Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 49 Fimmtudagskvöldið 13. desember. mun sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúspr estur, halda fyrirlestur í Fossvogskirkju undir fyrirsögn- inni: Jólin og sorgin. Þetta er fjórða fræðslukvöld Nýrrar dögunar, sam- taka um sorg og sorgarviðbrögð, á þessu hausti, í samvinnu við Kirkju- garða Reykjavíkurprófastsdæma og prófastsdæmin. Að auki hefur félagið staðið fyrir óformlegum samverum í þrjú skipti og sorg- arhópur er starfandi undir leiðsögn sr. Jóns Bjarman. Fræðslukvöldið á fimmtudaginn hefst kl. 20 og stend- ur til kl. 22. Allir eru velkomnir í Fossvogskirkju og aðgangur er ókeypis, en boðið er upp á hress- ingu, umræðu og stutta kyrrð- arstund að fyrirlestrinum loknum. Jólin og sorgin MIKIL spenna ríkir nú í sjöttu umferð heimsmeistaramótsins í skák, undanúrslitum. Tefldar eru fjórar kappskákir og eftir fyrstu tvær skákirnar er jafnt í báðum einvígjunum: V. Ivanchuk – V. Anand 1-1 Peter Svidler – R. Ponomariov 1-1 Öllum skákunum hefur lokið með jafntefli. Verði jafnt eftir kapp- skákirnar verða tefldar skákir með styttri umhugsunartíma. Að mati margra er Ivanchuk sá eini sem tal- ist getur eiga möguleika á að velta Anand úr sessi. Hann er hins vegar ekki eins taugasterkur og Anand og það hefur oft reynst honum dýr- keypt. Hafi hann náð tökum á þess- um veikleika getur allt gerst, þann- ig að gríðarlega spennandi verður að fylgjast með framhaldi einvígis þeirra. Heimsmeistaraeinvígi kvenna fer nú einnig fram á sama stað og þar er tveimur skákum lokið. Staðan er sú, að Alexandra Kosteniuk (Rúss- landi) og Chen Zhu (Kína) standa jafnt að vígi eftir fyrstu tvær skák- irnar. Kosteniuk sigraði í fyrstu skákinni, en Chen Zhu í annarri. Í fimmtu umferðinni hjá körlun- um átti Anand ekki í erfiðleikum með Shirov, sigraði í fyrri skákinni og sú síðari endaði með jafntefli. Annars urðu úrslit þessi í fjórðu umferð: Shirov – Anand 1½-½ Gelfand – Svidler 2½-3½ Ponomariov – Bareev 3-1 Lautier – Ivanchuk 2½-3½ Það hafa verið tefldar margar skemmtilegar skákir á heimsmeist- aramótinu eins og „glanspartíið“ hér á eftir er dæmi um, en þessi skák var tefld í þriðju umferð móts- ins. Hvítt: Nikolic (Bosníu) Svart: Anastasjan (Armeníu) Drottningarindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5. Da4 c5 6. Bg2 Bb7 7. dxc5 – (Eftir 7.0–0 cxd4 8.Rxd4 Bxg2 9.Kxg2 einfaldast taflið of mikið, að mati Nikolic.) 7...bxc5 8.0–0 Be7 9.Rc3 0–0 10.Bf4 d6 11.Hfd1 Db6 12.Hab1 -- (Önnur leið er 12.Hd2 Hd8 13.Had1 Ra6 14.Db5 Re8 15.Rg5 Bxg2 16.Kxg2 Rac7 17.Da4 h6 18.Rf3 Rf6 19.e4 e5 20.Be3 Re6 með nokkuð jöfnu tafli (Antosh- in-Szabo, Moskvu 1963). 12...Ra6 13.a3 Bc6 (Nýr leikur. Þekkt er 13...Hac8 14.Dc2 Hfd8 15.e4 h6 16.De2 Bc6 17.e5 dxe5 18.Rxe5 Bxg2 19.Kxg2 Rb8 20.h4 Rc6 21.Rxc6 Dxc6+ 22.Df3 með jöfnu tafli, sem svartur reyndar vann (Piket-Gelfand, Monte Carlo 1999)). 