Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 27
ÍMYND bankaræningjans, „band-
itans“, hefur löngum verið framsett í
rómantísku ljósi í bandarískri sagna-
hefð. Ræninginn sem stelur pening-
um ríkisbubbanna og skýtur réttvís-
inni ref fyrir rass er hetjuímynd
náskyld hinum evrópska Hróa Hetti
og öðrum útlögum á undan honum.
Sögur sögufrægra ræningja villta
vestursins og skáldsagnapersóna í
þeirra anda eru skráðar í þjóðsagna-
arf landsins og hafa orðið vestrahefð
hvíta tjaldsins drjúg sagnaupp-
spretta.
Til þessarar hefðar skírskotar
nýjasta kvikmynd Barrys Levin-
sons, sem fjallar um fjóra útlaga sem
fara rænandi og ruplandi um
smábæi í Ameríku og öðlast áður en
yfir lýkur nafnbótina „Gistiræningj-
arnir – farsælustu bankaræningjar
Ameríku“. Einn þessara útlaga er
reyndar sjálfskipaður, en það er
óhamingjusama húsfrúin Kate (Cate
Blancett, sem slæst í hópinn með
flóttaföngunum Joe (Bruce Willis)
og Terry (Billy Bob Thornton), eftir
að hún fær sig fullsadda af því að
vera tilfinninga- og vitsmunalega
vanrækt puntudúkka í glæsilegu
húsi eiginmanns síns. Þeir Joe og
Terry hafa þá þegar hafið farsælan
bankaránsferil, sem byggist á því að
ræna bankastjóranum kvöldið fyrir
ránið og láta hann opna fyrir sig
bankann að morgni. Þessa iðju tóku
félagarnir upp eftir að hafa sloppið á
steypubíl úr fangelsi og njóta þeir í
ránunum liðsinnis hins vitgranna
frænda Joe.
Þessi stjörnum prýdda stórmynd
er hin allra besta skemmtun. Hún
rambar á mörkum spennumyndar og
gamanmyndar og vinnur óvænt á í
gamanseminni eftir því sem á líður.
Sjálf ræningjasagan er mátulega
geggjuð en það er í persónusköpun-
inni sem myndin nær á stundum
miklu flugi. Miðpunktur þess gam-
ans er ofurmóðursjúk persóna Terr-
ys sem Billy Bob Thornton leikur af
stakri snilld. Á tímabili snýst sagan
upp í hreinan farsa og fer Billy Bob á
kostum í spunakenndri túlkun sinni
á hinum karlmennskukomplexeraða
Terry.
En sem fyrr segir er það þessi
gamansemi (með góðum leik og fínni
kvikmyndatöku) sem gefur mynd-
inni hvað mest gildi, sem að öðru
leyti segir kunnuglega afrekasögu
stórsnjallra ræningja.
„Þessi stjörnum prýdda stórmynd er hin allra besta skemmtun.“
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn
Leikstjóri: Barry Levinson. Handrit: Har-
ley Peyton. Kvikmyndataka: Dante Spin-
otti. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Cate
Blanchett, Billy Bob Thornton, Troy Gar-
ity. Sýningartími: 124 mín. Bandaríkin.
MGM, 2001.
BANDITS (RÆNT OG RUPLAÐ) ½
Heiða Jóhannsdóttir
Taugaveiklaði
bankaræninginn
Í BYRJUN hljómaði einleiks-
konsert í d-moll fyrir óbó og
strengjasveit op. 9 nr. 2 eftir fen-
eyska barokktónskáldið Thomas
Albinoni. Adagioið fræga eftir Albi-
noni er það verk sem hefur haldið
tónskáldinu á topp tíu vinsældalista,
„hitt í mark“, sígildra tónverka á
fjölþjóðasölutorgi. En færri vita hve
afkastasamt og áhrifamikið tón-
skáld Albinoni var og er hann þar í
slagtogi með löndum sínum Corelli
og Vivaldi. Albinoni hafði mikið dá-
læti á óbóinu, eins og fjölmargir
einleikskonsertar fyrir óbó sanna,
sem má finna í flokkum merktum
op. 7 og op. 9. Það er raunar ekkert
skrýtið að óbóið sem hefur þessi
sterku sérkenni, tón sem í senn er
hrjúfur og blíður, alþýðulegur og
fyrirmannlegur, og hefur án efa
miðað við veikari hljóm hljóðfæra á
þessum tíma verið mjög afgerandi í
styrk. Þessa eiginleika óbósins
kunni Bach vel að meta. D moll
konsertinn er í þremum þáttum
eins og títt var um barokkkonserta
og hraðaforskrift dæmigerð, þ.e.
hraður – hægur – hraður. Það sem
öðru fremur einkennir vandaðan
hljómsveitarflutning barokkverka
er gott hraðaval, ríkulegar styrk-
leikabreytingar og samræmd hend-
ingamótun. Fyrstu taktar verksins
voru ekki nógu vel samhæfðir í
strengjasveitinni og undirbjuggu
ekki nógu vel innkomuna fyrir ein-
leikarann. Gunnar Þorgeirsson lék
af öryggi og var túlkun og hend-
ingamótun einkar fagmannleg.
