Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ AÐ KVELDI 30. september sl. horfði greinarhöfundur á ágætan þátt í umsjón dr. Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar er fjallaði um frelsið. Í þessum þætti var reynt að svara spurningu þess efnis hvort það væri lausnarorðið og sátu þar til svara nokkrir ágætir menn, þeir Ögmundur Jónas- son, Guðmundur Ólafs- son og Sigurður B. Stefánsson, allir valin- kunnir menn. Þáttur- inn var afar fróðlegur og mætti hér undirstrika nauðsyn þess að aðrir skjámiðlar sýni slíka framtakssemi sem Skjár einn sýnir með þessum þætti. Í þessum þætti virðist sem dr. Hannes hafi verið á rangri braut með að bera annars vegar saman austrið í Rússlandi og hrun komm- únismans þar við vestrið t.d. í Evr- ópu á kaldastríðsárunum og hins vegar Kína og Hong Kong. Saman- burðurinn virtist ganga út á að þarna væru góð dæmi þar sem frels- ið hafi komið framförum á og orðið til að bæta efnahag fólks almennt á meðan miðstýrð ríki kommúnismans leystust upp í vosbúð. Með einföld- unum sem þessum virðist sem dr. Hannes varpi óvarlega fram fullyrð- ingum sem standast ekki þegar nán- ar er að gáð. Hvers vegna hrundi Kína ekki þegar Sovétríkin hrundu? Í grund- vallaratriðum liggur svarið í því að Kína var nánast skuldlaust við al- þjóðastofnanir og banka í fjölda ára á meðan austantjaldsríkin söfnuðu skuldum til að byggja upp óarðbær- an stóriðnað. Einnig kom í ljós að þvingaður sparnaður, s.s. lífeyris- sparnaður, var umtalsverður og er nú nýttur á móti erlendu framlagi fjárfesta víða að til að byggja upp markaðshagkerfi sem nú er eitt hið öflugasta í heimi. Því er ljóst að Kínverjar hafa gert kraftaverk í því að byggja landið upp úr eymd og volæði sem orsakaðist m.a. vegna nýlendustefnu ríkja eins og Breta og Portúgala. Bent skal á að það voru Bretar sem þvinguðu Kínverja eitt sinn til uppgjafar eftir niðurlægjandi meðferð þeirra á þessari stoltu þjóð. Barátta Breta snérist um fíkniefna- innflutning þeirra til Kína í óþökk keisarans og það að þeir fengu Hong Kong skilyrðislaust. Auk þess vildu Bretar fullt frelsi til að selja fíkniefni, inn- flutt opíum frá Indlandi, til fjár- mögnunar á hinu breska stórveldi. Því má telja það hafa verið ansi auð- sótt fyrir Breta að ná að fjármagna uppbyggingu í Hong Kong og víðar. Þarna högnuðust þeir á ódýru vinnu- afli handan landamæranna í suður Kína, fengu allt land endurgjalds- laust og seldu ómælt magn fíkniefna til sárþjáðrar þjóðar sem þeir og þvinguðu beinlínis til neyslunnar. Þarna söfnuðust auðæfi sem Bretar ávöxtuðu vel og það þyrfti margar kynslóðir kjána ef þeim ætti að tak- ast að tapa öllu því fjármagni sem þarna hlóðst upp. Nokkru er um lið- ið frá þessum tíma en þetta sýnir mönnum hugsanlega ástæður þess að Kínverjar eru ekkert ginnkeyptir fyrir yfirgangi annarra ríkja og síst þeirra sem farið hafa svo að ráðum sínum. Að undanförnu, eða allt frá því að meistari Deng Xiaoping tók við völd- um í Kína eftir áralanga valdabar- áttu og fangelsisvist, hefur frelsi í Kína sjálfsagt aukist meira en nokkrar frelsisvísitölur Freedmans geta mælt vestanhafs. Þegar Stein- grímur Hermannsson, þá forsætis- ráðherra, hitti meistara Deng þá innti hann eftir því í hverju breyt- ingar hans á hagkerfinu fælust. Deng tjáði Steingrími að breyting- arnar fælust m.a. í frelsi, frelsi til viðskipta úti á strætunum rétt eins og hafði tíðkast um aldir í þessu forna ríki. Meistari Deng hóf þessa aðgerð í hrísgrjónaræktinni þar sem hann jók frelsi til framleiðslunnar til mikilla muna og þetta varð m.a. til þess að framleiðslan jókst og þeir sem stóðu sig ekki í framleiðslunni snéru sér að öðrum atvinnugreinum. Snéru menn sér m.a. að fiskirækt en þess ber að geta að nú rækta Kín- verjar meiri fisk en þeir veiða úr sjó og eru þeir þó mesta fiskveiðiþjóð heims. Þarna er það því frelsið sem meistari Deng veitir þjóð sinni til góðra verka en hann beitti því af mikilli snilld enda væri það á færi fárra að stjórna 