14.Dc2 Hfd8 15.e4 Db7 16.Re1 Hab8 17.De2 e5?! (Það er varasamt fyrir svart að veikja þannig d5-reitinn. Frumleg leið til jafntefli er 17...Re8 18.Rd5 Bf8 19.Rc3 Be7 20.Rd5 Bf8 o.s.frv.) 18.Bg5 h6?! (Svartur hefði betur haldið í ridd- arann með 18...Re8 til að verja d5- reitinn, t.d. 19.Bxe7 Dxe7 20.Rc2 Hb3 21.Re3 Rac7 22.Rf5 Df6 23.Dc2 Hbb8 24.b4 með örlítið betra tafli fyrir hvít.) 19.Bxf6 Bxf6 20.Rc2 Db3 21.Re3 Rc7 22.Hd3! Bg5 23.Rf5 Dxc4? 24.f4! -- (Svartur hefur líklega einungis reiknað með 24.Rxd6 De6 25.Hbd1 Re8 26.Rxe8 Hxd3 27.Dxd3 Dxe8 með lítið eitt þægilegri stöðu fyrir hvít.) 24...exf4 (Eða 24...Bf6 25.fxe5 og svartur má ekki drepa til baka á e5: 25. -- dxe5 (25...Bxe5 26.Re7+ Kf8 27.Rxc6) 26.Hxd8+ Hxd8 27.Dxc4 og hvítur vinnur.) 25.gxf4 Bf6 (Það er alltaf sama sagan: 25. -- Bxf4 26. Re7+ Kf8 27. Rxc6 o.s.frv.) 26.e5! Bxg2 (Ekki 26. -- dxe5? 27.Hxd8+, ásamt 28.Dxc4 o.s.frv.) 27.exf6 Re6 28.Rxh6+! Kh7 (Enn er staða svörtu drottning- arinnar á c4 til vandræða: 28...gxh6? 29.Hg3+ Kh8 30.Dxc4 o.s.frv.) 29.Rf5 g6 (Ekki gengur 29...Rxf4? 30.Dg4 g6 31.Dh4+ Rh5 (31...Kg8 32.Re7+ Kf8 33.Dh8+ mát) 32.Dxc4 og hvít- ur vinnur.) 30.Dg4 He8 (Svartur er kominn í klípu, sem engin góð leið er út úr, t.d. 30...Dxd3 31.Dh4+ Kg8 32.Re7+ Kf8 33.Dh8+ mát, eða 30...gxf5 31.Dh4+ Kg8 32.Hg3+ Rg5 33.Hxg5+ Kf8 34.Dh8+ mát, eða 30...Kg8 31.Dh4 Hb7 32.Rd5 Dxd5 33.Hxd5 Bxd5 34.Re7+ Hxe7 35.fxe7 He8 36.Df6 og hvítur vinn- ur.) 31.Rd5! Kg8 (Um aðra leiki svarts má vísa til skýringa við næsta leik á undan, hvítur vinnur í öllum tilvikum á sama hátt og lýst er þar.) 32.Dh4 Dxd5 (Eða 32...Hb7 33.Rfe7+ Hbxe7 34.Rxe7+ Hxe7 35.fxe7 Rg7 36.Hxd6 Re8 37.He1 Kg7 38.Kxg2 Rxd6 39.e8D Rxe8 40.Hxe8 Dd5+ 41.Kg1 Dd4+ 42.Df2 Dd7 43. He1og hvítur vinnur auðveldlega.) 33.Hxd5 Bxd5 34.Re7+ Hxe7 35.fxe7 Rd4 36.Df6 -- (Svartur hefði getað gefist upp í þessari stöðu, með góðri samvisku!) 36. -- Rf5 37.He1 He8 38.Kf2 Be6 39.Hxe6! fxe6 40.Dxg6+ Rg7 41.Df6 d5 42.Kf3 d4 43.h4 Kh7 (Eða 43...d3 44.h5 d2 45.Ke2 Rxh5 46.Dxe6+ Kg7 47.Dg4+ Kh6 48.Dg5+ Kh7 49.Dxh5+ og tjaldið fellur.) 44.Df8 c4 45.h5 (og loksins hafði svartur fengið nóg og gafst upp. Hann ræður ekk- ert við sókn hvítu drottningarinnar og peðanna á kóngsvæng.) Kasparov hafði betur í hraðskákinni Samhliða heimsmeistarakeppn- inni í skák tefldu þeir Kramnik og Kasparov einvígi í Moskvu, sem haldið var til minningar um Mikhail Botvinnik fyrrverandi heimsmeist- ara. Um var að ræða þrjú einvígi, kappskák, atskák og hraðskák. Fjórar kappskákir voru tefldar og lauk þeim öllum með jafntefli. At- skákaeinvíginu lauk einnig með jafntefli, 3-3, eftir að Kasparov hafði unnið fyrstu skákina. Kram- nik náði síðan að jafna stöðuna með sigri í lokaskákinni. Það var svo loksins í hraðskákunum sem dró til tíðinda. Kasparov vann fyrstu skák- ina og í kjölfarið fylgdu fjögur jafn- tefli, þannig að Kasparov hafði vinnings forystu þegar einvígið var hálfnað. Þá seig hins vegar á ógæfuhliðina hjá Kramnik sem tap- aði næstu þremur skákum og þar með einvíginu. Allar tíu skákirnar voru engu að síður tefldar og Kramnik náði að rétta sinn hlut lít- illega með því að fá 1½ vinning úr síðustu tveimur skákunum. Kasp- arov sigraði því 6½-3½. Spennandi undan- úrslit á HM í skák SKÁK Moskva HEIMSMEISTARAKEPPNI FIDE 27.11. 