Morgunblaðið - 01.12.2001, Page 20
LANDIÐ
20 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÚ Í lok nóvember söfnuðust nem-
endur og starfsfólk Grunnskólans í
Ólafsvík saman á lóð skólans. Til-
efnið var að allir nemendur í 8.
bekk slepptu út í loftið sérstökum
blöðrum merktum Comeníusar-
verkefni og fána Evrópusambands-
ins. Er þetta hluti af samstarfs-
verkefni grunnskólans við fjóra
skóla frá öðrum Evrópulöndum,
Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu og
Englandi.
Samstarfið, sem er styrkt af
menntaáætlun Evrópusambandsins,
felur í sér gagnkvæmar heimsóknir
milli nemenda og kennara skólanna
og verkefnavinnu á Netinu.
Við blöðrurnar sem nemendurnir
slepptu var festur miði þar sem
hver nemandi hafði skrifað jákvæð-
ar hugsanir sínar um verkefnið, líf-
ið og tilveruna. Blöðrum var einnig
sleppt hjá öðrum skólum víðs vegar
um Evrópu. Veður var afar hentugt
til þess arna í Ólafsvík þennan um-
rædda dag og fuku blöðrurnar
beint á haf út.
Morgunblaðið/Elín Una Jónsdóttir
Nemendur í 8. bekk undirbúa blöðrusleppingu.
Blöðrum sleppt á haf út
Ólafsvík
FÉLAGSKONUR í kvenfélaginu
Brautinni í Bolungarvík héldu upp á
það nýlega að níutíu ár voru liðin frá
stofnun félagsins.
Afmælisins var minnst með nokk-
uð látlausum en táknrænum hætti.
Brautarkonur fylktu liði og fóru í
hressingargöngu um götur bæjarins
að morgni afmælisdagsins og lauk
henni við veitingastaðinn Finnabæ
þar sem þær borðuðu saman léttan
hádegisverð.
Í tilefni af þessum tímamótum
færðu félagskonur Hólskirkju að
gjöf eitt hundrað áritaðar sálmabæk-
ur, en kvenfélagið Brautin hefur ein-
mitt á sinni níutíu ára starfsævi
styrkt fjölmörg málefni og stofnanir
í Bolungarvík.
Kvenfélagið Brautin var stofnað
24. nóvember 1911 og var Sigríður
Kristjánsdóttir kjörin formaður,
aðrar í stjórn voru Elín Guðmunds-
dóttir ritari og Þórdís Þorleifsdóttir
gjaldkeri.
Í fyrstu lögum félagsins má lesa
eftirfarandi m.a.:
„Tilgangur félagsins er að efla
andlegan og líkamlegan þroska og
fullkomnun kvenna og gera kven-
fólkið í plássinu sem sjálfstæðast og
færast til að inna af hendi skyldu-
störf sín í hvaða stöðu sem það er.
Að hjálpa eftir megni sængurkon-
um og öðrum hjálparþurfandi sjúk-
lingum og á annan hátt bágstöddu
fólki í plássinu sem félagið sér sér á
nokkurn hátt fært að líkna með fjár-
framlögum úr félagssjóði, samskot-
um, vinnu og fleiru sem félagskonur
gætu látið í té.“
Það voru 38 konur sem árið 1911
stofnuðu Kvenfélagið Brautina og
má ætla að því næst hver einasta
húsmóðir í plássinu hafi verið stofn-
félagi þess.
Nú eru félagskonur 37 og glíma
þær við að halda félaginu gangandi
en við lá að félagið legðist af fyrir um
fjórum árum þar sem illa gekk að fá
einhverja til að gegna formennsku
og var þá brugðið á það ráð, til að
koma í veg fyrir að félagið sofnaði, að
kjósa fimm konur í stjórn og skipta
þær með sér verkum.
Þessi nýja tilhögun á kjöri til
stjórnar hefur gefist vel og tekist
hefur að halda uppi starfsemi í félag-
inu þótt oft hafi verið meiri kraftur í
þessu merka félagi bolvískra kvenna.