1,2 milljörðum manna. Því er þó ekki að neita að mikil fá- tækt ríkir enn í Kína og mannrétt- indi víða ófullnægjandi. Hins vegar er því ekki að neita að um þessar mundir eru Kínverjar að byggja upp eitt stærsta hagkerfi heims sem mun knýja á enn meira frelsi einstak- lingsins þar í landi. Það mun síðar koma öllum til góða ef vel er á spöð- unum haldið. Þegar litið er til frjálsræðis hér á Íslandi er rétt að benda á mikilvægi þeirrar ábyrgðar sem fylgir því að fara með frelsið. Telja má að of lítið hafi fari fyrir þeirri umfjöllun í orð- ræðu þeirra ágætu manna er sóttu dr. Hannes heim í þann þátt sem fjallað var um frelsið. Það frelsi sem við búum nú við hér á landi hefur nú leitt til þess að skuldir heimilanna hafa aldrei verið meiri og er svo komið að skuldir heimila eru nú meiri en eigið fé þeirra án lífeyr- issjóða, þ.e. í ár er ekkert handbært fé til á heimilum landsmanna til að halda uppi einkaneyslunni sem menn hafa spáð að muni aukast til muna á næstu misserum. Líklega verður henni haldið uppi með auk- inni skuldasöfnun. Í hverju er þá frelsið falið ef ekki er til fjármagn til að auka fjárfest- ingu innanlands á næstu misserum, halda uppi hagkerfinu og nýjum stórmörkuðum? Á að hætta lífeyr- issjóðum landsmanna í áhættufjár- festingar? Verðum við að auka þvingaðan sparnað eins og skyldu- sparnaðinn sem var afnuminn hér um árið? Það er vandasamt að fara með frelsið og við höfum tæplega öll náð tökum á þeirri ábyrgð sem felst í að höndla eigið frelsi. Hins vegar er það engin lausn að halda aftur af því að auka frelsið því að halda frelsinu frá mönnum kennir þeim örugglega ekki að fara rétt með það. Bjartur í Sumarhúsum taldi sig frjálsan á sinni jörð þegar hann spjallaði við tík sína úti á túni. Alltaf var hann þó háður öðrum og endaði uppi slyppur og snauður, öreigi í vol- uðu landi. Hvort það hefði verið kommúnismi Rússa eða Kínverja sem hefði getað bjargað honum er óvíst með. Hins vegar er það deg- inum ljósara að ekki var það sam- vinnuhugsjónin sem hann bjó við eða frelsið sem hann taldi sig búa við sem bjargaði honum. Því er það lík- lega eins með frelsið og margt annað sem við höndlum í lífinu að veldur hver á heldur. Er lausnar- orðið frelsi? Sveinn Óskar Sigurðsson Frelsi Það er vandasamt að fara með frelsið, segir Sveinn Óskar Sigurðs- son, og við höfum tæp- lega öll náð tökum á þeirri ábyrgð. Höfundur er framkvæmdastjóri. NÚ í desember fagnar Félag náms- og starfsráðgjafa 20 ára afmæli sínu og mun halda upp á tímamótin með pompi og pragt hinn 14. desember nk. Námsráðgjafar hafa öðlast stöðugt mikil- vægari sess innan skóla- og menntastofn- ana undanfarin ár. Náms- og starfsráð- gjafa má finna á vinnu- miðlunum út um allt land, hjá Menningar- og fræðslusambandi alþýðu, sem fræðslu- stjóra fyrirtækja og stofnana og víðar. En hvað er þessi stétt að gera? Hefur þessi stétt slitið barns- skónum og sannað mikilvægi sitt? Skólakerfið Öllum ber saman um það í dag að náms- og starfsráðgjöf sé nauðsyn- leg á háskólastiginu. Algengt er að framhaldsskólanemar þurfi aðstoð við að greina á milli fjölbreytts námsframboðs háskólagreina og sí- fellt fjölgar háskólunum hér á landi. Hver er munurinn milli náms- brauta? Hvers lags starf bíður mín ef ég lýk þessari gráðu við þennan háskóla o.s.frv. Námsráðgjöf hefur verið veitt við Háskóla Íslands í 20 ár og á sér þar langa sögu og far- sæla. Í framhaldsskólum má líkja vali á námsbraut við frumskógarferð. Auðvitað eru sumir nemendur á leið um skóginn með sína sveðju og vita nákvæmlega hvert hugurinn stefnir og þangað halda þeir ótrauðir. Hinir eru miklu fleiri, sem þykir hann ær- ið illfær og sjá ótal möguleika eða jafnvel engan nógu fýsilegan. Ný námskrá hefur litið dagsins ljós fyr- ir framhaldsskólann og leiðirnar eru óhemju fjölbreyttar. Þar er jafnframt lögð mikil áhersla á mik- ilvægi markvissrar námsráðgjafar. Nú skiptir líka máli hvaða áherslur nemandinn lagði í grunnskólanum, ekki eru allar leiðir jafn