Morgunblaðið - 12.12.2001, Qupperneq 40
UMRÆÐAN
40 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝLEGA birtist í Morgun-
blaðinu ágæt grein eftir Gunnar
Hersvein og bar fyrirsögnina Ég
hugsa, þess vegna er ég til.
Setningin fræga, Cogito ergo
sum, sem kennd er við Descartes,
hefur víst ævinlega verið þýdd á
íslenzku svo sem gert var í þessari
fyrirsögn. Svo kirfilega hefðbund-
in er sú þýðing, að ekki yrði við
henni haggað, þótt sýnt yrði fram
á að hún væri ekki alls kostar
heppileg.
Þessa íslenzku setningu liggur
beint við að skilja svo: Ég er til
vegna þess að ég hugsa. En hér er
ekki um neitt orsakasamband að
ræða, heldur einungis ályktun,
hvað sem annars verður sagt um
þessa spaklegu fullyrðingu. Í
þetta sinn sem oftar virðist ergo
eiga að merkja samkvæmt því.
Það að ég hugsa er ekki talið or-
sök þess að ég er til, heldur sönn-
un þess. Því yrði setningin fræga
ef til vill fremur þýdd: Ég hugsa,
samkvæmt því er ég til.
En sem fyrr segir er hér um svo
ríka hefð að ræða, að jafnvel þótt á
yrði fallizt, mætti þar engu um
þoka. Og sízt af öllu lái ég nokkr-
um manni þá háttvísi að fylgja
hefðinni, þó að ég sé svo frakkur
að hafa orð á þessu.
Helgi Hálfdanarson
Ergo
Gjafapakkning
Vantar þig gjöf?
• Gefðu þá Trind
gjafapakkninguna
(3 tegundir í boði)
• Tilboðsverð
• Með Trind næst
árangur
Fæst í apótekum og snyrtivöruverslunum um allt land
Ath. naglalökk frá Trind fást í tveimur stærðum
Allar leiðbeiningar á íslensku
Fást í apótekum og snyrti-
vöruverslunum um land allt.
Me
ð
næ
rðu
ára
ngr
i
Með því að nota TRIND naglanæringuna færðu
þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo
þær hvorki klofna né brotna.
handáburðurinn
með Duo-liposomes.
Ný tækni í framleiðslu
húðsnyrtivara, fallegri,
teygjanlegri, þéttari húð.
Sérstaklega græðandi.
EINSTÖK GÆÐAVARA
=
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317 - www.trind.com
Frábærar vörur á frábæru verði.
Gerið verðsamanburð.
Nýjung
Ný
ju
ng
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roll-on“ eða borið á
með spaða frá
Nýjar handsnyrtivörur frá
Ekki síður fyrir táneglur.
er í forystu við framleislu á
handsnyrtivörum. Íslenskar leiðbeiningar.
Nýtt
Nail Balsam (naglanæring)
Nærir og styrki neglurnar,
viðheldur og eykur rakann á milli
naglalaganna.
Cuticle Balsam (naglabandanæring)
Nærir og græðir.
Nýtt
Ekta augnhára- og augnabrúnalitur, er
samanstendur af litakremi og geli sem
blandast saman, allt í einum pakka.
Mjög auðveldur í notkun. Fæst í
þremur litum og gefur frábæran
árangur. Hver pakki dugir í 20 litanir.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
Þýskar förðunarvörur
Tek á móti augnsjúklingum
í húsakynnum Sjónlags hf.
í Spönginni 39, annarri hæð
Tímapantarnir í síma 577 1001.
Sjá heimasíður: www.sjonlag.is
Lækningastofa einnig á Öldugötu 17 sem fyrr.
Einar Stefánsson, augnlæknir. EF ÞAÐ er rétt sem
ég hygg að sé, að björg-
unarþyrlur Varnarliðs-
ins hafi ekki verið kall-
aðar út vegna
Svanborgar SH við
Snæfellsnes sl. föstudag
fyrr en eftir að bilun
kom fram í þyrlu Land-
helgisgæslunnar undir
Snæfellsjökli, þá er eitt-
hvað mikið að í stjórn-
kerfi á sviði björgunar
við erfiðustu aðstæður.
Ég tala nú ekki um úr
því að ekki var til áhöfn
á aðra þyrlu Landhelg-
isgæslunnar eins og kom fram hjá
hinum frábæra flugstjóra Benóný Ás-
grímssyni í samtali á Stöð 2 sl. mánu-
dagskvöld. Fyrir nokkrum árum kom
í ljós misbrestur á skipulagningu við
að nota fullkomnustu tæki án tafar.
