Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFígo bestur í heimi,
Owen bestur í Evrópu/B1
Fjórir nýliðar í landsliðshópi
Guðmundar/B1
8 SÍÐUR28 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
ÞAÐ hlýtur að teljast harla óvenjulegt að standa jóla-
sveina að því að taka upp kartöflur í desember.
Fréttaritari Morgunblaðsins varð heldur en ekki
hissa þegar hann rak augun í tvo litla jólasveina sem
voru að taka upp kartöflur nú um miðjan mánuðinn.
Þegar betur var að gáð kom í ljós að þetta voru þau
Ingimar Sveinsson og Telma Lind Sveinsdóttir sem
voru að vinna „haustverkin“ í veðurblíðunni rétt fyrir
utan Djúpavog. Kartöflugarðurinn er á gömlum
kirkjustað, Hálsi, en ekki náðist að ljúka við að taka
upp kartöflurnar í haust. Jólasveinarnir höfðu reynd-
ar góða aðstoðarmenn, þá Svein Kristján Ingimars-
son, sem er faðir þeirra, og Ingimar Sveinsson, sem
er afi þeirra, og voru þeir ánægðir með uppskeruna.
Þeir sögðust aldrei fyrr hafa tekið upp kartöflur í
miðjum jólaundirbúningi enda sennilega fáir sem
geta státað af því.
Vonandi þurfa alvörujólasveinarnir þó ekki að fá
lánaðar kartöflur hjá þeim til að setja í skóinn fyrir
þessi jól!
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Telma Lind og Ingimar með dýrindis „desemberkartöflur“.
Haustverk í desember
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt Gunnar Guðmundsson
hf. og Tryggingamiðstöðina hf. til að
greiða manni bætur vegna varan-
legrar örorku sem hann hlaut þegar
þungur fleki féll af vörubíl og rann á
bifreið sem hann ók.
Í málinu var tekist á um hvort
maðurinn ætti rétt á bótum vegna
varanlegrar örorku eða ekki. Trygg-
ingarfélagið taldi að þar sem hann
væri kominn á ellilaun ætti hann
ekki slíkan rétt. Maðurinn starfaði
sem verkfræðingur en komst á elli-
laun þegar hann varð 65 ára. Slysið
varð fimm mánuðum síðar.
Í matsgerð lækna kemur fram að
hann hefur alla tíð verið heilsu-
hraustur en eftir slysið er hann með
stöðug, álagsbundin óþægindi við
vinstra hné og finnur til við gang. Þá
er hugsanlegt að hálshreyfingar
hans hafi skerst af völdum slyssins.
Ekki liggur fyrir að maðurinn hafi
haft fyrirætlanir um að taka til við
störf á ný og í matsgerðinni segir að
því sé ekki um varanlega örorku að
ræða samkvæmt hefðbundinni túlk-
un. Ætlaði hann sér á hinn bóginn að
hefja aftur störf yrði að álíta að
óþægindi frá hnénu myndu hamla
honum verulega við að hverfa aftur
til verkfræðistarfa og var varanleg
örorka hans metin 10%.
Í dómnum segir að þótt leiða megi
að því líkur að framtíðartekjuöflun
mannsins hefði verið fólgin í hefð-
bundnum skrifstofustörfum sé ekki
loku fyrir það skotið að hann hefði
getað nýtt sér aflahæfi sitt til ann-
arra starfa. Maðurinn eigi því rétt á
bótum vegna varanlegrar örorku.
Ekki miðað við meðallaun
Ekki var þó miðað við tekjur hans
síðustu þrjú ár þar sem þær þóttu
ekki góður mælikvarði á framtíðar-
tekjumöguleika mannsins. Þess í
stað var miðað við lágmarkslaun og
voru honum því dæmdar 354.200
krónur í bætur. Dómurinn féllst þó
ekki á að afleiðingar umrædds slyss
myndu hafa í för með sér fjártjón
fyrir manninn vegna skertrar getu
til starfa á heimili. Ekki var ágrein-
ingur um bætur vegna varanlegs
miska og þjáningar.
Málsvarnarlaun lögmanns manns-
ins, Guðna Á. Haraldssonar hrl.,
voru greidd úr ríkissjóði þar sem um
gjafsóknarmál var að ræða en
Tryggingamiðstöðin og Gunnar Guð-
mundsson hf. voru einnig dæmd til
að greiða andvirði þeirra til ríkis-
sjóðs, 200.000 krónur.
