Morgunblaðið - 12.12.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HAFSTEINN Hafsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar afhenti í gær
þyrlubjörgunarsveit Varnarliðsins
sérstaka viðurkenningu vegna
björgunarafreksins við Snæfellsnes
á föstudag.
Viðstaddur var m.a. yfirmaður
Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli,
John Waikwitch aðmíráll. Hafsteinn
sagði m.a. við þyrlusveitina, að hún
hefði enn einu sinni sýnt fram á
hæfni sína, þegar hún tókst á hend-
ur björgunarflugið til að bjarga Ey-
þóri Garðarssyni, sem barðist fyrir
lífi sínu á Svanborgu SH.
Javier Casanova flugstjóri í þyrlu-
björgunarsveitinni veitti viðurkenn-
ingunni viðtöku með þakkarorðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugliðar í þyrlubjörgunarsveit Varnarliðsins með forstjóra Landhelgisgæslunnar. F.v. Javier Casanova, Mike
Garner, Hafsteinn Hafsteinsson, Jeremy Miller, Bill Yeu og Jay Lane.
Sýndi enn einu sinni hæfni sína
GERT er ráð fyrir að Landhelgis-
gæslan taki nætursjónauka í notkun
haustið 2002, en heildarkostnaður
vegna þess er áætlaður um 30 millj-
ónir króna og er söfnun í gangi til að
standa undir honum.
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, segir að und-
anfarin tvö ár hafi verið reynt að fá
fjárveitingu frá Alþingi til að kaupa
nætursjónauka, en það hafi ekki
gengið. Hann segir að heildarkostn-
aður vegna 6 til 7 nætursjónauka, til-
heyrandi hjálma, breytinga á ljósa-
búnaði þyrlanna og þjálfunar starfs-
manna sé um 30 milljónir króna og
þar sem ekki hafi fengist fjárveiting
hafi hann hafið söfnun vegna málsins
í haust, því um sé að ræða mikið
kappsmál. Þegar hafi fengist 13 millj-
ónir úr þyrlu- og björgunarsjóði Sjó-
mannaskóla Íslands og farið hefði
verið fram á það við aðra að leggja
málinu lið.
Að sögn Hafsteins Hafsteinssonar
er erfitt að fá þessi tæki og auk þess
þurfi sérstakt leyfi erlendis frá. Sjón-
aukarnir séu samt komnir í hús en nú
þurfi að huga að því að fá tilboð í að
breyta þyrlunum og þar megi gera
ráð fyrir 10 til 11 milljóna króna
kostnaði.
Allir í hverri fimm manna áhöfn
verða að hafa sjónauka
Eins sé búið að panta hjálmana og
síðan þurfi áhafnirnar að fara á sér-
stök námskeið, en allir í hverri fimm
manna áhöfn verði að hafa þessa
sjónauka, þegar ákveðið hafi verið að
nota þá í tiltekinni ferð.
Hafsteinn Hafsteinsson segir að
sjónaukarnir komi ekki aðeins að not-
um við björgun heldur alla leit og
auki öryggið til muna, m.a. í sjónflugi
í myrkri yfir landið.
Hafsteinn Hafsteinsson segir að til
þessa hafi söfnunin fyrst og fremst
beinst að þeim sem sé málið sérstak-
lega hugleikið en hugað verði að al-
mennri söfnun, fáist ekki nægir pen-
ingar öðruvísi. Hann segir að
söfnunin sé óvanalegt og tímafrekt
starf en um mjög mikið nauðsynjamál
sé að ræða og hann treysti á að sjón-
aukarnir verði komnir í gagnið næsta
haust. Ljóst sé að þjálfunin taki
drjúgan tíma og ekki verði farið af
stað fyrr en allt og allir verði tilbúnir.
Hann segir ennfremur að þegar ný
tæki séu tekin í notkun verði að
reikna með kostnaði og Landhelgis-
gæslan verði að fá fjárveitingu til að
standa undir nauðsynlegum kostnaði
en ekki hafi verið tekið tillit til aukins
rekstrarkostnaðar vegna nýrrar
þyrlu Gæslunnar.
Gæslan safnar fyrir
nætursjónaukum
Heildarkostn-
aður um 30
milljónir króna
ÞRJÁR flatir á golfvelli Golfklúbbs
Reykjavíkur í Grafarholti eru
skemmdar eftir að vélsleðum var
ekið yfir þær fyrir skömmu. Þá
hafa kylfingar kvartað undan hjól-
förum eftir jeppa á golfvellinum
við Korpúlfsstaði.
Gísli Páll Jónsson, vallarstjóri á
Grafarholtsvelli, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta hefði gerst
þegar snjór huldi brautirnar fyrir
skömmu. Svo virðist sem vél-
sleðamennirnir hafi notað brekk-
urnar upp að flötunum til að láta
sleðana stökkva og urðu talsverðar
skemmdir eftir belti vélsleðanna á
flötunum á brautum 4 og 8 og á efri
púttflötinni við golfskálann. Gísli
segir erfitt að meta hversu langan
tíma þurfi til að gera við flatirnar,
það komi í raun ekki í ljós fyrr en í
vor. „Það getur tekið heilt sumar
og jafnvel lengur að laga þetta.“
Vélsleðamenn hafa einnig farið
um Vífilsstaðavöll í Garðabæ. Þar
eru ummerki eftir vélsleða á þrem-
ur flötum en skemmdirnar eru
sýnu mestar á einni þeirra. Völl-
urinn var að mestu ófrosinn þegar
hann fór undir snjó og grassvörð-
urinn því viðkvæmur. Guðmundur
Gunnarsson, vallarstjóri Golf-
klúbbs Kópavogs og Garðabæjar,
segir slíka háttsemi algerlega óþol-
andi. Hæglega sé hægt að eyði-
leggja margra ára vinnu á auga-
bragði með því að aka vélsleðum
yfir flatirnar. „Okkur er meinilla
við svona heimsóknir,“ sagði Guð-
mundur. Flatirnar hafa nú verið
girtar af til að koma í veg fyrir
frekari skemmdir á þeim.
