Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 54
DAGBÓK 54 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Arn- arfell, Laugarnes, Sel- foss og Esther koma í dag. Goðafoss og Hauk- ur fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss fer frá Straumsvík í dag. Fréttir Bókatíðindi 2001. Núm- er miðvikudagsins 12. des. er 96256. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551-4349, flóamark- aður, fataúthlutun og fatamóttaka, sími 552- 5277, eru opin miðvikud. kl. 14–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og postulíns- málning. Kl. 10 versl- unarferð í Hagkaup, kaffiveitingar í boði Hagkaupa. Skráning í afgreiðslu s. 562-2571, kl. 13 vinnustofa og postulínsmálning. Jóla- kvöldverður verður föstud. 14. des. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Allar uppl. í s. 535-2700. Opið hús verður miðvikud. 12. des. kl. 20. Jólabingó verður föstud. 14. des. kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur, kl. 13– 16 vefnaður, kl. 14 dans. Jólatrésskemmtun verð- ur föstud. 14. des kl. 14. Skráning í s. 568-5052 fyrir 13. des Allir vel- komnir. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga föstudaga kl. 13.30. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9– 16.45 hárgreiðslu- og handavinnustofur opnar, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Miðvikud.: Göngu-Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Söng- félag FEB, kóræfing kl. 17. Línudanskennsla kl. 19.15. Bridsnámskeið kl. 19.30. Fimmtud.: Brids kl. 13. Jólaferð verður farin um Suðurnesin 17. desember. Brottför kl. 15. Skráning hafin. Skrifstofan er flutt að Faxafeni 12, sama síma- númer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Uppl. á skrifstofu FEB. kl. 10– 16 s. 588-2111. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Miðvikud. 12. des.: Lögreglan í Garða- bæ býður í árlega ferð. Farið verður í Svarts- engi. Rútur frá Kirkju- hvoli og Holtsbúð kl. 13. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Línudans kl. 11, kl. 13.30. Á morgun verður pútt í Bæjarútgerðinni kl. 10. Í Hraunseli verð- ur opið hús, „Jóla- fundur“ kl. 14. Jóla- dagskrá, jólakaffi og happdrætti. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, postulín, mósaík og gifsafsteypur, kl. 9– 13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Opið alla sunnu- daga frá kl. 14–16, blöðin og kaffi. Félagsstarfið Furu- gerði. Kl. 9 bókband og alm. handavinna, kl. 10.15 leikfimi, kl. 14 jóla- bingó. Allir velkomnir. Kaffiveitingar eftir bingó. Nk. föstudag verður messa kl. 14. Prestur sr. Ólafur Jó- hannsson, Furugerð- iskórinn syngur undir stjórn Ingunnar Guð- mundsdóttur. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spila- salur opinn, myndlist- arsýning Bryndísar Björnsdóttur stendur yfir. Jólastemmning í öllu húsinu. Veitingar í veitingabúð. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 10–17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Söngfuglarnir taka lagið kl. 15.15. Guð- rún Lilja mætir með gít- arinn. Jólahlaðborð verður fimmtud. 13 des og hefst með borðhaldi kl. 12. Tilkynna þarf þátttöku í s. 554-3400 eða 554-6611 fyrir kl. 17 í dag. Gullsmári Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05, leikfimi kl. 13, keramik- málun Búnaðarbankinn með þjónustu í Gull- smára kl. 10, boccia kl. 14. Aðventukaffi. kl. 14. Föstud. 14. des verður jólahlaðborð. Þátttöku þarf að skrá í síðasta lagi fyrir kl. 16 fimmtud. 13. des. í s. 564-5260. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. . Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndurklippi- myndir, kl. 13.30, göngu- ferð, kl. 15 teiknun og málun, kl. 15. dans. Fót- snyrting, hársnyrting. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. hittast á morgun 13. des. kl. 10 í keilu í Mjódd. Spiluð keila og spjallað. Allir velkomnir. Nánari uppl. veitir Þráinn, s. 5454-500. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Spil falla niður í dag. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15– 16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13– 16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fóta- aðgerðir, morgunstund, bókband og bútasaumur, kl. 12.30 verslunarferð, kl. 13 handmennt og kóræfing, kl. 13.30 bók- band, kl. 15.30 kóræfing. Spiluð verður félagsvist fimmtudaginn 13. des. kl. 20. Félagsstarf aldraðra Bústaðakirkju. Kl. 13 jólavaka með hefð- bundnum hætti. Súkku- laði og pakkar. Þeir sem viljið láta sækja sig, látið kirkjuvörð vita í s. 553-8500, eða Sigrúnu s. 864-1448. Púttklúbbur Ness. Meistaramót karla og kvenna verður í tenn- ishöllinni fimmtudaginn 13. des. kl. 13. Einnig verður aðalfundur fé- lagsins. Öldungaráð Hauka. Jólafundurinn er mið- vikudaginn 12. des. á Ás- völlum og hefst kl. 20. Sænska félagið á Íslandi heldur upp á Lúsíuhátíð fimmtud. 13. des. kl. 9 í Norræna húsinu og kl. 20 í Seltjarnarneskirkju. Lúsíukórinn er undir stjórn Mariu Cederborg, píanóundirleikur Ari Agnarsson. Hallgrímskirkja, eldri borgarar opið hús í dag kl. 14–16. Bílferð fyrir þá sem þess óska upp- lýsingar í s 510-1034 og 510-1000. Verið velkom- in. Á.H.M. Fundur verður haldinn fimmtudaginn 13. des. í veislusal, Haukahússins á Ásvöll- um, Hafnarfirði. Húsið opnar kl. 20. Þórhallur miðill verður með skyggnilýsingu kl. 20.30. Miðar seldir við inn- ganginn. Allir velkomn- ir. Í dag er miðvikudagur 12. des- ember, 346. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Þolgæðis hafið þér þörf, til þess að þér gjörið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið. (Hebr. 10, 36.) Víkverji skrifar... EITTHVAÐ virðist hugmynda-auðgi þáttastjórnenda ríkis- sjónvarpsins vera að dala, að mati Víkverja. Að minnsta kosti hefur verið rætt við sama fólkið í nokkrum tilvikum í einum þremur þáttum að undanförnu. Víkverji hlýddi þannig nýverið á þau Svölu Björgvinsdóttur, Gísla Rúnar Jónsson og Björgvin Hall- dórsson í Kastljósi. Var þetta ágætt spjall í laufléttri föstudagsstemmn- ingu Kastljóss. Tilefnið var m.a. út- koma bókar Gísla Rúnars um Björg- vin og þau feðginin hafa einnig sent frá sér plötur. Viku síðar mátti heyra þá Björgvin og Gísla Rúnar hjá Steinunni Ólínu og flutti Björgvin að auki eitt laga Megasar. Gott ef þeir voru ekki líka í enn einum þætti en það veit Víkverji reyndar ekki svo gjörla. Þetta var til umræðu við sjón- varpsáhorfanda sem nefndi að söng- fuglinn ungi, Jóhanna Guðrún, hefði einnig verið í viðtölum í fleiri en ein- um þætti. Þetta getur svosem verið gott og blessað en er þetta samt ekki fullmikið? Meiningin er líklega sú að hver þáttur hafi sinn áhorfenda- og aðdáendahóp og því sé ólíklegt að sá sem sér Kastljós sjái líka Mósaík. Víkverja rennir nú í grun að þeir sem á annað borð horfa á eitthvað af þessum þáttum horfi á fleiri en einn og því sé þetta þeim nokkur endur- tekning. Er ekki vandlifað í litlu landi? x x x HVERJIR skoruðu? spurði einnknattspyrnusérfræðingurinn starfsbróður sinn þegar þeir ræddu leik sem sá fyrrnefndi hafði misst af í sjónvarpinu. Nú, var hann með? Ég hélt að hann væri með slitið liðband, sagði hinn. Í spjallinu sem á eftir fylgdi ræddu þeir leikinn lið fyrir lið, mistökin og markaregnið. Af og til skaut sá sem hlustaði inn athuga- semdum á borð við: Þetta var eins og í leiknum gegn Liverpool eða er þetta ekki sama klúðrið og þegar þeir spiluðu við Arsenal? Víkverji komst ekki hjá því að heyra þessar samræður fótboltavitr- inganna og dáist undir niðri að þeim. Þeir geta metið frammistöðu manna sinna, farið yfir leikinn aftur og aftur eins og skák- og bridsfólk gerir þeg- ar það hefur tapað. Þeir lýsa vand- lætingu og hneykslan eða vellíðan og hamingju eftir því hvernig gengið hefur. Er helst að heyra að þeir mæti ekki í vinnuna næsta dag ef illa hefur farið. Þeir hafa líka öll nöfn liðs- manna á takteinum, aðalmanna sem varamanna, fyrrverandi manna og jafnvel þeirra sem hugsanlega er verið að kaupa. Víkverji er nú þannig innréttaður að hann man ekki önnur nöfn en þeirra Pele, Hemma Gunn, George Best og Maradona eða Madonna og veit ekki hver var hvað. Enda sefur hann nokkuð ótruflaður af gengis- sveiflum í fótbolta. Og ekki reynir hann að blanda sér í þessar viðræður sérfræðinganna. Leyfir sér hins veg- ar að horfa á stöku leik. En honum er alveg sama hver skorar. Og líka fyrir hvern það er. Eða hverjir spila, Wal- es, Westham eða Debenham eða – nei, eitthvað var þetta nú vitlaust – líklega best að setja punktinn hér. x x x ÞEGAR einu sinni er búið aðklúðra verki gerir hvað sem gert er til þess að bæta það bara illt verra. Er