2001–26.1. 2002 SKÁK Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson KIRKJUSTARF Bústaðakirkja: Starf með öldruðum í dag kl. 14 hefst með helgistund í kirkjunni. Jóla- saga og söngur. Boðið upp á súkkulaði og kökur í safnaðarheimilinu á eftir. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10. Létt- ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr- irbænum í síma 562 2755. Grensáskirkja: Foreldramorgunn kl. 10– 12. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíu- lestur, bænastund, kaffiveitingar og sam- ræður. Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10 ára börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára börn kl. 17.30. Háteigskirkja: Morgunbænir kl. 11. Súpa og brauð kl. 12 í Setrinu á neðri hæð safn- aðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æfir kl. 16.30 und- ir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætl- aður börnum úr 1.–3. bekk. Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börn- um úr 4.–6. bekk. Kvöldbænir kl. 18. Laugarneskirkja: Jólafundur kirkjuprakkara kl. 14.10–15.30. Nú verður gaman að koma á fjölbreyttan og spennandi fund. Neskirkja: Foreldramorgunn kl. 10. Fræðsla: Mataræði ungbarna. Hjúkrunar- fræðingur af Heilsugæslustöðinni á Sel- tjarnarnesi sér um efnið. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. 7 ára starf kl. 14. Öll börn í 2. bekk velkomin. Skráning í síma 511 1560. Opið hús kl. 16. Spjallað yfir kaffi og með- læti. Lestur úr ævisögu sr. Jóns Steingríms- sonar. Umsjón Örn Bárður Jónsson. Bæna- messa kl. 18. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Árbæjarkirkja: Kyrrðarstund kl. 12. Orgel- spil, söngur, fyrirbænir og heilög kvöldmál- tíð. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eft- ir gegn vægu verði. Opið hús fyrir aldraða frá kl. 13–16. Kirkjuprakkarar kl. 17–18. Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja: Fjölskyldumorgnar kl. 10. Foreldrum er velkomið að taka þátt í sam- veru fram undir hádegi með börnum sínum. Helgistund kl. 11. Unglingadeild Digranes- kirkju og KFUM&K, 13–16 ára, kl. 20. Jóla- fundur. Grafarvogskirkja: Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lok- inni stundinni. Allir velkomnir. KFUM fyrir drengi 9–12 ára, kl. 17.30–18.30. Kirkju- krakkar í Rimaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag í Engjaskóla fyrir börn í 8.–9. bekk kl. 20–22. Hjallakirkja: Fjölskyldurmorgnar kl. 10. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Litlir læri- sveinar í Lindaskóla kl. 17. Kópavogskirkja: Starf með 8–9 ára börn- um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börn- um, TTT, á sama stað kl. 17.45–18.45. Seljakirkja: Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega vel- komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnun í kirkj- unni í síma 567 0110. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl- mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Er- lendur sjá um akstur á undan og eftir. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn- ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtu- dögum kl. 10–12. Opið hús fyrir eldri borg- ara í dag kl. 13. Helgistund, spil og kaffi- veitingar Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lága- fellsskóla á miðvikudögum frá kl. 13.15– 14.30. Keflavíkurkirkja. Miðvikud. 12. des.: Kirkj- an opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkju- lundi kl. 12.25 – súpa, salat og brauð á vægu verði – allir aldurshópar. Umsjón: Ásta Sigurðardóttir. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10 og 13.30 koma leikskólar í kirkjuheimsókn, kl. 18–19 æfing hjá litlum lærisveinum í safn- aðarheimilinu. Kl. 20 opið hús í KFUM&K- húsinu fyrir unglinga. Kl. 23.30 jólatón- leikar Samkórsins. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Friðrikskapella. Aðventukvöld í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður Jónas Þórisson, fram- kvæmdastjóri hjálparstarfs kirkjunnar. Karlakórinn Fóstbræður og Valskórinn syngja. Allir velkomnir. SÍK, Háaleitisbraut 58. Samkoma kl. 20.30. Hjónin Elísabet Jónsdóttir og Bjarni Gíslason tala. Ingunn og Sveinn Einar syngja. Allir velkomnir. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Ómar Aðalfundur Hverfafélag sjálfstæðismanna í Austurbæ/ Norðurmýri verður haldinn í Valhöll, Háaleit- isbr. 1, í kvöld, miðvikud. 12. des., kl. 18. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Gestur fundarins Jóna Gróa Sigurðardóttir, borgarfulltrúi. Stjórnin. FÉLAGSSTARF Aðalfundur Hverfafélags sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi verður haldinn í Valhöll, Háaleitisbraut 1, í kvöld miðvikudaginn 12. desember kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Gestur fundarins: Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi. Fundarstjóri: Hannes Þ. Sigurðsson. Stjórnin. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  18212128  9.0*.  GLITNIR 6001121219 III  Njörður 6001121219 Jf. I.O.O.F. 7  18212127½  Jv. I.O.O.F. 9  18212128½  Jv.Kk.  HELGAFELL 600112129 IV/V  EDDA 6001121220 III Fræðslu- fundur Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60 Samkoma í Kristniboðssalnum í kvöld kl. 20.30. Elísabet Jónsdótt- ir og Bjarni Gíslason tala. Söngur: Ingunn og Sveinn Einar. Allir hjartanlega velkomnir. Sik.is R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is Myndakvöld í F.Í.-salnum miðvikud. 12. des. kl. 20.30. Haukur Jóhannesson sýnir „Á tröllaslóðum“ - myndir úr Árneshreppi á Ströndum ásamt myndum frá öðrum landshlutum. Smákökur og kaffi. Aðgangseyrir 500. Vetrarsólstöður á Esju sun. 16. des. Enn nokkur pláss laus í ára- mótaferð í Landmannalaugar. Sjá www.fi.is, textavarp RÚV s. 619.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.