Morgunblaðið - 23.09.2001, Side 1
MORGUNBLAÐIÐ 23. SEPTEMBER 2001
217. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
í strætinu
Milli 40 og 60 manns
búa þessa stundina á göt-
unni í Reykjavík. Þetta
fólk á hvergi heima, það
er allslaust og á í fá hús
að venda. Halldór Hall-
dórsson lifir í þessum
heimi. Ragna Sara
Jónsdóttir blaðamaður
og Ásdís Ásgeirsdóttir
ljósmyndari fylgdust með
honum í sólarhring og
kynntust lifnaðarháttum
götunnar, möguleikunum
og lokuðum dyrum. 12
Sólarhringur
ferðalögÞýski boltinnbílarSportlegur dísilbíllbörnSkriðdýrin í ParísbíóEkta gervigreind?
Sælkerar á sunnudegi
Sess ólífuolíunnar um aldir
Elsta, hollasta
og eitt mest
heillandi
kryddið
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
23. september 2001C
Ódæði í nafni æðri
málstaðar
10
24
Heilög vandlæt-
ing eða hatur
12
BANDARÍKJASTJÓRN herti enn í gær á und-
irbúningi sínum undir aðgerðir í Afganistan er
hún sendi 50 sprengju- og njósnaflugvélar til
liðs við þann herafla, sem kominn er til Austur-
landa. Talibanastjórnin sakaði í gær Banda-
ríkjastjórn um að neyða hana til stríðsátaka en
einangrun hennar fer vaxandi. Rannsókn á fjár-
málaumsvifum hugsanlegra hryðjuverkamanna
verður æ umfangsmeiri.
Talsmaður talibanastjórnarinnar sagði í gær,
að hún gæti ekki orðið við kröfum Bandaríkja-
stjórnar um að framselja Osama bin Laden og
myndi reyna að koma í veg fyrir, að hann yrði
handtekinn. Wakil Ahmed Mutawakel, utanrík-
isráðherra talibana, sagði, að réðust Banda-
ríkjamenn á Afganistan, ættu talibanar ekki
annan kost en lýsa yfir heilögu stríði.
Einangrun talibana jókst í gær er Sameinuðu
arabísku furstadæmin slitu stjórnmálasambandi
við þá og skipuðu fulltrúum þeirra í landinu að
hafa sig á brott innan sólarhrings.
Um 50 sprengju- og njósnaflugvélar voru
sendar í gær frá Bandaríkjunum til Austur-
landa en George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur heitið að beita tiltækum ráðum í barátt-
unni gegn bin Laden og hryðjuverkasamtökum
hans. Tilkynnti Tyrklandsstjórn í gær, að hún
hefði opnað lofthelgi sína fyrir bandarískum
herflugvélum og heimilað þeim afnot af herflug-
völlum.
Rannsókn á fjármálaumsvifum hugsanlegra
hryðjuverkamanna miðar vel og að því er segir
í þýska vikuritinu Der Spiegel, sem kemur út á
morgun, hafa yfirvöld í Luxemborg fundið vís-
bendingar, sem „kunna að leiða beint inn í mitt
fjármálanet bin Ladens og hryðjuverkasamtaka
hans“. Snúast þær um tilraunir fransks lög-
fræðings, sem reyndi árangurslaust fyrir hönd
umbjóðanda síns að yfirfæra tæplega hálfan
milljarð ísl. kr. 12 manns hafa verið handtekin í
Evrópu vegna rannsóknar á hryðjuverkunum
og lýst hefur verið eftir nokkrum mönnum.
Bandaríkin efla herstyrkinn í Austurlöndum vegna væntanlegra aðgerða
Talibanastjórnin segist
vera neydd til stríðsátaka
Washington, Kabúl, Berlín. AFP, AP.
HLJÓÐRITI bandarísku far-
þegaflugvélarinnar, sem
hrapaði til jarðar í Pennsylv-
aníu 11. september, leiðir í
ljós, að til „ofsalegra átaka“
kom um borð. Kom þetta
fram í New York Times í
gær.
Blaðið segir, að heyra
megi, að mikil átök hafi verið
um borð og fólk hrópað á
ensku og arabísku. Þótt ekki
sé unnt að átta sig nákvæm-
lega á atburðarásinni virðist
samt alveg ljóst, að því er
blaðið segir, að átökin hafi
leitt til þess, að flugvélin
hrapaði til jarðar. Margir
telja, að flugræningjarnir hafi
ætlað að fljúga henni á Hvíta
húsið. Bandarísk yfirvöld
höfðu áður komist að þeirri
niðurstöðu, að farþegarnir
hefðu komið í veg fyrir fyr-
irætlan flugræningjanna og
virðist hljóðritinn staðfesta
það.
„Ofsaleg
átök“ í
vélinni
Washington. AFP.
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evr-
ópusambandsríkjanna komu saman
til fundar í Liege í Belgíu í gær til að
ræða ástandið í flugmálum. Eins og
nú horfir kann allt flug að stöðvast
vegna mikilla hækkana á tryggingum
í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum.
Tryggingafélög hafa gefið evr-
ópsku flugfélögunum frest til mánu-
dags til að undirrita nýja samninga
um miklu hærri iðgjöld og verði þeir
ekki undirritaðir blasir við, að stór
hluti flugrekstrarins í álfunni stöðv-
ist. Krefjast tryggingafélögin allt að
15-faldrar hækkunar á iðgjöldum auk
þess sem bótagreiðslur verða tak-
markaðar við fimm milljarða ísl. kr.
Breska stjórnin ákvað í fyrradag að
ábyrgjast hugsanlegar skaðabætur
breskra flugfélaga vegna hryðju-
verka næsta mánuðinn og þýska
stjórnin hefur boðað ákvörðun þess
efnis „mjög bráðlega“. Þá hefur Ástr-
alíustjórn ábyrgst 500 milljarða kr.
framlag í þessu skyni fyrir flugfélög
þar í landi og stjórnvöld í Hong Kong
eiga í viðræðum við flugfélög og
tryggingafélög.
Didier Reynders, fjármálaráð-
herra Belgíu, sagði í gær, að beinn
styrkur til flugfélaganna væri vand-
kvæðum bundinn vegna samkeppnis-
reglna en Karl-Heinz Grasser, fjár-
málaráðherra Austurríkis, sagði, að í
raun væri ekki verið að ræða um fjár-
framlög, heldur ábyrgðir.
ESB ræðir
neyðar-
ástandið í
flugmálum
Liege, Sydney. AFP.
FARÞEGI á Staten Island-ferjunni horfir yfir til Manhattan-eyju í New
York þar sem reykjarmökkurinn frá rústum World Trade Center-
byggingarinnar grúfir enn yfir, tæplega hálfum mánuði eftir árás hryðju-
verkamannanna 11. september. Vinstra megin á myndinni má sjá grilla í
Empire State-bygginguna í gegnum móðuna en hún er nú aftur orðin
hæsta byggingin á Manhattan-eyju.
Morgunblaðið/Einar Falur
Reykjarmökkur yfir Manhattan
„Rústin, sorgin, fáninn“. Morgunblaðið í New York/B1
Hryllingur í Afganistan