Morgunblaðið - 01.12.2001, Síða 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 47
leyft í tíma og ótíma. Þar mátti finna
gersemar engu líkar sem sýndu
tæplega aldar líf á Eyjólfsstöðum í
hnotskurn.
Það var ekki nóg með að húsið
væri uppspretta endalausra ævin-
týra. Gönguferðir með ömmu í
Skinnhúfuhelli þar sem tröllkonan
stóð steinrunnin við hellismunann
komu ímyndunaraflinu af stað og
frásagnir af Skinnpylsu fengu
barnshjartað til að slá hraðar. Í
garðinum, sem var stolt ömmu með
háum trjám og miklum blómskrúði,
var einnig hægt að hverfa inn í æv-
intýraheim þar sem ljón og tígrisdýr
voru á hverju strái. Árvissar berja-
ferðir með ömmu í brekkurnar ofan
við Eyjólfsstaði eru einnig minni-
stæðar. Þær eru tengdar þeim
spennandi tíma þegar afi lagði upp
með blokksúkkulaði í hnakktösk-
unni í heiðargöngur.
Amma átti góða ævi. Samband
þeirra afa var ástríkt og Hanna var
henni stoð og stytta. Eftir að amma,
afi og Hanna fluttu á Mýrarbrautina
naut amma þess að geta tekið virkan
þátt í félagslífi og ferðast, ekki ein-
göngu um Ísland þvert og endilangt
heldur einnig um lönd og álfur. Há-
punkturinn var e.t.v. Kínaferðin
sumarið 1999, en í henni fögnuðu
amma og afi gullbrúðkaupsafmæl-
inu. Líklega hafði hvorugu þeirra
dottið í hug fimmtíu árum fyrr að
þau ættu eftir að standa á Kína-
múrnum og fagna fimmtíu ham-
ingjuríkum árum.
Amma hafði unun af söng og tón-
list og hún tók þátt í kór- og kirkju-
starfi af lífi og sál. Trúin var henni
ákaflega mikilvæg og eflaust hefur
hún veitt henni huggun og styrk er
leið að lokum. Þegar við systkinin
lítum til baka sjáum við hversu mikil
forréttindi það eru að hafa alist upp
við ástríki á borð við það sem amma
veitti okkur. Amma kenndi okkur að
trúa á hið góða í hverjum manni og
umgangast meðbræður okkar og allt
sköpunarverkið af virðingu. Við
biðjum algóðan guð að vaka yfir
ömmu um ókomna tíð og sendum
elsku afa og Hönnu frænku innileg-
ar samúðarkveðjur.
Magnús, Ingvar,
Björn Huldar
og Ingibjörg Hanna.
Það er bjart yfir minningunum
sem við systurnar eigum frá Eyj-
ólfsstöðum og fólkinu þar. Fyrst
voru það Jenný „amma“ og Bjarni
sem réðu þar búi og síðar tóku dótt-
ir þeirra Lillý og maður hennar Doji
við búskapnum.
Eyjólfsstaðir voru jafnframt
æskuheimili móður okkar Kristínar,
einnig kölluð Lillý, en í kringum
1940 seldi Þorsteinn afi okkar
Bjarna jörðina. Áður höfðu Bjarni
og Jenný búið í Hvammi sem er
næsti bær. Strax á unga aldri urðu
Lillý og móðir okkar nánar vinkonur
enda á svipuðum aldri. Var það ævi-
löng vinátta sem aldrei bar skugga
á.
Við systurnar eigum margar góð-
ar og dýrmætar minningar frá dvöl
okkar á Eyjólfsstöðum. Þegar for-
eldrar okkar voru að koma undir sig
fótunum í Reykjavík hjálpaði móðir
okkar til við heyskapinn og hafði
okkur eldri systurnar ungar með
sér. Sú yngsta var síðan í „kaupa-
vinnu“ nokkur sumur.
Heimsóknirnar voru árvissar og
alltaf var einhver ævintýraljómi yfir
þeim. Fyrstu árin þurfti að róa yfir
Vatnsdalsá og fylgdi því mikill
spenningur. Þegar komið var heim í
bæ voru allir umfaðmaðir og boðnir
velkomnir af einstakri hlýju. Ekki
leið svo á löngu áður en þær syst-
urnar Lillý og Hanna voru búnar að
töfra fram veisluborð. Aldrei skild-
um við hvernig þetta var hægt, en
frystikistan í búrinu var sú stærsta
sem við höfðum augum litið.
En Lillý var ekki einungis snill-
ingur í matargerð, hún hafði líka
mikinn áhuga á blómarækt. Norð-
urstofan á Eyjólfsstöðum var stofan
þeirra Lillýjar og Doja og er hún í
minningunni eins konar helgidómur,
sem maður gekk inn í með lotningu.
