Morgunblaðið - 01.12.2001, Qupperneq 72
DAGBÓK
72 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Skógafoss, Gandí og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Venus fór í gær.
Fréttir
Bókatíðindi 2001.
Númer laugardagsins
1. des. er 84.965
Mannamót
Aflagrandi 40. Opið
hús fimmtud. 6. des.
Húsið opnað kl. 19.30,
félagsvist kl. 20, kaffi á
könnunni. Jólakvöld-
verður verður í félags-
og þjónustumiðstöðinni
Aflagranda 40, föstud.
14. des. Skráning í af-
greiðslu, s. 562-2571.
Árskógar. Aðventu-
stund verður 5. des. kl.
13.30. Sr. Gísli Jón-
asson flytur hugvekju.
Karlakórinn Kátir karl-
ar syngja nokkur lög.,
Súsanna Svavarsdóttir
les úr bókinni Diddú.
Kaffihlaðborð.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
mánudag verður púttað
í Bæjarútgerðinni kl. 10
og félagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Garðabæ, Jólahlaðborð
verður í Kirkjuhvoli
föstud. 7. des. Húsið
opnað kl. 19. Tryggvi
Þorsteinsson leikur á
flygil, hugvekja sr.
Hans Markús Haf-
steinsson. Kór eldri
borgara Garðabæjar
syngur undir stjórn
Kristínar Pétursdóttur,
fjöldasöngur. Sighvatur
Sveinsson skemmtir og
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi – blöðin
og matur í hádegi.
Sunnud. Félagsvist kl.
13.30. Verðlaunaaf-
hending. Síðasta fé-
lagsvistin fyrir jól.
Dansleikur kl. 20,
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánud: Brids kl.
13. Danskennsla Sig-
valda, framhald, kl. 19
og byrjendur kl. 20.30.
Þriðjud: Skák kl. 13 og
alkort kl. 13.30. Miðvi-
kud: Göngu- Hrólfar
fara í göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Jóla-
fagnaður í Ásgarði,
Glæsibæ, miðvikud. 5.
des. og hefst kl. 20.
Hugvekju flytur sr.
Pétur Þorsteinsson,
prestur Óháða safn-
aðarins. Sálmar sungn-
ir af söngvökugestum,
lesin verða jólasaga og
jólakvæði. Kaffihlé,
sungin verða jólalög.
Danshópur Sigvalda
sýnir línudans og dans-
að á eftir. Skráning á
skrifstofu FEB. Miðar
seldir við innganginn.
Baldvin Tryggvason
verður til viðtals um
fjármál og leiðbein-
ingar um þau mál á
skrifstofu FEB
fimmtud. 6. des., panta
þarf tíma. Skrifstofan
er flutt í Faxafen 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Uppl. á skrif-
stofu FEB kl. 10–16, s.
588-2111.
Furugerði 1. Aðventu-
skemmtun verður hald-
in 6. des. Skemmtunin
byrjar kl. 20. Hugvekja
sr. Kristín Pálsdóttir,
smásaga Jónína H.
Jónsdóttir, söngur
Ágústa Ágústsdóttir.
Furugerðiskórinn
syngur. Hátíðarkaffi.
Gerðuberg, félagsstarf,
Sund og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug á
vegum ÍTR á mánu- og
fimmtudögum kl. 19.30.
Boccia á þriðjud. fellur
niður fram að áramót-
um. Mánud. 3. des. kl.
13.30–14.30 bankaþjón-
usta. Myndlistarsýning
Bryndísar Björns-
dóttur opin kl. 13–16. í
dag, listamaðurinn á
staðnum. Veitingar í
veitingabúð. Uppl. um
starfsemina á staðnum
og í s. 575-7720.
Gjábakki. Laufa-
brauðsdagur verður í
Gjábakka í dag kl. 14.
Ungir sem aldnir eru
hvattir til þátttöku og
beðnir að taka með sér
áhöld til laufabrauðs-
gerðar. Á sama tíma
verður jólamarkaður,
jólalög verða leikin á
harmónikku og heitt
súkkulaði og heima-
bakkelsi.
Gullsmári. afmæl-
isfagnaður verður 5.
des. kl. 14. Helga Ing-
varsdóttir spilar og
syngur, Helga Þorleifs-
dóttir flytur frumsamin
ljóð, afmæliskaffi.
Hraunbær 105. Föstud.
7. des. verður jólahlað-
borð, húsið opnað kl.
17.30, ræðumaður Sig-
urður Sigurðsson dýra-
læknir, kór leikskólans
Núps syngur jólalög.
Séra Sigrún Ósk-
arsdóttir verður með
hugvekju, Ágústa Sig-
rún Ágústsdóttir syng-
ur einsöng. Uppl. í s.
