Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 76
INNIHALD dægurtexta hefur í gegnum tíðina tekið á sig margs konar myndir. Ástin var auð- vitað nr. 1, 2 og 3 í upphafi en þegar fram liðu stundir og formið fór að þróast og víkka urðu hugðarefnin sömuleiðis margbrotnari; súrreal- ismi, pólitík og daglegt líf urðu allt eins að yrk- isefnum. Allt frá upphafi hefur dægurtónlistin haft á sig orð hins skítuga bastarðs; enda þeirri al- þýðulist eðlilega stillt upp gegn tónlist heldri stétta, hinni svokölluðu „sígildu“ tónlist. Vafa- samir og tvíræðir textar hafa fylgt dægurtón- listinni, eða „poppinu“ alla tíð, þótt vissulega hafi þeir ekki verið jafn beinskeyttir þá og í dag. Mikið var t.d. ýjað að hlutunum, Rolling Sto- nes sögðu „Let’s Spend the Night Together“ og Bítlarnir spurðu „Why Don’t We Do It in the Road?“ sem gerir nú reyndar meira en að ýja að einhverju. Með tilkomu pönksins komu svo fram reiðilegir og óheflaðir textar, oftar en ekki beint að yfirvaldi ýmiss konar. Bölv og blót varð að viðteknu orðfæri í þeim geiranum sem síðar átti eftir að verða eitt af megineinkennum rappsins. Ögrunin hefur alla tíð fylgt hipp-hoppinu/ rappinu. Tímamótalagið „The Message“ með Grandmaster Flash & The Furious Five setti tóninn í blábyrjun og þó að rappið hafi þróast í margvíslegar áttir hefur andi háskans alltaf svifið yfir. Það er ekki að ástæðulausu sem poppfræð- ingar segja rappið byltingarkenndasta tónlist- arform síðustu tuttugu ára. Til að ræða þessi mál voru komnir fimm fulltrúar sem allir eiga það sameiginlegt að starfa í hringiðu dægurtónlistar. Þeir Ágúst „Bent“ Sigbertsson og Erpur Eyvindsson úr XXX Rottweilerhundum, Hlynur Áskelsson, sem notast við listamannsnafnið Ceres 4 (gaf út hljómorðadiskinn Kaldastríðsbörn í fyrra og hefur nú gefið út pönkplötu, Í uppnámi), hinn kunni lagahöfundur Einar Bárðarson og skáld- ið Kristján Hreinsson (en hann gaf út hljóm- disk í sumar, Í stuði með Guði og gefur út nýjan í dag sem nefnist Á kvisti með Kristi). „Það er fyrst núna sem við erum að fara að kynna hann,“ segir Erpur Eyvindsson og er þar að vísa í nýútkomna plötu XXX Rottweiler- hunda, rappsveitarinnar sem hann leiðir en þar er allt rapp á íslensku. Á diskinum koma fyrir setningar eins og „Mamma þín er beygla,“ „Ég er fokkin’ Óðinn“ „Fokk þú og þitt krú“ og „Rímur mínar eru svo grófar, þær eru bann- aðar í Genfarsáttmálanum“ ásamt fjölda ann- arra sem ekki er hafandi eftir hér. Enda er um- slagið merkt með eftirfarandi skilaboðum „Foreldrar athugið, óheflað málfar“. Erpur er spurður hvort þeir hafi lent í ein- herjum vandræðum út af textum plötunnar. Erpur: „Já, eðlilega. Maður er nú bara orð- inn vanur því. Upphaflega ætlaði Japis að gefa okkur út en platan var tilbúin um miðjan ágúst, umslagið um miðjan september. Skyndilega var hún svo tekin úr spilun og lögfræðingur var látinn fara yfir textana, með það að markmiði að taka út allt það sem við gætum verið kærðir fyrir – þegar minnst er á stjórnmálamenn og slíkt. T.d. vorum við látnir taka út nafnið Stein- grímur Njálsson. Þá sáum við það fyrir okkur að hann myndi kæra okkur fyrir að sverta mannorð sitt (!?). Svo þegar Skífan tók yfir samninginn var hætt við þetta allt saman.