Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HÚSNÆÐISMÁL, félagsstarf,
bekkjaskipting og sérkennsla var
meðal þeirra atriða sem brunnu hvað
heitast á foreldrum og greinilegt að
margir þeirra voru áhyggjufullir
vegna flutningsins. Laugalækjarskóli
hefur fengið húsnæði Fósturskólans
til afnota til viðbótar við fyrra hús-
næði og verður 7. og 8. bekkur í öðru
húsinu en 9. og 10. bekkur í hinu. Til
stendur að byggja tengibyggingu á
milli húsanna. Átti sú bygging að vera
tilbúin þegar flutningurinn ætti sér
stað en nú er ljóst að það mun frestast
fram til haustsins 2003.
Að loknum erindum Jóns Inga Ein-
arssonar, skólastjóra Laugalækjar-
skóla, og Helga Grímssonar, skóla-
stjóra Laugarnesskóla, var opnað
fyrir fyrirspurnir en fyrir svörum
sátu, auk þeirra Jóns og Helga, Gerð-
ur G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri í
Reykjavík, Sigrún Magnúsdóttir, for-
maður fræðsluráðs, og Ómar Einars-
son, framkvæmdastjóri ÍTR.
Var fyrstu spurningunni beint til
Ómars þar sem hann var inntur eftir
því með hvaða hætti ÍTR hygðist
bæta og auka félagsstarf í hverfinu.
Sagði Ómar að miklar breytingar
væru að verða á félagsstarfi ÍTR sam-
fara nýrri hverfaskiptingu í borginni.
Ekki væri lengur lögð áhersla á hefð-
bundnar félagsmiðstöðvar heldur
starfsemi inni í skólunum. Þannig
yrði miðstöð félagsstarfs ÍTR í hverf-
ishlutanum líklega í Safamýri en síð-
an yrðu starfsmenn í hverjum skóla,
þar með töldum Laugalækjarskóla.
Auk þess yrði sumarstarfið og sum-
arnámskeið flutt nær skólanum.
Innangengt næsta haust
Húsnæðismál Laugalækjarskóla
voru töluvert til umræðu á fundinum
og innti einn fundarmanna eftir því
hversu mikið krakkarnir yrðu að
hlaupa á milli húsa til að sækja mis-
munandi kennslustundir. Svaraði Jón
Ingi því til að þegar á næsta ári yrði
skólanum skipt í eldri og yngri deild
og ættu nemendur ekki að þurfa að
hlaupa á milli húsanna nema í þeim
tilfellum þar sem einungis ein stofa er
til fyrir ákveðnar námsgreinar á borð
við heimilisfræði.
Sigrún Magnúsdóttir bætti því við
að hún vissi ekki betur en að stefnt
væri að því að steypa upp tengibygg-
inguna og ganga þannig frá henni að
innangengt yrði á milli húsanna strax
næsta haust. Sagðist hún myndu
beita sér fyrir því að koma á fundi
með foreldrum og hönnuðum tengi-
byggingarinnar, Studio Granda, eftir
áramót þannig að arkitektarnir gætu
útskýrt hvað af byggingunni gæti
orðið tilbúið haustið 2002.
Annað foreldri spurði hvort skort-
ur á fjármunum stæði því fyrir þrifum
að byggingu tengibyggingarinnar
yrði lokið fyrir næsta haust eins og til
stóð. Sigrún svaraði því til að hönnun
hefði dregist á langinn vegna sam-
keppni sem ráðist var í og því væri
staðan sú að þó að kapp væri lagt á að
ljúka byggingunni myndi það ekki
nást fyrir næsta haust. Hins vegar
hefði fræðsluráði verið gert að skera
niður framkvæmdir við skóla þar sem
útgjaldaaukning vegna samninga
kennara hefði numið um tveimur
milljörðum króna. Ákveðið hefði verið
að setja einsetningu skólanna í for-
gang og henni lyki næsta ár.
Eitt foreldranna spurði hvort um
það hefði verið rætt að fresta flutn-
ingnum um eitt ár þegar útséð var um
að tengibyggingin yrði tilbúin á til-
settum tíma. Hafði viðkomandi
áhyggjur af því að ef flutningurinn
ætti sér stað áður en byggingin yrði
tilbúin yrði ekki lengur sami þrýst-
ingur á yfirvöld að ljúka byggingunni.
