Morgunblaðið - 01.12.2001, Page 84
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breið-
holti hefur samkvæmt bréfi til
nokkurra íslenskra fyrirtækja
ákveðið að bjóða fyrirtækjunum
að auglýsa sig og vörur sínar í
stigagöngum skólans frá og með
næsta vori. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skrifstofu FB var um
tíu til tuttugu fyrirtækjum sent
bréf dagsett hinn 23. nóvember sl.
þar sem þeim var boðið að aug-
lýsa í stigagöngum skólans. Hjá
skrifstofunni fengust ennfremur
þær upplýsingar að enn hefðu
skólanum ekki borist nein við-
brögð frá fyrirtækjunum.
Auglýsingagildið töluvert
enda margir í skólanum
Þegar Morgunblaðið leitaði álits
menntamálaráðherra, Björns
Bjarnasonar, vegna þessa sagði
hann að skólinn hefði ekki leitað
svars við því hjá ráðuneytinu
hvort fjármögnun sem þessi væri
heimil með lögum. Því hefði ekki
verið tekin formleg afstaða til
málsins í ráðuneytinu. „Það er
ekki heimild fyrir slíkum auglýs-
ingum í lögum. Spurning er hins
vegar hvort þær séu bannaðar,“
segir hann.
„Skólinn hefur ekki leitað svars
menntamálaráðuneytisins við því
og þess vegna hefur ekki verið
tekin formleg afstaða til málsins
af ráðuneytinu.“
Þá segir ráðherra: „Þetta er
ekki aðeins álitamál varðandi
skólahúsnæði heldur allar op-
inberar byggingar, þangað sem
margir leggja leið sína. Það hefur
ekki tíðkast að selja þar veggi
undir auglýsingar, eftir því sem
ég best veit.“
Í bréfi FB til fyrirtækjanna seg-
ir m.a.: „Alls stunda tæplega 3.000
nemendur nám við skólann í dag-
skóla, kvöldskóla og sumarskóla.
Stigagangur skólans er „fullur af
fólki“ allan daginn og því teljum
við auglýsingagildi þessara aug-
lýsinga vera töluvert. Auk þess
telur starfslið skólans 150 manns.“
Geta hengt upp auglýsingar
eða málað vegginn
Síðan segir: „Við ætlum að gefa
fyrirtækjum kost á auglýsingum í
þessum stigagöngum, alls átta
svæðum …“ Þá segir að skólinn
hafi áhuga á að gera samning við
fyrirtæki til eins eða þriggja ára
og mega þau ráðstafa skv. því
svæðinu að eigin vild, „en þó í ein-
hverju samráði við stjórnendur
skólans“, eins og það er orðað.
„Fyrirtæki geta hengt upp kynn-
ingarefni af ýmsu tagi eða ein-
faldlega málað vegginn að eigin
vild.“
Í bréfinu segir einnig að skólinn
hafi hugsað sér að hvert rými
kosti 130 þúsund krónur fyrir
auglýsingar í eitt ár eða 290 þús-
und kr. til þriggja ára.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Býður fyrirtækjum
að auglýsa í stiga-
göngum skólans
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
„KEMST ekki strax, er fastur
uppi í tré,“ hefði Vignir Hjörleifs-
son réttilega getað sagt er far-
síminn hringdi í miðjum klíðum
þar sem hann var að skipta um
perur í jólaljósum uppi í tré fyrir
utan Listasafn Íslands.
Morgunblaðið/Rax
Símtengdur
í trénu
JOSEPH Stiglitz, Nóbelsverðlauna-
hafi í hagfræði, hefur skilað Seðla-
banka Íslands skýrslu um peninga-
og gengismál í litlum og opnum hag-
kerfum með sérstakri umfjöllun um
Ísland. Meðal þess sem fram kemur í
skýrslunni er að algeng líkön af slík-
um hagkerfum gefi að ýmsu leyti
ófullnægjandi vísbendingar um
æskilegar efnahagsaðgerðir. Þannig
séu hærri vextir, ef þeir auki líkur á
gjaldþrotum, ekki endilega til þess
fallnir að styrkja gengi gjaldmiðla.
Stiglitz segir að sú hagstjórn sem
fylgt hefur verið hér á landi hafi ver-
ið með þeim hætti að ætla mætti að
hún væri skynsamleg. Samt hafi við-
skiptahalli aukist, og Stiglitz telur að
taka þurfi á honum. Hann sé ekki
endilega raunverulegt vandamál, en
valdi hættu á óstöðugleika. Stiglitz
segir viðskiptahalla áranna 1997 til
2000 vera að tveimur þriðju hlutum
vegna minnkandi sparnaðar einka-
aðila og að einum þriðja hluta vegna
aukinnar fjárfestingar.
