Side 36
DAGBÓK
36 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Kyndill
og Sapphire og út fara
Marz AK, Vigri RE,
Baldvin Þorsteinsson
EA, Kapitonas og Marc-
inkus.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Markus J og Ameland.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstudaga:
til Viðeyjar kl. 13, 14 og
15, frá Viðey kl. 15.30 og
16.30. Laugardaga og
sunnudaga: Fyrsta ferð
til Viðeyjar kl. 13, síðan
á klukkustundar fresti
til kl. 17, frá Viðey kl.
13.30 og síðan á klukku-
stundar fresti til kl.
17.30. Kvöldferðir eru
föstu- og laugardaga: til
Viðeyjar kl. 19, 19.30 og
20, frá Viðey kl. 22, 23
og 24. Sérferðir fyrir
hópa eftir samkomulagi.
Viðeyjarferjan, sími
892 0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Við-
eyjarferju kl.10.30 og
16.45, með viðkomu í
Viðey u.þ.b. 2 klst. sími
892 0099.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið til að hætta
reykingum í Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hvera-
gerði, fundur í Gerðu-
bergi á þriðjud. kl.
17.30.
Mannamót
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Morgungangan verður í
dag, rúta frá Firðinum
kl. 9.50 og kl. 10 frá
Hraunseli. Félagsheim-
ilið Hraunsel verður
lokað vegna sumarleyfa
starfsfólks til 12. ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10:00-13:00. Matur í
hádeginu.
Mánudagur: Brids kl.
13.00 ath. verðlaunaaf-
hending fer fram. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45.
Miðvikudaginn 1. ágúst
almennur félagsfundur
kl. 17.00. Fundarefni:
Húsnæðismál og önnur
mál. Munið að taka
félagsskírteinin með.
Dagsferð þriðjudaginn
7. ágúst, Hítardalur-
Straumfjörður. Brottför
frá Glæsibæ kl. 9.00.
Þeir sem hafa skráð sig
vinsamlegast sækið far-
miðann fyrir 4. ágúst.
Leiðsögn Þórunn Lár-
usdóttir. Eigum laus
sæti. Dagsferð 18.
ágúst. Fjallabaksleið
syðri í samvinnu við
FEB og Ferðaklúbbinn
Flækifót. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8.00. Leið-
sögn Pálína Jónsdóttir
og fl. Silfurlínan er opin
á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10.00
til 12.00 fh. í síma 588-
2111. Upplýsingar á
skrifstofu FEB kl. 10.00
til 16.00 í síma 588-2111.
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1 og Hæð-
argarður 31. Fimmtu-
daginn 9. ágúst nk.
verður farið í ferð til
Borgarfjarðar um
Kaldadal að Húsafelli.
Ekið verður að Barna-
fossi og Hraunfossum
að Reykholti, þar sem
snæddur verður léttur
hádegisverður. Þaðan
verður svo ekið um
Geldingadraga og Hval-
fjörð til Reykjavíkur.
Lagt verður af stað frá
Norðurbrún 1 kl. 8.30
og síðan teknir farþegar
í Furugerði og Hæð-
argarði. Skráning í
Norðurbrún í síma 568-
6960, í Furugerði í síma
553-6040 og í Hæð-
argarði í síma 568-31-
32.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar á vegum ÍTR í
Breiðholtslaug á þriðju-
dögum og fimmtudög-
um kl. 9.30. Púttvöll-
urinn er opinn virka
daga kl. 9–18, Kylfur og
boltar í afgreiðslu sund-
laugarinnar til leigu.
Allir velkomnir. Veit-
ingabúð Gerðubergs er
opin mánudaga til föstu-
daga kl. 10–16. Félags-
starfið lokað vegna
sumarleyfa frá 2. júlí–14
ágúst.
Gullsmári. Lokað vegna
sumarleyfa til 7. ágúst.
Félag eldri borgara
Kópavogi.
Púttað verður á Lista-
túni í dag, laugardag, kl.
