Morgunblaðið - 04.12.2001, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 73
Kvikmyndir.is
Ofurskutlur
númer
eitt
Sýnd kl. 3.50. Vit 289.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Vit nr. 309
Sýnd kl. 5, 8 og 11. Vit 307
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4 og 6. Vit 269
Fyrsta ævintýrið um töfradrenginn Harry Potter er nú loks komið til
Íslands eftir að hafa slegið öll met sem hægt er að slá allstaðar þar
sem hún hefur verið sýnd. Harry Potter er leyfð öllum aldurshópum.
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
Sýnd kl. 8 og 10.20.
B. i. 16. Vit nr. 296
1/2
Kvikmyndir.is
strik.is
MBL
Edduverðlaun6
Sýnd kl. 8.
Kvikmyndir.com1/2
DV
Sýnd kl. 3.45 og 5.55 Vit 287
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.Vit nr. 309
Sýnd kl. 10. B.i.12. Vit nr. 302
1/2
SV Mbl
DV
Kvikmyndir.com
SHADOW OF
THE VAMPIRE
Sýnd kl. 4, 7 og 10. Vit 307
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
1/2
Kvikmyndir.is
strik.is
ÓHT Rás 2
MBL
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
1/2
DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Reese Witherspoon
fer á kostum sem
ljóska sem sannar
hvað í ljóskum býr
1/2
Ungfrú
Skandinavía
Íris Björk
Ljóskur
landsins
sameinist!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Tveir vinir, ein kona...og enginn gefur
eftir! Josh Hartnett (Pearl Harbor),
Julia Stiles (Save the Last Dance) og
Mekhi Phifer (I Still Know What You
Did Last Summer) fara á kostum
í pottþéttri mynd!
ÞAÐ hefur verið um fátt meira
rætt síðastliðin ár hjá þeim sem þykj-
ast „poppfræðingar“ en ævintýri
Radiohead en sú staðfasta stefna
meðlima að gera „nákvæmlega“ það
sem þeim sýnist hefur verið þeim
styrkur fremur en hitt.
Lagavalið á þessari fyrstu tónleika-
plötu sveitarinnar er einvörðungu
tekið af síðustu
tveimur breiðskíf-
unum og er svo gott
sem flekklaust. Það
gefur góða mynd af
þessum umdeildu
skífum og hér leit-
ast Thom og félagar meira að segja
við að tína út það súrasta, hér er t.d.
að finna „Idioteque“ af Kid A, og
„Like Spinning Plates“ af Amnesiac.
Svo eru hér önnur afbragðslög eins
og „Everything In Its Right Place“,
titillagið „I Might Be Wrong“ og
„Morning Bell“ (í Kid A-útgáfunni
sem betur fer!). Síðasta lagið er nýtt,
en þar spilar Thom gamli einn á
kassagítarinn og syngur. Það er nú
frekar þunnur þrettándi að mínu
mati, þótt vissulega hafi Radiohead
gert svoleiðis hluti ágætlega í gegn-
um tíðina. (Ef einhver er farinn að
halda að mér þyki Radiohead sem til-
raunasveit mikilhæfari en „gamla
góða“ Radiohead þá er það laukrétt!).
Það sem gerir plötuna spennandi
er að Radiohead er ekki að spýta lög-
unum út eins og þau koma fyrir upp-
runalega. Unnið er með þau, þau
sveigð og beygð, og það á farsælan
hátt. Flest lögin bjóða líka upp á slíkt
grúsk.
Þetta er smellalaus plata, enda síð-
ustu tvær plötur þesslegar. Hér er
ekkert verið að reyna að þóknast
lýðnum og það kemur heldur engan
veginn á óvart. Í raun búast menn við
slíku af Radiohead nú, og yrðu líklega
fyrir vonbrigðum ef þeir fengju ekki
skrýtnar og dulúðugar plötur frá
þessum einörðu listarokkurum.
Afar seðjandi gripur verður að
segjast. Þótt maður þekki lögin inn og
út (fyrir utan síðasta lagið náttúru-
lega) er framreiðslan hér á þann hátt
að platan stendur vel fyrir sínu sem
sjálfstæð plata. Góð viðbót í tilkomu-
mikla ferilskrá Radiohead.
Tónlist
Bein
útsending
Radiohead
I Might Be Wrong –
Live Recordings
EMI/Parlophone
Stórgóð hljómleikaplata frá sonum
Uxavaðs.
Arnar Eggert Thoroddsen
ROD Stewart hefur verið leystur
undan útgáfusamningi sínum við
Atlantic-hljómplötufyrirtækið eftir
afar dræma sölu á síðustu plötu
hans Human.
Talsmenn útgáfunnar segja að
það hafi vissulega verið erfitt að
láta karlinn róa eftir langt og far-
sælt samstarf en það hafi einfald-
lega verið óhjákvæmilegt því það
hefði enginn áhuga á honum leng-
ur.
Gamli rámur þvertekur hins veg-
ar fyrir að honum hafi verið spark-
að og fullyrðir að hann hafi hætt af
sjálfsdáðum. Hann segist feginn
frelsinu en tekur þó skýrt fram að
hann sé ekki dauður úr öllum æð-
um heldur sé að ganga frá samn-
ingum við nýtt útgáfufyrirtæki.
Finnst hann
ekkert sexí
Reuters
„Víst er ég sexí – sjáiði bara.“
Útgefandi
Rods Stewarts