Stundum fannst mér á skorta að
hljómsveitin tæki upp innri mótun
hendinga eins og Gunnar hafði svo
ágætlega útfært. Styrkleikabreyt-
ingar fannst mér ekki nægar, sér-
staklega var áberandi að hljóm-
sveitin lék stundum of sterkt á móti
einleikaranum. Svo fannst mér að
skorti á lyftingu í styrkleika á móti
löngum óbótónunum í hæga þætt-
inum. Í heild var flutningurinn ekki
nógu afgerandi og sannfærandi, og
trúlega hefði verkið þarfnast meiri
slípunar. Gunnar Þorgeirsson er
góður óbóleikari og gladdi leikur
hans áheyrendur vel. Þau sex jóla-
lög sem næst voru á efnisskránni
hafði Guðmundur Óli útsett fyrir
barnakóra og hljómsveit. Lögin
voru Hátíð fer að höndum ein,
Skreytum hús með greinum græn-
um, María í skóginum, Á jólunum
er gleði og gaman, Þá nýfæddur
Jesús og lag Jórunnar Viðar, Það á
að gefa börnum brauð. Það ein-
kennir allar útsetningar Guðmund-
ar Óla hvað hann þekkir vel sér-
kenni hljóðfæra hljómsveitarinnar,
sem hann beitir af markvissri
smekkvísi. Einnig verður einföld
notkun slagverks á viðeigandi stöð-
um bragðbætandi krydd sem styrk-
ir merkingu orða og frásagnar
kvæðanna. Einnig verður söngur
barnanna einlægur, glaður og
óþvingaður, þar sem þau fá oftast
að syngja laglínurnar af hjartans
lyst. Barnakórar Lundarskóla og
Brekkuskóla á Akureyri komu Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands til
ómissandi aðstoðar í jólalögunum
og sú barnslega einlægni og gleði
sem barst með söng þeirra lét eng-
an ósnortinn. Kórarnir eru vel skip-
aðir og hefur tekist vel til með þjálf-
un þeirra í að syngja hreint, með
fallegum raddblæ og skýrri fram-
sögn. Í lögum sem voru tvírödduð
skorti á dekkri raddblæ og meiri
brjósttónsblæ, en raddupplag
barnanna er ágætt. Stórnendur
barnakóranna voru kallaðir fram í
lokin, en þeir eru Elínborg Lofts-
dóttir í Lundarskóla og Arnór Vil-
bergsson í Brekkuskóla. Flutningur
jólalaganna færði okkur tvímæla-
laust nær jólum í sannri og einlægri
gleði. Að loknu hléi var nýtt tón-
verk eða tónaævintýr frumflutt.
Ævintýrið heitir Rigning í himna-
ríki eftir Þórarin Hjartarson, en
bráðskemmtilega tónlist við það
samdi John Speight. Verkið er að
hætti margra tónævintýra, þar sem
sögumaður segir fram texta og
hljóðfærin undirbyggja söguna með
eftirlíkingu af hljóðum úr söguum-
hverfinu og undirstrika stemmingu
vissra atburða með sjálfstæðum
stefjum og lögum. Sagan er sára-
einföld og fjallar raunar um þetta
vandamál sem við þekkjum svo vel
þessa dagana, þegar vatnselgur og
rigning ógnar jólunum í stað lognd-
rífunnar, sem við gjarnan viljum
hafa. Munurinn er þó sá að það er
fiðrið í vængjum englanna í himna-
ríki sem þolir illa vætuna og gerir
þeim erfitt fyrir að fljúga, sem er
auðvitað hið versta mál rétt fyrir
jólin. Hjörleifur er
snjall á mörgum svið-
um og í þessari ein-
földu og átakalitlu
sögu sýnir hann mik-
ið hugarflug, ríka til-
finningu fyrir drama-
tískri framvindu og
einstakan frásagnar-
hæfileika. Sögunni
var mjög vel komið til
skila af Arnóri Ben-
ónýssyni með hans
góðu rödd og ríkum
blæbrigðum. Tónlist
John Speight hittir
einnig í mark. Tón-
mál hans er þekkt úr
slíkum tónaævintýr-
um en átti vel við hér
og klarinettið var þarna staðgengill
engilsins Benedikts, aðalpersónu
ævintýrisins, og var ágætlega leikið
af Birni Leifssyni. John Speight
vitnar í þekkt jólalög, bæði Oss
barn er fætt og Þá nýfæddur Jesús.
Einnig í tékkneska lagið Komið þið
hirðar, sem hljómar allt í lokin með
hljómsveitinni fullleikandi þegar
Benedikt engli tekst á ævintýra-
legan hátt að ná tímanlega á jóla-
skemmtunina í himnaríki. Synd að
þessir tónleikar skuli ekki verða
endirteknir víðar um landið börnum
til gleði og ekkert síður til að vekja
barnið í brjósti okkar sem erum oft
of fullorðin.
Englafiður þolir
illa rigningu
TÓNLIST
Akureyrarkirkja
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flutti:
Óbókonsert eftir Albinoni, sex jólalög í
útsetningu Guðmundar Óla Gunn-
arssonar fyrir barnakóra og hljómsveit,
og Rigningu í himnaríki, nýtt tónverk eft-
ir John Speight við ævintýri Hjörleifs
Hjartarsonar. Einleikari á óbó var Gunnar
Þorgeirsson. Sögumaður var Arnór Ben-
ónýsson. Barnakórar Lundarskóla og
Brekkuskóla á Akureyri fluttu jólalögin.
Konsertmeistari var Gréta Guðnadóttir.
Stjórnandi var Guðmundur Óli Gunn-
arsson. Laugardaginn 8. desember, kl
17.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Hjörleifur
Hjartarson
John
Speight
Jón Hlöðver Áskelsson
Nú geta fríkortshafar borga›
me› punktum á Netinu...
- Njóttu flinna gó›u punkta á www.frikaup.is
Kynntu flér úrvali›
fiú grei›ir me› frípunktum
Einfalt og flægilegt