11. Mætum öll og reyn-
um með okkur.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður í kvöld kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105. Nýir félagar vel-
komnir. Munið gönguna
mánudag og fimmtudag.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu. Skrifstofan
er lokuð vegna sum-
arleyfa til 7. ágúst.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins á Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552-2154. Skrif-
stofan er opin miðvikud.
og föstud. kl. 16–18 en
utan skrifstofutíma er
símsvari. Einnig er
hægt að hringja í síma
861-6880 og 586-1088.
Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
MS-félag Íslands. Minn-
ingarkort MS-félagsins
eru afgreidd á Sléttu-
vegi 5, Rvk., og í síma
568-8620 og myndrita s.
568-8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í síma
588-9220 (gíró), Holt-
sapóteki, Vesturbæj-
arapóteki, Hafnarfjarð-
arapóteki, Keflavíkur-
apóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í
síma 552-4440 frá kl.
13–17. Eftir kl. 17 s.
698-4426 Jón, 552-2862
Óskar eða 563-5304
Nína.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna í
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótek-
um. Gíró- og kred-
itkortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans í Kópa-
vogi (fyrrverandi Kópa-
vogshæli), síma 560-
2700 og skrifstofu
Styrktarfélags vangef-
inna, s. 551-5941, gegn
heimsendingu gíróseð-
ils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vest-
mannabraut 23, s. 481-
1826. Á Hellu: Mosfelli,
Þrúðvangi 6, s.487-5828.
Á Flúðum: hjá Sólveigu
Ólafsdóttur, Versl.
Grund s. 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni
Írisi, Austurvegi 4, s.
482-1468 og á sjúkra-
húsi Suðurlands og
heilsugæslustöð, Ár-
vegi, s. 482-1300. Í Þor-
lákshöfn: hjá Huldu I.
Guðmundsdóttur,
Oddabraut 20, s. 483-
3633.
Í dag er laugardagur 28. júlí, 209.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Hvern þann sem kannast við mig
fyrir mönnum, mun og ég við kann-
ast fyrir föður mínum á himnum.
(Matt. 10.32).
ÉG undirritaður, Hafsteinn
Hjartarson frá Hellisholti í
Vestmannaeyjum, sem
ávallt hef verið andstæðra
sjónarmiða við Árna í
stjórnmálum, vil hér með
lýsa yfir samstöðu- og vin-
arhug í hans garð og fjöl-
skyldunnar allrar gagnvart
því gjörningaveðri sem
hann hefir lent í í sambandi
við meint misferli sem hér
er ekki borið blak af – en
sem hefir á alla kanta í fjöl-
miðlum borið merki of-
sókna á hendur honum, svo
og dómsáfellinga, þótt
meintar ávirðingar hans
séu enn á rannsóknarstigi.
Mig, og reyndar marga
fleiri einlæga vini hans,
tekur að sjálfsögðu sárt að
lesa hina meintu áfallasögu,
en hitt er líka sárgrætilegt
að sjá menn og „valmenni“
koma fram undir nafni og
vitna um löngu liðnar ávirð-
ingar, einmitt þegar boginn
er brostinn og óvíða hár-
lokk að fá. Sýnir það helst
hvern mann viðkomandi
hefir að geyma, úr því að
siðferðisstyrkur þeirra var
ekki öflugri á sínum tíma
heldur en raun er á.
Gamalt orðtak segir: „Að
ljúga að öðrum er ljótur
vani, en að ljúga að sjálfum
sér er hvers manns bani“,
en efnis þessara orða minn-
ist undirritaður þegar hann
hugleiðir með sjálfum sér
fjölmiðlaorðaval þeirra
sjálfskipuðu dómara sem
vilja útbýta réttlætinu og
heiðarleikanum af gjöfulli
rausn. Minnast þeir e.t.v.