Ríkið á þó, að sögn Stiglitz, meiri
þátt í viðskiptahallanum en virðist
við fyrstu sýn. Þetta sé vegna fast-
gengisstefnunnar sem fylgt var þar
til í mars á þessu ári og vegna þess
að bankakerfið sé að hluta í eigu rík-
isins. Eitt af því sem hann nefnir sem
leið til að draga úr viðskiptahallan-
um er að hækka vörugjöld á varan-
legar neysluvörur.
Stiglitz segir ábata af aukinni al-
þjóðavæðingu svo mikinn að ekkert
land vilji einangra sig, en ábatanum
fylgi mikil áhætta og vandi lítilla op-
inna hagkerfa felist í hnotskurn í
áhættustjórn. Hann segir réttlætan-
legt að draga úr flæði skammtíma-
fjármagns milli landa og segir mörg
vandamála litlu og opnu hagkerf-
anna stafa af auknu frelsi í fjár-
magnsflutningum.
Joseph Stiglitz Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði í álits-
gerð sem samin var fyrir Seðlabanka Íslands
Háir vextir styrkja
ekki alltaf gengið
Viðskiptahallinn/42
DeCODE
lækkar
um 5,6%
HLUTABRÉF í deCODE,
móðurfélagi Íslenskrar erfða-
greiningar, lækkuðu í gær um
5,6% og var lokagildi bréfanna
á Nasdaq-markaðnum í Banda-
ríkjunum 9,35 Bandaríkjadalir.
Gengi bréfanna hafði hækk-
að um 23% í 9,90 Bandaríkja-
dali daginn áður í 1,2 milljóna
Bandaríkjadala viðskiptum.
Viðskipti gærdagsins námu
rúmri hálfri milljón Banda-
ríkjadala, eða yfir fimmtíu
milljónum íslenskra króna.
STARFSFÓLKI á ferðaskrifstofum
hér á landi hefur verið að fækka að
undanförnu. Auk uppsagna og gjald-
þrots hjá Samvinnuferðum-Landsýn
hefur stöðugildum fækkað um 10–15
hjá Ferðaskrifstofu Íslands á þessu
ári og í gær fengu 6 starfsmenn
Ferðaskrifstofunnar Sólar uppsagn-
arbréf í hendur. Það er um helming-
ur starfsmanna ferðaskrifstofunnar,
sem hóf störf í ársbyrjun.
Forráðamenn Sólar munu taka
ákvörðun eftir helgi um hvort grípa
þurfi til frekari aðgerða. Samkvæmt
upplýsingum frá fyrirtækinu stend-
ur ekki til að svo stöddu að hætta
sölu á einhverjum ferðum og starf-
seminni er haldið gangandi eins og
ekkert hefði í skorist.
Hjá Ferðaskrifstofu Íslands feng-
ust þær upplýsingar að hagræðingu
fyrir næsta ár væri lokið og ekki
væru fyrirhugaðar meiri aðhaldsað-
gerðir að sinni. Hörður Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu
Íslands, sem rekur m.a. ferðaskrif-
stofuna Úrval-Útsýn hf. og Plúsferð-
ir ehf., segir eðlilegt að samdráttur
sé í ferðamálageiranum miðað við í
fyrra því árið 2000 hafi verið algert
metferðaár.
Að sögn Harðar vinna um 120 til
125 manns hjá fyrirtækinu. Hann
segir að engin breyting hafi verið í
starfsmannafjölda hjá þeim sem
sinni innflutningi erlendra ferða-
manna og sölu viðskiptafarseðla.
Hörður segir að ekki ríki nein
svartsýni og jafnvel sé útlit fyrir
betra ferðaár 2002 en í ár en hafa
beri í huga að í ár hafi þurft að ná nið-
ur þenslunni sem hafi verið í fyrra og
því sé ekki um neina kreppu að ræða.
Ferða-
skrifstofur
fækka
starfsfólki
TÓNLISTARDEILD Norðurljósa
hækkar heildsöluverð sitt á geisla-
diskum í dag, 1. desember, og í
kjölfarið hækkar verðið í smásölu.
Hækkunin er fyrst og fremst
vegna gengisbreytinga, að sögn Að-
alsteins Magnússonar, sölustjóra.
Algengasta heildsöluverð á geisla-
diskum hjá tónlistardeild Norður-
ljósa hefur verið 1.285 kr. án vsk.
en það hækkar í 1.350 kr. Álagning
smásala er breytileg en Haraldur
Jónsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Norðurljósa sem sér um
rekstur Skífuverslananna, segir að
algengasta hækkunin verði um 200
kr., en það sé misjafnt eftir flokk-
um.
Einnig má gera ráð fyrir hækkun
á DVD-kvikmyndadiskum innan
skamms vegna hærra innkaups-
verðs.
Verð á geisladiskum
hækkar um 200 krónur