Helgi I. Jónsson héraðsdómari
kvað upp dóminn en Valgeir Pálsson
hrl. var til varnar.
Á rétt á bótum
þótt kominn
sé á ellilaun
ELDUR kom upp í stýrishúsi í
bátnum Sindra GK 270 er hann var
á veiðum í Patreksfirði nokkrar
mílur frá Blakki í gærmorgun.
Tveir menn voru um borð og hörf-
uðu þeir í björgunarbátinn undan
miklum reyk en sluppu ómeiddir
frá eldinum. Að sögn lögreglunnar
á Patreksfirði gerðist þetta mjög
skyndilega og höfðu bátsverjar
ekki tíma til að senda út neyð-
arkall, en Villi í Efstabæ BA 124
var á veiðum skammt undan. Hann
kom fljótt á vettvang og tók menn-
ina um borð.
Hafist var þegar handa við að
slökkva eldinn og gekk það greið-
lega með slökkvitækjum um borð í
Villa ásamt því að sjó var sprautað
yfir Sindra. Hann var síðan dreg-
inn til hafnar þar sem Brunavarnir
Vesturbyggðar kæfðu eldinn end-
anlega.
Að sögn lögreglu er óljóst um
ástæður þess að eldurinn kom upp
í bátnum, sem er talsvert skemmd-
ur af völdum eldsins innan í lúkar
og stýrishúsi.
Flúðu undan
miklum
reyk í björg-
unarbát
Morgunblaðið/Sigurbjörn Sævar
Eldur í báti
Sindri GK 270 við höfnina í Patreksfirði eftir að eldurinn var slökktur.
Leiknar
auglýsingar
á mbl.is
LESENDUM fréttavefjar mbl.is
er nú boðið upp á að skoða leiknar
auglýsingar á fréttavef mbl.is.
Auglýsingin birtist efst í hægri
dálki vefjarins þegar lesandinn
tengist vefnum. Auglýsingin birtist
í upphafi án hljóðs en með því að
smella á hljóðtáknið fyrir neðan
auglýsinguna er hljóðið gert virkt.
Einnig er hægt að skoða auglýs-
inguna eins oft og óskað er eftir
með því að smella á viðeigandi
hnapp.
Vill grípa
til neyðar-
réttar
STJÓRN Kirkjugarðs Hafnarfjarðar
telur að grípa þurfi til þess ráðs að
loka kirkjugarðinum fyrir öðrum en
heimamönnum, sem hafa greitt
kirkjugarðsgjöld til garðsins, ellegar
fyllist hann innan þriggja ára. Sam-
kvæmt bréfi sem stjórn garðsins lagði
fyrir bæjarráð á fimmtudag eru ekki
hafnar nema að mjög takmörkuðu
leyti framkvæmdir við stækkun
garðsins til austurs samkvæmt aðal-
skipulagi. Magnús Gunnarsson, bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar, segir að fram-
kvæmdir við stækkun séu háðar
hönnun Reykjanesbrautar sem sé á
lokastigi.
Undanfarin fimm ár hafa um 130
greftranir farið fram í garðinum ár-
lega. Þar af hafa heimamenn verið um
60% en aðrir um 40% eða rúmlega 50
talsins. Nú eru um 300 ný grafarstæði
eftir í nýrri hluta garðsins sem þýðir
að innan þriggja ára mun hann fyll-
ast. Landsvæði austan garðsins er
frátekið sem framtíðarland garðsins
samkvæmt gildandi aðalskipulagi.
Kirkjugarðurinn/14
Stjórn Kirkjugarðs
Hafnarfjarðar
Formlegri
leit hætt
FORMLEGRI leit að skipverjanum
sem saknað er af Ófeigi VE er lokið.
Björgunarsveitir frá Álftaveri,
Kirkjubæjarklaustri og Vík í Mýrdal
leituðu á laugardag og sunnudag frá
Skaftárósum að Reynisfjalli. Einnig
var leitað úr lofti frá Holtsósi undir
Eyjafjöllum austur að Skaftárósum.
Í leitinni tóku þátt 30 björgunar-
sveitarmenn á fjórum jeppum og
tveimur fjórhjólum. Í fréttatilkynn-
ingu frá Landsbjörgu segir að bænd-
ur á svæðinu verði hins vegar beðnir
að vera með eftirgrennslan á fjörum.
♦ ♦ ♦