“ Einar Bárðarson er spurður að því hvað hon- um finnist um þessi ritskoðunarmál. Einar: „Sumt þurfa börn og unglingar ekkert að heyra og einnig þarf útvarpið að gæta sinna hagsmuna. Hins vegar finnst mér rétt hjá Skíf- unni að vera ekki að blanda sér í það sem lista- maðurinn sjálfur vill koma frá sér. Listamað- urinn verður auðvitað að standa við það sem hann skapar, hvort sem það er jákvætt eða nei- kvætt.“ Kristján: „Ég er mikið til sammála því sem Einar er að segja. En mér finnst að ritstjórn- arlögregla eigi aldrei rétt á sér. Hins vegar ættu menn að ræða það hvað þeim þykir vera vel sæmandi og hvað ekki. En ef sá sem flytur kemst þá að því að það sem hann er að lýsa yfir sé það eina rétta er það á endanum höfundurinn sem ræður. Hann á að hafa fullkomið mál- og tjáningarfrelsi í því sem hann er að gera.“ Hlynur: „Ég held að sagan sé mjög þakklát þeim sem hafa þorað að koma fram og standa við það sem þeir eru að segja.“ Hlynur er spurður hvort hann hafi fengið símhringingar vegna plötu sinnar í fyrra. Að vísu fór útgáfan ekki hátt en þar er t.d. að finna athugasemdir um baráttu Bubba gegn heimilis- ofbeldi sem voru einhvern veginn á þessa leið: „Leitum að öðrum lausnum segir Bubbi, og gengur með Mike Tyson-húfu á hausnum!“ og enn fremur línur eins og „Börnunum hann Steingrímur frá spúsunni stal. Ert þú hinn ís- lenski Halim Al?“ Hlynur: „Landinn hefur nú ekki kippt sér upp við þetta. Það er spurning um næstu plötu. Þar er ég að skjóta á nokkra menn.“ Kristján: „Ég held að það verði að líta til þeirra forsenda sem fólk gefur sér. Eldra fólk hneykslast kannski vegna þess að því finnst því ögrað. Á meðan Rottweilerhundarnir eru ein- faldlega að tala út! Þeir eru að tala eins og þeim er tamt að tala. Þeir eru bara að tala!“ Erpur: „Fólk heldur alltaf að við séum að tala út frá okkur en stundum förum við bara í hlut- verkaleik eins og eðlilegt er fyrir listamenn að gera. Í laginu „Sönn íslensk sakamál“ erum við að ímynda okkur hvernig við værum ef við vær- um glæpamenn.“ Talið berst að spurningunni um ábyrgð lista- mannsins en hún hefur lengið verið vinsælt þrætuepli í umræðum um listir. Kristján: „Þá er það spurningin um þetta: Hvort er verið að vekja athygli á sjálfum sér eða málstaðnum?“ Hlynur: „Það er hægt að nota svona lagað sem ódýra auglýsingu ef menn vilja.“ Kristján: „Ábyrgðin er líka fólgin í því hvort þú ætlir að verja þinn málstað eða hvort þú ætl- ir að lúffa. Ef maður hefur einhverja skoðun á maður að hafa leyfi til að koma henni á fram- færi. Maður á að virða skoðanir fólks, hverjar sem þær eru. Annars væri maður ekki með skoðanir sjálfur og hefði ekki rétt á þeim. Ég sé þetta sem takmarkalaust málfrelsi skálda og textahöfunda. Einnig liggur ábyrgð þeirra höf- unda sem vilja koma einhverju á framfæri í því að áheyrendur skilji hvað þeir eru að segja.“ Sú staðhæfing að í einhverjum tilfellum hljóti Rottweilerhundarnir að vera að ganga viljandi fram af fólki er nú lögð fyrir þá Erp og Bent. Bent: „Ég myndi ekki segja að við værum að gera það viljandi. En við erum heldur ekki að reyna að forðast það. Ég sem ekki eitthvað til þess að reyna að hneyksla einhvern en ég er ekki að passa mig á því að gera það ekki. Mér finnst allt í lagi ef það gerist. Þessi ritskoðun er líka að mörgu leyti á villigötum að mínu mati. Myndbönd með okkur eru bönnuð á meðan að vinsælasta lagið í dag er „Because I Got High“ sem er lag um hvað það er gaman að reykja hass.“ Hlynur: „Ef maður fer að ritskoða sjálfan sig þá fellur maður. Fyrsta floppið hans Arnolds Schwarzeneggers var Last Action Hero, mynd sem átti að höfða til allra.