Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 17
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 17 EMILÍA Dröfn Jónsdóttir, eigandi Jazzdansskóla Emilíu í Keflavík, mun setja upp söngleikinn Annie í tilefni af tíu ára afmæli skólans sem verður í janúar næstkomandi. Emilía hefur kennt dans í 21 ár. Hún hóf nám í Jazzballettskóla Báru þegar hún var þrettán ára og kenndi svo sjálf við skólann frá átján ára aldri til tuttugu og eins árs. Jazzdansskólann stofnaði hún árið 1991 og hafa vinsældir hans aukist ár frá ári síðan, en nú eru nálægt 100 nemendur við skólann. Sextíu börn taka þátt í uppsetningunni Ég hef sett upp nemendasýn- ingar á hverju ári allt frá stofnun skólans. Fyrst voru þær haldnar í Félagsbíói, en eftir að því var breytt í matvöruverslun hef ég fengið afnot af Frumleikhúsinu. Jón Marinó Jónsson ætlar að leik- stýra söngleiknum Annie fyrir Em- ilíu: „Hann er fullur af krafti og áhuga þannig að það er mjög gam- an að vinna með honum,“ segir Emilía brosandi og bætir því við að þau stefni að því að verða klár með sýninguna í mars eða apríl á næsta ári. „Við erum enn á byrjunarstigi með uppsetninguna, en við not- umst við eldri útgáfuna af söng- leiknum. Við erum búin að hlusta á söngprufur allra þeirra sextíu krakka sem koma til með að taka þátt í uppsetningunni, því við erum að leita að hinni réttu Annie. Við erum þó ekki búin að taka end- anlega ákvörðun um það enn hver verður í aðalhlutverkinu, en þau stóðu sig öll alveg ótrúlega vel í prufunum.“ Emilía hefur sett upp fjölda sýn- inga í gegnum tíðina, nefna má Karnival dýranna og Bestu sjopp- una í bænum, með tónlistarskóla Reykjanesbæjar, en auk þess samdi hún dansana við leikritið Stæltir stóðhestar fyrir Leikfélag í Keflavíkur. Uppsetningin var valin sú besta af áhugaleikfélagi það ár- ið. Þá setur hún árlega upp sýn- ingar með nemendum Njarðvík- urskóla fyrir árshátíðir þeirra. Ferðast um heiminn Emilía hefur sjálf lifað og hrærst í dansi allt frá því hún var þrettán ára gömul og tók meðal annars þátt í fjölda sýninga á Hót- el Sögu þegar hún var í Jazzball- ettskóla Báru. Þá voru valdir dans- arar þaðan til að setja upp sýningar og var Emilía oftast í sólóhlutverkum. Árið 1985, þegar hún var 21 árs ákvað hún að breyta til og fór sem „au pair“ til New Haven í Con- necticut-ríki í Bandaríkjunum. „Þar komst ég inn í dansflokk sem heitir Dans Theatre Production og dansaði með honum í þá 13 mánuði sem ég var í Bandaríkjunum,“ seg- ir Emilía, en í stað þess að fara heim eftir dvölina, ákvað hún að breyta flugmiðanum sínum og fara beint til London. „Ég fékk vinnu í ferðamannaverslun í Oxfordstræti og sótti danstíma í Pineapple, en það er alhliða dansstúdíó. Þangað hafði ég komið nokkrum sinnum áður þegar ég var í Jazzball- ettskóla Báru.“ Emilía fór loks heim um jólin 1986, en dvaldi þó aðeins í tvo mánuði hérlendis: „Mér og vinkonu minni, Sigrúnu Ægisdóttur, bauðst að fara til München til að vera dansarar og bakraddasöngkonur fyrir þýska söngkonu sem var gift Íslendingi. Við bjuggum þennan tíma í München og ferðuðumst um Þýskaland og til Austurríkis að sýna,“ segir Emilía og bætir við: „Þetta var mikið ævintýri og gríð- arlega mikil og góð reynsla.“ Börn á biðlista Emilía ílengdist í Þýskalandi og dvaldi þar í þrjú ár við dans og fleira. „Þegar ég kom heim bauðst mér vinna í Dansstúdíói Sóleyjar í Reykjavík. Sóley kynnti mig síðan fyrir eiginmanni mínum, Skúla Bjarnasyni, og með honum fluttist ég til Njarðvíkur árið 1990, en þá gekk ég með eldra barnið okkar,“ segir Emilía og bætir því við að hún hafi sannarlega verið tilbúin í fjölskyldulíf eftir öll ferðalögin og ævintýrin. „Þegar dóttirin var orð- in fimm mánaða stofnaði ég skól- ann og fékk leigðan sal í líkams- ræktarstöðinni Perlunni í Keflavík. Fyrstu árin var ég eingöngu með danskennslu á laugardögum, en eftir því sem eftirspurn jókst og nemendurnir voru komnir lengra þá bætti ég við tímum. Þannig að þeir nemendur sem eru lengra komnir æfa nú tvisvar í viku.