Þetta var við Reykjanes í mannskaða-
slysi, Eldhamarsslysinu, þegar þyrlur
Varnarliðsins voru kallaðar mjög
seint út til hjálpar.
Í útvarpsviðtali sl. mánudag við
skipverjann sem bjargaðist af Svan-
borgu sagði hann að skipstjóri sinn
hefði fengið upplýsingar um það að
þyrla Landhelgisgæslunnar ætti 20
mínútna flug eftir á slysstað. Þá voru
þeir enn þrír skipverjar af fjórum um
borð í Svanborgu að berjast fyrir lífi
sínu á strandstað undir Svörtuloftum.
Síðan bætti skipverjinn því við að þeir
hefðu beðið í a.m.k. 45 mínútur þar til
feikilegt brot reið yfir bátinn og tók
félaga hans í dauðann. Það er alltaf
erfitt að vekja efin upp, því þau vilja
vera mörg, en hvernig í
ósköpunum stendur á
því þegar tilkynnt er um
bát í hættu í vaxandi
óveðri á stað sem þess-
um að fleiri tiltæk björg-
unartæki, fleiri þyrlur,
eru ekki kölluð út strax
úr því að þau eru til stað-
ar. Sekúndubrotin geta
ráðið úrslitum. Einfalt
brjóstvit segir að tvær
þyrlur, eins og lesa mátti
stöðuna undir myrkur,
hefðu verið lágmark.
Auk þess að þyrlur
Varnarliðsins eru búnar
nætursjónaukum en flugstjóri Varn-
arliðsþyrlunnar, sem vann stórkost-
legt björgunarafrek, sagði að þeir
hefðu ekki átt möguleika á að reyna
björgun skipverjans á Svanborgu
nema með næturbúnað þyrlunnar um
borð. Sams konar búnað stendur til að
setja í þyrlur Landhelgisgæslunnar,
en það verður að fá forgang að ljúka
því verki.
Ef og ef og ef. Það er vont að nota
það orð á viðkvæmum tíma, en það er
einhver pottur brotinn í þessum sam-
skiptaleiðum og þó líklega aðallega
ákvörðunum um að nota þær, nota
möguleikana. Þyrluáhafnir Land-
helgisgæslunnar eru frábærar og
hafa unnið stórkostleg afrek, en það
er ekki þeirra að kalla út björgunar-
flotann. Þeir sem bera ábyrgð á því
verða að hnýta alla lausa enda, þá
fækkar efunum. Menn verða að læra
af reynslunni, því það er ljóst að ef all-
ur þyrluflotinn hefði verið kallaður út
strax þó ekki væri nema til vara þá
hefðu þyrlur hugsanlega getað at-
hafnað sig á strandstað í nær hálfa
klukkustund áður en tveir skipverjar
hurfu í hafið í einu ólagi.
Þetta skipulag verður að vera skot-
helt, því lenskan er sú að mikilvægar
ákvarðanir vilja fara úr böndum og
stundum getur mönnum ekki dottið
annað í hug en að það sé vegna þess
að einhver rígur sé í gangi eða tilfinn-
ingar sem eiga ekki heima í þáttum
sem lúta að baráttunni upp á líf eða
dauða. Ég er þó ekki að gera því
skóna í þessu tilviki, en það vantar að
taka afdráttarlaust af skarið þar sem
öryggi sjómanna og þeirra sem eru í
hættu skiptir öllu. Það má minna á að
það tók 18 ára baráttu að fá björg-
unarbúnað Sigmunds viðurkenndan.
Það var Halldór Blöndal þáverandi
samgönguráðherra sem tók loks af
skarið. Hann þorði. Þar hafði verið al-
ið á tortryggni, valdabaráttu og ein-
hverju sem er ótrúlegt að skuli eiga
sér stað. Fyrir skömmu sökk Ófeigur
VE skyndilega fyrir Suðurlandi, svo
skyndilega að ekki vannst tími til að
losa björgunarbátana handvirkt, en
Sigmundsbúnaðurinn brást ekki,
hann skilaði báðum björgunarbátun-
um sjálfvirkt upp á yfirborðið. 8 menn
af 9 björguðust, en það er líka hægt að
spyrja hvernig hefði gengið að finna
sjómennina í illviðri hafsins ef björg-
unarbúnaðurinn hefði ekki virkað.
Hvað tafði útkall
þyrluflotans?