587-2888.
Hæðargarður. Að-
ventuskemmtun verður
sunnud. 2. des. kl. 14–
16. Fjórar nýjar bækur
kynntar, tónlist. Jóla-
hlaðborð/skemmtun
verður föstudags-
kvöldið 7. des. Tilkynna
þarf þátttöku. S. 568-
3132.
Vesturgata 7. Jólafagn-
aður verður fimmtud. 6.
des. Húsið opnað kl,
17.30. Ragnar Páll Ein-
arsson leikur á hljóm-
borð. Jólahlaðborð,
kaffi og eftirréttur. Kór
leikskólans Núps
syngja jólalög. Kvartett
spilar kammertónlist.
Gyða Valtýsdóttir, Ing-
rid Karlsdóttir, Helga
Þóra Björgvinsdóttir
og Anna Hugadóttir.
Danssýning frá Dans-
skóla Jóns Péturs og
Köru. Gospelsystur í
Reykjavík syngja. Und-
irleikari Agnar Már
Magnússon Fjölda-
söngur. Hugvekja, séra
Hjálmar Jónsson dóm-
kirkjuprestur. Skrán-
ing í s. 562-7077.
Vitatorg. Aðventu- og
jólafagnaður verður 6.
des. Jólahlaðborð, ým-
islegt til skemmtunar.
Skráning í s. 561-0300.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur í
kvöld kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105,
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
og fimmtudaga.
Úrvals-fólk – Kanarí.
Ennþá er laust í ferðina
5. jan. 2002. Uppselt í
ferðina 2. mars, höfum
bætt við dagsetningum
fyrir Úrvals-fólk 23.
feb. í 4 vikur og 9. mars
í 3 vikur. Nýir félagar í
Úrvals-fólki kynnið
ykkur afsláttinn. Uppl.
gefur Valdís og sölufólk
á skrifstofu Úrvals-
Útsýnar í s. 585-4000.
Söngfélag Skaftfell-
inga verður með
aðventustund sunnud.
2. des. kl. 16 í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi
178. Kórinn syngur og
boðið er upp á veit-
ingar.
Eftirlaunadeildar
Póstmannafélagsins.
Félagsmenn, munið að-
ventufagnaðinn á
Grettisgötu 89 kl. 14
mánudag 2. des.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar verður með jóla-
fund í Safnaðarheimili
Fella- og Hólakirkju,
þriðjud. 4. des. kl.
19.30. Jólamatur, Kon-
ur eru beðnar að muna
eftir jólapökkunum.
Tilkynnið þátttöku til
Binnu, s. 557-3240.
Kvenfélag Kópavogs
heldur jólabasar á
morgun kl. 14. í
Hamraborg 10, 2. hæð
til hægri. Tekið á móti
munum og kökum, frá
kl. 14–16. laugard. 1.
des. og fyrir hádegi
sunnud. 2. des.
Kvenfélag Hreyfils.
Jólafundurinn verður
haldinn miðvikud. 5.
des. kl. 19. Tilkynnið
þátttöku í s. 899-2119
eða 553-6288, fyrir
þriðjud. 4. des. Munið
pakkana.
Safnaðarfélag Ás-
prestakalls kökubasar
verður sunnud. 2. des. í
safnaðarheimili Ás-
kirkju kl. 15. Jólafund-
urinn verður í safn-
aðarheimili kirkjunnar
föstud. 7. des. og hefst
með boðhaldi kl. 19.
Steinunn Jóhann-
esdóttir les úr bók sinni
Reisubók Guðríðar
Símonardóttur. Til-
kynnið þátttöku fyrir 4.
des. í Áskirkju, s. 588-
8870, Erla, s. 553-4784,
Guðrún, s. 553-0088
Þóranna, s. 568-1418.
Kvenfélagið Hring-
urinn. Jólakaffi og
happdrætti Hringsins
verður haldið sunnud.
2. des. á Hótel Íslandi
og hefst kl. 13.30.
Í dag er laugardagur 1. desember,
335. dagur ársins 2001. Fullveld-
isdagurinn. Orð dagsins: Þú varp-
aðir mér í djúpið, út í mitt hafið, svo
að straumurinn umkringdi mig.
(Jónas 2, 4.)
Börn fái
hressingu
í skólum
ÉG er sammála Þráni Bert-
elssyni þar sem hann fjallar
um það í Fréttablaðinu að
fullorðnu fólki sé boðin
hressing á vinnustöðum en
ekki börnum í skólum.
Mörg börn fá enga hress-
ingu fyrr en eftir marga
klukkutíma og mörg ís-
lensk börn borða ekkert áð-
ur en þau fara í skólann.
