Morgunblaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 24
ERLENT
24 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
EIGINMENN mega vara sig. Mikil
vinna eiginkvenna þeirra getur ver-
ið heilsuspillandi fyrir þá. Sú er
a.m.k. niðurstaðan úr rannsókn Ross
Stolzenberg, félagsfræðings við Há-
skólann í Chicago. Hann komst að
því, að eiginmenn kvenna sem unnu
meira en 40 tíma á viku voru umtals-
vert heilsuveilli en aðrir kvæntir
menn. Rannsóknin leiddi ennfremur
í ljós, að langur vinnutími eig-
inmanna hafði engin skaðleg áhrif á
heilsufar eiginkvenna þeirra, hvort
sem þær unnu utan heimilisins eða
ekki.
En það er hægt að túlka nið-
urstöðurnar á annan veg, sem Stolz-
enberg sagði að ef til vill hefði best
komið fram í titli ritgerðar er birtist
á áttunda áratugnum: Varúð, kyn-
hlutverk karla kann að vera heilsu-
spillandi.
Greining Stolzenbergs birtist ný-
verið í tímaritinu American Journal
of Sociology, og byggist á upplýs-
ingum er safnað var 1986 frá 2.867
fullorðnum einstaklingum. Tekið
var viðtal við þátttakendurna þrem-
ur árum síðar. Í báðum tilfellum
voru þátttakendur beðnir að meta
heilsufar sitt á bilinu frá „frábært“
til „slakt“. (Rannsóknir hafa ítrekað
leitt í ljós að svona sjálfsmat er ná-
kvæmara en mat læknis, segir Stolz-
enberg).
Aukavinna bætir heilsufar
Stolzenberg fékk staðfest það sem
þegar var vitað, þ.e., að hjónaband
er heilsusamlegt. Bæði kvæntir
menn og giftar konur voru mun lík-
legri en einhleypingar til að segja að
heilsufar sitt væri gott. Einnig kom í
ljós að langur vinnudagur hafði eng-
in sýnileg áhrif á heilsufar bæði
karla og kvenna. Aukavinna virtist
meira að segja bæta heilsufar flestra
karla.
Stolzenberg varð fyrst undrandi á
niðurstöðunum þegar hugað var að
áhrifum vinnu kvenna á eiginmenn
þeirra. „Færri en 40 vinnustundir
eiginkvenna á viku höfðu engin
áhrif á heilsu eiginmannanna, en
fleiri en 40 stundir höfðu talsvert
neikvæð áhrif,“ segir Stolzenberg.
Hvers vegna skyldi vinnugleði
konu vera hættuleg heilsu eigin-
manns hennar? Stolzenberg segir að
ástæðan sé að stórum hluta sú, að
eiginmenn og eiginkonur hafi enn
ólíkum hlutverkum að gegna í
hjónabandinu – og það er enn að
miklu leyti hlutverk konunnar að
gæta að heilsu fjölskyldumeðlim-
anna.
„Konum er innrætt frá barnæsku
að bæta heilsufar fjölskyldunnar,
huga að heilsunni, vera meðvitaðar
um sjúkdómseinkenni. Það eru líka
þær sem eru líklegri til að koma á
félagslegum samskiptum, og þægi-
leg samskipti virðast auka heilbrigði
vegna þess að þau eru einhver besta
leið sem vitað er um til að draga úr
streitu,“ fullyrðir Stolzenberg.
Hann komst að því, að konur sem
vinna langan vinnudag höfðu minni
tíma til að gera hluti eins og að
minna eiginmenn sína á að borða
heilsusamlegan mat eða taka lyf, og
Mikil vinna eiginkvenna
hættuleg heilsu makans
The Washington Post.
ÍSRAELSKIR hermenn felldu í
gær tvo Palestínumenn í loftárás,
sem beint var að palestínskri ör-
yggismiðstöð á Gaza-svæðinu. Árás-
in átti sér stað skömmu áður en
evrópsk sendinefnd hóf friðarum-
leitanir í Jerúsalem ásamt Banda-
ríkjamönnum.
Friðarumleitanir undanfarinna
daga hafa skilað litlum árangri og
hafa Bandaríkjamenn nú tilkynnt
að Anthony Zinni, sérstakur sendi-
fulltrúi þeirra, hafi ekki í hyggju að
hætta milligöngu þrátt fyrir fyrri
hótanir sínar. Meðal sendifulltrúa
Evrópusambandsins (ESB) var
Javier Solana, æðsti talsmaður
Evrópusambandsins í utanríkis- og
varnarmálum, sem fundaði með
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna, í bænum Ramallah á Vest-
urbakkanum í gær. En á mánudag
hafði Solana krafist þess að Arafat
leysti upp samtök á borð við Hamas
og Jihad.
„Ég mun segja Arafat það sama
og ég hef verið að segja við hann
undanfarið. Hann verður að halda
áfram að berjast gegn hryðjuverk-
um,“ sagði Solana við fréttastofu
AFP, en stjórn Ísrael hefur oft
sinnis sakað ESB um að draga
taum Palestínumanna. Hörð um-
mæli Solana eru hins vegar talin
benda til þess að ESB hafi nú nálg-
ast stefnu Bandaríkjanna, sem
þrýsta í síauknum mæli á Arafat að
taka á sjálfsmorðsárásum.
Reuters
Vopnaðir Palestínumenn þramma eftir þröngum götum Dheisheh-flóttamannabúðanna í nágrenni Betlehem.