“ Bent: „Mér finnst líka fáránlegt að okkar myndband sé tekið alveg úr spilun á meðan ver- ið er að sýna einhverjar myndir þar sem Steven Seagal er að slátra fólki. Ég yrði alveg sáttur ef það yrðu settar tvær rauðar hendur á undan myndböndunum.“ Kristján: „Er það ekki líka krafa samtímans að menn komi fram með yfirlýsingar sem ganga í berhögg við viðtekin norm? Ég meina ... Hebbi, Bubbi og Hallbjörn hafa engu við neitt að bæta og þá koma fram menn eins og XXX Rottweilerhundar með efni sem er á skjön við það sem tíðkast. Og í framhaldi af því fara nöld- urseggir upp á háa C-ið og ætla sér að slátra í allar áttir.“ Erpur: „Það er líka alltaf til lið sem býr yfir hvötum eins og valdagrægði. Það er alltaf til fólk sem vill ráða yfir öðrum. Það á til milljón merkimiða yfir þessa þörf sína að fá að ráða yfir öðrum og stjórna því hvað þeir segja. Í Banda- ríkjunum eru t.d. til þrýstihópar eins og „Prot- ect the Children“, „War against Drugs“, „War against Terrorism“ o.s.frv. Það er fullt af fólki sem fylgir þessu sem hefur þá einu þörf að fá að ráða yfir fólki. Það eru allir sammála um að þetta séu góðir og gildir málstaðir en það er bara svo mikið af liði sem fylgir með þessu og á ekkert heima þarna. Hér er gott dæmi um hvar „Protect the Children“ gekk of langt. KRS-1, sem er mjög þekktur rappari, segir í einu laga sinna: „Coc- aine and Crack – Don’t Blast That“ sem þýðir einfaldlega „Kókaín og krakk – ekki nota það“. En af því að hann nefnir þessi tvö efni, þá er það tekið út. Og í ritskoðaðri útgáfu lagsins heyrist ekki hvað hann er að segja. Hann er að tala gegn eiturlyfjum og hann getur það ekki einu sinni! Af því að bandarísk lög meina honum að minnast á þetta. Þarna eru lögin farin að vinna gegn baráttunni gegn eiturlyfjum...“ Umræðurnar leiddust fljótlega eftir þetta út í almennara spjall um dægurlagatexta og sem áður voru allir sem einn með sterkar skoðanir á hlutunum. Eitt er það víst að XXX Rottweilerhundar hafa hrist upp í mörgum með nýrri plötu sinni og greinilegt að enn er verið að segja eitthvað í íslenskri dægurtónlist, og það meira að segja á íslensku, eitthvað sem er minna en sjálfgefið nú til dags. „Mamma þín, mamma þín, mamma þín er…beygla!“ Ný plata rappsveitarinnar XXX Rottweilerhundar þykir um margt marka tímamót í ís- lenskri dægurtónlistarsögu og þá kannski aðallega vegna textagerðarinnar. Arnar Egg- ert Thoroddsen fékk fimm textasmiði til sín til að ræða um þessi mál. Plata XXX Rottweilerhunda einkennist m.a. af grófu og beinskeyttu málfari. „Ég sem ekki eitthvað til þess að reyna að hneyksla ein- hvern en ég er ekki að passa mig á því að gera það ekki.“ – Ágúst „Bent“ Sigbertsson – „Hebbi, Bubbi og Hallbjörn hafa engu við neitt að bæta og þá koma fram menn eins og XXX Rottweilerhundar með efni sem er á skjön við það sem tíðkast. Og í framhaldi af því fara nöldurseggir upp á háa c-ið og ætla sér að slátra í allar áttir.“ – Kristján Hreinsson – „T.d. vorum við látnir taka út nafnið Steingrímur Njálsson. Þá sáum við það fyrir okkur að hann myndi kæra okkur fyrir að sverta mannorð sitt (!?)“ – Erpur Eyvindsson – Morgunblaðið/Golli Íslensk dægurtextagerð – sóðaskapur eða siðfágun? Erpur Eyvindsson Kristján Hreinsson Ágúst „Bent“ Sigbertsson Einar Bárðarson Hlynur Áskelsson (Ceres 4) arnart@mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM 76 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.