Morgunblaðið - 01.12.2001, Page 75
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 75
ALMENNUR
DANSLEIKUR
með Geirmundi Valtýssyni
í Ásgarði, Glæsibæ, í kvöld.
Húsið opnað kl. 22.00.
Allir velkomnir!
STUÐMENN
Í KVÖLD
Húsið opnar kl. 23:30i l
sími 551-8900
ÞETTA er mikið áfall. Ég tek þetta mjög nærrimér. Þetta er eins og að missa góðan vin,“ sagðiJón Ólafsson tónlistarmaður í samtali viðMorgunblaðið um lát Bítilsins fyrrverandi,
George Harrisons. „Ég er mikill Bítlaáhugamaður og
veit meira um George Harrison heldur en marga af mín-
um bestu vinum,“ sagði Jón.
Jón bendir á að hann hafi vitað að Harrison
væri veikur og því hafi þetta ekki verið eins mik-
ið áfall og þegar John Lennon var skotinn til
bana í New York árið 1980. „Það er alltaf erfitt
þegar einhver deyr sem manni þykir vænt um,“
sagði hann.
Auk þessa eiga Jón og Harrison sama afmæl-
isdag, 25. febrúar. „Manni fannst það voðalega
flott þegar maður var yngri,“ sagði hann.
Jón ræddi einnig um þau miklu áhrif sem Bítl-
arnir hafa haft á þróun tónlistar og dægurmenn-
ingar í heiminum. „Maður væri jafnvel ekki í
tónlist ef Bítlarnir hefðu ekki verið í útvarpinu
þegar maður var lítill,“ sagði hann.
Jón minnist þess að Harrison hafi notið mik-
illar virðingar sem tónlistarmaður og að tónlist-
artímaritið Q hafi valið fyrstu sólóplötu Harr-
isons, All Things Must Pass, sem bestu
sólóplötu Bítils. Platan er þreföld enda segir Jón
að Harrison hafi átt mikið af óútgefnu efni þegar
hann hætti í Bítlunum.
Þó að Harrison hafi ekki verið mest áberandi
Bítillinn hafa mörg þeirra laga, sem Harrison
kom að, endað í hópi hinna eftirminnilegustu, að
sögn Jóns, og bendir á „Here Comes the Sun“
og „Something“ í þessu sambandi.
Gúrú á kassagítarinn
Eyjólfur Kristjánsson, félagi Jóns úr Bítla-
vinafélaginu, tekur undir með honum hvað varð-
ar þessi tvö lög. „Ég var farinn að gefa Harrison
sérstakan gaum þegar Abbey Road kom út og
féll sérstaklega fyrir þessum lögum sem þar er
að finna. Sem kassagítarleikari hafði maður
reynt mikið að ná gripunum hans Harrisons og
það var eitthvað við stílinn hans sem höfðaði
sterkt til mín. Maðurinn var algjört gúrú á
kassagítarinn. Það jafnar engin þessar sérstöku
gítarhendingar hans. Ég var aldrei neinn sér-
stakur unnandi Bítlanna sem slíkra en Harrison
var samt minn maður.“
Því hefur einmitt verið haldið fram að Eyjólf-
ur sé í hópi örfárra sem kunna að spila „Here
Comes The Sun“ nákvæmlega eins og á að gera
það og nú hefur enn fækkað í þeim hópi við frá-
fall höfundarins. „Mér var mjög brugðið,“ segir
Eyjólfur er hann lýsir því hvernig honum varð
við að heyra tíðindin. „Maður hafði svo sem al-
veg búið sig undir þetta eftir að hafa fylgst með
fréttum af heilsubresti hans undanfarið. En
þetta er bítill sem var að deyja og það er alltaf
áfall.“
Mjög sárt saknað
Rúnar Júlíusson úr íslensku bítlunum Hljóm-
um tekur undir það að Harrisons verði saknað
og tónlistar hans verði minnst. „Hans verður
mjög sárt saknað. Hann var einn af merkilegustu tónlist-
armönnum síðustu aldar. Það hafa fáir haft eins djúp
áhrif á heimsbyggðina í tónlist eins og Bítlarnir og þar
með Harrison,“ sagði Rúnar og benti á að tónlist Bítl-
anna hefði enn áhrif en skemmst er að minnast útkomu
safnplötunnar 1, sem selst hefur í metupplagi um heim
allan.
Rúnar ætlar að leggja sitt af mörkum til að minnast
Harrisons og tónlistar hans. „Ég bæti „My Sweet Lord“
á dagskrána hjá mér um helgina og í jólamánuðinum,“
sagði hann en lagið er af áðurnefndri All Things Must
Pass og er eitt vinsælasta lagið frá sólóferli Harrisons.
Sér á báti
„Maður harmar náttúrlega alltaf þegar einhver af
manns eigin kynslóð gengur burt, sérstaklega svona
merkilegir tónlistarmenn eins og liðsmenn Bítlanna
voru,“ segir Magnús Eiríksson þegar blaðamaður ber
honum tíðindin af fráfalli Harrisons. Magnús segir að
Harrison hafi haft þá sérstöku
þýðingu fyrir sig að þegar hann
hafi verið í bítlasveitum á 7. ára-
tugnum hafi hann þurft að pikka
upp sólóin hans nótu fyrir nótu
„og slapp ekkert með minna held-
ur en það“. Hann segist þá hafa
gert sér grein fyrir að Harrison
væri býsna merkilegur gítarleik-
ari. „Hann var svolítið sér á báti,
svona blanda af sjálfum sér og
Chet Atkins. Hann var kannski
ekki að mínu skapi sem gítarleik-
ari en virkaði mjög vel í þeirri
sveit sem hann var í. Ég var hrifn-
ari af Peter Green og Clapton.“
Magnús segir engan vafa leika
á því að Harrison hafi haft mjög
mikil áhrif á seinni tíma gítarleik-
ara.
Mesti sjarmörinn
Ragnheiður „Heiða“ Eiríks-
dóttir, tónlistarkona, fyrrum
söngkona í hljómsveitinni Unun
og núverandi sólóstjarna, er Bítla-
aðdáandi með meiru. „Mér hefur
alltaf líkað rosalega vel við George
Harrison, ekki bara vegna þess að
hann var í Bítlunum heldur fyrir
það að hann var framúrskarandi
gítarleikari,“ sagði hún og minntist sérstaklega lagsins
„While My Guitar Gently Weeps“ af „Hvíta albúminu“.
„Hann var sá maður sem fór lengst inn í austurlenska
speki og slíkt. Hann var með rosalega flottar pælingar,“
sagði Heiða en henni finnst George Harrison líka hafa
verið sætasti Bítillinn. „Hann var mesti sjarmörinn að
mínu mati,“ sagði Heiða. Henni finnst einnig sítar-hug-
myndir Harrisons hafa verið mjög skemmtilegar og
bendir á Bítlalagið „Within You, Without You“ af Sgt.
Pepper’s Lonely Hearts Club Band í tengslum við þetta.
„Það er eitthvað í tónlist Bítlanna sem allir í heiminum
geta samsamað sig á einhverjum tímapunkti,“ sagði hún.
Viðbrögð íslenskra tónlistarmanna við fráfalli George Harrisons
Eins og
að missa
góðan vin
AP
George Harrison tapaði baráttu sinni við krabbameinið á heimili vinar síns
í Los Angeles um klukkan hálftíu að kvöldi fimmtudags, að íslenskum tíma.
Magnús Eiríksson
Heiða
Rúnar Júlíusson
Jón Ólafsson
Eyjólfur Kristjánsson