Morgunblaðið - 01.12.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.12.2001, Qupperneq 1
276. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 1. DESEMBER 2001 NORSKA vísitölufjölskyldan hefur aldrei verið ríkari. Hefur hrein eign hennar tvöfaldast á fimm árum og er þá ekki verið að tala um olíu- auðinn eða aðra sjóði í eigu ríkisins. Hrein eign norskra fjölskyldna, það er að segja þegar búið er að draga skuldir frá, er nú um 21.300 milljarðar íslenskra króna að því er segir í skýrslu frá Norges Bank. Fyrir fimm árum voru eignir um- fram skuldir um 12.000 milljarðar ísl. kr. Kemur þetta fram í frétt í Aftenposten. Norðmenn eru nú 4.513.000 tals- ins og yrði eignunum jafnað niður, kæmu rúmlega 4,7 millj. ísl. kr. í hlut hvers og eins. Í skýrslu Norges Bank kemur fram, að eignastaðan sé ákaflega mismunandi eftir aldursflokkum. Fólk á aldrinum 30 til 40 ára skuldar til jafnaðar 4,9 millj. ísl. kr. umfram eignir og hefur skuldastaðan hjá því versnað um rúmar 600.000 kr. ísl. frá miðjum síðasta áratug. Þegar fólk kemst yfir fimmtugt fer það að komast í plús og um sextugt á það um 3,7 millj. kr. umfram skuldir. Eftir það heldur hagurinn áfram að batna. Norð- menn æ ríkari ROBERT Tools, sem var fyrst- ur allra til að fá grætt í sig gervihjarta, lést í gær á spítala í Kentucky af völdum innri blæð- inga. Hann var 59 ára gamall. Að sögn talsmanns sjúkra- hússins þar sem Tools lést var það ekki hjartað sem brást heldur komu upp vandamál vegna lyfja sem hann tók til að draga úr hættu á myndun blóð- tappa. Sumir sjúklingar eru of langt leiddir til að hægt að sé að græða hjarta úr öðrum manni í þá og hafa því verið smíðuð hjörtu sem ganga fyrir rafhlöðu er ekki þarf að endurnýja. Grætt var hjarta úr títani og plasti í Tools á læknadeild há- skólans í Louisville í Kentucky fyrir nær fimm mánuðum. Fulltrúi háskólans sagði að Tools hefði átt við vanda vegna lyfjanna að stríða löngu áður en gervihjartað var grætt í hann. Grætt hefur verið gervihjarta í fjóra aðra sjúklinga í Banda- ríkjunum síðan í júlí, einn lést í miðri aðgerð en hinir eru á lífi. Hjarta- þeginn Tools látinn Chicago. AFP. FULLTRÚAR Norðurbandalagsins í viðræðunum sem fram fara í Þýska- landi um myndun bráðabirgðastjórn- ar í Afganistan kröfðust þess í gær að fundum yrði frestað í tíu daga til að þeir gætu ráðfært sig við leiðtoga bandalagsins í Kabúl. Talsmenn ann- arra sendinefnda og Sameinuðu þjóð- anna vísuðu kröfunni þegar á bug en ekki var ljóst hvort Norðurbanda- lagsmenn myndu halda kröfunni til streitu. Fulltrúar Norðurbandalags- ins sögðust í gær ekki reiðubúnir að tilnefna menn í væntanlega bráða- birgðastjórn. Burhanuddin Rabbani, sem er einn af leiðtogum Norðurbandalags- manna, ítrekaði í gær þá skoðun bandalagsmanna að Afganar ættu sjálfir að tryggja frið í landinu en ekki erlendir friðargæsluliðar. Rabbani hefur að nafninu til verið forseti landsins síðustu árin og haft bækistöð í Úsbekistan en talibanar nutu ekki viðurkenningar SÞ. Er hann nú í Kabúl. Rabbani sagði að efna ætti til almennra kosninga og velja þar full- trúa er kæmu sér saman um stjórn. Pakistanar og Íranar eiga landa- mæri að Afganistan og hafa löngum deilt þar um áhrif. Hinir fyrrnefndu studdu á sínum tíma talibana en Ír- anar Norðurbandalagið. Talsmenn þjóðanna tveggja sögðust í gær hafa jafnað gamlan ágreining sinn og vera sammála um að ýta undir myndun ríkisstjórnar allra þjóðarbrota. