Morgunblaðið - 23.09.2001, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1250 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Ef þú hefur það sem þarf
geturðu fengið allt.
f f f
t r f i llt.
kvikmyndir.com
kvikmyndir.is
Þegar þú veist lykilorðið,
geturðu gert allt!
Sýnd kl. 1.50, 3.55, 5.50, 8 og 10.10. B i. 16. Vit 251
Mánudag kl. 5.50, 8 og 10.10.
strik.is
strik.is
Mögnuð stuðmynd
í nánast alla staði!
kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mánudag kl. 6.Ísl. tal. Vit 258.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mánudag kl. 8.Enskt. tal. Vit 265.
Frábær unglingamynd
með Kirsten Dunst
(Bring it on) þar sem
meðal annars máheyra
lögin To Be Free eftir
Emilíönu Torrini og
Everytime með La Loy.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 268 Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mánudag kl. 6. Ísl tal. Vit 245
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 256
Mánudag kl. 10.
Frumsýning
Sýnd kl. 2, 6, 8 og 10. B. i. 12. Vit 270
Mánudag kl. 6, 8 og 10.
Steven Spielberg leikstyrir hér Haley Joel Osment (Sixth Sense,
Pay it Forward) og Jude Law (Enemy at the Gates) í einni stór-
kostlegustu sögu og sjónarspili sem sést hefur á hvíta tjaldinu.
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Rás 2
Mbl
Hættulegasti njósnari heims, Gabriel Shear (John Travolta), er ráðin af banda-
rísku leyniþjónustunni CIA til að fá dæmdan tölvuhakkara til að brjótast inn og
stela milljörðum US$ úr ríkissjóði. Frábær spennumynd framleidd af Joel Sil-
ver (Matrix) með brjálaðri tónlist eftir DJ Paul Oakenfold (Ministry of Sound).
P.s. Ekki missa af Halle Berry í ógleymanlegu hlutverki!
Radíó X
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919
Frábær grínmynd með fjölda stórleikara
Sýnd kl. 2, 4 og 10.30. Mán. kl. 10.30.
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Mánudagur kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mánudag kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 2, 5.15, 8 og 10.15. B. i. 12 ára.
Mánudagur kl. 5.15, 8 og 10.15.
Himnasending i i
Frá leikstjórum
American Pie.
Líf og dauði hef-
ur sínar góðu og
slæmu hliðar.
Með „fyndn-
asta manni“
í Ameríku,
Chris Rock (Let-
hal Weapon 4,
Dogma), Mark Addy
(The Full Monty), Eug-
ene Levy (American Pie),
Regina King (Jerry Maguire,
Enemy of the State) og
Chazz Palmenteri (Analyze
This).
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
TILLSAMMANS
Sýnd kl. 10. B.i.10.
Sýnd kl. 8. B.i. 12.
Skriðdýrin eru mætt aftur til leiks
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal
Mánudag kl. 6.
Frumsýning
Sýnd kl. 6 og 8.
Kvikmyndir.com Hugleikur
DV
strik.is
Stærsta mynd ársins yfir
50.000 áhorfendur
TOWN COUNTRY&
Steven Spielberg leikstyrir hér Haley Joel Osment (Sixth Sense,
Pay it Forward) og Jude Law (Enemy at the Gates) í einni stór-
kostlegustu sögu og sjónarspili sem sést hefur á hvíta tjaldinu.
Í leikstjórn
Steven Spielberg
X-ið
YFIRMÖNNUM
Thule hefur verið
brigslað um að
maka krókinn með
þessari endurhljóð-
blöndunarskífu.
Þessu hvíslaði
beygður og brotinn fugl að mér.
Endurhljóðblandanir séu orðnar
gamaldags og útgáfan í raun og veru
tilgangslaus. Eða hvað? Mitt hlut-
verk hér er nú blessunarlega ekki að
garfa í þessum málum; aftur á móti
er það skylda mín að dæma um
hvernig til hefur tekist hér – þ.e. tón-
listarlega, hinu skipti ég mér því ekki
af.
Alltént: á þessari plötu eru endur-
hljóðblandanir (mikið geta þau nú
verið löng þessi íslensku orð) á lögum
sem múm flutti á breiðskífunni Yest-
erday Was Dramatic, Today Is OK
(1999) sem sló óforvarandis í gegn
hérlendis, og hefur í rituðum orðum
náð að vekja talsverða athygli er-
lendis einnig. Platan er frábær. En
er hægt að gera betur?
Tilgangurinn með blöndunartækni
er að varpa nýju ljósi á áður framleitt
efni. Blöndurnar hér eru misjafnar
eins og gengur og gerist en bæta
sjaldnast nokkru við eða veita manni
nýja sýn á annars ágætar grunnupp-
spretturnar. Þetta eru nú allt fremur
hefðbundnar brellur. Það er líka leið-
inlegt að sjá að þetta er nánast alltaf
sama lagið. Í níu sveiflum kemur
„The ballad of the broken birdie re-
cords“ t.d. fyrir sex sinnum.
Það er hann Bix sem ríður á vaðið
með lítt eftirminnilega, áreynslu-
lausa og hálfgerða „klúbb“-blöndu af
laginu „Smell Memory“. Ruxpin set-
ur svo „TBOTBBR“ í hraðtakta-
tæknóbúning. Hann á tvær blöndur
hér, sú síðari er hægari og mun betur
heppnuð en sú fyrri.
Persónulega finnst mér ILO best-
ur, hér með áhugaverða og draum-
kennda „dúb“-útgáfu af
„TBOTBBR“. Frumgerðin nuddar
sér svei mér þá sælleg upp við
galdrakúnstir ILO. m-Ziq reynir
tvisvar við fremur ládeyðulega sam-
þættingu á „TBOTBBR“ og „There
Is A Number Of Small Things“.