ekki nokkuð til í þessu hjá Murphy nokkrum sem áður hefur komið við sögu hjá Víkverja? Þitt brjóst af ekka bifast nótt og dag en böl og harm þú segir Drottni einum er sér og þekkir sinna barna hag og sérhvert telur andvarp þitt í leynum; þú laugar blíðu börnin þín í tárum sem böls í hríðum leynir harmi sárum. Þú veist það glöggt að vísdómsráðin hans – ef vel er skoðað – miða til hins besta, þótt á því verði auga dauðlegs manns svo afar torvelt rétta sjón að festa en góða mær! þinn andi’ er hafinn hærra þín hugsjón þekkir ljósið öllu skærra. En völdin heims, sem dilla sér svo dátt ef dug ei skortir sérhvern órétt bannar þau hljóta að sjá þú eftir málin átt það allrar þjóðar réttur með þér sannar við skulum ætla að skuldin verði goldin, sem skýlaust ber þér greiði móður foldin. En réttur sá, sem ofar jörðu er og engin flærð né lyga innlegg blindar í réttri mynd hann málefni þitt sér og metur hegning rétt að virðing syndar því það er víst að hann vill réttinn halda, sem hefur talað: „Ég skal endurgjalda.“ Æ, grát þú ekki, athvarf traust þú átt, þótt einmana þú sért með börnum þínum, hann huggar þig sem hefur vilja og mátt, og hætt er síst að gleymi börnum sínum, sú kemur stund að gjörvöll gróa sárin, og gleðisólin þerrar harmatárin. Sighvatur Gr. Borgfirðingur. Kalli er beðinn að hringja KALLI sem fann GSM- símann í Hafnarfirði er beðinn að hafa samband í síma 555-2980. Tapað/fundið Púði í óskilum PÚÐI úr sófasetti fannst á mótum Lækjargötu og Hringbrautar í Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 555- 2614. Svört loðhúfa týndist SVÖRT loðhúfa með áföst- um trefli týndist föstudag- inn 30. nóv., sennilega í Skipholti eða við Háaleitis- braut. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 568-5105. Leðurjakki týndist BRÚNN leðurjakki, hálf- síður, úr Zöru, auðþekkjan- legur, týndist á Kaffi Vikt- or í sumar. Skilvís finnandi hafi samband í síma 893 0400. Dýrahald Týri er týndur KÖTTURINN Thyri, 21 árs, fór að heiman frá sér, Kambsvegi 36, að morgni 8. desember sl. Hann er svartur og hvítur og með lélega ól. Þeir sem hafa orð- ið varir við hann hafi sam- band í síma 553-2543. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Til ekkjunnar Solveigar Þórðardóttur LÁRÉTT: 1 forhengi, 4 afturelding, 7 púkans, 8 dægur, 9 for- skeyti, 11 svelgurinn, 13 vaxi, 14 eykst, 15 sterk, 17 reykir, 20 agnúi, 22 aula, 23 dínamó, 24 aldna, 25 lestrarmerki. LÓÐRÉTT: 1 skýrði frá, 2 áana, 3 stynja, 4 slór, 5 megnar, 6 næstum, 10 starfsvilji, 12 tek, 13 tímgunarfruma, 15 slæpt af drykkju, 16 dýrahljóð, 18 legubekkj- um, 19 munntóbak, 20 álka, 21 öngul. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 sædjöfull, 8 folar, 9 lyfta, 10 tía, 11 sárna, 13 rýran, 15 stáss, 18 jagar, 21 lóa, 22 knapa, 23 tinna, 24 miskunnar. Lóðrétt: 2 ætlar, 3 jurta, 4 fúlar, 5 lofar, 6 ofns, 7 bann, 12 nes, 14 ýsa, 15 sekk, 16 álagi, 17 slark, 18 jatan, 19 gunga, 20 róar. K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Ljóð þetta fann ég á síðasta ári innan um bréf úr fórum Solveigar lang- ömmu minnar og var ekki vitað um tilvist þess. Blaðið er mjög snjáð og illa farið en Solveig hef- ur greinilega lesið það oft og geymt það vel og litið á það sem sitt einka- mál. Og svo leynt hefur hún farið með blaðið að börn hennar vissu ekki af því. Síðastliðinn laugardag var fluttur ágætur þáttur Halldóru Friðjónsdóttur á rás eitt um þessa at- EFTIRFARANDI hugg- unarljóð sendi sá kunni dýrfirski fræðimaður Sighvatur Grímsson Borgfirðingur Solveigu Þórðardóttur, ekkju Jó- hannesar Guðmunds- sonar á Bessastöðum. Jó- hannes fórst ásamt bróður Solveigar Jóni frá Meira-Garði og unglings- pilti, Guðmundi Jónssyni frá Bakka, við tilraun Hannesar Hafstein sýslu- manns til uppgöngu í breska landhelgisbrjót- inn Royalist á Dýrafirði 10. október 1899. burði. Þátturinn heitir „Ekkjan og yfirvaldið“ en hann verður end- urfluttur nú í vikunni. Af því tilefni langar mig til þess að koma þessu merkilega ljóði á fram- færi en það hefur ekki birst áður. Í ljóðinu kemur vel fram skoðun heima- mannsins á því hverjum beri að bæta henni tjón- ið, íslensk yfirvöld, en í þeirra nafni var haldið út að togaranum. Arinbjörn Vilhjálmsson. Ekkjan og yfirvaldið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.