Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. svæði kennarans, sem voru vistaðar á unix-netþjóni Reiknistofnunar HÍ, sem hafi verið aðgengilegar. Þessar möppur séu að jafnaði lítið notaðar því kennarar reiði sig að mestu á harða diska í sínum eigin tölvum. Undirmöppur hjá þessum tiltekna kennara hafi ekki verið verndaðar fyrir óviðkomandi aðgangi þar sem hann hafi ekki haft vitneskju um að hann þyrfti sjálfur að gefa skipanir um að vernda gögnin. Páll bætir við NEMI í véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands komst að því á sunnudagskvöld að skráasafn kenn- ara var aðgengilegt en í því var skjal merkt „lokaprof2001.doc“ og bar skráasafnið sama heiti og nám- skeiðið sem neminn átti að þreyta próf í daginn eftir. Á heimasíðu sinni segist nemandinn ekki hafa skoðað prófið heldur lét hann vita af þessu og benti jafnframt á dæmi um próf í öðrum deildum sem haldin verða á næstunni og voru að hans sögn opin öllum nemendum HÍ. Páll Valdimarsson, skorar- formaður í véla- og iðnaðarverk- fræðiskor, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að hann hefði enga ástæðu til að ætla að nemendur hefðu skoðað umrætt próf. „Ég get samt ekki sagt af eða á um það,“ sagði Páll. Hann tekur fram að það hafi að- eins verið undirmöppur af heima- að þetta tiltekna próf hafi að öllum líkindum verið aðgengilegt í afar stuttan tíma. Páli var gerð grein fyrir málinu á mánudagsmorgun, skömmu áður en prófið átti að fara fram. Hvorki þótti ástæða til að fresta prófinu né heldur var svigrúm til að leggja nýtt fyrir. Aðspurður hvort ekki hafi verið talin hætta á misferli seg- ist Páll ekki telja að svo hafi verið. Hefði verið um slíkt að ræða kæmi það væntanlega fram þegar farið yrði yfir prófin. Það myndi vænt- anlega vekja grunsemdir ef einhver nemanna sýndi óeðlilega góðan námsárangur á prófinu miðað við frammistöðu sína yfir veturinn. Páll ber lof á nemann sem lét vita af hinu umrædda prófi og segir hann hafa brugðist hárrétt við. Sæþór L. Jónsson, forstöðumaður Reiknistofnunar HÍ, sagði að girt hefði verið fyrir möguleika á óvið- komandi aðgangi að sambærilegum skráasöfnum hjá öllum starfs- mönnum skólans. Fleiri dæmi hefðu komið í ljós um að nemendur hefðu aðgang að hluta af heimasvæði kennara en hann hefði ekki vitn- eskju um hvort próf hefðu verið vistuð þar. Aðspurður sagði hann að hægt væri að sjá hvort gögnin hefðu verið skoðuð en sagðist ekki geta tjáð sig um hvort svo hefði verið. Nemandi í véla- og iðnaðarverkfræði tilkynnti að nemendur hefðu aðgang að prófum Hluti af heima- svæði kennara var aðgengilegur STÍGANDI, útgerð Ófeigs II VE, sem fórst undan Vík í Mýrdal aðfara- nótt miðvikudagsins 5. desember sl., hefur ákveðið að skip sem verið er að smíða fyrir útgerðina í Kína muni ekki bera nafnið Ófeigur VE eins og til stóð, heldur Stígandi VE. Að sögn Þorsteins Viktorssonar útgerðar- manns var ákvörðunin tekin í fram- haldi af slysinu í síðustu viku en þá hafi margir velt fyrir sér sögu skips- nafnsins Ófeigur. Skipskaðinn í síð- ustu vikur var sá þriðji í sögu útgerð- arinnar þar sem Ófeigsnafnið kemur við sögu en árið 1943 fórst Ófeigur VE með allri áhöfn og Ófeigur III VE strandaði við Þorlákshöfn í byrjun árs 1988. „Í ljósi fyrri harmleikja og skaða sem útgerðin hefur orðið fyrir þá var ákveðið að nýja skipið skyldi ekki bera Ófeigsnafnið. Ég tel samt sem áður að skipskaðarnir tengist ekki nafninu á neinn hátt, Ófeigur hefur ætíð verið mjög farsælt og fengsælt skip. Nýja skipið