Morgunblaðið - 12.12.2001, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ENN ríkir góðæri á saltfiskimörk-
uðum og engin ástæða til örvænt-
ingar þótt verð hafi lækkað um 10%
á undanförnum mánuðum, að mati
Halldórs Arnarsonar, innkaupa- og
sölustjóra SÍF hf. Norskir saltfisk-
seljendur kvarta yfir því að verð á
saltfiski sé orðið alltof hátt, inn-
flutningsaðilar hafi keypt upp eins
mikið magn og þeir mögulega geta
en þeir virðist ekki geta selt neitt
nú, ekki einu sinni besta og stærsta
fiskinn.
Fram kemur í norska sjávarút-
vegsblaðinu Fiskeribladet að
ástandið er hvað verst á portúgalska
saltfiskmarkaðnum og vilja sumir
markaðsaðilar í Noregi jafnvel
ganga svo langt að kalla markaðinn
dauðan. Það sé því óhjákvæmilegt
að verð taki að lækka á ný.
Halldór Arnarson, innkaupa- og
sölustjóri hjá SÍF, segir það rétt að
saltfiskmarkaðurinn hafi verið
nokkuð þungur að undanförnu.
„Venjulega er mikil spurn eftir
stórum saltfiski á haustin og hækk-
andi söluverð. Verðið hækkaði hins
vegar ekki síðastliðið haust og sum-
ir framleiðendur náðu ekki að koma
framleiðslu sinni inn í jólasöluna og
lenda þar af leiðandi í verðlækk-
unum. Það er mjög óvenjulegt og
jafnvel einstakt. Skýringanna má
leita í því að verðið hefur í hámarki
lengi og það getur ekki gengið til
lengdar.“
Gæði norska saltfisksins mun
lakari en þess íslenska
Halldór vill þó ekki ganga svo
langt að segja að um sölutregðu sé
að ræða og bendir á að Íslendingar
hafi allt aðra stöðu á saltfiskmark-
aðnum en Norðmenn. Til að mynda
hafi SÍF selt um 2.500 tonn af salt-
fiski til Portúgal á á síðustu tveimur
mánuðum og því sé ekki hægt að
segja að markaðurinn sé dauður.
„Uppistaðan í saltfiskframleiðslu
Norðmanna er smár og millistór
fiskur. Gæði norska saltfisksins
standa gæðum íslenska fisksins
langt að baki og reyndar hafa gæði
norska fisksins verið óvenju léleg á
þessu ári. Norðmenn selja saltfisk
þar að auki með allt öðrum hætti en
Íslendingar, þeir selja ekki staðlað-
an fisk og gæðameta hann ekki
heldur. Þess vegna mæta þeir mun
meiri samkeppni við fisk af öðrum
uppruna en Íslendingar gera, svo
sem Rússafisk sem fluttur frosinn til
Portúgal, flattur þar og saltaður. Ís-
lendingar hafa hinsvegar töluverða
sérstöðu á markaðnum, fiskurinn
okkar er stærri og gæði hans mun
meiri. Í raun má segja að við spilum
í annarri deild en Norðmenn.“
Verðið var of hátt
Halldór segir það engu að síður
staðreynd að verð á saltfiski hafi
verið of hátt. Hann telur að verðið
hafi náð hámarki og búast megi við
einhverjum verðlækkunum. Hins
vegar sé engin ástæða til örvænt-
ingar.
„Fyrir um það bil einu ári síðan
hækkaði verð á saltfiski um 25-30% í
evrum talið og síðan koma einnig til
gengisbreytingar á krónunni. Það
fór í raun ekki að reyna á þetta verð
á markaðnum fyrr en síðastliðinn
vetur, um það leyti sem kúariðufárið
stóð sem hæst og sjómannaverkfall-
ið var hér heima. Þegar áhrif þessa
fóru að fjara út kom í ljós að verðið
var of hátt og töluverð óvissa ríkti á
markaðnum í kjölfarið. Kaupendur
brugðust við óvissunni með ákveð-
inni varfærni og umhverfið var því
nokkuð ólíkt því sem við höfum séð
undanfarin þrjú ár.
Að mínu mati er ástandið á mark-
aðnum núna eins og það á að sér að
vera. Við þurfum að aðlaga verðið
markaðnum og ég þori að fullyrða
að það mun áfram ríkja góðæri í
saltfiskvinnslu. Verð er ennþá mjög
hátt í sögulegu samhengi, þrátt fyrir
um 10% verðlækkun á stærsta fisk-
inum er skilaverð til framleiðenda
ennþá um 700 krónur fyrir kílóið.
Það má jafnvel búast við að verð
lækki um 5% í viðbót en það er mun
minni lækkun en á gengi krónunnar
á þessu ári,“ segir Halldór.
Góðæri ríkir áfram
á saltfiskmörkuðum
Engin ástæða þykir til örvænt-
ingar þrátt fyrir verðlækkanir
Morgunblaðið/RAX
ÞOKKALEG loðnuveiði var
norðaustur af Kolbeinsey í
fyrrinótt. Töluvert sést af
loðnu á svæðinu en hún er erf-
ið viðureignar að sögn skip-
stjórnarmanna. Alls voru 9
loðnuskip á miðunum í fyrri-
nótt og fengu þau öll reyt-
ingsafla. Eitt þeirra var Birt-
ingur NK frá Neskaupstað en
skipið landaði um 450 tonnum
af loðnu á Raufarhöfn í gær-
kvöldi. Að sögn Guðmundar
Garðarssonar skipstjóra var
þó nokkrar lóðningar að sjá á
svæðinu um 35 til 40 sjómílur
norðaustur af Kolbeinsey, en
þær hafi hinsvegar skilað
litlu. „Bæði voru þær dreifðar
og auk þess sem loðnan liggur
í æti og skilar sér ekki í
nótina. Við fengum þennan
afla í tíu köstum á tveimur
sólarhringum en við getum
aðeins verið að yfir nóttina.
Þar sem loðnan er full af æti
fer hún væntanlega beint í
bræðslu. Það er engu að síður
gott að vita af einhverri loðnu
á þessum slóðum og það verð-
ur spennandi að vita hvernig
veiðarnar þróast í framhald-
inu,“ sagði Guðmundur.
Reytingur
á loðnu-
miðunum
FYRSTU níu mánuði þessa árs hafa
vanskil hjá innlánsstofnunum aukist
um tæp 74% eða úr 12,9 milljörðum
kr. í 22,4 milljarða, eða úr 2,1% af út-
lánum í árslok 2000 í 3,2% í lok sept-
ember 2001. Lítill munur er á þróun-
inni hvort heldur litið er á fyrirtæki
eða einstaklinga. Þetta kemur fram í
Fjármálafréttum Viðskiptastofu
SPRON þar sem unnið er úr tölum
sem Fjármálaeftirlitið hefur tekið
saman um þróun vanskila innláns-
stofnana.
Talnaefnið nær til vanskila sem
staðið hafa lengur en einn mánuð og
nær til allra viðskiptabankanna og
20 sparisjóða. Úrtakið nær til 99% af
heildareignum allra innlánsstofnana.
Sambærilegar tölur yfir vanskil
fyrirtækja sýna að vanskil hafa auk-
ist um 74% eða úr 7,3 milljörðum kr.í
12,7 milljarða kr., eða 1,6% af útlán-
um í árslok 2000 í 2,5% í lok sept-
ember 2001. Vanskil einstaklinga
hafa aukist um 70% eða úr 5,7 millj-
örðum kr. í 9,7 milljarða kr., þ.e. úr
3,4% af útlánum í árslok 2000 í 5,5% í
lok september 2001.
Aukin vanskil
hjá innláns-
stofnunum
Erfiðlega horf-
ir með samruna
HP og Compaq
Um 10% verðlækkun hefur orðið á stærsta saltfiskinum undanfarna mánuði.
SAMÞYKKT var á hluthafafundi í Ís-
lenska sjónvarpsfélaginu hf. í gær að
lækka hlutafé félagsins um 45,7 millj-
ónir króna, úr 152,2 milljónum í 106,5
milljónir. Skal lækkuninni allri ráð-
stafað til jöfnunar taps.
Jafnframt var samþykkt á fundin-
um að gefa út nýjan áskriftarrétt að
fjárhæð 45,7 milljónir á genginu 1,0
til fjárfestingarfélagsins Bröttubrúar
ehf. Í staðinn mun Brattabrú ehf.
lána Íslenska sjónvarpsfélaginu allt
að 120 milljónir króna með 30% vöxt-
um. Áskriftarréttindi gilda til 31. des-
ember 2003. Öllum hluthöfum í félag-
inu stendur til boða að ganga inn í
sambærileg kjör í samræmi við hluta-
bréfaeign í félaginu 27. nóvember
2001, enda lækki þá skuldbinding
Bröttubrúar ehf. í samræmi við fram-
lag annarra hluthafa.