Sigrún sagði að það hefði verið rætt
að fresta flutningum en hún teldi að
það myndi skapa meiri óróa fyrir
börnin þar sem að þessu hefði verið
stefnt. Þá benti hún á að sjálft
kennsluhúsnæðið væri til staðar. Það
sem ætti að koma í tengibyggingunni
væri salur, félagsaðstaða, bókasafn
og starfsaðstaða kennara. Gerður
sagði að sér fyndist sjálfsagt að láta
verða af flutningnum og sagðist ekki
hafa trú á að framkvæmdir drægjust
við það að krakkarnir flyttu strax.
Þá var spurt um lóðamál og á það
bent að börnin sem kæmu úr Laug-
arnesskóla væru vön því að geta leikið
sér úti við í frímínútum en ekki væri
aðstaða til þess við Laugalækjar-
skóla. Í svari Sigrúnar kom fram að
hönnunarsamkeppnin tók ekki til
skipulags lóðarinnar en krafa er um
samstarf við lóðarhönnuði.
Loks var spurt að því hvort tryggt
yrði að tengibyggingin yrði tilbúin
haustið 2003. Sagðist Sigrún geta lof-
að því 100 prósent að byggingin yrði
tilbúin. Hins vegar þyrði hún ekki að
fullyrða um að þá yrði búið að ganga
frá lóðinni að öllu leyti.
Foreldri, sem sjálft var í skólunum
tveimur á sínum tíma, óskaði eftir
upplýsingum um hvort íþrótta-
kennsla færi enn fram í Laugardals-
höll en viðkomandi minntist þess að
leiðin á milli hefði verið ákaflega löng
og tímafrek. Í svari Jóns Inga kom
fram að íþróttakennsla fer enn fram í
Laugardalshöllinni en í stað þess að
láta krakkana fara tvisvar í viku í einn
tíma í senn hefur ferðunum verið
fækkað með því að hafa íþrótta-
kennslu einu sinni í viku í tvo tíma í
senn. Ekki er gert ráð fyrir íþrótta-
aðstöðu í því sem teiknað var að þessu
sinni, en horft er til nýrrar íþrótta-
aðstöðu eða líkamsræktarstöðvar
sem til stendur að byggja við hlið
Laugardalslaugar.
Ekki tekist að
ráða sérkennara
Innt var eftir því hvort endurraðað
yrði í bekki þegar krakkarnir flyttust
og hvaða rök væru með því. Þá var
spurt hvernig foreldrastarfi væri
háttað í skólanum. Jón Ingi svaraði
því til að skólinn teldi það heppilegt
að stokka upp í bekkjum þegar börnin
kæmu úr Laugarnesskóla og það
hefði verið gert í fjölda ára. Fengju
krakkarnir að skrifa á miða nöfn
tveggja vina sinna sem þeir vildu vera
með í bekk og væri tryggt að börnin
lentu í bekk með að minnsta kosti öðr-
um þeirra. Hann sagði að skólarnir
tveir hefðu haft samráð um endurröð-
unina og upplýsingum um heppilegar
og óheppilegar samsetningar í bekki
væri komið á framfæri.
Tók Gerður G. Óskarsdóttir undir
að það væri gott að endurraða nem-
endum í bekki þegar þeir skiptu um
skóla, því fylgdi mikill þroski og það
væri jákvæð reynsla fyrir börnin.
Varðandi foreldrafélagsstarfið varp-
aði Helgi þeirri hugmynd fram að
sameina foreldrafélög beggja skól-
anna. Þannig væri hægt að samræma
foreldrastarfið í báðum skólum enda
ættu foreldrar í mörgum tilfellum
börn í báðum skólunum. Var tekið vel
í þessa hugmynd af fundarmönnum.
Sérkennslu bar einnig á góma og
spurði einn fundargesta að því hvað
tæki við fyrir þau börn sem hefðu ver-
ið í stuðningi í Laugarnesskóla. Í
svari Jóns Inga kom fram að ekki hef-
ur tekist að ráða sérkennara og hefur
sérkennslu því verið sinnt af almenn-
um kennurum. Hann sagði að áfram
yrði reynt að fá manneskju til starf-
ans. Þá sagði hann að þegar á ungl-
ingastigið væri komið væru nemend-
urnir oft viðkvæmir fyrir því að vera
teknir út úr tíma í sérkennslu og því
hefði það ekki verið gert en í staðinn
hefðu skapast vandræði við að finna
tíma til að sinna henni. Hann sagðist
þó viðurkenna að skólinn vildi hafa
þessi mál í betra lagi en benti á að
með fjölgun nemenda fengi skólinn
hærra stöðugildi en áður til að sinna
þessum málaflokki.