orða meistarans. „Sá kasti
fyrsta steininum, sem
syndlaus er?“ Sjálftaka í
eignum annarra varðar við
lög en samt orðar þjóð-
skáldið í erfikvæði sýndar-
mennskuna og gripdeildina
þannig: „Margur getur sér
orðstír ærinn þótt gefi ann-
arra“. Kann það svo að vera
um okkur fleiri samborgar-
ana, eða er landslýður kom-
inn á það stig að við fögnum
aftökum þjóðkunnra
manna með slúðursögum
og í fjölmiðlum sökum þess
að brauð og leikar er orðinn
okkar vettvangur? Þótt ein
ávirðing réttlæti ekki aðra
og yfirhylming ekki heldur
– myndi þó sá „syndlausi“ í
blaða- og fréttamannastétt
vilja hugleiða orð Einars:
„Aðgát skal höfð í nærveru
sálar“ – eða er hann svo
kalinn á hjarta að þrjátíu
silfurpeningar freista álíka
og forðum, enda þótt í sé
haldlítið skjól? Vini mínum
Árna og fjölskyldunni allri
bið ég guðs blessunar og
vona að almættið stýri för
hans um stundar kólgusjó.
Hafsteinn Hjartarson,
Vogatungu 87,
200 Kópavogi.
Tapað/fundið
Tímon og Púmba
á ferðalagi
ER einhver sem veit hvar
ég get fengið vídeóspóluna
um Tímon og Púmbu á
ferðalagi? Uppl. í s. 562-
9144.
Dýrahald
Þrjá kettlinga
vantar heimili
ÞRÍR kassavanir kettling-
ar fást gefins á góð heimili.
Þeir eru átta vikna. Upp-
lýsingar í síma 483-4906.
Mysu og Frosta
vantar heimili
VEGNA ofnæmis í fjöl-
skyldu getum við ekki leng-
ur haft heimiliskettina okk-
ar og leitum því eftir góðu
heimili fyrir þá. Mysa er al-
hvít þriggja ára læða, hefur
einu sinni átt kettlinga og
er á pillunni (við myndum
kosta aðgerð fyrir hana ef
þess væri óskað). Hún er
duglegur veiðiköttur og
myndi t.d. nýtast vel í sveit-
inni. Frosti er þriggja ára
geltur högni, bröndóttur
með hvítar hosur, mjög fal-
legur köttur. Báðir kettirn-
ir eru vanir útiveru og eru
þriflegir og vel vandir.
Áhugasamir geta haft sam-
band í síma 554-1596, 866-
3756, 866-1646 og 882-9050.
Kisa er týnd
HÚN hljóp úr pössun af
Bragagötu 23 í síðustu
viku. Hún er ólarlaus en
sennilega með merki í eyra.
Hún á heima í Hafnar-
firði þannig að það gæti allt
eins verið að hún reyni að
fara alla leið þangað. Ef þið
finnið Kisu væri gott að fá
upphringingu í síma 869-
5429.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Í tilefni máls
Árna Johnsens
Víkverji skrifar...
Í SÍÐUSTU viku fór ný útvarps-stöð í loftið sem fengið hefur hið
afar ófrumlega nafn, Steríó. Fattiði,
öfugt við Mónó. Þótt Víkverji hafi
ekki hlustað nægilega á stöðina til að
geta lagt dóm á gæði hennar fagnar
hann innilega tilkomu hennar. Það
veitir nefnilega ekkert af því að
auðga útvarpsflóruna hér á landi og
það sem meira er um vert, bæta út-
varpsmenninguna, sem er svo gott
sem engin.
x x x
ÁSTANDIÐ í útvarpsmálum hef-ur verið hreint út sagt alveg
hræðilega sorglegt síðustu árin. Vík-
verji veit nú fátt ömurlegra en þegar
afturhaldssamir fara að velta vöng-
um yfir því hvort ástandið hafi ekki
verið betra hér áður fyrr, þegar
meiri höft og hömlur voru við lýði.
En hann neyðist þó í þessu tilfelli að
viðurkenna að þrátt fyrir að útvarps-
stöðvum hafi fjölgað til muna eftir að
ljósvakamiðlun var gefin frjáls þá er
fjölbreytnin sáralítið meiri.
x x x
EINHVERN veginn hefur maðuralltaf staðið í þeirri trú að með
tímanum og aukinni reynslu geti
maðurinn vart annað en orðið betri í
því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Það á greinilega ekki við um út-
varpsmennsku, a.m.k. einkarekna.