Solana fundar
með Arafat
Gaza-svæðið. AP, AFP.
4.4#45#+0.*"66"
9
&
:
5
'/
':
0
4'
;
:
'
;';
0
</5 '''
0
/=$
&
=&
& '
0'
(
:%; D+
'1<
*"##
.
< $-
??
1<
""
.
- 4' EF
G
H
26
2
I2J2/
KLM4M
C26>6
E% IN
$4.
6! ! #
/ #
5( 1<
*
('
7 O.
""""/
<%
9> 8
!
#
FUNDUR tuga friðarverðlauna-
hafa Nóbels og margra þekktra
fræðimanna á ýmsum sviðum um
átök á 20. öld og lausnir á nýrri
öld fór fram í Ósló um liðna helgi.
Geir Lundestad, formaður norsku
Nóbelsnefndarinnar, sagði að
vafalaust yrði áfram deilt næstu
hundrað árin um forsendurnar
fyrir verðlaunaveitingum. Nefnd-
in væri stundum sökuð um að
hygla sjónarmiðum þeirra sem
aðhylltust draumóra og óraun-
sæjar staðleysuhugmyndir og í
öðrum tilvikum væri hún sögð
ganga of langt í raunsæinu, til
dæmis þegar umdeildir stjórn-
málamenn hefðu verið verðlaun-
aðir.
„Það er hægt að segja margt
gott um stuðningsmenn stað-
leysuhugmynda í heiminum, þeir
hafa svo oft reynst vera hinir
sönnu raunsæismenn. Og raunsæi
verður oft kaldlyndi,“ sagði
Lundestad. En hann minnti á að
oft tækist stjórnmálamönnum að
stilla til friðar. Einn fundargesta
minnti á að oft kostuðu þeir miklu
til: Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra Ísraels, hefði verið myrtur.
„Hnattvæðing með
friðsamlegri ásjónu“
Gunnar Staalsett, biskup Ósló-
arborgar, var fundarstjóri en
hann hefur gagnrýnt mjög loft-
árásir Bandaríkjamanna á Afgan-
istan og þá ákvörðun að erlendir
hryðjuverkamenn verði dregnir
fyrir herrétt vestra.
„Ég er ekki friðarsinni og við-
urkenni að hervald sé nauðsyn-
legt,“ sagði Staalsett, „en það er
stig valdbeitingarinnar sem ég
gagnrýni.“
Hann sagðist telja að eitt mesta
vandamál aldarinnar yrði hvernig
fást skyldi við laustengd, alþjóð-
leg ofbeldisamtök á borð við al-
Qaeda, hryðjuverkanetið sem
Osama bin Laden fer fyrir. Einn-
ig væri brýnt að tryggja að bilið
milli fátækra og ríkra héldi ekki
áfram að breikka og koma á
„hnattvæðingu með mannlegri
ásjónu“. En það myndi kosta pen-
inga og Staalsett sagðist ekki al-
veg viss um að fólk væri reiðubúið
að borga.
Sagnfræðingurinn Eric Hobsb-
awm sagði í erindi sínu að hann
teldi erfiðasta viðfangsefnið á öld-
inni verða að taka á ofbeldi sem
efnt væri til af hálfu einstaklinga
eða hópa en ekki ríkja eins og ver-
ið hefði á 20. öldinni. Hann var
svartsýnn á að nýhafin öld yrði
friðsamari en hin liðna. Þess má
geta að einn af málshefjendum
átti að vera utanríkisráðherra
Ísraels, Shimon Peres, en hann sá
sér ekki fært að mæta.
Bent var á að sjúkdómar eins
og alnæmi ýttu undir óstöðug-
leika og væri mikilvægt að vinna
bug á þeim til að hindra upplausn
og átök.
Málamiðlanir og hjálparstarf
Meðal þeirra sem töluðu á ráð-
stefnunni í Ósló var Norðmaður-
inn Morten Rostrup, fulltrúi sam-
takanna „Læknar án landa-
mæra“. Hann lýsti reynslu
samtakanna af því að starfa í ein-
ræðislöndum sem oft væri erfitt.
Hefðu þau til dæmis verið rekin
frá Norður-Kóreu eftir að hafa
gagnrýnt að aldrei væri útskýrt
hverjir fengju hjálpargögnin, allt
slíkt væri leyndarmál. Ráðamenn
ækju sjálfir um á glæsivögnum en
almenningur sylti, yfir þrjár millj-
ónir manna hefðu dáið úr hungri í
landinu 1995 til 1998.
Blaðamaður Morgunblaðsins
spurði Rostrup hvort fleiri alþjóð-
legar stofnanir hlytu ekki að rek-
ast á sams konar vanda í einræð-
islöndum. Hann sagði það óhjá-
kvæmilegt.
„Þegar verst lætur verðum við
eins og hver annar hluti af kerfinu
í alræðislöndunum,“ sagði Rostr-
up. „Vandinn er alltaf sá sami:
Hvað mikla málamiðlun er hægt
að sætta sig við gagnvart stjórn-
arfarinu? Stundum erum við
raunsæ og kyngjum ýmsu. En í
Norður-Kóreu var engin undan-
komuleið, við urðum að gagnrýna
þá. Við verðum að vera heiðarleg í
því sem við gerum og segjum og
taka þá áhættu að vera vísað
burt,“ sagði Morten Rostrup.
Uppgangur
öfgahópa
helsta ógnin
Ósló. Morgunblaðið.