Stofan lýsti Lillý og áhugamálum
hennar á margan hátt. Þarna voru
myndir af fjölskyldunni og vinum,
framandi blómstrandi stofublóm,
handavinna og aðrir fallegir munir.
Lillý var sannkallaður fagurkeri og
bar heimilið þess merki.
Kringum Lillý var alltaf léttleiki
og jákvæðni og þessi mikla hlýja,
sem jafnframt einkenndi hjónaband
hennar og Doja. Þeir sem eru þess
umkomnir að gefa mikið af sjálfum
sér búa yfir innri friði og jafnvægi.
Lillý var slík manneskja.
Elsku Doji og Hanna. Við sendum
ykkur og fjölskyldunni okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Margrét Þóra, Sigrún
og Guðmunda Hrönn
Guðlaugsdætur.
Í dag kveðjum við Ingibjörgu
Bjarnadóttur eða Lillý eins og hún
var jafnan kölluð. Lillý var einstak-
lega hjartahlý og glaðlynd kona.
Hún var listræn og mikill fagurkeri.
Foreldrar hennar Jenný og Bjarni
tóku við búi af föðurafa okkar og
ömmu að Eyjólfsstöðum í Vatnsdal.
Mikill vinskapur tókst á milli þess-
ara fjölskyldna. Eflaust hafa sterkar
taugar föðurfólks okkar til Eyjólfs-
staða og einstök gestrisni þeirra
Bjarna og Jennýjar ráðið þar mestu
um. Þegar Bjarni og Jenný hættu
búskap þá tók Lillý og maður henn-
ar Ingvar Steingrímsson eða Doji
við búskapnum ásamt Hönnu systur
Lillýjar. Bjarni og Jenný bjuggu þó
áfram á Eyjólfsstöðum til æviloka.
Fyrir nokkrum árum hættu Lillý og
Doji búskap og fluttu til Blönduóss
ásamt Hönnu.
Alltaf var einstaklega vel tekið á
móti okkur þegar við fórum norður.
Tvær okkar systra urðu þeirrar
gæfu aðnjótandi að fá að vera í sveit
nokkur sumur á Eyjólfsstöðum. Við
eigum margar góðar minningar um
Lillý og veru okkar í Vatnsdalnum.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Við vottum Doja, Hönnu, Heiðu,
Steingrími, Jennýju, Bjarna, Nonna,
tengdafólki, barnabörnum og öðrum
vinum, okkar dýpstu samúð.
Megi Guð vera með ykkur.
Marta, Sigrún og Steinunn
Ósk Konráðsdætur
og fjölskyldur.
Það varð hlutskipti þeirra Eyj-
ólfsstaðahjóna, Ingvars Steingríms-
sonar og Ingibjargar Bjarnadóttur,
að hverfa frá jörð sinni og búi er ald-
ur og vinnulúi fór að gera vart við
sig. Leið þeirra lá til Blönduóss, sem
fleiri sveitunga þeirra, en aðrir tóku
þann kost að fara alla leið í drauma-
staðinn Reykjavík eða einhvern ann-
an stað sem hagkvæmt þótti. Fram-
ansögð fá orð bregða upp mynd af
því sem gerst hefir í vaxandi mæli í
þjóðlífi okkar Íslendinga á síðustu
árum og komið hart við mörg sveit-
arfélög og heila landshluta svo að til
tvísýnu horfir, meira að segja í góð-
sveitum.
Þau Ingvar og Ingibjörg fundu
hvort annað strax á unga aldri. Þá
bjuggu foreldrar beggja, um
skamman tíma, á höfuðbólinu
Hvammi í Vatnsdal, en foreldrar
Ingibjargar fluttu sig um set að
næsta bæ, góðbýlinu Eyjólfsstöðum
árið 1938, er Þorsteinn Konráðsson,
er þar hafði búið frá árinu 1903,
flutti ásamt stórri fjölskyldu til
Reykjavíkur.