Umferð vélsleða og bifreiða um
golfvellina er að sjálfsögðu bönn-
uð.
Vélsleðamenn valda
skemmdum á golfvöllum
Morgunblaðið/Ásdís
Gísli Páll Jónsson við beltafar
eftir vélsleða á Grafarholtsvelli.
HÁMARKSGREIÐSLA fyrir
hverja komu til sérfræðilæknis, sem
verið hefur 6.000 kr. frá árinu 1999,
fellur niður um áramótin samkvæmt
nýrri reglugerð heilbrigðisráðuneyt-
isins. Þetta þýðir m.ö.o. að hlutur
sjúklings getur orðið hærri en sex
þúsund kr. fyrir hverja komu til sér-
fræðilæknis eftir áramót.
Að sögn Jóns Kristjánssonar heil-
brigðisráðherra er þetta liður í þeim
sparnaði sem heilbrigðisráðuneytinu
bar að leggja til samkvæmt fjárlög-
um næsta árs. „Ég stóð frammi fyrir
því að skera niður þjónustu eða afla
tekna á einhverjum sviðum,“ segir
ráðherra þegar hann er inntur eftir
skýringum á þessum breytingum.
Eftir sem áður gildir sú regla að
menn fá afsláttarkort þegar saman-
lagður kostnaður vegna læknisheim-
sókna á almanaksrárinu nær til-
teknu hámarki.
Almenna reglan er sú að menn fá
afsláttarkort þegar samanlagður
kostnaður vegna læknisheimsókna
nær 18 þúsund kr. Eftir það greiðir
viðkomandi sjúklingur einn þriðja af
þeim kostnaði sem hann hefði ella
þurft að greiða. „Þetta þýðir til
dæmis að sjúklingur sem kominn er
með afsláttarkort og sækir sérfræði-
lækni sem rukkar samkvæmt gild-
andi gjaldskrá 10.800 kr. fyrir unnið
læknisverk greiðir lækninum 1.960
krónur, en hefði án afsláttarkortsins
greitt honum 5.400 krónur. Mismun-
inn í báðum tilvikum fær læknirinn
greiddan frá Tryggingastofnun rík-
isins,“ að því er fram kemur á heima-
síðu ráðuneytisins.
Elli- og örorkulífeyrisþegar fá
hins vegar afsláttarkort þegar sam-
anlagður kostnaður vegna læknis-
heimsókna er orðinn 4.500 kr. og
barnafjölskyldur fá afsláttarkort
þegar kostnaður vegna læknisheim-
sókna barna er orðinn 6.000 kr.
Komur sjúklinga til sérfræðilækna
Hámarks-
greiðslur falla
niður um áramót
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær nokkrar tilögur að úr-
bótum í málefnum veitingahúsa
borgarinnar. Tillögurnar eru byggð-
ar á skýrslu vinnuhóps borgarstjóra
og lögreglustjóra í Reykjavík þar
sem m.a. þarf að breyta lögreglusam-
þykktum og verklagi Borgarskipu-
lags og Heilbrigðiseftirlits.
Meðal þeirra breytinga sem borg-
arráð leggur til að gera á lögreglu-
samþykkt er að banna einkadans á
nektarstöðum. Þar er einnig kveðið á
um að „sýning verði að fara fram í
nægilega rúmgóðu húsnæði, þannig
að gott rými sé á milli sýnenda og
áhorfenda og að miðað verði við
ákveðinn metrafjölda í því sambandi.
Jafnframt verði sýnendum bannað að
fara um meðal áhorfenda.“
Skrifstofu borgarstjóra hefur ver-
ið falið að móta frumvarp að breyt-
ingum á lögreglusamþykktinni í sam-
ræmi við tillögurnar, í síðasta lagi
fyrir 1. febrúar nk. Þær lúta einnig
að breytingum á notkun húsnæðis,
hávaðamörkum og bættri umgengni
og þrifum við veitingastaðina.
Af öðrum tillögum sem borgarráð
samþykkti má nefna að við endur-
skoðun deiliskipulags fari fram sjálf-
stætt mat á því hvers konar tegund
veitingarekstrar samræmist fyrir-
hugaðri eða núverandi starfsemi á
viðkomandi deiliskipulagsreit. Þá er
lagt til við Heilbrigðiseftirlit að heim-
ild veitingastaða til útiveitinga verði
bundin því skilyrði að umgengni á og
við staðinn sé með viðunandi hætti.
Borgarráð vill
banna einkadans
LEIT að skipverjunum tveim-
ur sem saknað er af Svanborgu
SH skilaði ekki árangri í gær.
Gengnar voru fjörur frá Arn-
arstapa til Rifs og einnig fóru
björgunarsveitarmenn frá
Vestfjörðum til leitar á fjörum
á Rauðasandi, frá Keflavíkur-
bjargi til Brjánslækjar.
Ekki var unnt að leita skipu-
lega af sjó vegna veðurs, en
skip og bátar sem voru úti við
veiðar hafa fylgst með haf-
svæðinu í kringum Snæfells-
nes. Um tuttugu björgunar-
sveitarmenn tóku þátt í leitinni
í gær og verður henni haldið
áfram í dag, miðvikudag.
Tveggja
enn saknað