Kvenfélagið
Brautin níutíu ára
Bolungarvík
Meðal verkefna að efla þroska og
fullkomnun kvenna
Brautarkonur komu saman og snæddu hádegisverð í tilefni dagsins.
Ljósmynd/Gunnar Hallsson
EFNT var til slagorðasamkeppni
meðal nemenda í 7. til 10. bekk í
Dalvíkurskóla og voru verðlaun
veitt við afhöfn í skólanum nýverið.
Þorgrímur Þráinsson flutti fyr-
irlestur á athöfninni og veitti verð-
launin.
Fyrstu verðlaun hlaut Stefán Þór
Ólafsson í 7. bekk Árskógarskóla
fyrir slagorðið „Vösk án vímu“.
Tvenn aukaverðlaun voru veitt
og þau hlutu Íris Hauksdóttir, 9.
bekk Dalvíkurskóla, fyrir „Hafðu
skímu, enga vímu“ og Guðmundur
Ingi Halldórsson, 8. bekk Húsa-
bakkaskóla, fyrir „Áhugasamir og
elskulegir foreldrar eru besta
vörnin gegn vímuefnum“.
Slagorðasamkeppnin er hluti af
fjáröflunarleið 10. bekkjar Dalvík-
urskóla og um leið tengd for-
vörnum. Verðlaunaslagorðið verð-
ur prentað á peysur sem 10. bekkur
selur síðan til ágóða fyrir ferða-
sjóð. Félagsmálaráð Dalvík-
urbyggðar styrkti framtakið með
60 þúsund króna framlagi, auk þess
sem Samherji, Sæplast og Olís
veittu styrki. Þeir sem gáfu verð-
laun voru; Tomman, Ásvideo,
Sundlaug Dalvíkur, Félagsmið-
stöðin og Blómabúðin Ilex. Hér
fylgja nokkur slagorð til viðbótar:
„Dóp = dauði“. „Ef Jónas Hall-
grímsson hefði ekki verið drukk-
inn, þá hefði hann ekki dáið“. „Ekki
dóp í góðum hóp“. „Ég get sagt
nei“. „Í sókn gegn sýru“. „Njótum
lífsins allsgáð“. „Vertu frjáls án
vímuefna“. „Vertu fullur af visku,
ekki vímu“. „Vímulaus, vel valið“.
„Það er töff að segja nei“.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Sigurvegarar í slagorðasamkeppni, Stefán Þór Ólafsson, Guðmund-
ur Ingi Halldórsson og Íris Hauksdóttir, en að baki þeim standa
Halldór Guðmundsson félagsmálastjóri, Bjarni Gunnarsson, íþrótta-
og tómstundafulltrúi, og Þorgrímur Þráinsson, Tóbaksvarnarnefnd.
Vösk
án vímu
Dalvík
Slagorðasamkeppni ungmenna í Dalvíkurbyggð
HALDIÐ var fjáröflunarkaffi til
kaupa á nýju orgeli fyrir Skeggja-
staðakirkju í Grunnskólanum á
Bakkafirði nýlega.
Meðan gestir gæddu sér á kaffi
og tertum sungu krakkarnir í
kirkjuskólanum nokkur lög og
krakkarnir í TTT-starfi kirkjunnar,
10 til 12 ára, fluttu leikþátt um mis-
kunnsama samverjann í nútíðinni.
Einnig söng kirkjukór Skeggja-
staðakirkju nokkur létt lög.
Góð mæting var og söfnuðust
64.000 krónur. Að sögn Freydísar
Magnúsdóttur formanns sóknar-
nefndar kostar orgelið um 800.000
krónur hingað komið. Hún sagði að
kirkjunni hefðu borist nokkur
gjafabréf að upphæð 290.000 krón-
ur.
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
Krakkar í TTT-starfi kirkjunnar voru með leikþátt.
Safnað fyrir nýju orgeli
Bakkafjörður