Morgunblaðið - 01.12.2001, Qupperneq 57
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 57
Í þessari nýju og hörkuspennandi Útkallsbók Óttars Sveinssonar er lýst
ótrúlegum mannraunum þegar óveður gekk yfir Ísafjarðardjúp í febrúar 1968.
Breski sjómaðurinn Harry Eddom komst einn af þegar togarinn Ross Cleveland
sökk og lýsir hér vistinni í gúmbátnum með látnum félögum sínum og baráttunni
við náttúruöflin þegar í land var komið.
Þessa óveðursdaga barðist á fimmta hundrað sjómanna við að halda skipum
sínum á floti í gífurlegri ísingu í Djúpinu. Þar á meðal var áhöfn togarans Notts
County sem strandaði skammt frá þeim stað þar sem Ross Cleveland sökk.
Varðskipið Óðinn var statt í Djúpinu og þar um borð þurftu menn að höggva ís
upp á líf og dauða.
Í þessari einstöku frásögn Harrys Eddoms, Notts County-manna og áhafnar Óðins
upplifir lesandinn ógnaratburði sögunnar eins og hann væri sjálfur á vettvangi.
Ævisaga Lúkasar Kárasonar er ævintýri líkust. Barnungur bjargaði hann
skipshöfn í Steingrímsfirði. Síðar fór hann sem sjómaður til Grænlands, kynntist
lífi útigangsmanna í Svíþjóð og endaði á fjarlægari slóðum í Afríku og Asíu en
tamt er um aðra landa okkar. Hann var skotinn niður inni á hersvæði í Dakar,
flúði undan flóðhestum í Bujumbura, lenti í fangelsi í Tanzaníu og keypti jörð
í Zambíu með rósarækt í huga.
Með blöndu af húmor og næmri tilfinningu segir Lúkas frá störfum sínum,
ferðalögum, ævintýrum og mörgum kynlegum kvistum sem urðu á vegi hans.
Syndir sæfara er sönn saga ótrúlegs ævintýramanns.
Rauðási 4 I 110 Reykjavík
Sími 554 7700
Óttar Sveinsson
Á metsölulistaMorgunblaðsins
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
við lífeyrissjóði og samtök lífeyris-
þega verði gerður samningur um
afkomutryggingu sem hafi það að
markmiði að enginn þurfi að una
óvissu um framfærslu sína eða lifa í
fátækt. Hér er ekki síst um að ræða
öryrkja og sjúklinga, með sérstakri
áherslu á kjarabætur til ungra ör-
yrkja, og sístækkandi hóp aldraðra.
Samningurinn verði grunnur nýrra
endurskoðaðra laga um almanna-
tryggingar. Það er sérstök skylda
okkar eins og nú er í pottinn búið að
forða einstökum hópum frá fátækt-
argildrum.
Tryggjum öllum þátttöku í
samfélaginu
Ítrekað var það lykilstef í stefnu
Samfylkingarinnar sem er hin sam-
eiginlega ábyrgð manns á manni.
Öflug velferðarþjónusta fyrir alla
er grunnurinn að réttlátu sam-
félagi. Með öflugri velferðarþjón-
ustu, almannatryggingum og rétt-
látu skattkerfi vill Samfylkingin
skapa fjölskyldum og einstakling-
um öryggi og tryggja að allir hafi
tækifæri til mannsæmandi lífs og
fullrar þátttöku í samfélaginu. Það
er sérstök skylda okkar að forða
einstökum hópum frá fátæktar-
gildru.
Í því skyni hafa þingmenn Sam-
fylkingarinnar lagt fram ítarlegar
tillögur og fjölda þingmála. Lagt
var til að ráðist yrði í átak til upp-
byggingar leiguíbúða á viðráðan-
legum kjörum í samvinnu við sveit-
arfélög og lífeyrissjóði og
valkostum fjölgað fyrir fólk með
lágar tekjur og meðaltekjur.
Þá var lögð áhersla á mikilvægi
forvarna- og uppeldisgildis íþrótta-
og æskulýðsstarfs sem öll börn og
ungmenni skuli hafa aðgang að í
skólum og félagsmiðstöðvum, óháð
efnahag foreldra.
Frammistaða ríkisstjórn-
arinnar í málefnum
fatlaðra fordæmd
Það var vilji fundarins að hlut
sjúklinga í greiðslum fyrir ýmsa
heilbrigðisþjónustu yrði stillt í hóf,
nóg væri komið af hækkunum til
sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni.
Einnig var samþykkt að settar yrðu
reglur um hámarksbiðtíma sjúk-
linga eftir þjónustu heilbrigðis-
stofnana, en undirrituð hefur flutt
frumvarp í þá veru. Auk þess yrði
almannatryggingakerfið að skapa
þeim sem þurfa að vera frá vinnu
vegna langvinnra veikinda barna
sinna viðunandi aðstæður.
Fundurinn samþykkti að sérstök
áhersla yrði lögð á að bæta stórlega
þjónustu við geðfatlaða og lang-
veika og að ráðist yrði í átak til að
útrýma biðlistum eftir greiningu,
búsetu, dagþjónustu og skamm-
tímavistun fyrir fatlaða í samráði
við hagsmunasamtök þeirra. Á
fundinum var einnig samþykkt
áskorun til stjórnvalda um að sjá til
þess að fólki með fötlun og aðstand-
endum þess verði veitt sú þjónusta
sem því ber samkvæmt lögum um
málefni fatlaðra og lýst fullri
ábyrgð á hendur félagsmálaráð-
herra og ríkisstjórninni vegna
skammarlegrar frammistöðu í mál-
efnum fatlaðra.
Stuðningur við baráttumál
aldraðra
Landsfundurinn hvatti þingmenn
til að vinna bug á því ranglæti að líf-
eyrissparnaður sé tvískattaður eða
skattaður sem almennar tekjur og
því ranglæti að lífeyrisþegar sem
einvörðungu byggja afkomu sína á
bótum almannatrygginga greiði
sem svarar einum mánaðarlaunum í
skatt á ári.
Landsfundurinn lýsti stuðningi
við réttindabaráttu eldri borgara í
þessum málum.
Höfundur er alþingismaður.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni