Morgunblaðið - 12.12.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR skömmu gerðu ritstjórar
tímaritsins Science grein fyrir grein
sem doktorarnir Oddur Ingólfsson
og Alec M. Wodtke, prófessorar í
eðlisefnafræði við Kaliforníuhá-
skóla í Santa Barbara í Bandaríkj-
unum, fengu birta eftir sig í Phys-
ical Review Letters nýverið, en
mjög eftirsóknarvert þykir að fá
þar birtingu og ekki síður að fá at-
hygli Science.
Í hverju blaði Science er bent á
það sem merkilegast þykir í fræð-
unum. Ritstjórarnir velja það sem
hefur verið birt í vísindatímaritum í
sömu viku, fjalla um efnið og helstu
niðurstöður og benda á viðkomandi
grein til aflestrar.
Umrædd grein fjallar um sam-
eindaþyrpingar, Bridging the
Cluster-to Bulk Divide: Electron
Attachment Time-of-Flight
Spectrometry Reveals Geometrical
Shell Closings in (SF6)n Clusters
(n=2-550). Höfundar könnuðu
þyngdargreiningu á bíómólikúlum
og útbjó Oddur Ingólfsson sérstakt
tæki vegna þessara greininga. Við
það tækifæri könnuðu þeir þessar
sameindaþyrpingar og það kveikti
áhuga þeirra á frekari rannsóknum,
að sögn Odds, en þetta gengur út á
spurninguna hvenær fastur hlutur
sé orðinn fastur hlutur.
Hann segir að í tugi ára hafi verið
barátta um að reyna að finna út
hvenær gasfasi rennur yfir í fastan
fasa en það virðist vera mjög háð
mólikúlunum. Hann segir að einna
erfiðasta viðfangsefnið sé á milli
nokkurra tuga mólikúla og um 1000
mólíkúla en þetta sé það svæði sem
þeir hafi rannsakað í sam-
eindaþyrpingum.
Physical Review Letters birtir
ekkert nema það sé alveg nýtt og
segir Oddur Ingólfsson það mikla
viðurkenningu að fá þar inni.
Oddur Ingólfsson hefur verið við
Kaliforníuháskóla undanfarin tvö
ár, m.a. við vinnu að þessu verkefni,
en áður var hann í Japan í þrjú ár
og þar áður í áratug í Berlín, þar
sem hann nam fræðin.
Oddur Ingólfsson við tækið sem hann smíðaði vegna rannsóknarinnar.
Vísindagrein eftir Íslending vekur athygli
LEIFUR Sigurðsson, sem
starfað hefur sem kristniboði
í Kenýa síðustu árin á vegum
Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga, átti nýlega þátt í
að skíra um 600 manns
ásamt samstarfsmönnum sín-
um. Fóru athafnirnar fram í
bæjunum Kasei og Alale í
Kara-Pókot héraði í Kenýa.
Margir bíða lengi
eftir að fá að skírast
Íslendingar hafa starfað
að kristniboðs- og hjálp-
arstörfum í Pókot í Kenýa
sem er í vesturhluta landsins
í yfir tvo áratugi og hafa
fjölmargir skírst til krist-
innar trúar. Stofnuð hefur
verið innlend lútersk kirkja í
landinu og felst starf kristni-
boðanna í dag að mestu í
ráðgjöf og aðstoð við upp-
fræðslu. Kristniboðar eru
einnig að störfum í Eþíópíu á
vegum SÍK þar sem þeir hafa
verið allt frá árinu 1954.
Í skírnarathöfnunum í
Kasei og Alale voru jafnt
börn sem fullorðnir skírðir
og segir Leifur Sigurðsson
að margir hafi beðið allt frá
síðasta sumri eftir að fá að
skírast.
Leifur Sigurðsson kristniboði við eina skírnarathöfnina.
Íslending-
ur skírir
Kenýabúa
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, Jón
Kristjánsson, ætlar að láta fara yf-
ir þá úttekt sem Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja, BSRB, lét
gera á þróun lyfja- og læknis-
kostnaðar sjúklinga. Einnig verða
kallaðir til fundar í heilbrigðis-
ráðuneytinu þeir sem að úttektinni
stóðu. Hún sýndi m.a. töluverða
hækkun milli áranna 1990, 1996 og
2001, mismunandi eftir sjúkdóm-
um, auk þess sem mikill munur
reyndist vera á lyfjakostnaði milli
höfuðborgarsvæðisins og lands-
byggðarinnar.
Jón Kristjánsson sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið fagna allri
umræðu og rannsóknarvinnu um
heilbrigðismál og hvernig betur
mætti gera í þeim málaflokki.
Hann sagði mismun á lyfjakostn-
aði milli landshluta vera alvarlegt
mál sem þyrfti að skoða sérstak-
lega. Full ástæða væri til að kanna
ástæður sem þar lægju að baki.
„Eitt af því sem við munum
skoða er hvort um er að ræða sam-
bærilegar læknismeðferðir og
hvernig framfarir í rannsóknum og
lyfjameðferð koma þar inn í. Að-
alverðsprengingin virðist vera
milli áranna 1990 og 1996. Síðan
hefur þetta verið í nokkru jafn-
vægi, að einni læknismeðferð und-
anskilinni sem BSRB tók fyrir,“
sagði Jón.
Ráðherra lætur kanna tölur BSRB
um aukinn kostnað sjúklinga
Skoða þarf mun
á lyfjakostnaði
eftir landshlutum
KJARASAMNINGUR Sjúkraliða-
félags Íslands við fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkisins, Reykja-
víkurborg, sjálfseignarstofnanir í
Reykjavík og nágrenni og launa-
nefnd sveitarfélaga var samþykkt-
ur með tilskildum meirihluta í at-
kvæðagreiðslu félagsmanna.