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, varaði í gær við því að mannfall í röðum hermanna sem sendir hafa verið til Afganistans gæti aukist þótt hernaðarmáttur tal- ibana væri að hverfa. Oft væri erfitt að skilja á milli annars vegar þeirra sem sigldu undir fölsku flaggi og hinna sem raunverulega væru and- stæðingar talibana. „Fjöldi manna hefur látið sig hverfa í borgunum og uppi í fjöllunum en þeir eru þar enn og enn þá vopnaðir,“ sagði Rumsfeld. Norðurbandalagið vill fresta viðræðum um sinn Bonn, Kabúl, Washington. AP, AFP.  Bin Laden/31 GEORGE Harrisons var minnst um allan heim í gær en Bítillinn fyrrver- andi lést í Bandaríkjunum á fimmtu- dagskvöld, 58 ára að aldri, eftir langvarandi baráttu við krabba- mein. Meðal þeirra sem vottuðu Harrison virðingu sína voru fyrrver- andi félagar hans í The Beatles, þeir Paul McCartney og Ringo Starr, El- ísabet Englandsdrottning og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Harrison var einn fjögurra liðs- manna Bítlanna, sem óhætt er að segja að hafi verið frægasta popp- hljómsveit sögunnar. Hann var að- algítarleikari hennar en ávann sér einnig virðingu fyrir lagasmíðar. Paul McCartney sagðist í gær vera í öngum sínum yfir fráfalli Harrisons. Hann hefði verið sér eins og bróðir. „Hann var dásamlegur maður, hugrakkur og hafði einstaka kímnigáfu,“ sagði McCartney. Undir þau orð tók Ringo Starr sem sagði Harrison hafa verið sinn besta vin. „Ég unni honum mjög og mun sakna hans,“ sagði Starr. George Martin, sem starfaði náið með Bítlunum sem upptökustjóri þeirra, sagði Harrison hafa verið sannan vin í raun. Lét hann þess get- ið að sennilega væri lagið Some- thing, sem Harrison samdi fyrir Bítl- ana, einn af fallegustu ástar- söngvum sögunnar. Hér sést einn aðdáenda Harrisons í New York sem kveikti á kerti á svonefndum Imagine-hring á Straw- berry Fields-svæðinu í Central Park. Reuters George Harrison syrgður London. AFP.  „Þögli Bítillinn“/33  Eins og/75 ALI Rodriguez, framkvæmdastjóri Samtaka olíuútflutningsríkja (OPEC), varar við því að mikið og „ótrúlegt“ hrun geti orðið á olíu- verði næsta ár ef ríki utan samtak- anna neiti að draga úr framleiðsl- unni í takt við OPEC. Mexíkóar og Norðmenn hafa heitið því að minnka framleiðsluna en að því til- skildu að Rússar geri það einnig. Ríki OPEC vilja að reynt verði að halda verðinu á olíutunnu stöð- ugu við um 25 Bandaríkjadollara en forðast beri sveiflur sem grafi undan efnahagslegum stöðugleika í heiminum. Rodriguez sagði að framleiðendur sem kaupendur ættu að beita sér fyrir því að auka stöðugleikann. „Þegar olíuverð fellur kemur það niður á okkur öll- um,“ sagði hann. Talsmenn Evr- ópusambandsins eru sammála og vilja því að verðið hækki nokkuð frá því sem nú er, meðal annars vegna þess að lágt verð getur dreg- ið úr hvatningu til að finna nýjar lindir. Smám saman myndi slík þróun leiða til þess að verð hækk- aði úr hófi vegna olíuskorts á heimsmarkaði. Rússar segja þjóðarhagsmuni sína ráða Olíuverðið hefur fallið undan- farna mánuði og var tunnan á 18,82 dollara á markaði í London í gær. Rússar hafa boðist til að minnka framleiðslu sína um um 0,7% eða 50.000 tunnur á dag sem sérfræð- ingar segja að muni ekki hafa nein áhrif á verðfallið. Mikhaíl Kasj- anov, forsætisráðherra Rússlands, sagði á þingi í gær að Rússar væru ekki háðir ákvörðunum OPEC. „Stefna okkar í orkumálum tekur mið af þjóðarhagsmunum okkar, hernaðarhagsmunum og stöðu okk- ar gagnvart umheiminum,“ sagði Kasjanov. Rússar eru næststærstu framleiðendur olíu í heiminum. Viðvörun OPEC Verðið á olíu gæti hrunið Vín, Moskvu, SÞ. AFP, AP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.