Að lokum er vert að geta vel
heppnaðs traktorstrukks í gegnum
„Smell Memory“, sérstakt, svífandi
og skemmtilega drungalegt.
Og þannig er nú það. Gróðavon eða
ekki, platan ætti a.m.k. að vera for-
vitnileg áhugamönnum um tónlist
múm og jafnvel líka almennum raf-
tónlistarpælurum.
Tónlist
Vélað
um múm,
1. hluti
múm
múm REMIXED
TMT Entertainment
múm remixed, endurhljóðblönd-
unardiskur, unninn upp úr breiðskífu
múm, Yesterday Was Dramatic, Today Is
OK. Þeir sem umvéla eru Bix, Ruxpin,
ILO, Traktor, m -Ziq, Biogen og El hombre
trajedo. Lög eftir múm. 53,54 mínútur.
Arnar Eggert Thoroddsen
ÞESSI hljómdiskur er merkilegur
fyrir margar sakir. Litli risinn frá
Þýskalandi, Morr-Music, sem er um
þessar mundir ein nafntogaðasta
raftónlistarútgáfa heims fór þess á
leit við íslensku sveitina múm að hún
myndi gera eitthvað fyrir merkið,
eftir að yfirmaður-
inn og eigandinn,
Thomas Morr,
hafði heyrt glæsta
plötu hennar, Yest-
erday Was Drama-
tic, But Today Is
OK. Efalaust upphefð fyrir sveitina
en Morr-menn og konur hafa verið
múmkrökkunum mikill innblástur
að undanförnu. Platan hlýtur líka að
sýna hversu vel múm hefur fallið í
kramið hjá áhugafólki um nýskap-
andi tónlist, hvar svo sem það held-
ur sig. Hér er múm nefnilega í góð-
um og andans skyldum hópi,
melódíuvæn og angurvær raftónlist
ræður hér ríkjum.
Sex skraddarar frá Morr prýða
þetta verk og eru þeir búnir að fæða
og klæða sköpunarverk múm eftir
eigin smekk og innsæi. Þess má geta
að ISAN og Phonem eru stærstu
listamennirnir á Morr um þessar
mundir og hafa verið að vekja heil-
næma athygli í geira raftónlistarinn-
ar að undanförnu.
Fyrstu tvö lögin eru glænýjar
múmsmíðar. Hið fyrsta, „On The
Old Mountain Radio“, fylgir nokkuð
fyrirsjáanlegum línum, þú veist að
þetta er múm og ekkert annað en
múm þegar um þrjár sekúndur eru
liðnar af laginu. Undurfalleg og
óróaleg laglínan er til staðar, svo og
óvænt bauk og braml undir niðri.
Lagið er brotið upp með einhvers
konar tölvuleikjakafla, ekki ósvipað
því sem Músíkvatur hefur verið að
pæla.
Það er öllu meiri vigt í síðara lag-
inu. „Please Sing My Spring Re-
verb“ er Ó-múmlegt að mörgu leyti,
með heillandi og pínku hræðandi
undirtón. Mjög álitleg smíð sem vex
með hverri heimsókn.
Um bæði lögin mætti segja að
taktnotkun er nú orðin vissari og
Warp-áhrifin, sem oft einkenndu
hina tíðræddu YWDBTIO, eru
greinilega að brá af sköpunarferl-
inu.
Jæja, kæru hanastélshristarar!
Hvernig er með ykkur? Hvaða snún-
inga, hvað snoppur á nú að setja á
frumáætlun Íslendinganna ungu!
Það kemur ekki á óvart að flestir
hina erlendu blöndunga kjósa að að
leika sér með síðara lagið. Styro-
foam strípar lagið niður og einfaldar
á meðan ISAN dekkja það, gefa því
myrkan, surgandi slagkraft. Í kjöl-
far þessa koma múm-liðar sjálfir
með skemmtilegt millispil, tilbrigði
við lagið „On The Old Mountain Ra-
dio“.
Aðeins einn listamaður, Christian
Kleine, velur hér að leika sér að því
lagi en sá leikur er nú svona heldur
tilþrifalítill.
Phonem setja „Please…“ svo í
furðufatnað, Arovane breiða fremur
litlaust klæði yfir sama lag á meðan
Fleskmaðurinn afklæðir það með
öllu og brákar.
Og umslagið er einhvern veginn
stórglæsilega ljótt. Erfitt að lýsa
því. En flott er það í hryssingslegum
einfaldleika sínum.
Please Smile My Noise Bleed er
áhugavert verk og þeytivindur Þjóð-
verjanna margar athyglisverðar.
Sigurvegarinn hér er þó aftur á móti
múm sjálf og greinilegt að það hefur
verið fallegt á Galtarvita í sumar.
Vélað
um múm,
2. hluti
múm
PLEASE SMILE MY NOISE
BLEED
Morr Music
Please Smile My Noise Bleed, hljóm-
diskur múm og fleiri. Múm á hér tvö ný
lög en svo eru hér umvélanir eftir erlendu
listamennina Styrofoam, ISAN, Phonem,
Christian Kleine, Arovane og B. Fleisch-
mann. 45,51 mínútur.
Arnar Eggert Thoroddsen
Hljómsveitin múm er viðfangið á tveimur endurhljóðblöndunarskífum sem út
komu fyrir stuttu.
BROSTE - HAUST 2001
Heildsölubirgðir: Bergis ehf., sími 587 8877
Veffang: www.bergis.is
Huggulegt
heima....
er heitast
í dag