Góð umgengni og snyrtimennska
hafði fylgt Eyjólfsstöðum. Á því
varð engin breyting er þau Bjarni
Jónasson og Jenný Jónsdóttir, for-
eldrar Ingibjargar, tóku við jörð-
inni. Hagsæld og aukin umsvif
fylgdu þroska barna þeirra til full-
orðinsára. Sonurinn Jón endurreisti
búskap á Bakka ásamt með eigin-
konu sinni Kristínu Lárusdóttur frá
Grímstungu og dóttirin Ingibjörg og
Ingvar Steingrímsson gerðust
bændur á Eyjólfsstöðum í sambýli
við foreldra hennar, en yngri dótt-
irin Jóhanna var að mestu heima og
með einstakri samheldni mynduðu
þessar fjölskyldur sterka heild inn-
an sveitarfélagsins. Heimilishættir
voru í föstum skorðum og glaðværð
ríkti er dró að sér gesti og traust
vináttusambönd mynduðust. Árin
liðu. Bjarni bóndi andaðist árið 1981
og Jenný kona hans tíu árum síðar
árið 1991, en búskapurinn á Eyjólfs-
stöðum hélt áfram í höndum yngri
hjónanna með traustri aðstoð Jó-
hönnu systur Ingibjargar. Samstarf
þeirra systranna var einstakt og ná-
ið og þáttur Jóhönnu mikill í heim-
ilishaldinu og uppeldi barna þeirra
hjóna. Árin liðu, börnin fóru úr for-
eldrahúsum, leið húsráðendanna á
Eyjólfsstöðum lá til Blönduóss en
samheldni fjölskyldunnar hélt
áfram. Gleðin ríkti og snyrti-
mennskan á nýju heimili. En lífið er
hverfult og nú hefir Ingibjörg safn-
ast til forvera sinna. Það urðu örlög
hennar tíu árum eftir andlát móður
hennar. Hún hafði notið hamingju
og ástríkis eiginmanns og fjölskyldu
og vináttu annarra þeirra en hún
átti samleið með á lífsleiðinni.
Ingibjörg Bjarnadóttir seildist
ekki til félagslegra áhrifa utan heim-
ilis síns en innan þess fór hún með
þau af hógværð og naut því eftirlæt-
is. Hún unni hljómlist og söng og
starfaði með kirkjukór Undirfells-
sóknar frá unglingsárum og síðan
með kór Blönduósskirkju, meðan
kraftar leyfðu. Hún hafði blæfallega
sópranrödd og var góður og traust-
ur félagi. Gleðistunda naut hún af
heilum huga og með hógværð. Í
dansi var hún „góð dama“ ávallt vel
klædd og snyrtileg. Hennar verður
gott að minnast.
Sjálfur þakka ég góð kynni og
gott samstarf við Ingibjörgu frá
Eyjólfsstöðum, fyrst í sveitinni okk-
ar, Vatnsdalnum, og síðan á Blöndu-
ósi. Á þau ber engan skugga. Eig-
inmanni Ingibjargar, frænda mínum
Ingvari, börnum þeirra, systkinum
hennar og öðrum vandamönnum
votta ég samhug og bið blessunar
Almættisins.
Grímur Gíslason.
„Nú fæ ég aldrei að sjá hana Lillý
aftu,“ sagði níu ára gömul dóttir
okkar klökk og leit okkur ásökunar-
augum. Þegar við kvöddum ná-
granna okkar á Mýrarbraut 33 í júlí
sl. áttum við ekki von á öðru en að
hitta þau öll hress og kát ári síðar.
En nú er það komið á daginn að við
kvöddum góða vinkonu okkar, hana
Lillý, fyrir fullt og allt.
Það er svo margt sem kemur upp
í hugann þegar maður lætur hugann
reika rúm sex ár aftur í tímann. Við
vorum ekki búin að búa marga daga
á Mýrarbraut 31, sumarið 1995, þeg-
ar börnin okkar hurfu að heiman án
þess að láta vita af ferðum sínum.
Þegar þau komu til baka ljómuðu
þau út að eyrum, södd og sælleg.
„Við vorum í kaffi hjá Lillý, Doja og
Hönnu.“ Þar með var lagður grunn-
ur að vináttu sem varað hefur síðan
og verið allri fjölskyldunni dýrmæt.
Við erum þakklát fyrir allar þær
góðu stundir sem við og börnin okk-
ar áttum með Lillý og munum varð-
veita þær í minningunni.
Elsku Doji og Hanna, missir ykk-
ar er mikill en við vonum að Guð
verði með ykkur og styrki.
Baldur, Ragna, Björn
Grétar og Jóhanna Ásdís,
Þrándheimi.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
!"#
$
!" #
# $ %& '( ))*
+,! '( ))*
'( ) $'( ) *- . +,! )*
. '( ))*
*+ '( ))*
+ +! + + +!
+ + + +! $
&
/%001 23
4
( (
5* + "6
'
() #*
+,% * - #
,%
* % ./%/0%
*- 7 )8 * )*
0 08 ,! / )*
3 &( $/ 9 ) )*
/ 3 9
:3;* )*
( 5 / %, )*
+ +! $
3%%'%
'
& -(
!<6 &:
.1% * 2 ) $
) ) $
3
'='>0%/
: ?
! 4
+1% * 5 6
7%
* % .0%/0%
- 8 %
- ) ! ) +! + +! + + +! $