Flutningur 7. bekkjar yfir í Laugalækjarskóla ræddur á fundi með foreldrum
Tengibygging
frestast um eitt ár
Morgunblaðið/Þorkell
Foreldrar hlustuðu á með athygli enda margt sem leitað var svara við.
Laugarneshverfi
Það var þéttsetinn
bekkurinn í Laugalækj-
arskóla á fimmtudags-
kvöld þar sem foreldrar
fengu svör við spurn-
ingum varðandi flutning
7. bekkjar úr Laugar-
nesskóla yfir í Lauga-
lækjarskóla næsta
haust. Bergþóra Njála
Guðmundsdóttir
fylgdist með umræðum
á fundinum.
SKIPULAGS- og bygging-
arnefnd Reykjavíkur hefur
lýst sig jákvæða gagnvart til-
lögum ASK arkitekta að
þekkingarþorpi á lóð Há-
skóla Íslands. Mælist nefndin
til þess að unnin verði form-
leg tillaga að deiliskipulagi á
grundvelli tillagnanna.
Skipulagssvæðið, sem
fjallað er um í tillögunum, af-
markast af Sturlugötu til
norðurs, lóð Íslenskrar erfða-
greiningar til austurs, Egg-
ertsgötu til suðurs og Odda-
götu/Sæmundargötu til
vesturs. Um er að ræða um 73
þúsund fermetra lands og er
gert ráð fyrir um 50 þúsund
fermetrum bygginga á því.
Samkvæmt upplýsingum
frá skipulagshöfundum bygg-
ist skipulagið á þeirri meg-
inhugmynd að starfseminni
verði komið fyrir í bygg-
ingum sem tengjast yf-
irbyggðri göngugötu milli
Oddagötu og lóðar ÍE. Aðal-
inngangurinn, sem er í miðri
götunni, tengist inngöngum
Náttúrufræðahúss og Nor-
ræna hússins og er hug-
myndin að þessar þrjár bygg-
ingar myndi eins konar torg
á Sæmundargötu.
Um það bil
1.000 bílastæði
Gönguásinn er í beinu
framhaldi af gönguleiðum
um háskólasvæðið. Er ráð-
gert að byggingar sunnan við
hann verði fjögurra hæða en
norðan við gönguásinn verði
þriggja hæða hús. Í tengslum
við höfuðinngang yrði síðan
há, tíu hæða bygging. Segir í
upplýsingunum að mikilvægt
sé að vísindagarðarnir láti
vita af sér á táknrænan hátt,
án þess að yfirspila þær
byggingar sem fyrir eru, og
sé það gert með þessari bygg-
ingu.
Kemur fram í greinargerð
með tillögunum að heimilt
verði að hlutar bygginga
verði hærri, svo sem lyftuhús,
tæknirými og þess háttar.
Einnig megi byggja kjallara
undir húsin, allt að þremur
metrum að dýpt sem ekki
reiknist með heildarflat-
armáli bygginganna.
Gert er ráð fyrir einu bíla-
stæði á hverja 50 fermetra
byggingarflatarmáls eða um
það bil 1.000 stæðum. Bíla-
stæðin eru ráðgerð sunnan
við byggingarnar en í jöðrum
svæðisins til vesturs og suð-
urs er ráðgert að byggja bíla-
geymslur.
Þá gerir tillagan ráð fyrir
að gróðurbelti verði milli
Oddagötu og bílastæðanna
og sömuleiðis gróðurreitir til
að skipta upp bílastæðum.
Samkvæmt upplýsingum
ASK arkitekta hefur fyr-
irkomulagið með gönguásinn
ýmsa kosti og gefur mögu-
leika á fjölbreyttri starfsemi
sem öll hefur aðkomu frá
göngugötunni. Sömuleiðis
gefur það tækifæri til sam-
eiginlegrar nýtingar ýmissa
rýma, svo sem fundar- og fyr-
irlestrarsala, veitingarekst-
urs, þjónusturýma o.s.frv.
Þá er þetta hagkvæmt þeg-
ar byggingarhraði fer eftir
eftirspurn en heppilegast er
talið að byggja garðana upp í
einum áfanga, eða á þremur
til fimm árum, svo að ekki
verði byggingaframkvæmdir
í gangi í lengri tíma.
Skipulagsnefnd jákvæð gagnvart hugmyndum um skipulag vísindagarða á Háskólasvæðinu
Göngugata og ein tíu hæða bygging
Vatnsmýri
Öðruvísi
aðventukransar
Sjón er sögu ríkari
Jól 2001
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090