Brattabrú ehf. er að stærstum
hluta í eigu hluthafa Íslenska sjón-
varpsfélagsins.
Í þriðja lagi samþykkti hluthafa-
fundur í Íslenska sjónvarpsfélaginu
að gefa út nýjan áskriftarrétt til
ESÓB ehf. að fjárhæð 15 milljónir
króna á genginu 2,5. Áskriftarrétt-
indin gilda til 31. desember 2002. Aðr-
ir hluthafar falla frá forgangsrétti
sínum.
Fjárfestingarfélagið ESÓB ehf. er
í eigu Óla Björns Kárasonar, ritstjóra
DV, Einars Sigurðssonar, Ágústs
Einarssonar prófessors, og Hjartar
Nielsen, framkvæmdastjóra Ísólar.
Í fundarboði hluthafafundar Ís-
lenska sjónvarpsfélagsins kom fram
að tillögur um framangreint hafi verið
settar fram til þess að tryggja endur-
fjármögnun félagsins í samræmi við
hluthafasamkomulag dagsett 27. nóv-
ember síðastliðinn.
Gunnar Jóhann Birgisson, stjórn-
arformaður Íslenska sjónvarps-
félagsins hf., segir að þeir sem sitja í
stjórn félagsins hafi talið þessar að-
gerðir nauðsynlegan hlekk í því að
tryggja fjármögnun félagsins. Í fram-
haldinu standi fyrir dyrum endur-
skipulagning á rekstri þess. Á þessu
stigi sé þó ekki hægt að segja til
hvaða ráðstafana verði gripið. Fjöl-
miðlamarkaðurinn sé snúinn og fyr-
irtækin á þeim markaði hafi almennt
staðið illa að undanförnu.
Lækkun á hlutafé
til jöfnunar taps
Endurfjármögnun Íslenska sjónvarpsfélagsins hf.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
STÆRSTU hluthafar Vátrygginga-
félags Íslands hafa ákveðið að fresta
því að skrá hlutabréf félagsins á
Verðbréfaþingi Íslands þar til síðar,
en eins og fram hefur komið hefur
verið unnið að því að opna félagið og
stefnt að því að skrá það á Verð-
bréfaþing Íslands.
Í nóvember var gefið út nýtt
hlutafé sem selt var starfsmönnum
auk þess sem Landsbanki Íslands,
sem er stærsti einstaki hluthafi VÍS,
seldi af sínum hlut til starfsmanna
sinna. Í tilkynningu frá bankanum
kemur fram að þessi sala gekk mjög
vel og eru hluthafar orðnir 574 tals-
ins.
Næsta skref er að stærstu núver-
andi hluthafar munu selja af sínum
hlut til fagfjárfesta nægilega stóran
hlut til að tryggja dreifingu hluta-
fjár. Stefnt var að því að þetta yrði
gert fyrir áramót ef markaðsaðstæð-
ur á hlutabréfamarkaði væru fyrir
hendi. „Eftir formlega könnun á því
sem gerð var af Verðbréfastofunni
hf., fyrir hönd stærstu hluthafa VÍS,
á meðal helstu fagfjárfesta í landinu
er niðurstaða hluthafanna sú að
fresta áformum um skráningu fé-
lagsins á markað þar til síðar. Það er
skoðun hluthafanna og félagsins að
aðstæður á markaði séu með þeim
hætti að það þjóni best hagsmunum
þeirra og félagsins að bíða með
skráninguna og kanna málið að nýju
á fyrri hluta næsta árs,“ segir í til-
kynningu Landsbankans.
Skráningu
VÍS á Verð-
bréfaþing
frestað
ÚTLIT er fyrir að erfitt geti reynst
að sameina tölvufyrirtækin Hewlett-
Packard (HP) og Compaq, sam-
kvæmt frétt á vefsíðu BBC síðastlið-
inn laugardag. Þar segir að stærsti
hluthafinn í HP, The David and
Packard Foundation, hafi að svo
stöddu tekið ákvörðun um að greiða
atkvæði gegn samruna fyrirtækj-
anna. Þessi samtök eiga rúmlega
10% hlut í HP og er sagt að stuðn-
ingur þeirra við samrunann sé for-
senda hans. Í tilkynningu frá HP og
Compaq er lýst yfir vonbrigðum með
ákvörðun samtakanna.
Ýmsir sérfræðingar á fjármála-
markaði eru sagðir telja að samrun-
inn sé úr sögunni vegna þessarar af-
stöðu stærsta hluthafa HP.