Veruleikinn er nefnilega sá að
stöðvarnar voru margfalt betri fyrir
um það bil áratug eða svo. Skýringin
í huga Víkverja er sáraeinföld. Þá
höfðu útvarpsmenn nefnilega per-
sónuleika, séreinkenni. Fengu sjálfir
að ákveða hvað þeir spiluðu og hvað
ekki. Í dag eru það hinsvegar örfáir
útvaldir „snillingar“ sem telja sig
geta metið upp á hár hvað þjóðin vill
og vill ekki hlusta á, með dyggri að-
stoð einhvers konar sérútbúinna
tölvuforrrita, sem sum hver eru
keypt að utan og miða jafnvel út frá
erlendum stöðlum.
Það er svo gott sem liðin tíð að
maður velji útvarpsþætti út frá tón-
listarsmekk stjórnenda og hæfni
þeirra sem útvarpsmanna. Í dag
skiptir bara engu máli hvaða rödd
malar á milli laga. Þær hljóma hvort
eð er allar eins og fara allar með
sömu innantómu romsuna, daginn út
og daginn inn; hversu svakalegt stuð
sé í gangi, að veðrið sé svona eða
hinsegin, klukkan þetta eða hitt,
hvaða pitsustaður ætli að gefa næsta
skammt af pitsum og hversu ofboðs-
lega frábærir styrktaraðilarnir eru.
Nú eru það ekki lengur hlustend-
ur sem ákveða hvaða lög eru vinsæl-
ust heldur „snillingarnir“ sjálfir, í
góðu samráði við innflytjendur eða
útgefendur tónlistar, sem í flestum
tilfellum eiga sama vinnuveitanda.
Afar heilbrigt markaðsástand það.
x x x
LENGI vel hefur Rás 2 borið höf-uð og herðar yfir aðrar stöðvar
hvað tónlistarflutning varðar. Hún
hefur verið eina tónlistarstöðin sem
sýnt hefur metnað í að viðhalda góðri
útvarpsmenningu í landinu. Stöðin
er óumdeilanlega „fyrst og fremst í
tónlist“ eins og starfsmenn hennar
vilja orða það sjálfir, af einskærri
hógværð. Fjölbreytnin er langmest,
fordómarnir minnstir og vilji hlust-
enda ennþá hafður í heiðri. Rás 2
hefur þar að auki verið griðastaður
íslenskrar dægurtónlistar sem að
miklu leyti hefur verið fryst úti á
öðrum stöðvum, utan þeirrar sem
helgar sig henni einvörðungu (en er
engu að síður alveg merkilega ein-
hæf og metnaðarlítil).
Það hafa þó nokkuð undarlegir
hlutir verið í gangi á Rásinni sem
hafa gert Víkverja svolítið uggandi
yfir því hvert stefni. Spilunarlistinn
ægilegi virðist æ meira brúkaður en
áður og einn mesti persónuleiki ís-
lensks útvarps, Gestur Einar og
hvítu mávarnir hans vinsælu, er flog-
inn á brott. Þetta er neikvæð þróun
og vonandi ekki það sem Víkverja
grunar; vísir að því að stöðin sé að
fikra sig nær hinum síbyljunum.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 sjá eftir, 4 hungruð, 7
trylltur, 8 fífl, 9 hagnað
11 hreyfist, 13 espi, 14
múlinn, 15 hrörlegt hús,
17 skynfæri, 20 elska, 22
borðað, 23 gömul, 24 rót-
arskapur, 25 smáöldur.
LÓÐRÉTT:
1 ferill, 2 lestrarmerki, 3
siga, 4 brytjað kjöt, 5
styrk, 6 skoffín, 10 roms-
an, 12 rándýr, 13 sam-
tenging, 15 kvenfuglar,
16 fnykur, 18 furða, 19
bára, 20 mannsnafn, 21
nöldur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 heilbrigð, 8 fenni, 9 fuður, 10 fet, 11 síðla, 13
asnar, 15 sterk, 18 sakka, 21 ell, 22 magur, 23 atóms, 24
harðjaxla.
Lóðrétt: 2 efnað, 3 leifa, 4 rifta, 5 gæðin, 6 ofns, 7 grær,
12 lár, 14 sóa, 15 sómi, 16 eigra, 17 kerið, 18 slaga, 19
kjóll, 20 assa.