greiðfærar. Viltu stunda verknám, hefðbundið bóknám, og á hvaða braut, styttra starfsnám, listnám eða ...? Spurn- ingarnar eru óteljandi sem leita á huga unglingsins og ekki er svo víst að þeim fáist öllum svarað hjá for- eldrum eins og algengara var hér á árum áður. Skólakerfið, sem betur fer, hefur tekið miklum stakka- skiptum og þróunin orðið ör. Nem- endur mega því hafa sig alla við til að höndla allt þetta upplýsingaflóð og þá getur verið gott að eiga rólega stund með námsráðgjafanum sín- um, velta vöngum, afla upplýsinga og vega og meta möguleikana. En hvað þá með grunnskólann? Er þörf á námsráðgjöfum á því skólastigi? Ný námskrá fyrir grunnskólann hefur einnig komið út og þar, líkt og í þeirri sem tilheyrir framhaldsskólanum, er margítrekað gildi öfl- ugrar námsráðgjafar. Nú skipta þær náms- áherslur miklu máli sem nemandinn leggur undir lok grunnskóla- námsins. Þær hafa áhrif á það hvaða leiðir standa honum opnar þegar í framhaldsskól- ann kemur. Námsráð- gjafar vinna ötult starf innan grunnskólans og veita nemendum hans gagnmerkar upplýs- ingar um nám að hon- um loknum. Með komu nýs fræðslustjóra í Reykjavík árið 1997, er gerði sér góða grein fyrir vaxandi þörf fyrir öfluga ráðgjöf í grunnskólum, hefur námsráðgjöf á því skólastigi vaxið fiskur um hrygg og nemendur, og foreldrar, notið þar góðs af. ,,Ég hlakka ekki til afmæl- isveislunnar minnar“ Náms- og starfsráðgjafar stunda ekki bara námsráðgjöf í þrengstri merkingu þess orðs. Segja má að starfsheitið feli það í sér að veita ráðgjöf um ýmis málefni meðan á námi og/eða starfi stendur eða þeg- ar leita skal að námi og/eða starfi. Hugsanlega er starfsheitið nem- endaráðgjafi gagnsærra eða jafnvel skólaráðgjafi þegar um skólakerfið er að ræða, en látum það liggja á milli hluta. Námsráðgjafinn er trúnaðarmað- ur nemandans. Öll eigum við við okkar vandamál að glíma, einhvern tímann ævinnar. Öll þekkjum við það að standa frammi fyrir erfiðri ákvarðanatöku í einkalífi, sem og námi eða starfi. Stór ákvörðun á einu sviði hefur, að öllu jöfnu, áhrif á líf okkar allt. En að áhyggjurnar tilheyri unglings- eða fullorðinsár- um eingöngu er ekki alls kostar rétt. Tökum dæmi. Átta ára nem- andi bankar upp á hjá námsráðgjaf- anum sínum og virðist áhyggjufull- ur. Hann sest inn og tjáir námsráðgjafanum það að hann hafi áhyggjur af foreldrum sínum. Þau rífist og sér líði svo illa út af því. „Kannski eru þau að rífast af því ég er ekki nógu duglegur?“ Barnið tjá- ir sig óhikað og loks komast þau að þeirri niðurstöðu að líklega sé nú rétt að foreldrarnir fái að vita af þessum áhyggjum barnsins svo þeir geti upplýst það um hvort þær eigi við rök að styðjast. Þarna getur ver- ið afskaplega gott að hafa millilið, sem getur opnað umræðuna fyrir barnið. Svo var það nemandinn sem hafði svo miklar áhyggjur af komandi af- mælisveislu sinni. „Í fyrra var svo leiðinlegt, það var ekkert að gera og krakkarnir voru að tala um það. Ég er búin að segja mömmu það en henni fannst ég ekkert þurfa að hafa áhyggjur af því, það verður „ábyggilega“ skemmtilegt, en ég veit að það verður það ekki. Ég gat ekki sofnað í gærkvöldi því ég vil ekki að bekkjarsystkinum mínum leiðist aftur hjá mér og þetta er núna á sunnudaginn.“ Eftir spjall hjá námsráðgjafanum voru komnar upp hugmyndir að leikjum til að fara í, leikritum til að æfa og ým- islegt fleira bar á góma er létti áhyggjum af litlu manneskjunni sem hélt léttstígari í átt að skóla- stofunni sinni. Það er gott að hafa einhvern til að tala við þegar eitthvað virðist óleys- anlegt í augnablikinu og fá aðstoð við að skoða ýmsa, áður órannsak- aða, möguleika. ,,Það var leið- inlegt í afmæl- inu mínu…“ Svandís Ingimundar Námsráðgjafar Í framhaldsskólum má líkja vali á náms- braut, segir Svandís Ingimundar, við frumskógarferð. Höfundur er formaður Félags náms- og starfsráðgjafar og námsráðgjafi Tækniskóla Íslands. Allt til jólanna í Hólagarði        
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.