“ Dansskólinn hefur verið svo vin- sæll undanfarin ár að Emilía hefur þurft að setja marga á biðlista. „Ég vil geta sinnt þeim almenni- lega sem komast að, en á síðasta ári réð ég til mín danskennara, Berglindi Skúladóttur. Það er mik- ill munur að hafa hana, en hún sér um danstíma og ég er meira í tæknilegu hliðinni,“ segir Emilía að lokum og drífur sig af stað til að ná á réttum tíma í danskennsl- una. 100 nemendur eru við Jazzdansskóla Emilíu og biðlistar eftir að komast að Setja upp söng- leikinn Annie Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Emilía Dröfn Jónsdóttir tekur dansspor með nokkrum nemenda sinna. Keflavík Eldur í mann- lausri íbúð TÖLUVERÐAR skemmdir urðu af völdum reyks og sóts í íbúð í húsi við Garðaveg í Keflavík í gærmorgun. Íbúarn- ir voru að heiman. Slökkvilið Brunavarna Suð- urnesja fékk tilkynningu rétt eftir klukkan átta í gærmorg- un, frá nágrönnum, um að reykjarlykt fyndist frá íbúð í húsi við Garðaveg og að tvö börn væru sennilega í íbúðinni ásamt móður sinni. Tveir slökkviliðsbílar og sjúkrabíll komu fljótt á staðinn. Tveir reykkafarar fóru strax inn í íbúðina og aðrir tveir skömmu síðar. Kom þá í ljós að íbúarnir voru að heiman. Höfðu þeir farið í burtu fyrr um morg- uninn. Upptök í eldhúsi Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins var mikill hiti í íbúðinni en þó allar gluggarúð- ur heilar. Talið er að upptök eldsins hafi verið í eldhúsi íbúðarinnar, sennilega frá raf- magni. Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri segir að illa hefði getað farið ef fólkið sem fyrst kom að hefði brotið upp læsta hurð að íbúðinni því eld- urinn hafi verið í súrefnissvelti og mikill hiti í rýminu, við það hafi eldurinn aukist til mikilla muna. Slökkvistarf gekk vel og var íbúðin reykræst. Eldhúsið er talsvert brunnið og tölu- verðar skemmdir af völdum reyks og sóts. Samkvæmt upp- lýsingum slökkviliðsins vantaði rafhlöðu í reykskynjara sem var í íbúðinni. Keflavík MIKIÐ er sungið í safnaðarheim- ilinu í Sandgerði þessa dagana. Sex kórar syngja þar á þrennum tónleik- um á tæpri viku, samtals vel á annað hundrað manns. Söngurinn hófst síðastliðinn sunnudag þegar kirkjukórar Hvals- nes- og Útskálakirkna héldu að- ventutónleika, undir stjórn Pálínu Skúladóttur, nýráðins organista. Ína Dóra Hjálmarsdóttir söng einsöng, Brynja Dögg Jónsdóttir lét á þver- flautu og Einar Georg Einarsson las jólasögu. Nýstofnaður Barnakór Hvalsnes- kirkju söng einnig nokkur lög. Um 40 börn eru í kórnum og mikill áhugi meðal barnanna. Húsfyllir var á tón- leikunum. Í kvöld syngja Kvennakór Suður- nesja og Söngsveitin Víkingarnir í safnaðarheimilinu jólalög og kirkju- tónlist frá ýmsum tímum. Annað kvöld þar fram kór Banda- ríkjamanna af Keflavíkurflugvelli og syngur jólalög og gospelsöngva við tónlist. Unnendur söngs á Suðurnesjum ættu því að geta notið sín þessa dag- ana. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Mikið er sungið í safnaðarheimilinu þessa dagana, myndin er tekin á aðventutónleikum um helgina. Sex kórar á fimm dögum Sandgerði TRÍÓIÐ Guitar Islancio leikur á tón- leikum í Kaffi Duus í Keflavík á morgun, fimmtudag, klukkan 21. Guitar Islancio skipa þeir Björn Thoroddsen gítarleikari, Gunnar Þórðarson gítarleikari og Jón Rafns- son kontrabassaleikari. Þeir hafa leikið saman í rúm þrjú ár, haldið fjölda tónleika hérlendis og erlendis og gefið út þrjá geisladiska með ís- lenskum þjóðlögum í léttdjössuðum útsetningum. Á tónleikunum á Kaffi Duus munu félagarnir leika efni af nýútkomnum diski sínum, Guitar Islanco III, og lög af fyrri diskum. Guitar Islancio á Kaffi Duus Keflavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.