Morgunblaðið - 01.12.2001, Qupperneq 33
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 33
undirfataverslun,
Opið
mán.-laugard.
frá kl. 12-18
Lagerútsala - Síðumúla 3-5
Undirföt - náttföt - sloppar - heimagallar
Merkjavara á frábæru verði
MEÐ andláti George Harrisons erutveir af fjórum liðsmönnum Bítl-anna, sem óhætt er að kallaáhrifamestu popphljómsveit
sögunnar, fallnir frá en sem kunnugt er var
John Lennon skotinn til bana í New York árið
1980. Harrison, sem var 58 ára að aldri, lést á
heimili vinar síns í Los Angeles í Bandaríkj-
unum um hálftíu á fimmtudagskvöld að okkar
tíma. Bæði eiginkona Harrisons, Olivia, og
Dhani sonur þeirra voru við dánarbeð hans.
Harrison var yngstur Bítlanna, fæddur 25.
febrúar 1943. Hann var því ekki nema rúm-
lega nítján ára gamall þegar Bítlarnir slógu í
gegn haustið 1962 og lengi vel fór lítið fyrir
hinum rólynda aðalgítarleikara hljómsveit-
arinnar. Hlaut hann enda snemma við-
urnefnið „þögli bítillinn“. Mikilvægi hans var
þó óumdeilt, enda var hann færari hljóðfæra-
leikari en Paul McCartney og Lennon og
raunar er Harrison sagður hafa kennt þeim
síðarnefnda að spila á gítar.
Og sól Harrisons reis mjög er á leið og hann
gerðist meira en vel liðtækur lagasmiður. Lög
Harrisons komu fyrst fyrir sjónir almennings
á annarri breiðskífu Bítlanna og á plötunni
Help, sem kom út 1965, átti hann síðan tvö
lög, I Need You og You Like Me Too Much. Á
næstu plötu, Revolver, átti Harrison lagið
Taxman sem ávann sér nokkrar vinsældir og
á Hvíta albúminu gat að heyra lagasmíðina
While My Guitar Gently Weeps, fyrstu klass-
ísku lagasmíð gítarleikarans, sem jafnframt
söng lagið sjálfur. Here Comes the Sun og
Something voru á næstsíðustu plötu Bítlanna,
Abbey Road, og halda á lofti framlagi Harr-
isons til glæstrar sögu hljómsveitarinnar.
En áhrif Harrisons fólust ekki aðeins í laga-
smíðum hans. Þannig var það t.d. Harrison
sem beitti sér mest fyrir því að Bítlarnir
kynntu sér austurlenska heimspeki en áhrifa
hennar gætti mjög í tónlist þeirra er á leið sjö-
unda áratuginn, m.a. með því að Bítlarnir
tóku að leggja meiri vinnu og dýpri hugsun í
verk sín.
Sólóferillinn fór vel af stað
Upp úr samstarfi Bítlanna slitnaði árið
1970 eins og frægt er orðið. Allir hófu þeir
sólóferil og má vel halda því fram að Harrison
hafi farið best af stað því platan All Things
Must Pass, sem kom út 1971, er talin alveg
hreint afbragð. Hafði hún m.a. að geyma lagið
My Sweet Lord sem gerði það gott en þótti
reyndar líkjast gömlu lagi hljómsveitarinnar
The Chiffons heldur mikið.
Þetta sama ár stóð Harrison fyrir tón-
leikum í New York sem ætlað var að safna fé
til hjálpar hungruðum í Bangladesh og Pak-
istan. Fékk Harrison þar m.a. til liðs við sig
menn eins og Ringo Starr, trommuleikara
Bítlanna, sítarspilarann Ravi Shankar, Eric
Clapton og Bob Dylan. Má segja að Harrison
hafi þar gefið tóninn fyrir söfnunarverkefni
eins og Live Aid-tónleikana, sem Bob Geldof
stóð fyrir 1985 – einnig vegna þess að þó að
milljónir dollara kæmu í kassann leikur vafi á
að þær hafi allar skilað sér á réttan stað.
Harrison hélt áfram að senda frá sér sóló-
plötur en með misjöfnum árangri. Lagið All
Those Years Ago, sem samið var til heiðurs
Lennon, gerði það þó gott 1982 og fimm árum
síðar sendi Harrison frá sér plötuna Cloud
Nine sem seldist vel. Á henni var einnig að
finna lag, When We Was Fab, er fjallaði um
tíma Harrisons í frægustu popphljómsveit
sögunnar. Kannski vísaði allt þetta veginn til
þeirrar ákvörðunar Harrisons, McCartneys
og Starrs árið 1996 að koma saman á nýjan
leik og taka upp efni undir nafni Bítlanna auk
þess sem gefnar voru út þrjár safnplötur,
Anthology I–III, sem höfðu að geyma fágætt
hnossgæti frá frægðarárum
sveitarinnar.
Þremenningarnir nýttu sér
síðan gamlar upptökur af söng
Lennons á tveimur áður óút-
gefnum lögum, Free As A Bird
og Real Love. Sýndu viðtök-
urnar að áhrif hljómsveit-
arinnar munu vara enn um
stund. Hið sama má segja um
safnplötu vinsælustu laga Bítl-
anna, One, sem kom út í fyrra
og seldist í bílförmum.