Árni Johnsen
Sjóslys
Það er alltaf erfitt að
vekja ef-in upp, segir
Árni Johnsen, því að
þau vilja verða mörg.
Höfundur á sæti í Flugráði.
Á NÝAFSTÖÐNUM
landsfundi Samfylking-
arinnar var samþykkt
stefnumótun í málefn-
um samkynhneigðra á
Íslandi. Ungir jafnaðar-
menn höfðu ályktað um
þessi mál á sínum lands-
fundi nokkru áður og
var þeirra tillaga sam-
þykkt óbreytt á lands-
fundinum. Þessu ber að
fagna sérstaklega.
Afar mikilvægt er að
mynda þverpólitíska
samstöðu í þessum mál-
um hér á landi.
Í ályktuninni kemur
m.a. fram eftirfarandi:
Samfylkingin minnir á þá stað-
reynd að enn skortir margt til þess að
samkynhneigðir njóti jafnréttis á við
aðra þegna fyrir lögum. Í því sam-
bandi vekjum við athygli á eftirfar-
andi:
Lög um staðfesta samvist sem
gengu í gildi árið 1996 voru einstæður
áfangi í jafnréttisbaráttu samkyn-
hneigðra. Einnig voru mikilsverðar
bætur gerðar á löggjöfinni árið 2000.
Samt eru lögin ófullkomin og fjarri
því að jafnast á við hjúskaparlög. Hér
er brýnna úrbóta þörf:
a) Samkynhneigðum í staðfestri sam-
vist er ennþá ekki heimilt að ætt-
leiða börn nema um sé að ræða
börn maka þeirra.
b) Lesbíur í staðfestri samvist eiga
engan aðgang að tæknifrjóvgunum
á opinberum sjúkrastofnunum.
c) Landfræðilegar takmarkanir eru á
lögum um staðfesta samvist í þá
veru að íslenskum ríkisborgurum
með búsetu erlendis er ekki heimilt
að staðfesta samvist sína á Íslandi.
d) Kirkjulegum vígslumanni leyfist
ekki að veita samkynhneigðum
pörum staðfestingu samvistar, ein-
ungis sýslumönnum, borgardóm-
ara og fulltrúum þeirra.
Allar þessar takmarkanir á lögum
um staðfesta samvist eru gagnkyn-
hneigðum hjónum óþekktar. Hér er
um skýlaust misrétti að
ræða sem löggjafarvald-
inu ber að afmá hið
fyrsta.
Gagnkynhneigð pör í
óvígðri sambúð hafa að
uppfylltum skilyrðum
réttindi og skyldur sam-
kvæmt lögum sem ekki
gilda um samkynhneigð
pör í óstaðfestri sambúð
að uppfylltum sömu skil-
yrðum. Varðar þetta
ýmsa þætti löggjafarinn-
ar svo sem réttarstöðu
við slit sambúðar, al-
mannatryggingar og
skattamál. Mikilvægt er
að löggjöf sé samræmd að þessu leyti
svo að allir sitji við sama borð án tillits
til kynhneigðar.
Þjóðþing Hollendinga hefur fyrst
allra löggjafarþinga heims samþykkt
fullgild hjúskaparlög til handa sam-
kynhneigðum. Áður hefur Alþingi
sýnt framsýni og farið í fremstu röð
Norðurlandaþjóða við réttarbætur
handa samkynhneigðum. Það tæki-
færi blasir nú við Alþingi að taka for-
ystu með því að hefja víðsýna og mál-
efnalega umræðu til undirbúnings að
fullgildum hjúskaparlögum samkyn-
hneigðra á Íslandi og leiða málið til
farsælla lykta á næstu árum.
Mannréttindabarátta samkyn-
hneigðra varðar alla hvar í flokki sem
þeir standa. Um leið og þingmenn
Samfylkingarinnar skora á Alþingi að
sameinast um réttarbætur handa
samkynhneigðum í ljósi þess sem hér
er lýst, skora þeir á önnur stjórnmála-
félög og stjórnmálaflokka að fylgja
fordæmi sínu og styðja lýðréttindi
samkynhneigðra í verki með því að
taka baráttumál þeirra upp í stefnu-
skrá sína og vinna þeim fylgi á vett-
vangi íslenskra stjórnmála.
Réttindabarátta
samkynhneigðra
Guðrún
Ögmundsdóttir
Kynhneigð
Mannréttindabarátta
samkynhneigðra, segir
Guðrún Ögmunds-
dóttir, varðar alla.
Höfundur er alþingismaður.