mun hinsvegar bera sama nafn og útgerðin, Stígandi, en skip með því nafni tengdist útgerðinni hér áður fyrr,“ segir Þorsteinn. Skipið sem er í smíðum fyrir Stíg- anda í Guangzhou í Kína sökk í höfn stöðvarinnar í mars á þessu ári og lést þá einn kínverskur starfsmaður stöðvarinnar. Þorsteinn segir að væntanlega verði nýja skipinu reynslusiglt í lok þessa mánaðar. Nýja skip- ið mun ekki heita Ófeigur *+ GENGI krónunnar styrktist um 2,7% í gær og er það mesta styrking hennar frá því að gjaldeyr- ismarkaði var komið á fót hérlendis. Davíð Odds- son forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að tíð- indi um drög að samkomulagi milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem nú lægju fyrir hefðu haft góð áhrif á gengi krónunnar. „Ég vona að þessir samningar gangi allir eftir og gefi okkur færi á að viðhalda kaupmætti laun- anna, sem er meginmarkmiðið; að standa vörð um þá kaupmáttaraukningu sem orðið hefur,“ sagði Davíð Oddsson í viðtali við Morgunblaðið í gær. Vísaði hann þar í viðræður milli fulltrúa Al- þýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins í gær um leiðir til að vinna bug á verðbólgu og koma í veg fyrir að launalið kjarasamninga verði sagt upp. Við umræður á Alþingi í gær kvaðst forsætisráðherra ánægður með að samningar skuli vera að takast. „Það er algerlega ljóst að það mun hafa mjög góð áhrif á stöðu krónunnar, gengið og þar með á verðbólguna sem hefur ver- ið of mikil eins og við höfum alltaf sagt, gengið hefur verið of lágt skrifað,“ sagði Davíð. Vísitala krónunnar lækkaði í gær úr 148,96 stigum í 145 en hún mælir verð erlends gjald- eyris og lækkar þegar krónan styrkist. Davíð segir þetta hafa tengst fréttum af viðræðum aðila vinnumarkaðarins. Ráðherra sagði ýmis jákvæð merki í efnahagslífinu. „Ég tel líklegt og nokkuð ljóst að þessir samningar með öðrum þáttum, eins og afgreiðslu fjárlaga með afgangi, muni ýta undir að okkur takist það, sem við höfum stefnt að, að tryggja stöðugleikann og jafnvægi í efna- hagslífinu.“ Mesta styrking krón- unnar á einum degi Forsætisráðherra segir viðræður aðila vinnumarkaðarins hafa góð áhrif á gengið  Vonar að/32 JÓLASVEINARNIR fara nú að tínast til byggða og fyrstur að vanda er Stekkjarstaur, stífur eins og tré. Þau börn sem til þess höfðu unnið fengu væntanlega eitthvað gott í skóinn frá karli í nótt. Stekkjarstaur nýtti sér nú- tímasamgöngur þegar hann tók sér strætó frá hlíðum Esjunnar í gær, þar sem hann býr ásamt bræðrum sínum og Grýlu og Leppa- lúða, og þaðan var ekið til Reykjavíkur. Á leiðinni hitti hann nemendur úr 1. bekk Ár- bæjarskóla í Ártúni, söng með þeim og sprell- aði. Morgunblaðið/Golli Tók strætó til byggða SKIPVERJA af Kaldbaki EA tók út í gærkvöld á Eyjafirði en náðist um borð eftir um 10 mínútur í 6 gráða heitum sjónum. Maðurinn var orðinn kaldur þegar hann bjargaðist og var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri, en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Óhappið varð þannig að maðurinn flæktist í vír sem var að renna fyrir borð. Skipsfélagar hans köstuðu bjarghring með ljósi á eftir honum og slegin var inn staðsetning í því skyni að finna manninn eftir að skipinu var snúið. Skipverjinn var ekki í flotgalla þegar óhappið varð og náði aldrei taki á hringnum. Skipsfélagar hans fóru út á vélbát og fundu hann eftir að hafa elt ljósið frá bjarghringnum sem var skammt frá manninum. Bjargað úr sjónum í Eyjafirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.