Sjúkraliðafélagið á enn ósamið
við nokkrar minni stofnanir og
sveitarfélög, auk SÁÁ-Vogs, en
þar er ágreiningur um lífeyris-
sjóðsaðild sjúkraliða, sem vilja fá
aðild að lífeyrissjóði ríkisstarfs-
manna.
Gildistími kjarasamninganna
sem nú hafa verið samþykktir er
frá 1. nóvember 2001 til 30. nóv-
ember árið 2004.
Sjúkraliðar
samþykkja
samninga
MESTI munur á hæsta og lægsta
verði á lyfjum er 325% samkvæmt
könnun sem Alþýðusamband Íslands
gerði nýverið á lyfjaverði í lyfjaversl-
unum hér á landi. Í könnuninni kom
jafnframt fram að minnsti munur á
hæsta og lægsta verði er 25%. Sam-
kvæmt könnuninni er meiri verðmun-
ur á milli hæsta og lægsta verðs hjá
örorku- og ellilífeyrisþegum en hjá al-
mennum sjúklingum.
Í fréttatilkynningu frá ASÍ kemur
fram að umrædd könnun hafi farið
fram í nóvember sl. og náði hún til
lyfjaverðs í lyfjaverslunum í Reykja-
vík og á landsbyggðinni. Kannað var
verð á 25 tegundum lyfseðilsskyldra
lyfja, 16 tegundum lausasölulyfja og
11 tegundum af ýmsum vörum. Var
fyrsti hluti könnunarinnar sendur
fjölmiðlum á mánudag en hann snýr
að lyfseðilsskyldum lyfjum. Þar kem-
ur m.a. fram að bæði hafi verið kann-
að verð á lyfjum til almennra sjúk-
linga og til örorku- og ellilífeyrisþega.
Hlutur sjúklings
oft felldur niður
Í tilkynningu frá ASÍ kemur fram
að skv. reglugerð um þátttöku al-
mannatrygginga í lyfjakostnaði er
hlutur sjúklings mismunandi eftir
merkingu lyfja. „Lyfjunum er skipt
upp í þrjá flokka: B-merkt lyf, E-
merkt lyf og O-merkt lyf. Í B-merkt-
um lyfjum greiðir almennur sjúkling-
ur að hámarki 3.100 kr. fyrir lyfið en
örorku- og ellilífeyrisþegar greiða að
hámarki 950 kr. Almennir sjúklingar
greiða hámark 4.500 kr. í E-merktum
lyfjum en örorku- og ellilífeyrisþegar
greiða að hámarki 1.250 kr. Í O-
merktum lyfjum tekur Trygginga-
stofnun ekki þátt í kostnaði,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Þá segir: „Eitthvað er um að apó-
tek felli niður hluta sjúklinga í lyfja-
kostnaði. Aðallega er það gert hjá ör-
orku- og ellilífeyrisþegum, en eftir því
sem kostnaður sjúklings er minni, er
auðveldara fyrir lyfsöluna að gefa
töluverðan afslátt, eða sleppa því að
rukka fyrir lyfið. Þetta er síðan enn
auðveldara fyrir lyfsöluna eftir því
sem meira magn er keypt af sama lyfi
í hvert skipti.“
Verðmunur mestur á
Enapríl-lyfjum
Eins og fram hefur komið var
mesti verðmunurinn á lyfjum allt að
325% en sá verðmunur var á svo-
nefndum Enapríl OF-töflum fyrir ör-
orku- og ellilífeyrisþega. Það lyf var
ódýrast hjá Apótekinu Nýkaup eða á
217 kr. (Eftir að könnunin var gerð
var Apótekinu Nýkaup breytt í
Lyfju) og hjá Apótekinu Akureyri.
Dýrast var lyfið í Hafnar Apóteki eða
á kr. 981. Í könnuninni er bent á að
Enapríl-lyfið er B-merkt lyf en lyf í
þeim flokki falla undir mestu niður-
greiðslu frá Tryggingastofnun ríkis-
ins.
Þá kemur fram í könnuninni að
verðmunurinn er meiri en 100% á átta
lyfjum bæði hjá almennum kaupend-
um og örorku- og ellilífeyrisþegum.
Umrædd lyf eru Femanor-breytinga-
skeiðshormón og Imovane-svefntöfl-
ur. „Þess má geta að samheitalyf
Imovane, Zopiklon og Sovel, eru tölu-
vert ódýrari en munurinn á hæsta og
lægsta verði þessara lyfja var mestur
40% á móti 140% á Imovane.“
Minnsti munur milli hæsta og
lægsta verðs er 25%. Þar er um að
ræða sjö lyf. „Athygli vekur að sex
þeirra falla undir O-merkt lyf, en í
þeim flokki tekur Tryggingastofnun
ekki þátt í kostnaði. Í öllum tilfellum
eru lyfin ætluð almennum sjúkling-
um. Má því draga þá ályktun að verð-
samkeppni sé meiri á þeim lyfjum þar
sem Tryggingastofnun tekur stærri
þátt og lyfjum til örorku- og ellilífeyr-
isþega, þ.e. í B- og E- merktum lyfj-
um,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.
!
"#$
!
!"
!"
#" $
%
!&" ' !" #
%
&"
(
"(
(
"(
(
"(
(
"(
(
"(
(
"(
)*(
)*(
)*(
)*(
)*(
)*(
"
" " "# " +
(
+"
(
,
-.+
*"+"
,
(
"#
" " "#
"
0
"
" " "
# "
"
" " ##
"
#
# "
Könnun Alþýðusambands Íslands á lyfjaverði sýnir mikinn verðmun
Verðmunur allt að 325%