Því er nauðsynlegt að börn
fái hressingu, t.d. ávexti, í
skólanum. Og þá er ég ekki
að meina að þetta sé til sölu
í skólanum, því börnin eyða
peningunum bara í sæl-
gæti, heldur að þau fái
þetta endurgjaldslaust.
Móðir.
Evrópska klinkið
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
koma því á framfæri við
banka landsins að þeir taki
við erlendu klinki fyrir ára-
mót áður en evran tekur
gildi. Segir hún að þetta
klink sé fólki ónýtt eftir
áramót. Segir hún að nota
megi þennan pening til
styrktar einhverjum líkn-
arsamtökum.
Hálsmen merkt
Gylfi og Bíbí
ÁSTA hafði samband við
Velvakanda og sagðist hún
hafa keypt í Kolaportinu
fyrir 1–2 árum nisti úr silfri
með steini. Á nistinu var
áletrunin Gylfi og Bíbí. Ef
einhver kannast við þetta
þá hafið vinsamlega sam-
band við Ástu í síma 553-
8237.
Tapað/fundið
Laura Ashley-hanskar
týndust
LAURA Ashley-hanskar
týndust, annaðhvort í Nóa-
túni í Hamraborg eða í
Íþróttahúsinu í Smáranum
20. nóv. sl. Eins týndist
Gucci-armband líklega fyr-
ir utan Gauk á Stöng 30.
ágúst sl. Armbandið hefur
mikið tilfinningalegt gildi
fyrir eiganda. Skilvís finn-
andi hafi samband við Ást-
ríði í síma 564-3745.
Barnagleraugu
týndust
BARNAGLERAUGU,
gulllituð, týndust á leiðinni
frá Granda að Reynimel.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 552-4103.
Hannyrðapoki
týndist
MÁNUDAGINN 26. nóv.
sl. týndist hannyrðapoki
merktur Þjóðminjasafni
með mynd af fjallkonu. Ef
einhver hefur fundið þenn-
an poka þá vinsamlega haf-
ið samband í síma 554-1199.
Armband týndist
Gullhlekkjaarmband týnd-
ist, líklega í byrjun nóvem-
ber. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 551-3070.
Dýrahald
Hvít kanína
týndist
HVÍT kanína týndist í
Fossvogi, nær Svartaskógi,
17. nóv. sl. Þeir sem hafa
orðið hennar varir hafi
samband í síma 699-1660.
Kettlingar fást gefins
2 kettlingar, 7 mánaða,
blandaðir skógarkettir, fást
gefins, helst á sama heimili.
Uppl. í síma 555-0692.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er mikið jólabarn oghlakkar óskaplega mikið til þess
að hátíð ljóss og friðar gangi í garð.
Jólahátíðinni fylgir samvera með
nánum ættingjum og vinum, afslöpp-
un og notalegheit með góðum bókum
og skemmtilegu sjónvarpsefni. Fann-
fergið hér sunnanlands að undan-
förnu gerir höfuðborgarsvæðið jóla-
legra í byrjun desember en verið
hefur um langa hríð og vísast munu
fjölmargir setja upp skreytingar í og
við híbýli sín nú um helgina. Sumir
eru í þeim efnum metnaðarfyllri en
aðrir, eins og gengur, og má búast við
því að álagstoppur komi hjá Orku-
veitunni síðar í mánuðinum þegar
saman fer rafmagnsnotkun vegna
ljósa í skreytingum ýmiss konar og
anna í eldhúsinu. Þá tikka orkumæl-
arnir sem aldrei fyrr.
x x x
AÐ MATI Víkverja er meðalhófiðallra best þegar kemur að
skreytingum innan dyra jafnt sem ut-
an. Honum finnst jafnátakanlegt að
horfa upp á heilu raftækjaverslanirn-
ar samankomnar í einum og sama
garðinum og að sjá almyrkvuð hús
mitt í öllu skammdeginu. Ljósin eru
nú einu sinni órjúfanlegur hluti
jólahátíðarinnar og sérstaklega finnst
Víkverja að forráðamenn fyrirtækja
og stofnana sem ráða yfir myndarleg-
um og stórum byggingum ættu að sjá
sóma sinn í að skreyta með einhverj-
um hætti. Í því sambandi hefur lengi
vakið nokkra furðu Víkverja að það
fyrirtæki sem allra mestan hag ætti
að hafa af aukinni rafmagns- og ljósa-
notkun landsmanna, nefnilega
Landsvirkjun, skuli leggja jafnlítið
upp úr ljósaskreytingum í höfuð-
stöðvum sínum við verslunarmiðstöð-
ina Austurver við Háaleitisbraut. Þar
hefur stundum verið kolniðamyrkur
þegar flest húsin í kring skarta sínu
fegursta og hafa margir furðað sig á
ljósleysinu. Kannski Landsvirkjun sé
að spara hjá sér rafmagnið?