Hafði Harrison þó í millitíð-
inni átt velgengni að fagna
ásamt þeim Bob Dylan, Roy
Orbison og Jeff Lynne en fjór-
menningarnir komu saman ár-
ið 1988 undir hljómsveitarheit-
inu The Traveling Wilburys.
Harrison setti á stofn eigið útgáfufyrirtæki,
Dark Horse, í tengslum við útgáfu plötunnar
All Things Must Pass og á áttunda áratugnum
gaf fyrirtækið út plötur ýmissa tónlistar-
manna, auk verka Harrisons sjálfs. Undir lok
áttunda áratugarins snéri Harrison sér síðan
að kvikmyndagerð þegar fyrirtæki hans
framleiddi Life of Brian, ógleymanlega grín-
mynd vina Harrisons í Monty Python-
genginu breska. Stóð Harrison að gerð
þekktra mynda eins og Time Bandits og
Mona Lisa á níunda áratugnum en almennt
gekk þessi rekstur heldur brösuglega.
Greindist með krabbamein 1998
Harrison var tvígiftur. Hann kvæntist fyr-
irsætunni Patti Boyd árið 1966 en þau skildu
1973. Hún giftist síðar vini Harrisons, gít-
arleikaranum Eric Clapton, sem samið hafði
lagið Layla til hennar. Var Harrison við brúð-
kaupið. Sjálfur gekk hann að eiga Oliviu Arias
árið 1979 og áttu þau einn son, Dhani. Harri-
son lagði áherslu á einkalíf sitt og lét reyndar
hafa eftir sér að honum hefði alltaf mislíkað
hversu Bítlaæðið svokallaða hefði skaðað það
sem raunverulega skipti máli, þ.e. að búa til
góða tónlist. Hann barst því ekki á, þó að hann
væri óhjákvæmilega nokkuð í sviðsljósinu, og
þótti einkar viðfelldinn í viðkynningu.
Harrison greindist með krabbamein í hálsi
árið 1998 en geislameðferð bar góðan árang-
ur. Ári síðar var hann hins vegar hætt kominn
af orsökum alls ótengdum krabbameini, en þá
lagði innbrotsþjófur á heimili hans til hans
með hnífi. Mátti Harrison þakka fyrir að
sleppa lifandi en gat kom á lunga við hnífs-
stunguna.
Í mars á þessu ári fundu læknar síðan
krabbamein í lungum og var það fjarlægt með
skurðaðgerð. Aðgerðin var sögð hafa tekist
vel en í júlí heyrðist orðrómur um að Harrison
væri alls ekki heill heilsu. Lét fjölskyldan fara
frá sér yfirlýsingu þar sem Harrison sagðist
„hafa það mjög gott“. Var hann staddur í
Sviss og undirgekkst þar frekari geisla-
meðferð við krabbameini en meinið hafði þá
borist í heila Harrisons.
Táraðist við heimsókn
McCartneys og Starrs í fyrri viku
Fyrr í þessum mánuði var Harrison skráð-
ur inn á Staten Island-háskólasjúkrahúsið í
Bandaríkjunum og gekkst hann þar undir til-
raunameðferð en allt kom fyrir ekki og í kjöl-
farið lagðist hann inn á UCLA-háskólasjúkra-
húsið í Los Angeles. Ráðlögðu læknar honum
þar að gera úrslitatilraun í baráttunni gegn
vágestinum mikla og gangast undir lyfja-
meðferð gegn krabbameininu, en ekki var tal-
ið vænlegt að Harrison legðist enn undir hníf-
inn. Hún bar ekki árangur.
Fréttir herma að McCartney og Starr hafi
heimsótt Harrison í síðustu viku og var gít-
arleikarinn þá ekki nema svipur hjá sjón. Mun
hann hafa tárast við þennan hinsta fund félag-
anna þriggja, sem ásamt Lennon settu svo
sterkan svip á menningarsögu tuttugustu ald-
arinnar.
Jafnframt hefur verið greint frá því að
Harrison hafi tekið upp lag í sumar og fjallar
það um sjúkrasögu hans að einhverju leyti.
Lagið ku heita Horse to the Water og verður
á plötu sem hljómlistarmaðurinn Jools Hol-
land gefur út á næstunni.
„Vinur minn þjáist svo mjög. Sumt fólk sigl-
ir í gegnum lífið en nú er svo komið að hann
steytir á skeri,“ segir í texta lagsins. Það mun
halda minningu Harrisons á lofti á næstu
mánuðum en hitt er raunar ljóst að hans þátt-
ur í frægðarsögu Bítlanna hefur tryggt að
hans verður minnst um ókomin ár.
„Þögli bítillinn“ fallinn frá
AP
George Harrison á tónleikum í London árið 1995. Hann þótti afar fær gítarleikari.
Bítlarnir fjórir fyrir framan Buckingham-höll í London
eftir að Elísabet Englandsdrottning heiðraði þá með
MBE-orðu breska heimsveldisins í október 1965.
London. AFP, AP.