Morgunblaðið - 01.12.2001, Qupperneq 30
ERLENT
30 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÓTT einungis tuttugu ár séu liðin
frá því að sjúkdómurinn alnæmi var
fyrst greindur eru öll rök fyrir því að
hann sé kallaður „skelfilegasti sjúk-
dómur mannkynssögunnar“. Það er
a.m.k. mat Peters Piots, yfirmanns
alnæmisstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, UNAIDS.
Piot benti á það á miðvikudag,
þegar UNAIDS og Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin, WHO, kynntu nýja
skýrslu um útbreiðslu alnæmis, að
sjúkdómurinn færi enn sem eldur í
sinu um mörg fjölmennustu ríki
heims og að þar að auki væru fyr-
irbyggjandi aðgerðir einfaldlega
ekki að skila árangri í ýmsum lönd-
um Vesturheims.
Piot tók sem dæmi að í Úkraínu
væri nú um 1% landsmanna smitað
af HIV-veirunni og er það í fyrsta
sinn sem útbreiðsla sjúkdómsins
kemst á slíkt stig í einhverju Evr-
ópuríkjanna. Sagði hann jafnframt
ljóst að meira en ein milljón Kínverja
væri HIV-smituð og það vekti sér-
stakar áhyggjur hversu hratt sjúk-
dómurinn breiddist út í þremur fjöl-
mennustu ríkjum heims, Kína,
Indlandi og Indónesíu.
Mest er útbreiðslan meðal yngra
fólks en meira en helmingur smit-
aðra er yngri en tvítugur. Meira en
tuttugu milljónir manna hafa dáið úr
alnæmi á þeim 20 árum, sem liðin
eru frá því að sjúkdómurinn var
fyrst greindur, og um fjörutíu millj-
ónir manna eru smitaðar af HIV-
veirunni sem veldur AIDS. Sagði
Piot að staðan ætti því miður eftir að
versna til muna áður en hún tæki að
batna.
Áætlað er, að í Kambódíu séu
170.000 manna smitaðar og þar er nú
talað um, að þjóðin sé að missa enn
eina kynslóðina en ekki vegna stríðs-
átaka, heldur vegna alnæmisins.
Í Kína eru um 1,5 milljónir manna
smitaðar en á Indlandi allt að fjórar
milljónir eða um 10% af öllum smit-
uðum í heiminum.
Í Nígeríu var fyrsti smitaði mað-
urinn ekki greindur fyrr en 1996 en
nú eru smitaðir þar í landi að
minnsta kosti hálf fjórða milljón. Er
hlutfallið 5,8% af öllum fullorðnum.
„Skelfilegasti sjúkdóm-
ur mannkynssögunnar“
Moskvu. AFP.
!"#$%
&'()*+,&#-
. !'/ "!
*0% #! !1 (
.,/$
#2'134
% 5&#%
4
! "!#$% $ &
'$()!#
*
+*
+
*
,!-&"
.
*
*
+
*
/) #()!#
*
.
*
*+
*
.%
)001
%
)001
+
%
)001
($$02
'3 ("!#
.
*
*
++
*
40$ "120 5 678(5# 3
40$ "120 67897 ($"00
#5(
3:
40$ "120 0" 67897 (5#
,;&"
'3 (!
.*
*
*
*
$$( '3
(!
+
*
*
*
*
0! '3
51(10
*
8$( <
*
.
*
*
$$( <
'3 (!
.*
*
*
*
*06
.
#
'!$7889
'4 ($ ,
!"#$%
&%
5# 3 $ & 3 "0
! &) $)
60$"00 678(5#
"!# #
%. )001*
67897 ($"200
.%+ )001*
51 678(5# 3
%
)001*
+%=
0!" ) 6789 ! 0'#
120 - ) )
&" )$ -4
"'0 3 7
% )001*
*06
.&#
! 4
60$ ;
+
+
KÚBUSTJÓRN hefur keypt mat-
væli í Bandaríkjunum, þar á meðal
hveiti, maís og hrísgrjón, í fyrsta
sinn í fjóra áratugi. Var frá því
skýrt í tilkynningu frá bandaríska
landbúnaðarráðuneytinu.
Þrjú bandarísk fyrirtæki hafa
selt Kúbustjórn 50.000 tonn af
hveiti, 43.000 tonn af maís, 12.500
tonn af hrísgrjónum og 12.000 tonn
af sojabaunum auka annarra af-
urða. Gengið var frá sölunni eftir
miðjan síðasta mánuð.
Kúbverska innflutningsstofnun-
in, sem sá um kaupin, Alimport,
pantaði einnig frosna kjúklinga og
önnur matvæli, sem afhent verða
síðar. Talið er, að samningurinn
hafi verið upp á 3,3 milljarða ís-
lenskra króna.
Fidel Castro, forseti Kúbu, til-
kynnti öllum að óvörum 8. nóvem-
ber sl., að hann ætlaði „í þetta eina
sinn“ að kaupa matvæli og lyf í
Bandaríkjunum vegna þess tjóns,
sem fellibylurinn Michelle hefði
valdið kúbverskum landbúnaði. Áð-
ur hafði hann hafnað aðstoð frá
Bandaríkjunum vegna hamfaranna
vegna þess, að hún var bundin því
skilyrði, að hún færi ekki um hend-
ur stjórnvalda.
Bandaríkjaþing samþykkti með
miklum mun í fyrra að heimila
matvælasölu til Kúbu en þing-
mönnum, sem voru andvígir því,
tókst að koma í veg fyrir þá fjár-
mögnun, sem til þurfti.
Kúbverjar eru um 11 milljónir og
flytja inn matvæli árlega fyrir um
110 milljarða ísl. kr. Hafa banda-
rískir útflytjendur, einkum land-
búnaðarafurða, lengi barist fyrir
því, að refsiaðgerðunum gegn
Kúbu verði aflétt.
Washington. AFP.
Fyrstu viðskiptin
milli ríkjanna
í fjörutíu ár
Castro kaupir mat
frá Bandaríkjunum
oroblu@sokkar.is
skrefi framar
20% afsláttur
af öllum sokkum og sokkabuxum.
Ef keypt er tvennt frá fylgir kaupauki.
Kynnum í Lyfju Laugavegi í dag, laugardag, kl. 12-16.
Jólakaffi Hringsins
verður haldið á Brodway (Hótel Íslandi ) á morgun,
sunnudag 2. desember, kl. 13.30
Dagskráin verður sem hér segir:
Nemendur úr dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna sígilda
samkvæmisdansa. Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg syngja fyrir
unga sem aldna. Feðgarnir Jónas Þórir Dagbjartsson og
Jónas Þórir Jónasson leika ljúfa tónlist á fiðlu og píanó.
Glæsilegt happdrætti - girnilegt kaffihlaðborð.
Velkomin
í Hólagarð
Golfkúlur 3 stk.
í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Bertie Ahern, forsætisráð-
herra Írlands, komust ekki að neinni
niðurstöðu á fundi sínum í Dyflinni í
gær um framtíð kjarnorkuendur-
vinnslustöðvarinnar í Sellafield. Írska
ríkisstjórnin krefst þess að henni
verði lokað og hefur auk þess höfðað
mál fyrir Hafréttardómstól Samein-
uðu þjóðanna. Krefst hún þess þar að
bannað verði að taka í notkun nýja
endurvinnslubyggingu við verksmiðj-
una, eins og stefnt er að.
Deilt um
Sellafield
Dyflinni. AFP.
♦ ♦ ♦