x x x
BLESSAÐUR snjórinn gefur ekkiaðeins til kynna að senn komi
jólin, heldur finnur Víkverji nú
áþreifanlega í fyrsta sinn sem foreldri
hversu börnin elska að ærslast í
mjöllinni og leika sér. Snjórinn hefur
alveg sérstakt aðdráttarafl fyrir
yngstu kynslóðina og í leikskóla son-
arins vestur í bæ hafa kennarar og
annað starfsfólk ekki farið varhluta af
gleði barnanna. Nú eru það snjókall-
arnir, snjóboltarnir og snjóþoturnar
sem gilda og litlu skinnin láta sig litlu
varða þótt frost bíti í kinnar og tær
kólni hratt. Skemmtilegast er að vera
úti og leika. Foreldrar ganga sjálfir í
barndóm, hnoða í bolta og rúlla í snjó-
karla milli þess er mokaðir eru
göngustígar sem aldrei fyrr. Hraust-
legur rauður litur setur þá svip sinn á
andlit þeirra eldri sem yngri og af-
skaplega fátt bendir til þess að úti-
vera eigi undir högg að sækja.
x x x
LÍKLEGA verður aldrei nógsam-lega brýnt fyrir foreldrum að
verja tíma með börnum sínum sem
mest þau mega. Hver stund er hér
dýrmæt, hver leikur svo skemmtileg-
ur, hvert andartak svo eftirminnilegt.
Fyrr en varir kemur að því að hina
yngri fýsir ekki jafnmikið að leika sér
með foreldrunum og fer þá oft saman
löngun foreldranna til leikja og sam-
veru með börnunum. Þannig er gang-
ur lífsins.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 flækingar, 8 flaska, 9
les, 10 drepsótt, 11 bik,
13 peningar, 15 sokkur-
inn, 18 varpa hlutkesti,
21 fæða, 22 smjaðurs, 23
slæmt hey, 24 liggur í
makindum.
LÓÐRÉTT:
2 hamingja, 3 heimting, 4
hindra, 5 annríki, 6 við-
bót, 7 skjótur, 12 sefa, 14
reyfi, 15 bryggjusvæði,
16 ís, 17 bátaskýli, 18
harðneskja, 19 furða, 20
fædd.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skafl, 4 Hekla, 7 kollu, 8 álman, 9 Týr, 11 rann,
13 hríð, 14 Iðunn, 15 fátt, 17 étur, 20 gat, 22 rifna, 23
rúðan, 24 afræð, 25 rímur.
Lóðrétt: 1 sekur, 2 allan, 3 laut, 4 hrár, 5 kamar, 6 ann-
að, 10 ýsuna, 12 nit, 13 hné, 15 farga, 16 tófur, 18 tíðum,
19 Ránar, 20 garð, 21 trúr.
VIÐ sem eigum von á
börnum í heiminn á
næsta ári munum aldrei
sætta okkur við það
þegjandi að langþráðum
framlengdum rétti
feðra til samvista við
nýfædd börn sín verði
slegið á frest. Alltaf
skal vera möguleiki á
að ganga endalaust á
fjölskyldueininguna.
Hafið þið ekkert lært?
Börnin okkar þurfa á
foreldrum sínum að
halda. Íslenskt fjöl-
skyldufólk hefur al-
mennt ekki það góðan
fjárhagslegan grunn að
það geti dvalist tekju-
laust heima hjá nýfædd-
um börnum sínum. Þar
er ekkert val. Við erum
ófáir foreldrarnir sem
höfum þurft að skilja
kornung börn okkar
eftir í gæslu lungann úr
deginum. Við erum jafn
miður okkar yfir því og
börnin sjálf. En glugga-
pósturinn berst jafnt
sem áður og sýnir enga
biðlund. Mánuður af lífi
barna okkar Íslendinga
er meira virði en ferðir
stjórnarliða um heim-
inn, fínar byggingar og
jarðgöng og svo mætti
lengi telja. Á vel rekn-
um heimilum er sam-
dráttur ekki tekinn út á
börnunum heldur er allt
annað tekið fyrir fyrst.
Og á því stóra heimili
sem ríkisstjórnin stend-
ur fyrir má forgangs-
röðunin ekki vera röng.
Frestið þið öðru en auk-
inni fjölskyldusamveru,
það mun borga sig í
betra sálarlífi Íslend-
inga í nútíð og framtíð.
Kjósendur.
Endalaust gengið á fjölskyldueininguna